Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 42
M
argir glæsilegir of-
urbílar voru kynntir
til sögunnar á nýaf-
staðinni bílasýningu í
Frankfurt. Sumir
þeirra voru framleiðslubílar og
aðrir tilraunabílar en allir áttu þeir
það sameiginlegt að vera gjald-
gengir á sýningarpall ofurfyr-
irsæta í bílaheiminum. Hér er
smávegis yfirferð um nokkra
þeirra helstu sem vöktu eftirtekt
fjölmiðla sem sýningargesta.
Audi með sína eigin höll
Audi kynnti tvo eftirtektarverða
tilraunabíla í sýningarhöll sinni
sem þeir höfðu flutt með sér á
svæðið, en hún var á stærð við
gömlu Laugardalshöllina. Að innan
leit hún út eins og strætin í New
York en það náðist fram með graf-
ík í samspili við speglaverk og lýs-
ingu.
Annar þeirra var Nanuk
Quattro-tilraunabíllinn sem hann-
aður var af hinu fræga Italdesign
Giugiaro-hönnunarhúsi. Bíllinn er
fjórhjóladrifin blanda ofurbíls og
jepplings og heitir eftir ísbirni á
frumbyggjamáli. Hann notast við
fimm lítra V10 dísilvél sem skilar
536 hestöflum og kynstrunum öll-
um af togi, eða 1.000 Newton-
metrum hvorki meira né minna.
Ekki minni athygli vakti Audi
Sport Quattro-tilraunabíllinn sem
byggist á Sport Quattro S1-
rallbílnum fræga. Þessi bíll gæti
jafnvel farið í framleiðslu en hann
er með 700 hestafla V8-vél og yf-
irbyggingu úr áli og koltrefjum.
Hámarkshraði hans er yfir 300 km
á klst og hröðun hans í 100 km 3,7
sekúndur.
Stórir og fallegir
Ekki verður fjallað um ofurfyr-
irsætur án þess að minnast á flokk
þeirra í þrýstnari kantinum. Meðal
þeirra sem kynntu sig í Frankfurt
var Bentley Continental GT V8 S
sem er sportútgáfa af V8-bílnum.
Hann hefur það fram yfir W12-
bílinn að vera léttari en um leið
næstum jafn öflugur og næsta víst
að 521 hestafl og 680 Newton-
metrar af togi dugar flestum. Aflið
kemur í gegnum tvöfaldar túrb-
ínur og átta þrepa sjálfskiptingu
og skilar honum í hundraðið á 4,3
sekúndum. Önnur slík Plus-Size-
fyrirsæta var án efa Brabus-
útgáfa hinnar nýju S-línu en hún
skilar 838 hestöflum. Ekki verður
heldur gengið framhjá sérstakri
útgáfu af Bugatti Veyron-
ofurbílnum sem kallast Grand
Sport Vitesse og heitir hann eftir
syni stofnanda Bugatti. Sá tók við
merkinu aðeins 27 ára gamall og
vann sér það til frægðar að standa
fyrir hinum fræga Type 57SC Atl-
antic, en slíkur bíll fór nýlega á
uppboði fyrir þrjá og hálfan millj-
arð.
Keppnin um bestu málin
Íþróttafólk er oft talið góðar
fyrirsætur og sama má segja um
ofurbílana sem hafa ofurhraða að
markmiði, en margt slíkra bíla bar
fyrir augu í Frankfurt. Ferrari
kynnti nýja útgáfu 458 sem kallast
Speciale og skilar hann tæpum sex
hundruð gæðingum í götuna með
4,5 lítra V8 vél sem ekki notar for-
þjöppur af nokkurri sort. Ferrari
heldur því fram að þessi vél skili
fleiri hestöflum á lítra en nokkur
önnur vél sem sama byggingarlagi
eða 133 hestöflum. Bíllinn er að-
eins 1.290 kíló sem þýðir aðeins
2,1 kíló á hestafl. Höfuðandstæð-
ingurinn Lamborghini var ekki
langt á eftir með sinn Gallardo
Squadra Corse sem byggist á
keppnisbíl og er allur úr koltrefj-
um. Vélin er 562 hestöfl og upp-
takið aðeins 3,4 sekúndur, en há-
markshraðinn 320 km á klst. Loks
er það villidýrið Porsche 918 Spy-
der sem er í raun og veru tvinnbíll
en tvítóla væri eiginlega betri lýs-
ing fyrir svona bíl. Vélarnar eru
nefnilega tvær, 154 hestafla raf-
mótor sem knýr framhjólin og svo
608 hestafla 4,6 lítra V8 vél sem
notar ekki forþjöppu og skilar 133
hestöflum á lítra, eins og Ferrari
458 Speciale! Þegar þetta er lagt
saman skilar Porsche 918 engu
smáræði eða 889 hestöflum, nóg til
að skila honum í hundraðið á 2,8
sekúndum og hámarkshraða upp á
Ofurfyrirsæturnar í Frankfurt
Alþjóðlega bílasýningin í Frankfurt eit mesta til-
hlökknarefni bílaáhugafólks á ári hverju. Nýafstaðin
sýning bauð upp á alls kyns draumabíla og drossí-
ur, hugmyndabílar og framleiðslubílar í bland.
Morgunblaðið/Njáll Gunnlaugss
Rándýr Meðal glæsivegna var Bentley Continental GT V8 S með 521 hestafl.
Morgunblaðið/Njáll Gunnlaugsson
Kraftmikill Audi vakti athygli með tilraunabíl sem byggist á Sport Quattro S1-rallbílnum, sem var hreinræktað villidýr.
Dýrindi Porsche
918 Spyder var for-
sýndur í Frankfurt.
Aflmikill Bugatti Veyron
Grand Sport Vitesse heit-
ir eftir syni stofnandans.
Ofurkraftur Lamborghini Gallardo Squadra
Corse er koltrefjakaggi með 562 keppn-
ishestöfl til umráða. Ekki amalegt það.
42 | MORGUNBLAÐIÐ
Við sérhæfum okkur í
vatnskössum og bensíntönkum.
Gerum við og eigum nýja til á lager.