Morgunblaðið - 09.12.2013, Síða 23
Flugslysið á Srí Lanka 1978
Er Oddný varð flugfreyja sum-
arið 1966, ætlaði hún fyrst að
sinna því starfi á sumrin með
námi og öðrum störfum. Reyndin
varð þó sú að hún var flugfreyja í
42 ár. Oddný tók þátt í pílagríma-
flugi Loftleiða frá upphafi 1976.
Hún var flugfreyja um borð í flug-
vél Flugleiða sem hrapaði til jarð-
ar í aðflugi að Katunyake-flugvelli
við Colombo á Srí Lanka 15.11.
1978. Með vélinni voru 259 manns,
246 indónesískir pílagrímar og 13
Íslendingar, átta manna áhöfn og
fimm manna aukaáhöfn. Alls lét-
ust 175 farþegar frá Indónesíu og
átta Íslendingar sem voru í áhöfn
vélarinnar. Fimm Íslendingar
komust hins vegar lífs af og 74
aðrir.
Oddný slasaðist mikið, var með
brotinn spjaldhrygg á tveimur
stöðum, fékk miklar innvortis
blæðingar og var mikið marin. Um
það bil mánuði eftir slysið var
Oddný flutt heim og lögð inn á
Landspítalann, þar sem hún lá í
hálft ár. Síðan tók við endurhæf-
ing þar sem hún þurfti m.a. að
læra að ganga upp á nýtt.
Með þrotlausum æfingum fór
Oddný aftur að ganga og 16 mán-
uðum eftir slysið var hún aftur
farin að starfa sem flugfreyja.
En var ekki erfitt að fljúga aft-
ur?
„Nei. Ég hef aldrei verið flug-
hrædd. Flug er að öllu jöfnu einn
öruggasti ferðamáti sem völ er á.
Farþegaflug hefur heldur aldrei
verið öruggara en einmitt nú á
síðustu árum. Það er þess vegna
yfirleitt engin skynsamleg
ástæða fyrir almennri flug-
hræðslu.“
Oddný hefur aldrei náð sér að
fullu eftir meiðslin en var samt
flugfreyja hjá Flugleiðum og síðan
Icelandair til 2010 er hún lét af
störfum. Hún þarfnast stöðugrar
sjúkraþjálfunar en fer í ræktina,
stundar jóga, er nú í þýskunámi
og hjálpar barnabörnunum með
tungumálanámið.
Fjölskylda
Sonur Oddnýjar er Þórólfur
Beck Þórólfsson, f. 30.3. 1969,
starfsmaður hjá loftrýmiseftirliti
Landhelgisgæslunnar en kona
hans er Vilborg Einarsdóttir hús-
freyja og eru börn þeirra Ólöf
Oddný Beck, f. 1995, og Eiríkur
Beck, f. 2000.
Faðir Þórólfs var Þórólfur
Beck, f. 21.1. 1940. d. 18.12. 1999,
knattspyrnukappi:
Frækinn
knattspyrnukappi
„Við Þórólfur eldri vorum kær-
ustupar um skeið og góðir vinir
alla tíð. Hann var á sínum tíma
besti knattspyrnumaður, hér á
landi, lék fyrst með meistaraflokki
gullaldarliðs KR, er hann var 17
ára, varð markahæsti leikmaður
KR 1958, markakóngur deild-
arinnar 1959, setti markamet 1960
og bætti metið 1961 er hann skor-
aði sextán mörk í aðeins átta leikj-
um. Það met hefur aldrei verið
slegið.
Þórólfur var annar Íslending-
urinn sem varð atvinnumaður í
knattspyrnu, var almennt talinn
einn fremsti leikmaður í skoskri
knattspyrnu, en stórveldið, Glas-
gow Rangers, greiddi fyrir hann
hærri upphæð, 1964, en félagið
hafði nokkurn tíma greitt fyrir
knattspyrnumann. Þórólfur átti
hins vegar við alvarleg veikindi að
stríða síðustu 30 ár ævinnar.“
Systkini Oddnýjar: Björgólfur
Stefánsson Björgólfsson, f. 7.12.
1951, búsettur í Reykjanesbæ; Jó-
hanna Björgólfsdóttir, f. 26.10.
1953, d. 21.11. 1995, deildarstjóri;
Jóhann Björgólfsson, f. 26.2. 1962,
búsettur í Reykjanesbæ.
Foreldrar Oddnýjar voru Björg-
ólfur Stefánsson, f. 3.6. 1921, d.
8.10. 2004, stórkaupmaður í
Reykjavík og síðar slökkviliðs-
maður á Keflavíkurflugvelli, og
Unnur Jóhannsdóttir, f. 12.4. 1923,
d. 21.3. 2009, húsfreyja.
Úr frændgarði Oddnýjar Björgólfsdóttur
Oddný
Björgólfsdóttir
Sólveig Friðriksdóttir
húsfr. á Svarfhóli
Tómas Jónsson
b. á Svarfhóli í Álftafirði við Djúp
Jóhanna Guðrún Tómasdóttir
húsfr. í Rvík
Jóhann Þorleifsson
sjóm. í Rvík
Unnur Jóhannsdóttir
húsfr. í Rvík og í Keflavík
Sveinsína Magnúsdóttir
húsfr. á Kleifabotni
Þorleifur Helgason
b. á Kleifabotni í Ísafirði við Djúp
Mensaldrína Þorsteinsdóttir
húsfr. á Brekkuborg
Stefán Jóhannesson
b. á Brekkuborg í Breiðdal
Elísabet Kemp
húsfr. á Illugastöðum
Lúðvík Kemp
vegaverkstj. á Illugastöðum í Skagafirði
Björgólfur Stefánsson
stórkaupm. í Rvík og slökkvi-
liðsm. á Keflavíkurflugv.
Helga Lúðvíksdóttir Kemp
húsfr. á Ásunnarstöðum
Stefán Árnason
b. á Ásunnarstöðum í Breiðdal
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2013
Hermann Gunnarsson fæddistá Bárugötunni í Reykjavík9.12. 1946. Foreldrar hans
voru Björg Sigríður Hermannsdótt-
ir húsfreyja og Gunnar Gíslason vél-
stjóri. Gunnar var bróðir Jóhanns
lögfræðings og Guðmundar for-
stjóra B&L, föður Gísla, fyrrv. for-
stjóra B&L, föður Ernu, forstjóra
BL. Björg Sigríður var systir hins
gamalkunna markvarðar, Her-
manns í Val, og systir Kristbjargar,
móður Kolbeins, landsliðsmanns í
körfuknattleik, og Vigdísar, lands-
liðskonu í handknattleik Pálsbarna.
Hermann átti þrjú systkini.
Börn Hermanns: Sigrún, f. 1971;
Þórður Norðfjörð, f. 1973; Hendrik
Björn, f. 1975; Björg Sigríður, f.
1983; Edda, f. 1986, og Eva Laufey
Kjaran, f. 1989.
Hermann lauk prófum frá Versl-
unarskólanum. Hann var einn
fremsti knattspyrnumaður hér á
landi á sjöunda áratugnum, varð
fjórum sinnum Íslandsmeistari með
Val, þrisvar bikarmeistari, var kos-
inn Knattspyrnumaður ársins 1968,
lék með Eisenstadt í Austurríki
1969, varð þrisvar markakóngur og
lék 20 A-landsleiki. Auk þess var
hann landsliðsmaður í handbolta.
Hermann var blaðamaður og aug-
lýsingastjóri Vísis 1967-69, skrif-
stofumaður á Skattstofu Reykjavík-
ur 1972-77, frétta- og íþróttafrétta-
maður á RÚV 1977-85, dagskrár-
gerðarmaður á Bylgjunni 1986-87 og
hjá Sjónvarpinu frá 1987 þar sem
hann stjórnaði vinsælasta íslenska
sjónvarpsskemmtiþætti fyrr og síð-
ar, Á tali hjá Hemma Gunn. Auk
þess var hann fararstjóri hjá Útsýn
og Veröld um skeið og skemmti með
Sumargleðinni.
Vorið 2005 hóf göngu sína nýr tón-
listargetraunaþáttur undir stjórns
Hermanns, Það var lagið, sem sýnd-
ur var á Stöð 2. Þá stjórnaði hann
þættinum Í sjöunda himni á Stöð 2
veturinn 2006-2007.
Hermann var einstaklega elsku-
legur, opinn og skemmtilegur en átti
ekki alltaf sjö dagana sæla í oft ein-
manalegu einkalífi. Hann varð bráð-
kvaddur í Taílandi 4.6. 2013.
Merkir Íslendingar
Hemmi
Gunn
95 ára
Guðný Árnadóttir
90 ára
Hjördís Jónsdóttir
85 ára
Sigríður Steindórsdóttir
80 ára
Erla Ólafsson Gröndal
Jóhanna Guðbjörg
Bjarnadóttir
Marselína Jónasdóttir
Þorgrímur Sigurjónsson
Þórdís Björnsdóttir
75 ára
Bragi Hrafn Sigurðsson
Erla Guðmundsdóttir
Gréta Pálsdóttir
Guðni Kristinn
Sigurðsson
Hafliði Jónsson
Karl G. Sævar
Svanhildur Sigurðardóttir
Unnur Óskarsdóttir
70 ára
Agnes Árnadóttir
Anton Guðjón Ottesen
Gunnhildur Valdimarsdóttir
Rósa Guðrún Sighvats
Tryggvi Ólafsson
60 ára
Eydís Ósk Hjartardóttir
Heiðdís Þorvaldsdóttir
Helgi Snorrason
Kjartan Þórðarson
Soffía Þórisdóttir
Stanislaw Józef Nowotny
Stefán Óskar Jónasson
Unnur Kristinsdóttir
Vignir Jón Jónasson
50 ára
Ásdís Ingvarsdóttir
Bragi Björnsson
Cynthia Vasquez Cruz
Dagbjört B. Bjarmarsdóttir
Frans Páll Sigurðsson
Guðbrandur Ægir
Ásbjörnsson
Guðrún Erna Högnadóttir
Heiðar Sigurjónsson
Helgi Einarsson
Ingunn Guðrún Árnadóttir
Kristján Kristjánsson
Wieslawa Bozena Czeczko
40 ára
Auðbjörg Íris Stefánsdóttir
Berglind Helgadóttir
Bratislava Sandra
Stojadinovic
Dorota Rakoczy
Fanney Friðjónsdóttir
Guðrún Einarsdóttir
Jón Örn Michael
Þórarinsson
Khan Markusson
Sigfús Heiðar Árdal
Jóhannsson
Sigurbrandur Dagbjartsson
Valgerður Dögg Jónsdóttir
30 ára
Bjarnheiður P.
Björgvinsdóttir
Björgvin Þór Vignisson
Diðrik Vilhjálmsson
Ewa Wieslawa Wierzbicka
Hildur Jónsdóttir
Ívar Örn Jónsson
Ólafur Elí Líndal Hjartarson
Sigurósk Tinna Pálsdóttir
Snorri Sigtryggsson
Til hamingju með daginn
40 ára Guðný Matthías-
dóttir lauk BA-prófi í E-
consept Development og
starfar hjá Íslandspósti.
Maki: Róbert Halbergs-
son, f. 1980, starfsmaður
hjá Maintsoft.
Börn: Andrea Björk, f.
1995; Nathalie Sunna, f.
1999; Ísabella Lind, f.
2006, og Kristófer Valur,
f. 2012
Foreldrar: Matthías Stur-
lus., f. 1950, og Ingibjörg
Erlendsd., f. 1952.
Guðný
Matthíasdóttir
40 ára Sonja ólst upp á
Siglufirði, er búsett í
Hrafnagilshverfi í Eyja-
fjarðarsveit, lauk MA-prófi
í talmeinafræði og starfar
sjálfstætt sem talmeina-
fræðingur.
Maki: Þór Hauksson, f.
1971, lögfræðingur.
Börn: Eva Líney, f. 2002,
og Enok Atli, f. 2005.
Foreldrar: Guðrún Er-
lendsdóttir, f. 1951, og
Magnús V. Magnússon, f.
1954.
Sonja
Magnúsdóttir
30 ára Sigríður ólst upp í
Þorlákshöfn og Noregi, er
nú búsett á Selfossi og
var að ljúka viðskipta-
fræðiprófi frá HA.
Maki: Haukur Guð-
mundsson, f. 1981, raf-
virki hjá Árvirkjanum.
Sonur: Sveinn Ísak
Hauksson, f. 2010.
Foreldrar: Sveinn Jóns-
son, f. 1959, sjómaður, og
Svava Karlsdóttir, f. 1963,
félagsliði við dvalarheim-
ilið Ás í Hveragerði.
Sigríður Elín
Sveinsdóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Tilboð á
rúðuþurrkum
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is
Með h
verju
m tve
imur
trico
rúðuþ
urrku
m
fylgja
5 lítra
r af
Vaski
rúðuv
ökva