Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 34

Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 34
V ið komum víða við þegar bíllinn er annars vegar,“ segir Ragnar Matthías- son, framkvæmdastjóri Poulsen. „Við erum býsna sterkir í bílrúðunum, bæði fram-, aftur- og hliðarrúðum og eigum mjög gott úrval fyrirliggjandi af þeim í allar gerðir bíla og vinnu- vélar líka,“ en Poulsen bæði flytur inn og sinnir um leið ísetningu. „Það er þáttur í starfsemi okkar sem skipar stóran sess enda er allt gert til að redda málunum fljótt og vel. Ef við eigum rúðuna ekki fyr- irliggjandi þá má yfirleitt redda því á sólarhring ef því er að skipta. Sé um sjaldgæfari bíl að ræða eða gamalt módel þá tekur það eitthvað lengri tíma, eins og gefur að skilja.“ Poulsen er ennfremur umboðs- aðili fyrir bílalökk af mörgum gerð- um, þar á meðal til dæmis DuPont og SpiesHecker. „Við kappkostum að bjóða upp á heildarlausnir fyrir bílamálun og réttingar og leitumst við að bjóða vörur sem uppfylla kröfur bílaframleiðenda. Loks má nefna að við höfum geysigott úrval varahluta, allt frá bremsu- varahlutum, dempurum og kúpling- um og yfir í síur, tímareimar og vatnsdælur og eins stýrisenda og spindilkúlur, svo fátt eitt sé nefnt. Það má segja að við séum með allt sem viðkemur slithlutunum,“ segir Ragnar. Í góðum tengslum við iðnaðinn Poulsen er 103 ára gamalt fyr- irtæki og að sögn Ragnars felst að- greining fyrirtækisins á markaði ekki síst í hinni gríðarmiklu reynslu sem þar er að finna. „Við höfum talsvert langa sögu að byggja á og höfum þannig skapað okkur tengsl inn í iðnaðinn sem traustur aðili sem selur gæðavörur sem má treysta á. Má þar nefna ál- verin, fyrirtæki í fiskvinnslu og ým- iss konar þungaiðnað. Þar erum við víða í viðskiptum,“ segir Ragnar og bætir því við að í því felist ákveð- inn gæðastimpill að sínu mati. Sami metnaður er uppi á ten- ingnum þegar bón og hreinsivörur fyrir bílinn eru annars vegar, að sögn Ragnars. „Við erum með gott úrval á þeim vettvangi og leggjum okkur fram við að eiga allt það besta. Hvort sem þú þarft að massa bílinn eða bóna, bletta hann eða ryðbæta, þá ertu kominn á rétta staðinn. Við erum við með réttu efnin og áhöldin.“ Alltaf eitthvað nýtt Loks bendir Ragnar á að fyr- irtækið standi reglulega fyrir nám- skeiðum sem tengist starfsemi og vöruúrvali fyrirtækisins. „Við vor- um lengi vel með Airbrush- málunarnámskeið sem voru vel sótt hjá okkur, og þegar hér er komið sögu sýnist mér ákveðin mettun vera orðin þar á markaðnum. En við höfum líka haldið námskeið í rúðuísetningum og ýmsu í sam- bandi við lakkið sem við bjóðum upp á. Það eru alltaf einhverjar nýjungar í gangi og þá þarf að þarf að fræða mannskapinn um hitt og þetta. Einnig höfum við gert tölu- vert af því að fá erlenda aðila hing- að til lands til að halda bæði fyr- irlestra og námskeið. Námskeiðin eru jafnan fyrir 10-20 manns, eftir því hvaða greinar þau eiga við. Það er alltaf nóg að gera við að upp- lýsa, það vantar ekki,“ segir Ragn- ar hjá Poulsen að lokum. jonagnar@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Reynsla „Við höfum talsvert langa sögu að byggja á og höfum þannig skapað okkur tengsl inn í iðnaðinn sem traustur aðili sem selur gæðavörur sem má treysta á,“ segir Ragnar Matthíasson, framkvæmdastjóri Poulsen. Verkfæri Poulsen bjóða upp á breitt úrval verkfæra fyrir bíleigandann. Framrúður Flestar gerðir bílrúða eru fyrirliggjandi hjá Poulsen. Lakk Margir leita til Poulsen til að finna rétta lakkið og DuPont er þar þekkt merki. Dekur Ýmislegt má fá hjá Ragnari og samstarfsfólki hans til að gera vel við bílinn. Vönduð merki og tengsl við iðnaðinn Poulsen í Skeifunni hefur margvíslegan varning á boðstólum fyrir bíleigandann ásamt því að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu fyrir bílinn. Þá hafa þar verið haldin áhugaverð námskeið, meðal annars um Airbrush-málningu. Poulsen er 103 ára gam- alt fyrirtæki og að sögn Ragnars felst aðgreining fyrirtækisins á markaði ekki síst í hinni gríð- armiklu reynslu sem þar er að finna. 34 | MORGUNBLAÐIÐ Félag íslenskra bifreiðaeigenda Skúlagötu 19 101 Reykjavík s. 414 9999 fib@fib.is fib.is FÍB Aðstoð Opin allan sólarhringinn. - Start aðstoð - Eldsneyti - Dekkjaskipti - Dráttarbíll Lögfræðiráðgjöf Tækniráðgjöf Eldsneytisafsláttur skoðunarstöðvar, verkstæði Yfir 200.000 afsláttarstaðir Afslættir REIKNAÐU DÆMIÐ TIL ENDA FÍB AÐILD MARGBORGAR SIG! Smurning Sparnaður kr. 3.814.- Umfelgun Sparnaður kr. 1.167.- Bifreiðaskoðun Sparnaður kr. 1.780.- FÍB dælulykill Sparnaður kr. 11.500.- Sparnaðardæmi kr. 18.261 Árgjald kr. 6.600 Viltu vita meira? Skannaðu kóðann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.