Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 33

Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 33
Barack Obama Banda- ríkjaforseti rúntar um á kádilják sem er til jafns í ætt við skriðdreka og bif- reið enda þarf valdamikill maður farartæki sem er í senn öruggt og þægilegt. Rétt eins og einkaþota forsetans nefnist Air Force One nefnist for- setabíllinn Cadillac One, nema hvað. Yfirbygging: blanda úr hertu stáli, áli, títaníum og keramikleir til að verjast alls konar árásum. Dekk: hert með kevlar-efni og búin stálgjörðum sem gera bílnum kleift að aka á miklum hraða, jafnt þó svo að níðsterk dekkin springi. Undirvagn: fimm tomma þykk plata úr hertu stáli þekur bílinn að neðan svo hann fái staðist jarð- sprengjur. Farþegarými: búið helstu þægindum ásamt innbyggðri fartölvu, gervihnattasíma og sítengdri línu til Pentagon ef í hart fer. Bensíntankur: úr bryn- vörðu stáli og auk þess bú- inn sérstakri kvoðuvörn sem kemur í veg fyrir að hann springi við högg. Hurðir: brynvarðar, átta tomma þykkar og jafn þungar og hurðin á Boeing 757. Varnarbúnaður: nætur- sjónaukar, sjálfvirkar hagla- byssur og táragasbyssur. Mál: bíllinn er 5,5 metrar á lengd og tæplega 180 cm á hæðina. Vél: 6,5 lítra dísilvél sem kemur honum, þrátt fyrir gríðarlega þyngd, í hundr- aðið á 6,5 sekúndum. Verð: Cadillac One kostar 300.000 Bandaríkjadali, eða rúmlega 36 milljónir króna. jonagnar@mbl.is AFP Farþeginn Barack Obama Bandaríkjaforseti getur andað léttar þegar hann ferðast um í Cadillac-ferlíkinu. Öruggari bíll finnst trauðla í heimi hér. Ökurými Aðstaða bílstjórans er ekki af verri endanum enda þarf ökumaður að hafa sitt á hreinu og rúmlega það, þegar ekið er með sjálfan Bandaríkjaforsetann, Barack Obama. Bíll sem hæfir forseta Forsetabíll Cadillac One er ekki bara virðulegur að sjá heldur líka í stakk búinn til að mæta hvers konar árásum og atlögum. Auk víðtæks öryggisbúnaðar er plássið nægt og margs konar útbúnaður sér til þess að ekki væsi um Obama og aðra farþega. MORGUNBLAÐIÐ | 33 Þróttur – Til allra verka  Mold og sandur  Grjót og grjóthleðsla  Fellum tré  Fjarlægjum garðaúrgang             !  

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.