Morgunblaðið - 09.12.2013, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.12.2013, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is Gefðu hlýju og upplifun um jólin B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Kauptu fyrir 5.000 kr. en fáðu 7.000 kr. gjafabréf Kauptu fyrir 10.000 kr. en fáðu 15.000 kr. gjafabréf Gjafabréf Heimsferða er tilvalin gjöf fyrir alla þá sem langar að ferðast! Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf á mann í bókun og að gjafabréfið gildir einungis á nýjar bókanir. Gjafabréf ágóða ferð Eftirvæntingin eftir útdrætti á lottótölum helgarinnar var gífurleg enda potturinn sjöfaldur og 94 milljónir í húfi. Vefsvæði Íslenskra getrauna, lotto.is, hrundi eftir að tölur höfðu verið lesnar upp á laugardaginn enda víst að margir vildu athuga hvort vinningurinn væri þeirra. Enginn var hins vegar með allar tölur réttar í lottóútdrætti helgarinnar og verður því potturinn átt- faldur um næstu helgi. Hæsti vinningur til þessa er 80 milljónir króna og er hann jafnframt sá stærsti sem einstaklingur hefur hlot- ið í íslensku happdrætti. Stefán Snær Konráðsson, framkvæmdastjóri Ís- lenskrar getspár, segir það hafa komið sér á óvart að vinningurinn skyldi ekki fara út um helgina. „Ég bjóst fastlega við því að vinningurinn gengi út um helgina. Það voru reyndar tíu sem voru alveg á brúninni að fá þann stóra en þeir voru með fjórar tölur réttar af fimm plús bónustölu. Nú verður hann áttfaldur í fyrsta skipti og vinningsupphæðin stefnir í 125 milljónir króna,“ segir Stefán en hann vonar að vinningurinn deilist á sem flesta og dreifist því til fólks rétt fyrir jólin. „Þótt stóri vinningurinn hafi ekki gengið út fékkst vinningur á 16 þúsund raðir svo það má gera ráð fyrir að á milli 10 og 20 þúsund Íslendingar hafi fengið einhvern vinn- ing, sem er ánægjulegt. Málstaðurinn er líka góður en Öryrkjabandalagið og íþróttahreyfingin njóta góðs af þessu.“ vilhjalmur@mbl.is Aðalvinningurinn stefnir í 125 milljónir króna  Lottópotturinn verður áttfaldur í fyrsta skipti næstu helgi Morgunblaðið/Árni Sæberg Lottó Potturinn áttfaldur í fyrsta sinn í sögu lottósins. SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Um tvöfalt fleiri tegundir háplantna hafa numið land í Surtsey en vaxa yf- irleitt í öðrum og stærri úteyjum Vestmannaeyja. Viðbúið er að plöntutegundunum í Surtsey fækki eftir því sem eyjan rofnar og líkist meir nágrannaeyjunum. Þetta kom fram í erindi Borgþórs Magnússonar, vistfræðings hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands, á Hrafna- þingi nýlega. Þar fjallaði hann um framvindu gróðurs og þróun vistkerf- is í Surtsey. Á þessu ári höfðu fundist alls 70 tegundir háplantna í eynni frá upp- hafi, þar af voru 59 tegundir á lífi í sumar. Til samanburðar eru tegundir í úteyjum Vestmannaeyja allt frá tveimur og upp í þrjátíu. Fjöldinn ræðst af stærð eyja og skerja Stakkaskipti urðu 1985 Fyrsta áratuginn, 1965-75, var framvinda og landnám gróðurs í Surtsey hægfara. Það háði gróðr- inum að jarðvegur var mjög snauður af næringarefnum fyrir plöntur. Að- allega voru það harðgerðar strand- plöntur, fjörukál, fjöruarfi, blálilja og melgresi sem námu land og breiddu úr sér fyrstu árin. Næsta áratug, 1976-85, gerðist lítið nema hvað þess- ir stofnar komu sér betur fyrir. „Stakkaskiptin urðu upp úr 1985 þegar máfavarpið tók að myndast. Þá fór plöntunum að hraðfjölga og seinni bylgjan kom í landnám plantna í Surtsey. Gróðurinn þéttist mikið og tegundum fjölgaði mjög. Það er okk- ar mat að máfurinn hafi borið mikið af fræjum til eyjarinnar. Einnig bötnuðu jarðvegsskilyrðin,“ sagði Borgþór. Gróðurríkið þróaðist nokkuð hratt frá árinu 1985 og þetta skeið stóð fram undir árið 2005. Flestar teg- undir plantna fundust í eynni sum- arið 2007 en þá voru þær 65 að tölu. Tegundunum hefur hins vegar held- ur fækkað síðustu árin. „Við teljum það vera vegna þess að gróðurinn er að þéttast og þetta gef- ur vísbendingu um að hámarkinu sé ef til vill náð,“ sagði Borgþór. Nú er kominn vísir að mjög þéttu graslendi í Surtsey. Þegar gróðurinn þéttist og sprettur mikið eiga smá- vaxnari tegundir erfitt uppdráttar og hverfa. „Við búumst við því að Surtsey muni halda áfram að minnka og gróa smám saman upp,“ sagði Borgþór. Allt bendir til þess að henni muni svipa til eldri úteyja Vestmannaeyja þegar frá líður. Þær eru aðeins mó- bergskjarni sem stendur upp úr haf- inu. Lág hraun og sendin nes, eins og enn eru í Surtsey, eru löngu horfin í hinum úteyjunum. Hraunin og sendnu svæðin í Surts- ey mynda búsvæði sem frum- herjategundir á borð við melgresi, fjöruarfa og fleiri nýta sér. Þegar þessi búsvæðin hverfa fara þessar tegundir einnig og því verður gróð- urinn væntanlega fábreyttari þegar fram líða stundir. Jarðvegurinn breytist Fuglarnir bera vel á landið. Fugl- inn ber æti í unga og frá honum fellur mikið, bæði drit og fæðuleifar. Einn- ig drepast ungar og fullorðnir fuglar og allt leggst það til jarðvegsins. Borgþór sagði að jarðvegurinn verði mjög frjósamur þar sem áhrifa af fuglinum gætir. „Landið fær ríkulega áburðargjöf á hverju einasta ári. Þar munar mest um köfnunarefnið. Þetta er eins og frjósömustu tún sem borið er á uppi á landi. Þarna vex mjög þéttur og kraftmikill gróður, en það eru fáar tegundir sem taka hreinlega yfir. Þar á meðal er til dæmis túnvingull sem er ein algengasta grastegundin hér á landi. Hann nýtur sín mjög vel í fuglabyggðum og myndar mjög þétt- an og öflugan svörð,“ sagði Borgþór. Fylgst hafi verið með túnvingli leggja undir sig land í Surtsey, allt frá því að mynda litla gróðurkolla og upp í að sama plantan hafi breiðst yf- ir margra tuga fermetra svæði á 10- 15 árum. Fyrstir fugla til að hefja varp í Surtsey voru fýll og teista árið 1970. Hreiður þeirra voru í sjávarhömrum. Sumarið 1974 hóf svartbakur varp þar og voru hreiður örfá fyrstu árin. Þetta voru fyrstu fuglarnir sem verptu uppi á eynni. Upp úr 1980 bættust við fleiri máfar og um 1985 tók að myndast þétt varp sílamáfs, silfurmáfs og svartbaks á suðurhluta eyjarinnar, sem óx á fáum árum í 200 – 300 varppör. Lundi hefur aðeins sést í Surtsey og hefur hann orpið þar í litlum mæli í hömrum. Merki hafa sést um krafs eftir lunda í gras- lendinu á vorin en hingað til hefur hann ekki hitt á hentugan stað til að grafa sér holu. Búist er við því að fyrstu lundahreiðrin komi í graslend- ið í Surtsey á næstu áratugum. Vel hefur verið fylgst með jarð- vegsmyndun í Surtsey. Þar sem máf- urinn er ekki, eins og á berang- urslegum söndum, er enn mjög lítið lífrænt efni og hæg jarðvegs- uppbygging. Þar sem fuglinn heldur sig er hins vegar komið talsvert líf- rænt efni í jarðveginn. Ekki hefur þó enn myndast mold eins og við þekkj- um hana. „Landnám fuglanna og þeirra áhrif hafa skipt sköpum fyrir þró- unina í Surtsey. Þetta sýnir okkur hvað gróðurlendin í Vestmanna- eyjum og öðrum fuglaeyjum eru und- ir miklum áhrifum af fuglinum. Það má segja að þeir séu drifkrafturinn og keyri kerfið áfram og viðhaldi með þessari miklu áburðargjöf,“ sagði Borgþór. Heimaey og Elliðaey skoðaðar Hafin er rannsókn á gömlu gras- lendi á Heimaey og í Elliðaey í sam- vinnu við Bjarna Diðrik Sigurðsson, við Landbúnaðarháskóla Íslands. Það er haft til samanburðar við Surtsey. Borgþór sagði að allmiklar rannsóknir hafi verið gerðar á lífríki svæðisins fyrr á árum, bæði í Vest- mannaeyjum og uppi á landi, í kjölfar Surtseyjargossins. „Við höfum tekið þetta upp aftur og höfum áhuga á að skoða hvaða áhrif fuglarnir hafa á gróðurlendi í úteyjunum,“ sagði Borgþór. Hann sagði að gömlu úteyjarnar sýni hver örlög Surtseyjar verði og í hvaða horf lífríki hennar muni sækja. Skoðað er graslendi í Lyngfellisdal á Heimaey þar sem áhrifa sjófugla og áburðarálags þeirra gætir lítið. Einn- ig er skoðuð lundabyggð í Elliðaey og svæðin borin saman við máfavarpið í Surtsey. Graslendið í Lyngfellisdal er gisn- ast en lang-fjölskrúðugast, með um 20 tegundir háplantna. Í lundabyggð- inni í Elliðaey og í máfavarpinu í Surtsey er graslendið miklu þéttara og gróskumeira en með einingis 5-8 tegundir háplantna í reitunum. Jarð- vegur er jafnframt miklu frjósamari þar en í Lyngfellisdal. Máfarnir sáðu og báru á í Surtsey  Stakkaskipti urðu í Surtsey þegar máfar hófu að verpa þar í kringum 1985  Háplöntutegundir hafa verið helmingi fleiri í Surtsey en í öðrum úteyjum  Allt bendir til þess að tegundunum fækki Ljósmyndir/Borgþór Magnússon Surtsey 2013 Graslendið í máfavarpinu er mjög gróskumikið og minnir á vel á borin, frjósöm tún. Surtsey 2005 Melgresi og fjöruarfi hafa fest rætur á sendnum mel. Surts- eyjargosið hófst þann 14. nóv- ember 1963, fyrir rúmum fimmtíu ár- um. Fljót- lega reis ný eyja úr sæ. Tekin var ákvörðun um að takmarka mannaferðir í eynni enda gafst þar einstakt tækifæri til að fylgjast með landnámi lífsins. Framvinda flóru Surtseyjar er á meðal þess sem vísindamenn hafa rann- sakað þar í nær hálfa öld. Strax fyrsta vorið varð þess vart að fræ og aðra plöntuhluta hafði rekið í land á nýju eynni. Vorið eftir, 1965, hafði fyrsta háplantan, fjörukál, fest rætur á strönd Surtseyjar. Nýjasti land- nemi plönturíkisins í Surtsey er tungljurt sem fannst sumarið 2011. Áætlað er að sjórinn hafi bor- ið um 10% háplantnanna til Surtseyjar, vindar hafi borið um 15% en að 75% hafi komið með fuglum. Fuglar báru flest fræin NÆR HÁLFRAR ALDAR RANNSÓKNARSTARF Borgþór Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.