Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 36

Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 36
36 | MORGUNBLAÐIÐ Saga Alpine nær allt aftur til ársins 1967 þegar Motorola stofnar sam- setningafyrirtækið Alps, síðar nefnt Alpine. Fyrsta mikilvæga vara fyrirtækisins var átta rása hljóm- kerfi sem gat spilað efni af þar til gerðum hylkjum (e. cartridge). „Síðan kemur hálfgerð ládeyða þar til árið 1977 að Lamborghini leitar til Alpine um að gera tæki fyrir sportbílana sína. Árið 1978 kemur Alpine með látum inn á bandaríska markaðinn sem „high end“ hljóm- tækjalína fyrir bíla,“ segir Guð- mundur. „Síðan þá hefur Alpine verið leiðandi í vöruþróun og var m.a. árið 1996 fyrsti framleiðand- inn til að gera leiðsögukerfi með skjá fyrir einkabíla.“ Það nýjasta og flottasta í Alpine- bílaútvörpunum í dag segir Guð- mundur að sé INE-W928R útvarpið sem skartar átta tommu skjá. „Þetta tæki fæst m.a. með fest- ingum fyrir flesta VW-bíla og er hægt að tengja skjáinn við öll önnur kerfi bílsins, frá miðstöðinni yfir í bakkskynjarana.“ Talandi um bakkskynjara þá fær- ist í aukana að ýmiss konar skynj- arar og myndavélar séu settar á bíl- inn. Segir Guðmundur suma láta duga að hafa eingöngu myndavél að aftan en aðrir vilji líka myndavél að framan og vélar sem festar eru á hliðarspeglana og sýna hvaða svig- rúm er að fá sitt hvorum megin við bílinn. „Aukið öryggi fylgir því að sjá greinilega að ekkert er í veginum fyrir bílnum en sparar líka háar fjár- hæðir vegna minniháttar tjóna á hurðum og stuðara að ekki sé talað um hversu auðvelt verður að leggja bílnum í stæðið.“ Nesradíó selur radarvara frá Es- cort og Whistler og segir Guð- mundur að salan haldist í hendur við hækkaðar sektir og aukið um- ferðareftirlit. „Radarvari er hjálp- artæki í umferðinni og með auknu umferðareftirliti getur notkun rad- arvara minnkað umferðarhraða.“ Náði á toppinn með Lamborghini Þ egar kemur að því að velja hljómtæki í bílinn þykja fá- ir standa framar japanska framleiðandanum Alpine. Guðmundur Ragnarsson rafeindavirki er eigandi Nesradíós, umboðsaðila Alpine á Íslandi síðan 1996. Hann segir að þrátt fyrir sam- drátt frá hátindi góðærisins lifi Alp- ine-tækin góðu lífi á íslenska mark- aðinum. Hljómtækin eru í dag máttarstólp- inn í rekstri Nesradíós, en málum var ekki alltaf þannig farið. „Nesradíó hóf starfsemi sína með sölu gjaldmæla fyrir leigu- og sendibíla. Fljótlega tókum við svo til við að selja og setja í hljómtæki frá Blaupunkt og Pioneer. Um svipað leyti fer þáverandi um- boðsaðili Alpine á hausinn og vildi svo óheppilega til að Japanarnir töpuðu á gjaldþrotinu. Japanar kunna því illa að tapa peningum og eru langræknir. Við höfðum sýnt umboðinu áhuga og haft reglulega samband við Alpine í 3-4 ár þegar þeir loksins tóku sjens- inn á þessum ýtna Íslendingi “ segir Guðmundur. Auk Alpine selur Nesra- díó Viper-þjófavarnir frá Directed Electronics, talstöðvar frá Tait og loftnet frá Smarteq svo nefndir séu nokkrir framleiðendur. Ísetningin innifalin Árin 1996 til 2003 voru mikill upp- gangstími fyrir Nesradíó og var í nógu að snúast að setja ný útvarps- tæki í bíla, sem þá komu oft til lands- ins útvarpslausir. Þó svo að flestir ný- ir bílar komi í dag með útvarpi þá er enn töluvert að gera við að skipta um útvarpstæki í nýlegum bílum. Guð- mundur segir gæðin æði misjöfn á þeim tækjum sem fylgja bílunum út úr verksmiðjunni. „Við seljum vel á annað hundrað útvarstæki í bíla í hverjum mánuði og eru útvörpin þá að koma í stað „original“ tækja sem hafa bilað. Nesradíó á til festingar fyrir flestar tegundir bíla og mun hagkvæmara er að koma fyrir góðu tæki frá Alpine en að panta útvarps- einingu frá bílaframleiðandanum, sem oft getur kostað á bilinu 200 til 800 þús. komin í bílinn.“ Guðmundur segir Nesradíó vera með útvarpslausnir fyrir flestalla bíla og ísetning á útvarpstækinu er inni- falin í verðinu. „Enda eru tækin orðin mjög fullkomin, með Bluetooth, USB-tengi, hnöppum í stýri og alls kyns aðra fítusa svo ef tækinu er ekki komið fyrir af fagmanni eru töluverð- ar líkur á að eitthvað virki ekki sem skyldi.“ Á árunum í aðdraganda hrunsins var algengt að áhugamenn um bíla gerðu sérlega vel við ökutækin sín, breyttu og „pimpuðu“ á alla vegu og kæmu m.a. fyrir veglegum hljóm- flutningsgræjum, með mögnurum og hátölurum á ólíklegustu stöðum. Guð- mundur segir þessa menningu hafa dalað töluvert og alls óvíst hvort ann- að sambærilegt blómaskeið í bíla- hljómtækjaheiminum mun nokkurn tíma renna upp að nýju. „Sérfræð- ingar Alpine sem greina markaðinn benda á að það var einkum unga fólk- ið sem vildi gera þessar breytingar á bílunum sínum. Í dag hefur kaupgeta þessa hóps minnkað og áherslurnar breyst um leið. Í stað þess að kaupa stórar bassakeilur í bílinn kaupir unga fólkið rándýra snjallsíma,“ út- skýrir hann. „Hér á landi bætir það við vandann að við berjumst við veika krónu og há aðflutningsgjöld. Bíltæki og hátalarar bera 25% vörugjald, 7,5% toll og á þá eftir að bæta við virðisaukaskattinum.“ Saga Class í aftursætinu Á móti kemur að vinsældir sjónvarps- tækja í bílum, svokallaðra bílabíóa, hafa snaraukist. „Mest selst af tíu tomma skjáum sem festir eru í topp- inn miðjan. Skjáirnir í hnakkapúða eru að dala í sölu bæði vegna þess að erfitt er að koma skjáunum fyrir, og eins að eitt tæki fyrir miðju er ódýr- ara. Skjár í topp er sýnilegur um allt aftara rými bílsins; margir fjöl- skyldubílar eru með þrjár sætaraðir í bílunum og fleiri en tvö börn sem þá sjá hvað er að gerast á skjánum.“ Bílabíóið hefur gjörbreytt upplifun barna af bílferðum og um leið gefið foreldrunum undir stýri meira næði við aksturinn. Þegar börnin fá sann- kallaða Saga-Class-meðferð í aft- ursætinu eru minni ærsl og læti. „Sumir hafa á orði við mig að sparn- aðurinn í sjoppu-stoppum spari lang- leiðina upp í kaupverðið á bílabíóinu. Skemmtilegt er að segja söguna af föðurnum sem var duglegur að aka barninu sínu og vinum þess á skíða- mót og fékk sér svona kerfi í bílinn. Síðar kom í ljós að börnin vildu ekki lengur fá far með hinum foreldum þegar svo bar undir því að vantaði rétta afþreyingarkerfið. Á endanum seljum við oft sjónvarpstæki í 3-5 bíla til viðbótar sem er afleiðing af vel heppnaðri ísetningu.“ ai@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Breytingar „Í stað þess að kaupa stórar bassakeilur í bílinn kaupir unga fólkið rándýra snjallsíma,“ útskýrir Guðmundur hjá Nesradíó um markaðinn. „Hér á landi bætir það við vandann að við berjumst við veika krónu og há aðflutninsgjöld.“ Sýnileiki Nýjustu tækin eru með stórum skjá sem ýmiskonar gagn er af. Veikluð króna og breytt- ar áherslur neytenda hafa fækkað þeim til- vikum þar sem bíla eru hlaðnir öflugum mögn- urum og hátölurum. Hins vegar er farið að verða ómissandi að hafa sjón- varp í bílnum til að hafa ofan af fyrir börnunum. Við seljum á annað hundr- að útvarstæki í bíla í hverj- um mánuði og eru útvörpin þá að koma í stað „orig- inal“ tækja sem hafa bilað. Bílabíóið að koma sterkt inn á meðan „pimp“-menningin dalar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.