Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 28

Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 28
28 | MORGUNBLAÐIÐ H ækkandi eldsneytisverð hefur ekki farið framhjá ökumönnum. Ekki er hægt að prútta við bensínpumpuna en reyna má að aka bílnum og um- gangast hann þannig að eldsneyt- isnotkunin sé minni frekar en meiri. Stefán Ásgrímsson er rit- stjóri FÍB-blaðsins og með fróðari mönnum þegar kemur að spa- rakstri. Hann segir mikinn mun geta verið á eyðslu bíls eftir því hvernig honum er ekið. „Reikna má með að það geti ver- ið allt að helm- ingsmunur á því að aka á spar- neytinn hátt og ósparneytinn. Sem dæmi átti ég eitt sinn spjall við mann sem var verk- stjóri hjá SVR og tjáði hann mér að sá bíl- stjóri sem æki hvað verst með tilliti til sparneytni eyddi tvöfalt meira eldsneyti á hvern kílómetra en sá sem minnstu eyddi.“ Stefán segir mikinn áhuga hafa kviknað á sparakstri samfara hækkandi verði á bensíndropanum. Hann segir eldsneyti vera svo stóran kostnaðarlið fyrir heimilið að margir sjái sig hreinlega knúna til þess að aka á eins sparneytinn hátt og frekast er unnt. FÍB hefur gert sparakstri góð skil og dreifir m.a. bæklingum til félagsmanna og á bensínstöðvum þar sem farið er í helstu grundvallaratriðin og árlega efnir félagið til sparaksturskeppni í samstarfi við Atlantsolíu, þar sem bílaumboðin tefla fram sínum spar- neytnustu bílum í „kappakstri“ frá Reykjavík til Akureyrar. „Þróunin er svipuð víða um heim og drifin áfram bæði af þörf fyrir að spara og eins að fara betur með um- hverfið. Í Bandaríkjunum má finna heilu áhugamannahópana og vef- síðurnar sem eru tileinkaðar spa- rakstri og reynir fólk þar t.d. að slá hvað öðru við í því að komast sem lengst á einum tanki.“ Á bíl sem hentar Sparakstur segir Stefán að sé í sjálfu sér enginn vandi. „Fyrst ber að huga að því hvaða bíll verður fyrir valinu. Fólk ætti að velja sér bíl sem samræmist þörfum þess og daglegu brúki. Ef ætlunin er að spara bensín er ekki skynsamlegt að vera á þriggja tonna jeppa ef bíllinn er aðeins notaður til að koma einni manneskju á milli staða innanbæjar.“ Þá má spara mikið með því að skipuleggja ferðirnar vel. „Eitt er að eyða sem minnstu á hvern ek- inn kílómetra og annað að spara óþarfa króka og skutl. Með smá fyrirhyggjusemi má reyna að leysa sem flest erindi í einni ferð í stað þess að endasendast hingað og þangað milli bæjarhluta. Það eitt að vera stöðugt að ræsa bílinn að nýju eyðir miklu eldsneyti og get- ur verið allt að 50-60% munur á eyðslu bíls sem tekur af stað kald- ur og bíls sem þegar er orðinn heitur.“ Lausagangur borgar sig heldur ekki. „Eldsneytisnotkun í lausa- gangi hefur verið vandlega mæld og sýna prófanir að lausagangur í eina mínútu er eldsneytisfrekari en gangsetning vélarinnar. Þó svo að bíllinn sé ekki á ferð þá brennir lausagangur töluverðu eldsneyti, og jafnvel þó að slökkt sé á mið- stöðinni.“ Dekkin skoðuð mánaðarlega Annað mikilvægt sparnaðarráð er að vakta vandlega ástand og loft- þrýsting í dekkjum. Ekki aðeins dregur réttur þrýstingur úr sliti hjólbarðans og lætur hann endast betur heldur getur rangur þrýst- ingur aukið eldsneytisnotkun veru- lega. „Í flestum bílum má finna upplýsingar innan á hurð- arstafnum þar sem framleiðandinn tilgreinir æskilegan þrýsting í dekkjunum eftir því hvort bíllinn er fullhlaðinn eða tómur. Er góð regla að athuga þrýstinginn ekki sjaldnar en einu sinni í mánuði enda halda venjulegir hjólbarðar ekki fullum þrýstingi nema í tak- markaðan tíma. Á flestum bens- ínstöðvum má í dag finna sjálf- virkar loftdælur sem almenningur hefur ókeypis aðgang að og sára- einfalt að tryggja að rétti þrýst- ingurinn sé á öllum fjórum dekkj- um.“ Ekki ætti heldur að vanmeta þau áhrif sem þyngd og loftmót- staða hefur á eyðslu bílsins. Stefán segir spara mikið eldsneyti að fjar- lægja aukahluti sem festir hafa verið utan á bílinn og aka ekki um með skott og farþegarými fullt af óþarfa. „Toppgrindur og farang- urshólf valda töluverðri loftmót- stöðu og auka eldsneytisnotkunina verulega. Er það fyrirhafnarinnar virði að fjarlægja þessa hluti þegar þeir eru ekki í notkun og halda skottinu tómu.“ Aukin vindmótstaða skýrir líka hvers vegna rólegur akstur á lög- legum hraða skilar betri eldsneyt- isnotkun en hraður akstur. „Eftir því sem hraðinn eykst því stærri kraftar verka á bílinn vegna loft- mótstöðu og má reikna með að loftmótstaðan ein bæti um 10-15% við eldsneytisnotkunina ef hraðinn er aukinn úr 60 upp í 90 km/klst.“ ai@mbl.is Að stunda sparakstur er enginn vandi Morgunblaðið/Ómar Krónur Oft er talan sem birtist á bensíndælunni hærri en við vildum sjá enda hefur eldsneytisverð verið á hraðleið upp á við. Sparakstur dregur mjög úr eldsneytisnotkuninni. Frá bensínstöð í Reykjavík. Með því að fylgja nokkrum einföldum ráðum má draga mjög úr eldsneytisnotkun. Getur verið helmingsmunur á eyðslunni hjá þeim sem ekur án umhugsunar og hinum sem kann sparakstur. Réttur loftþrýstingur og tómt skott sparar bensín Ef ætlunin er að spara bensín er ekki skyn- samlegt að vera á þriggja tonna jeppa ef bíllinn er aðeins notaður til að koma einni manneskju á milli staða innanbæjarStefán Ásgrímsson Stefán segir að flestar bílvélar gefi besta nýtni við 1.800 snúninga og ekki vitlaust að hafa augun á snún- ingshraðamælinum við sparakstur. Flestir nýir bílar eru líka útbúnir notendavænum aksturstölvum sem sýna eldsneytiseyðsluna í rauntíma svo að sést vel hvaða akstursmáti eyðir miklu eða litlu. „Síðan er gott að aka mjúklega, halda jöfnum hraða og taka hvorki hratt af stað né hemla harkalega. Á sumum stöðum, eins og í Ártúnsbrekkunni, má prufa að hafa bílinn í sem hæstum gír þegar farið er niður brekkuna og hætta að gefa inn. Heldur snúningur vélarinnar þá í við hreyfingu bílsins og eyðslan er sama sem 0 lítrar. Þeir allaranösk- ustu reyna að velja sér akstursleið sem er greiðfær og sneiða hjá þungri umferð eða illa samstilltum umferðarljósum. Er t.d. hægt að ná nokkuð góðri bylgju af grænum ljósum þegar ekið er eftir Sæbraut- inni alla leið að Hörpu. Best að velja greiða leið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.