Morgunblaðið - 18.12.2013, Page 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
✝ Davíð Guð-mundsson
fæddist á Litla-
Sandi á Hvalfjarð-
arströnd, 30. des-
ember 1914. Hann
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Hömrum, 7. desem-
ber 2013. Foreldrar
Davíðs: Guðbjörg
Jónsdóttir, f. 1878,
d. 1979, og Guð-
mundur Brynjólfsson, f. 1867, d.
1949. Systkini Davíðs: Val-
gerður, 1906-1990, Sigurjón,
1907-1958, Steinunn, 1908-1996,
Brynjólfur, 1909-1975, Berg-
þóra, 1910-1985, Njáll, 1916-
1987, og Rósa, 1921-2012.
Hinn 30. apríl 1949 kvæntist
Davíð Rósu Eiríksdóttur, f. 19.1.
1920, d. 11.8. 2008. Foreldrar
hennar: Eíríkur Pétursson og
Sigríður Brynjólfsdóttir Egilseli
í Fellum. Dóttir Davíðs og Heru
Karlsdóttur er 1. Fanney Þur-
íður, f. 1945, m.: Sigurður Ingi
Gíslason. Þau skildu. Börn
þeirra, a. Margrét Björg, f.
1969, m.: Hörður Hermannsson,
börn Thelma Dögg, Fanney
Lilja og Agnes Lína, b. Inga
Rósa, f. 1976, m.: Halldór
Hrannar Halldórsson, börn
Sunneva Hrönn, Hafdís Rut og
Sigurður Ingi. Dóttir Rósu og
dóttir. 6. Sigríður, f. 1956, m.:
Gunnar Guðnason. Börn þeirra
a. Guðni Rafn, f. 1975, m.: Rúna
Dögg Cortez, börn Saga, Sara
og Tumi, b. Svanþór, f. 1979.
Börn með Þórunni Kristínu
Snorradóttur, Gunnar Snorri og
Rebekka Líf, c. Rósa Dögg, f.
1985. 7. Guðmundur Halldór, f.
1959, m.: Svanborg Anna Magn-
úsdóttir. Börn þeirra a. Hjalti
Freyr, f. 1985, b. Ólöf Ósk, f.
1988, c. Andrea, f. 1990. 8. Ei-
ríkur Þórarinn, f. 1964, m.: Sol-
veig Unnur Eysteinsdóttir. Börn
þeirra a. Rósa, f. 1988, m.: Al-
marr Erlingsson, barn Máney
Marín, b. Eysteinn, f. 1991, unn-
usta Steinunn Elfa Jóhanns-
dóttir, c. Eyþór, f. 1995.
Davíð flutti sex ára að Miðdal
í Kjós, lauk barnaskólaprófi í
Kjósinni og var síðan einn vetur
í Íþróttaskólanum í Haukadal.
Hann tók við búi í Miðdal af for-
eldrum sínum 1943 og bjó þar
blönduðu búi allt til ársins 1987
en þá fluttu þau hjónin til
Reykjavíkur.
Davíð var í hreppsnefnd Kjós-
arhrepps og tók virkan þátt í fé-
lagsstörfum sveitarinnar. Hann
stundaði íþróttir á yngri árum
og keppti í glímu. Var hann
meðal annars glímukóngur
Kjósarsýslu. Davíð lærði ungur
á orgel og var organisti í Saur-
bæjarkirkju í tæp 60 ár og einn-
ig nokkur ár í Reynivallakirkju.
Þá söng hann í Karlakór Kjós-
verja meðan kórinn starfaði.
Útför Davíðs fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 18. desember
2013, og hefst athöfnin kl. 13.
Þorsteins Guð-
mundssonar er 2.
Hulda, f. 1946, m.:
Aðalsteinn Gríms-
son. Börn þeirra a.
Erla, f. 1969, m.:
Ólafur Þór Júl-
íusson, börn Snæ-
dís, Sóley og Íris, b.
Lilja, f. 1973, m.:
Þór Hauksson,
börn Borgþór Örn,
Hulda Kristín og
Jóhanna Melkorka, c. Heiða, f.
1981, m.: Guðmundur Ingi Þor-
valdsson, barn Aðalsteinn Ingi.
Börn Rósu og Davíðs eru: 3.
Kristín, f. 1949, m.: Gunnar Rún-
ar Magnússon. Börn: a. Davíð
Rúnar, f. 1973, m.: Alda Davíðs-
dóttir, börn Birkir og Jökull.
Auk þess á Alda Sögu Hrönn
Aðalsteinsdóttur, barn Þor-
steinn Waage. b. Ragnheiður, f.
1978, m: Einar Bragason, börn
Helena, Eyþór og Hafþór, c.
Hilmar, f. 1982, m.: Oddný Þóra
Logadóttir, barn Kristófer. 4.
Guðbjörg, f. 1951. Sonur hennar
og Stefáns Brynjólfssonar er
Róbert, f. 1977, unnusta Shawna
Cook. 5. Katrín, f. 1953, m.: Sig-
urður Ingi Geirsson. Synir
þeirra a. Sigurþór Ingi, f. 1984,
m.: Helga Hermannsdóttir, barn
Hermann Ingi, b. Davíð Þór, f.
1989, unnusta Ásdís Ásgeirs-
Söknuður, virðing og þakklæti
fylla hug minn fyrst og fremst nú
þegar faðir minn er látinn.
Pabbi var yndislegur maður,
með sitt ljúfa viðmót og jafnaðar-
geð en það væri ekki í anda hans
að ég skrifaði mikið lof um hann.
Ég get þó ekki sleppt því að
minnast á nokkur atriði.
Ég var ekki há í loftinu þegar
hann fór að taka mig með sér í
útihúsin til að sinna bústörfum.
Það var eitthvað sérstakt við það
að halda í þessa hlýju, þykku og
traustu hönd þegar hann leiddi
mig við hlið sér.
Pabbi bjó myndalegu blönd-
uðu búi og tók hann við því af föð-
ur sínum. Húsakostur var ekki
mikill en hann dyttaði að þeim
húsum sem fyrir voru og byggði
síðar ný eftir efnum og aðstæð-
um. Þau hjónin voru bæði mjög
gestrisin og var oft þröngt en
glatt á hjalla í gamla húsinu. Það
var hluti af uppvextinum að
hlusta á pabba spila á orgelið.
Hann spilaði á orgel í kirkjunni í
Saurbæ og var gjarnan með
söngæfingar heima í litlu stof-
unni í Miðdal. Oft þegar fólk kom
saman spilaði hann og vildi að all-
ir tækju undir, þá naut hann sín.
Pabbi var traustur maður og
voru honum falin mörg trúnaðar-
störf innan sveitarinnar.
Þegar pabbi og Rósa fluttu í
bæinn var reistur sumarbústaður
í Miðdal. Eitt sinn þegar ég var
stödd uppi í bústað með pabba
kom vinkona mín í heimsókn. Þau
spjölluðu saman og hún spurði
hvað stæði nú upp úr á langri ævi.
Hann svaraði því til að það væri
að börnin skyldu öll komast upp
og verða mannvænlegt fólk.
Ég dáðist að því hvað honum
var alltaf annt um að halda heim-
ilinu sínu í Hæðargarðinum
snyrtilegu eftir andlát Rósu og
hann sagði gjarnan: „Hún vildi
hafa það svona.“
Innilegustu þakkir fyrir allt,
elsku pabbi, far þú í friði.
Fanney Þ. Davíðsdóttir.
Í dag er til moldar borinn Dav-
íð Guðmundsson, fyrrverandi
bóndi í Miðdal.
Davíð náði tæplega 99 ára
aldri og naut þess að geta verið
heima hjá sér utan seinasta mán-
uðinn þegar hann dvaldi á hjúkr-
unarheimilinu Hömrum í Mos-
fellsbæ. Andaðist hann þar eftir
stutt veikindi. Á þessum tíma
kynntumst við frábæru fólki sem
annaðist Davíð af miklum kær-
leik og fengum við oft að heyra:
„Hann er svo góður hann pabbi
ykkar.“ Fyrir þessa umhyggju vil
ég þakka, hún var okkur svo mik-
ils virði.
Já, hann var svo sannarlega
góður, hann pabbi ykkar, þó að
ég væri ekki blóðdóttir hans og
kallaði hann ekki pabba var hann
mér alltaf sem slíkur, gerði ekki
upp á milli barnanna.
Upp í hugann streyma ótal
minningar enda samveran löng.
Æskan í Miðdal í stórum systk-
inahópi auk fjölda skyldmenna og
annarra sem dvöldu þar til hjálp-
ar einkum á sumrin. Þessum
skara var stjórnað af festu en há-
vaðalaust. Davíð naut þess að
spila brids, skipti þá tíminn engu
máli og var mikið hlegið. Einnig
hafði hann gaman af að tefla, var
söngmaður góður, orgelleikari í
Saurbæjarkirkju og fóru flestar
söngæfingar fram í stofunni
heima.
Davíð var mikill framfara-
bóndi, fljótur að tileinka sér nýj-
ungar og rak sitt bú af myndar-
skap. Hann tók einnig virkan þátt
í félagsmálum sveitarinnar og
var vel kynntur. Man hvað ég var
glöð að finna hve öðrum þótti
vænt um foreldra mína. Væntum-
þykja og kærleikur í garð ná-
granna okkar sem og annarra
einkenndi þau.
Þó að Davíð stundaði ekki
hestamennsku sjálfur studdi
hann okkur börnin í því sem öðru,
alltaf tilbúinn að járna og keyra
okkur til að sækja hestana, hafði
gaman af að fylgjast með og leið-
beina.
Það var ekki síst fyrir áskorun
Davíðs að við Alli festum kaup á
Eilífsdal. Það voru ómetanleg 18
ár sem við áttum sem næstu ná-
grannar áður en þau fluttu til
Reykjavíkur. Þau studdu okkur
sem hægt var og gott var að njóta
reynslu Davíðs þegar var farið að
rækta og byggja upp. Alltaf gát-
um við fengið vélar og aðstoð
þegar þurfti. Byggð var sameig-
inleg rétt milli bæjanna, var þar
oft margt um manninn og mikið
fjör. Ekki var síður ómetanlegt
að geta skilið dæturnar eftir hjá
ömmu og afa ef við þurftum að
skreppa eitthvað. Á síðari bú-
skaparárum þeirra var gott að
geta endurgoldið þessa hjálp
þegar á þurfti að halda. Eflaust
var erfið ákvörðun að þurfa að
flytja til Reykjavíkur en Davíð
var ánægður þegar Guðmundur
og Svana keyptu jörðina og tóku
við búskapnum. Þau héldu þó eft-
ir landspildu sem var deilt á okk-
ur systkinin og á einni reistu þau
sumarhús sem þau nefndu Ás.
Þarna gróðursetti hann og rækt-
aði kartöflur og naut hverrar
stundar sem hann gat dvalið þar,
best ef sem flestir voru og eitt-
hvað var verið að framkvæma.
Ég fæ ekki fullþakkað að hafa
fengið að eiga svona góða for-
eldra og systkini. Foreldra sem
hvöttu mig og studdu jafnt í
námi, félagsmálum sem og
áhugamálum, aldrei hallað á
nokkurn mann, ekki háreysti eða
skammir, ákveðin og fylgin sér,
ég gat alltaf treyst þeim.
Elsku Davíð, þú varst okkur
góð fyrirmynd. Takk fyrir sam-
veruna. Þín.
Hulda Þorsteinsdóttir,
Eilífsdal.
Við gluggann ég horfi á heiminn.
Það hallar á það sem ég sé.
Fjólan er álút og feimin
og fífillinn er hvorki né.
Lækur í móanum leikur.
Ljúft er að heyra hans lag.
Kaldur en örlítið keikur
hann kallar á daginn í dag.
Þannig er hugurinn við fráfall
Davíðs Guðmundssonar tengda-
föður míns. Hann var góð fyrir-
mynd og frábær félagi. Fjöl-
skyldunni var hann allt.
Minningarnar hrannast upp
frá liðnum samverustundum.
Birtu slær frá þeim hvar sem á er
litið: í hinu daglega amstri, í fjöl-
skylduboðunum, við spilaborðið, í
sumarbústaðnum Ási eða hvar
sem er.
Davíð var mikill náttúruunn-
andi þótt ekki hafi hann víða
ferðast á nútímamælikvarða.
Þetta sá maður best þegar tæki-
færi gafst til að fylgjast með hon-
um við bústörfin í Miðdal. Þar
skilaði hann ævistarfi sínu með
sóma ásamt eiginkonu sinni Rósu
Eiríksdóttur. Hann þekkti öll
kennileiti í Miðdal og var unun að
heyra hann segja frá. Föður- og
afahlutverkið tók hann alvarlega
og stóð sem klettur við hlið barna
sinna og barnabarna. Traustið
var augljóst.
Tengdafólki mínu færi ég sam-
úðarkveðju. Davíð þakka ég sam-
fylgdina á lífsins vegi. Við sem
eftir lifum vitum að það kemur
dagur eftir þennan dag og minn-
ing hans lifir í hjörtum okkar.
Minning sem er full virðingar og
þakklætis. Megi hann hvíla í friði.
Gunnar Guðnason.
Elskulegur afi minn. Þótt
komið sé að kveðjustund er ekki
bara söknuður sem maður finnur
fyrir heldur einnig þakklæti fyrir
að hafa verið með þér á lífsleið-
inni, hvort sem var í Miðdalnum
góða, Fossvoginum eða sumarbú-
stað þínum Ási með Rósu ömmu.
Mér og eflaust öllum þótti það
mjög dýrmætt að geta tekið í spil
hjá þér í seinni tíð og var ekki
komið að tómum fróðleiksbrunn-
inum þar. Bridge var spilið og var
nánast sem spilin lékju í hönd-
unum á þér slag eftir slag. Gerði
maður sér vonir um að allt gengi
nú upp hjá manni stráfelldir þú
slagina af manni með eindæma
snilli. Það var að mér fannst oft
líka annar maður á bak við andlit
þitt sem tók á móti manni þegar
sest var að spilaborðinu; með
glettin tilsvör og gleði sem skein
oft í gegnum ellilegan líkamann.
En auðvitað var alla jafna aldrei
langt í gleðina og húmorinn hjá
þér, einstaklingi sem best er lýst
sem hlédrægum og virðulegum
manni. Án efa þarf einnig að leita
nokkuð að manni í eins líkamlega
góðu atgervi og þú varst á gamals
aldri; teinréttum manninum sem
nýlega þrátt fyrir háan aldur
setti það ekki fyrir sig að taka
upp kartöflur í sveitinni góðu.
Það er ákveðið stolt sem býr í
mér að vera kominn af þér og for-
réttindi að kynnast gildum ís-
lensku sveitarinnar gegnum þig
og þína afkomendur.
Þó að búið hefði verið að taka
af honum Davíð loforð um að lifa
hundraðasta afmælisdaginn sinn,
þá er það allt í lagi því hann lifir
áfram í hjarta okkar. Megi guð
geyma þig og ég mun halda minn-
ingu þinni á lofti um ókomin ár.
Sigurþór Ingi Sigurðsson.
Elsku afi minn,
Nú brjótast fram minningarn-
ar og yfirtaka daglegt amstur. Í
gegnum hugann fara allar góðu
stundirnar sem við áttum saman
og eru þær allar litaðar af já-
kvæðni og gleði. Undantekning-
arlaust og ómeðvitað færðist bros
yfir andlitið á manni í hvert sinn
sem við heilsuðumst eða kvödd-
umst og nú hefur þú kvatt okkur í
hinsta sinn og við brosum gegn-
um tárin og kveðjum þig en vitum
að þú vakir yfir okkur.
Frá því fyrst ég man eftir þér
og fram á síðustu dagana eru
bara til minningar um gleði,
kímni og jafnvel hlátur, meira að
segja í síðasta kaffiboðinu okkar
saman, í vikunni sem þú kvaddir,
á hjúkrunarheimilinu þar sem
hugsað var svo vel um þig. Þar
settist þú með okkur og brostir
svo eftir er munað.
Það var alveg sama hvort stutt
eða langt var síðan við hittumst,
alltaf varst þú með hugann við
það hvað við barnabörnin hefðum
fyrir stafni og aldrei var til neitt
annað en hamingja þegar talað
var við þig. Maður fann fyrir
sterku tengslunum við heimahag-
ana og það mun liggja innra með
okkur áfram.
Það sitja eftir minningar um
ótal þriðjudagskvöldkaffi með
ykkur Rósu ömmu og mömmu í
Hæðargarði sem virtust hvers-
dagsleg þá en dýrmætari núna en
nokkuð annað. Það er núna sem
maður gerir sér grein fyrir því
hversu verðmætar stundirnar
voru sem við fengum saman,
hvort sem það var kaffiboð í
Hæðargarðinum, „frír“ matur í
matarboði heima, kennsla í kart-
öfluræktun í Ási eða að leggja
kapal eða vel lyktandi skötuveisla
á Þorláksmessu.
Þín verður alltaf minnst á
komandi Þorláksmessum sem og
afmælisdaginn þinn og skírnar-
daginn minn þegar ég fékk þann
heiður að bera nafnið þitt. Sökn-
uðurinn við að sitja ekki með þér
á Þorláksmessu eða komandi af-
mælisdag er mikill en við munum
samt halda upp á daginn til heið-
urs þér.
Kæri afi, það er sár söknuður-
inn við að kveðja þig en á sama
tíma gefur það okkur von um
okkar möguleika á að verða jafn
lífsglöð og jákvæð fram á síðasta
dag eins og þú varst. Nafni þínu
mun ég aldrei gleyma. Þú munt
áfram og alltaf eiga stað í okkar
hjarta, okkar fyrirmynd.
Hvíl í friði, elsku afi, þakkir
fyrir allt.
Davíð Þór Sigurðsson.
Þegar komið er að kveðju-
stund er svo margs að minnast.
Afi okkar var einstaklega
heilsuhraustur og duglegur mað-
ur og sinnti bústörfum og fjöl-
skyldu sinni af natni. Í Miðdal var
alltaf gaman að koma og eigum
við ljúfar minningar þaðan. Ein
af þeim myndum sem upp í hug-
ann koma er þegar hádegisverði
var lokið fór afi alltaf inn í stofu
og fékk sér kríu.
Hann lagði blaðið yfir höfuðið
og dottaði í örfáar mínútur áður
en hann hélt aftur út til bústarf-
anna. Eflaust er hluti af þessum
ljúfu minningum að við fengum
að valsa um og gera allt sem okk-
ur langaði á sama tíma og við
vissum hvar mörkin voru.
Þær voru ófáar stundirnar
sem við lékum okkur í heyinu og
ferðirnar í Land-Rovernum voru
sannkallaðar ævintýraferðir, það
var ekkert slegið af þó vegurinn
væri ósléttur og þá var eins gott
að halda sér fast þó það væri oft
erfitt fyrir hlátrinum.
Í seinni tíð eftir að afi flutti í
bæinn byggði hann sér sumarhús
í Miðdal. Þar er athvarf stórfjöl-
skyldunnar og hélt afi alltaf vel
utan um afkomendur sína. Þar
eiga börnin okkar minningar um
yndislegar stundir, í fótbolta, úti-
leikjum, trampólíni og við stíflu-
gerð og sull í læknum.
Afi hafði mjög gaman af spil-
um. Ef hann var ekki að spila við
fullorðna brids þá tók hann í ól-
sen ólsen og spilaði mörg spilin
við börnin okkar. Ef enginn var
spilafélaginn þá einfaldlega lagði
hann kapal. Spilin voru því mikið
notuð og því fannst börnunum
okkar þau tilvalin til að byggja
spilaborgir.
Elsku afi, okkur langar að
þakka fyrir yndislegar stundir og
kveðjum með þessu fallega ljóði
eftir Þórunni Sigurðardóttur.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Margrét Björg Sigurð-
ardóttir, Inga Rósa
Sigurðardóttir og börn.
Þrátt fyrir að afi Davíð hafi
fengið að lifa lengur en flestir þá
var erfitt að kveðja þegar að því
kom. Það er aðdáunarvert hversu
hraustur hann var sem sýnir sig
best í því að fyrir aðeins tveimur
mánuðum bjó hann ennþá einn og
þá ekki nema tæpir þrír mánuðir
í 99 ára afmælisdaginn.
Á æskuárum okkar bjuggu afi
Davíð og amma Rósa í Miðdal í
Kjós og þar var alltaf gott að
vera. Sumrin í sveitinni eru
ógleymanleg og þar lærðum við
ótal margt um náttúruna og dýr-
in. Þegar afi og amma fluttu svo í
bæinn vorum við svo heppin að
hafa þau í næsta nágrenni. Kjósin
var þeim þó alltaf kær og hefur
fjölskyldan átt óteljandi ánægju-
stundir í Ási, sumarhúsi ömmu
og afa.
Það var alltaf notalegt að
koma til ömmu og afa og móttök-
urnar ávallt hlýjar. Amma bakaði
bakkelsi og afi spilaði við okkur á
meðan. Afi Davíð hafði alltaf
gaman af spilum og skipti þá
minnstu hvað var verið að spila.
Þegar við vorum lítil varð svarti
Pétur eða þjófur oftast fyrir val-
inu en eftir því sem við urðum
eldri fórum við að spila við hann
flóknari spil og hafa barnabörnin
eytt ófáum stundum með honum
við Bridge-borðið. Ekki mátti
spila á föstudaginn langa eða á
aðfangadag en þegar jóladagur
rann upp og við mættum í jólaboð
til ömmu og afa þá var sagan önn-
ur.
Um leið og allir voru búnir að
borða á sig gat af hangikjöti og
öðrum kræsingum voru spilin
dregin fram og spilað fram eftir
nóttu.
Fjölskyldan var afa Davíð afar
hugleikin og var hann duglegur
að fylgjast með okkur öllum. Þótt
fjölskyldan telji nú yfir 70 manns
vissi hann nánast fram á síðasta
dag alltaf hvað allir voru að fást
við. Hann hafði yndi af því að
hitta litlu barnabarnabörnin.
Gaman var að upplifa hvað hann
ljómaði allur þegar hann hitti
nýjasta afkomandann, hann
Tuma, undir það síðasta en ald-
ursmunurinn á þeim er tæp 99 ár.
Við þökkum allar samveru-
stundirnar sem við áttum með
afa Davíð.
Megi hann hvíla í fríði.
Guðni Rafn, Svanþór og
Rósa Dögg.
Davíð
Guðmundsson
✝
Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn,
SÆVAR VILHELM SÖLVASON,
lést föstudaginn 22. nóvember.
Útför hans hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Inga Hulda Sigurgeirsdóttir, Garðar Grétarsson,
Sölvi Þór Sævarsson,
Sigurgeir, Kolbrún Fjóla, Aníta Björg,
Fjóla Oddný Sigurðardóttir,
Björg Hulda Sölvadóttir, Sævar Vilhelm Bullock.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Sólvöllum, Eyrarbakka,
áður Skúmsstöðum,
lést sunnudaginn 15. desember.
Útförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju
laugardaginn 28. desember kl. 14.00.
Vilmundur Þórir Kristinsson,
Sigurður Einir Kristinsson, Erna Alfreðsdóttir,
Gunnbjörg Helga Kristinsdóttir, Gísli Anton Guðmundsson,
ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn.