Morgunblaðið - 04.10.2013, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 04.10.2013, Qupperneq 30
Þ rátt fyrir mjög svo aukna bifreiðaeign síðustu tvo til þrjá áratugina er enn að finna mun eldri bíla á lista yfir 10 söluhæstu fólksbílana frá upphafi vélknúinna farartækja. Bíla sem löngu er hætt að framleiða. Þykir það vitn- isburður um einstakar vinsældir og ágæti viðkomandi bíla meðan þeir voru fáanlegir. Þá er að sjálfsögðu að finna á listanum bíla sem eru nú í fram- leiðslu og seljast jafnvel betur í dag en nokkru sinni áður. Og mögu- leikar eru á að einhverjir þeirra eigi í framtíðinni eftir að verma eitt af topp 10 sætunum á lista af þessu tagi. Tölurnar sem ná yfir sölu bílanna eru frá síðustu áramótum en samt líklegt að röðin hafi lítið sem ekkert breyst síðan. Í tíunda sætinu er Chevrolet Impala sem enn er framleiddur. Frá því hann kom fyrst á götuna árið 1958 sem Bel Air Impala hafa 14 milljónir eintaka verið seld, en nýjasta kynslóðin er sú tíunda. Í níunda sæti er Volkswagen Pas- sat og þrátt fyrir að vera langt um minna aldurshniginn en Passat þá hafa selst fleiri eintök af þessum bíl, eða 15,5 milljónir eintaka frá því hann leit fyrst dagsins ljós, árið 1973. Passat er mun sparneytnari bíll í dag og fer með um 5,5 lítra á hundraðið á þjóðvegum úti. Í áttunda sæti er fyrsti fjölda- framleiddi bíllinn sem verulega hef- ur kveðið að. Þegar Henry Ford hóf raðsmíði á Ford Model T árið 1908 hófst bylting í bílaframleiðslu. Mod- el T markaði veginn og opnaði stórum hópum fólks möguleikann á að eignast eigið farartæki. Á fram- leiðslutíma Model T seldust 16,5 milljónir eintaka sem er einstakur árangur, alveg sama við hvað er miðað. Var hann bíllinn drottnandi, sakir fjöldans, á bandarískum veg- um á sínum tíma. Í sjöunda sæti er einn af nokkr- um japönskum bílum, Honda Ac- cord, sem áunnið hefur sér orðstír fyrir áreiðanleika og ending- artraust. Upphaflega var um smábíl að ræða – samt kallaður stóri bróðir Civic í árdaga – sem vaxið hefur í stallbak dagsins í dag. Accord hefur selst í 17,5 milljónum eintaka frá því hann kom fyrst á götuna 1976. Ný kynslóð bílsins sá dagsins ljós í ár og rokselst enn þann dag í dag. Þeir fylgjast að á listanum bræð- urnir en Honda Civic er einu sæti ofar Accord, sem sjötti söluhæsti bíll allra tíma. Civic kom fyrst á götuna árið 1973 sem smábíll og hefur látið að sér kveða alla tíð. Í 40 ára sögu hans hafa 18,5 milljónir Civic runnið um götur og vegi heimsbyggðarinnar allrar. Ný kyn- slóð kom til sögunnar í ár og hefur hlotið lof og fengið góðar viðtökur meðal bílkaupenda. Henry Ford getur verið stoltur af arfleifð sinni því bílrisinn sem hann stofnaði og við er kenndur á fleiri fulltrúa á listanum en Model T. Þannig er bíll sem reynst hefur mörgum Íslendingnum sá fimmti mest seldi allra tíma, Ford Escort. Hið undarlega er að hann hefur reynst miklu vinsælli í Evrópu en Bandaríkjunum, á smíðistímanum, frá 1968 til 2000. Á þeim tíma runnu tæplega 20 milljónir eintaka út um heimsbyggðina alla. Volkswagen Bjallan á eitt lengst lífsskeið nokkurs bíls en frumgerð hennar kom á götuna í Þýskalandi í aðdraganda seinna stríðins, árið Tímamótabíll Toyota Corolla átti eftir að valda byltingu í bílaeign. Hér á landi sem annars staðar trónir hann á toppnum sem mest seldi bíllinn. 10 mest seldu bílar allra tíma Toyota Corolla trónir í fyrsta sæti en Ford pall- bíll skammt undan Vinnuþjarkur Ford F-150 er glæsilegur fulltrúi Ford F-línunnar sem er næstsöluhæsta bíltegund sögunnar. Smellur Honda Accord nýjustu árgerðar gengur sérlega vel í Bandaríkjunum. Goðsögn Eldforn útgáfa af Ford F-pallbílnum sem er í öðru sæti. 30 | MORGUNBLAÐIÐ Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.