Morgunblaðið - 09.12.2013, Síða 12

Morgunblaðið - 09.12.2013, Síða 12
| www.flytjandi.is | sími 525 7700 | 80 ÁFANGASTAÐIR UMALLTLAND OG EIMSKIP FLYTJANDI KEMUR JÓLAPÖKKUNUM TIL SKILA 750KR. Minnum á fatasöfnun Rauða Krossins á móttökustöðum Eimskips Flytjanda um land allt Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,5 m og hámarksþyngd 45 kg. Glimrandi gott verð fyrir allt að 45 kg þungan pakka – aðeins 750 krónur hvert á land sem er. Sendu jólapakkann þinn fljótt og örugglega með Eimskip Flytjanda. Upplýsingar um næsta afgreiðslustað á www.flytjandi.is ALLT AÐ 0,5 x 0,5 x 0,5m KG45 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013 Innlent Það er óhætt að segja að verslanir í höfuðborginni hafi ekki farið var- hluta af jólastemningu landsmanna um helgina, þegar jólabörn á öllum aldri brugðu sér í bæjarferð til að skoða jólaljós og jóladót. Þá var efnt til ýmissa hátíðartengdra við- burða víða um land og komu ís- lensku jólasveinarnir, þeir ófor- skömmuðu hrekkjalómar, oftar en ekki við sögu. Á Árbæjarsafni var hin árlega jólasýning opnuð í gær, í fyrsta sinn þessi jól, en hún verður einnig opin sunnudagana 15. og 22. desember. Í miðbænum var jólamarkaður opn- aður á Ingólfstorgi á laugardag og þar var í aðahlutverki Leiðinda- skjóða Grýludóttir en á Glæsimark- aðnum við Nýbýlaveg var hægt að gera góð kaup og góðverk með því að fjárfesta í ljótri jólapeysu, svo eitthvað sé nefnt. Landsmenn til sjávar og sveita að komast í jólaskapið Morgunblaðið/Kristinn Gott í skóinn? Jólasveinarnir eru árlegir gestir í Árbæjarsafni en spurning hvort þeir hafi munað eftir kartöflunum. Morgunblaðið/Kristinn Þorp Jólamarkaðurinn á Ingólfstorgi var opnaður á laugardag en þar er til sölu bæði handverk og góðgæti. Morgunblaðið/Kristinn Ný hljóðbók Agnes M. Sigurðardóttir biskup og Ólafur Ragnar Grímsson forseti fengu í gær fyrstu eintök nýrrar útgáfu Passíusálmanna á hljóðbók. Morgunblaðið/Kristinn Ljótujól Á Glæsimarkaðnum gafst fólki kostur á að kaupa sér ljótar jólapeysur til styrktar Barnaheillum. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Rautt Þeir voru fínir í tauinu jólasveinarnir sem heim- sóttu Glerártorg á laugardag og glöddu öll jólabörnin. Morgunblaðið/Kristinn Sungið Jólavætturinn Leiðindaskjóða Grýludóttir var í roknastuði þegar jólamarkaðurinn var opnaður. Sveinkar komnir á stúfana

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.