Morgunblaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Bros í hverju hjarta
Vodafone spjaldtölvur fyrir
rafbækurnar, netið og leikina
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
Vodafone
7" Spjaldtölva
39.990 kr.
eða 3.690 kr á mánuði.
Vodafone
10" Spjaldtölva
69.990 kr.
eða 6.490 kr á mánuði.
Brynhildur Pétursdóttir í Bjartriframtíð ræddi í störfum þings-
ins í gær um umræðuna um fjár-
lögin. „Mér finnst svolítið eins og
minnihlutinn sé að tala við sjálfan
sig, oftast í hálf-
tómum sal,“ sagði
hún. Um leið fann
hún að því að lítill
tími væri til umræð-
unnar en tók þó fram
að ekki væri verið
„að tala um eitthvert
málþóf“ því að
stjórnarflokkunum á
síðasta kjörtímabili
hefði þótt til-
hlýðilegt, eins og
hún orðaði það, að
nýta í þetta sex eða
sjö daga.
Það er auðvitað fagnaðarefni aðekki sé verið að tala um málþóf
á þingi þó að þingmenn stjórnar-
andstöðunnar tali hverjir við aðra
fyrir tómum sal. Einhvern tímann
hefði slíkt hátterni einmitt verið
kallað málþóf.
En vissulega er gott að stjórnar-andstaðan taki góðan tíma í
að ræða fjárlögin því að þá getur
hún útskýrt vandaðar fjárlaga-
tillögur sínar rækilega, þó ekki sé
nema fyrir eigin þingflokkum.
Þannig mætti til dæmis útskýrahvernig á að finna 3 milljarða
króna með hertu skattaeftirliti eins
og Samfylkingin gerir ráð fyrir í
tillögum sínum.
Í fyrrnefndum umræðum bentiGuðlaugur Þór Þórðarson á að
Samfylkingin væri nýstigin út úr
fjármálaráðuneytinu og spurði
hvort hún hefði ekki vitað af þessu
fé þá?
Þarf ekki að svara því í ekki-málþófsumræðunum?
Ekki verið að tala
um málþóf
STAKSTEINAR
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Brynhildur
Pétursdóttir
Veður víða um heim 17.12., kl. 18.00
Reykjavík 3 slydda
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri 1 alskýjað
Nuuk -12 léttskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 heiðskírt
Stokkhólmur 5 léttskýjað
Helsinki 2 heiðskírt
Lúxemborg 5 heiðskírt
Brussel 7 skýjað
Dublin 7 skýjað
Glasgow 6 heiðskírt
London 6 skúrir
París 7 heiðskírt
Amsterdam 5 léttskýjað
Hamborg 5 heiðskírt
Berlín 5 heiðskírt
Vín -1 alskýjað
Moskva 2 alskýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 11 heiðskírt
Aþena 8 skýjað
Winnipeg -17 skafrenningur
Montreal -17 skýjað
New York -2 alskýjað
Chicago -4 snjókoma
Orlando 15 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:20 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:07 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 11:52 14:34
DJÚPIVOGUR 10:59 14:50
Á vegum forsæt-
isráðuneytisins
hefur að und-
anförnu verið
unnið að skipu-
lagsbreytingum
vegna flutnings
verkefna frá
mennta- og
menningar-
málaráðuneytinu.
Það eru verkefni
er varða vernd menningararfs Ís-
lands.
Sett verður á fót ný skrifstofa
menningararfs til þess að vinna að
þessum nýju verkefnum í ráðuneyt-
inu og ákveðið hefur verið að Mar-
grét Hallgrímsdóttir þjóðminja-
vörður verði flutt í embætti
skrifstofustjóra á hinni nýju skrif-
stofu til eins árs frá 1. febrúar
2014, að því er fram kemur í til-
kynningu frá ráðuneytinu. Margrét
verður í leyfi frá Þjóðminjasafni Ís-
lands á sama tíma.
Undir nýja skrifstofu menningar-
arfs falla m.a. verkefni er lúta að
vernd menningararfsins, þjóðar-
verðmæta, húsa og mannvirkja og
menningartengdrar byggðar.
Í fjarveru Margrétar verða Anna
Guðný Ásgeirsdóttir og dr. Anna
Lísa Rúnarsdóttir settar til að
gegna embætti þjóðminjavarðar.
Stýrir skrif-
stofu menn-
ingararfs
Margrét
Hallgrímsdóttir
Fjórir björgunarbátar leituðu á
sjó í gær og gönguhópar og
hundateymi á landi að skipverj-
anum sem saknað er af erlendu
flutningaskipi. Leitin bar ekki ár-
angur.
Í gær var sett út rekald með
sendi sem vonast er til að gefi
vísbendingar um strauma í sjón-
um utan Reyðarfjarðar en um
sólarhring tekur að fá þær nið-
urstöður. Þegar nær dregur helgi
verður ákveðið, í samvinnu við
Landhelgisgæsluna, hvort og þá
hvernig leitinni verður haldið
áfram.
Árangurslaus leit
við Reyðarfjörð