Morgunblaðið - 18.12.2013, Síða 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Jú, ég þurfti að hugsa mig um ísmástund, af því ég var meðsítt og fallegt hár næstumniður á rass. En hárið vex
aftur og ef ég get hjálpað einhverju
barni sem hefur ekkert hár, þá vil ég
það. Það þurfti ekki að klippa nema
tuttugu sentimetra af hárinu,“ segir
Ronja Axelsdóttir sem býr í Hol-
landi ásamt móður sinni, en sl.
mánudag gaf hún hárið sitt til hár-
kollugerðar fyrir börn og unglinga
þar í landi sem hafa misst hárið
vegna krabbameinsmeðferðar. Í hol-
lenska sjónvarpinu er þáttur sér-
staklega gerður til að auka þekkingu
barna á ýmsum málefnum og þáttar-
stjórnendur komu fyrir þremur vik-
um í skóla Ronju til að biðja nem-
endur um að bjóða sig fram til að
gefa hár sitt. Sýndur var þáttur um
tíu ára stelpu sem var að fara í gegn-
um krabbameinsmeðferð og það var
eins og við manninn mælt, fjórar
stúlkur með sítt hár gáfu sig fram og
Ronja var ein þeirra. Síðan var tekin
upp þáttur þar sem fylgst var með
Ronja gaf hár sitt til
að hjálpa þeim veiku
Ronja Axelsdóttir og þrjár bekkjarsystur hennar eru sannarlega góðar fyrirmynd-
ir. Sl. mánudag létu þær klippa 20 sentimetra af hári sínu til að gefa í hárkollu-
gerð fyrir börn og ungt fólk sem misst hafa hárið í krabbameinsmeðferð. Ronja býr
í Hollandi en hún er fædd á aðfangadegi jóla, sannkallað jólakærleiksbarn.
Að gefa og þiggja Ronja og Fanny sem greindist 12 ára með krabbamein.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
Munið að slökkva
á kertunum
Aldrei má skilja eftir logandi kerti eða kerta-
skreytingu í mannlausu herbergi s.s. í
fundarherbergi eða á kaffistofu vinnustaðar.
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Assa Cornelisdóttir, móðir Ronju sem gaf hár sitt og sagt er frá hér að ofan,
heldur úti tveimur vefsíðum þar sem hægt er að sjá ýmislegt tengt náminu í
skóiðnhönnun sem hún leggur stund á í
Hollandi. Á assacornelisdottir.com má
sjá hvaðan hún fær daglegan innblástur
og þar setur hún einnig inn athyglis-
verðar myndir af ferlinu að búa til skó.
Á assacornelisdottir.tumblr.com setur
Assa inn tilvitnanir í texta og myndir
sem veita henni innblástur.
Vefsíðan www.assacornelisdottir.com
Skóhönnuður Assa að störfum við að búa til skó. Mörg handtök þar.
Innblástur skóhönnuðar
Í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20:30
bjóða Karlakór Selfoss og Skálholts-
kórinn upp á ókeypis tónleika í Sel-
fosskirkju. Tilvalið tækifæri fyrir Sel-
fossbúa, Sunnlendinga og alla þá
sem unna góðri tónlist að drífa sig.
Kórarnir munu flytja vandaða og fal-
lega jólatónlist í hlýlegu umhverfi
kirkjunnar við kertalýsingu. Tónleik-
arnir hefjast með söng Skálholts-
kórsins undir stjórn Jóns Bjarnason-
ar og síðan flytur sr. Axel Árnason
hugvekju. Þá flytur Karlakór Selfoss,
undir stjórn Lofts Erlingssonar við
undirleik Jóns Bjarnasonar, sína dag-
skrá og endar á laginu fallega sem
kemur mörgum í jólaskap, „Ó, helga
nótt“. Kórarnir vonast til að sem
flestir gefi sér tíma til að koma í Sel-
fosskirkju og eiga með þeim notalega
og hátíðlega kvöldstund til að slaka á
í amstri jólaundirbúningsins, enda
fátt betra í stressinu en að hlusta á
fagran söng.
Ókeypis tónleikar í kvöld í Selfosskirkju
Skálholtskórinn og Karlakór
Selfoss stilla saman strengi
Karlakór Selfoss Hér eru þeir söngmennirnir kátu fyrir framan Selfosskirkju.
Ljósmynd/Jón K.B. Sigfússon
Organisti Jón Bjarnason stjórnar
Skálholtskórnum og leikur undir.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Að gera góðverk er sannarlega sálar-
bætandi fyrir gerandann og væntan-
lega vel þegið fyrir þiggjandann. Því
er full ástæða til að hvetja alla, kon-
ur, karla og börn, til að gera sem flest
góðverk á öllum tímum ársins. Þegar
stutt er til jóla virðist vera auðveld-
ast að ná til fólks og fá það til að láta
gott af sér leiða. Endilega grípið
tækifærið til að gera öðrum gott,
hægt er að velja úr mörgum leiðum
til þess núna, hvort sem það eru bág-
staddir hér heima eða í öðrum lönd-
um. Margt smátt gerir eitt stórt.
Endilega …
… gerið sem
flest góðverk
Morgunblaðið/Þorkell
Bágstaddir Þeir eru um víða veröld.