Morgunblaðið - 27.12.2013, Síða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2013
Allir með Það er ekki nokkurt réttlæti í því að skilja yngstu börnin útundan þegar þau eldri fara að renna sér á skautum. Hér má sjá hvernig þau mál voru leyst í gær á Reykjavíkurtjörn.
Ómar
Tvær merkar
menningarstofnanir
fögnuðu nýverið stó-
rafmælum er bæði
Tónlistarskólinn í
Reykjavík og Tónlist-
arfélagið í Reykjavík
urðu 80 ára. Var
þessara tímamóta
minnst meðal annars
með nokkrum glæsi-
legum tónleikum sem Tónlistarskól-
inn í Reykjavík hélt. Vart er á neinn
hallað þó fullyrt sé að fáir aðilar hafi
lagt meira til klassískrar tónlistar-
menningar hér á landi en þessar
tvær stofnanir. Saga þeirra er
reyndar samofin, enda félagið stofn-
að meðal annars til að styðja við
tónlistarskólann, sem hóf starfsemi
sína í kjölfar Alþingishátíðarinnar
1930.
Tónlistarskólinn í Reykjavík er
elsti tónlistarskóli landsins og hefur
stór hluti íslenskra tónlistarmanna
stundað nám við skólann. Enn í dag
er Tónlistarskólinn í Reykjavík höf-
uðvígi framhaldsmenntunar í tónlist
hér á landi og þaðan útskrifast
meirihluti nemenda á framhalds-
stigi í klassískri tónlist. Í skólanum
er unnið þrotlaust og óeigingjarnt
starf við menntun tónlistarmanna
og þar með uppbyggingu íslensks
tónlistarlífs og menningar-
samfélags. Í skólanum er lögð
áhersla á að veita nemendum góða
og innihaldsríka menntun í hljóð-
færaleik og fræðigreinum í tónlist.
Boðið er upp á fjölda hliðargreina
með tilliti til áhuga og þroska nem-
enda til þess að dýpka skilning og
kveikja áhuga á hinum ýmsu grein-
um tónlistar. Skrautfjöður Tónlist-
arskólans í Reykjavík er sinfóníu-
hljómsveit skólans þar sem
nemendur hljóta nauðsynlega þjálf-
un í hljómsveitarleik og kynnast
mikilvægustu verkum hljómsveitar-
bókmenntanna. Á hverri önn keppa
nemendur um að koma fram sem
einleikarar með hljómsveitinni.
Ekki er síður áhugavert að fylgjast
með árlegum óperuuppfærslum í
Iðnó undir stjórn Þórunnar Guð-
mundsdóttur. Þá er starfræktur
fjöldi minni hljómsveita og kamm-
erhópa við skólann, svo sem
strengjasveit, blásarasveit, klarín-
ettukór, flautukór og minni hópar
en skólinn stendur fyrir fjölda op-
inberra tónleika á ári hverju.
Um árabil stóð Tónlistarfélagið í
Reykjavík fyrir margháttaðri tón-
listarstarfsemi og var helsti tón-
leikahaldari hér á landi á sínu sviði.
Stóð félagið fyrir komu margra
stórkostlegra tónlistarmanna sem
auðguðu verulega íslenska menn-
ingu og verður hlutur félagsins og
þeirra sem þar voru í fyrirsvari í
kynningu á sígildri tónlist ugglaust
seint fullþakkaður. Félagið var
stofnað af 12 athafnamönnum í
Reykjavík, sem gjarnan hafa verið
kallaðir postularnir, en þeir og fleiri
sem að þessu komu unnu mikið og
óeigingjarnt starf. Nú síðustu ár
hefur Tónlistarfélagið í Reykjavík
einbeitt sér að upphaflegu markmiði
sínu, þ.e. að styðja við bakið á Tón-
listarskólanum í Reykjavík, meðal
annars með því að leggja skólanum
til húsnæði sitt og standa að baki
honum eins og því er kostur, en sí-
fellt þarf að huga að viðhaldi og
endurnýjun á hljóðfærum og bún-
aði, svo skólinn haldi sess sínum á
sviði tónlistarkennslu hér á landi.
Á þessum tímamótum hefur verið
ákveðið að gefa nýrri kynslóð
áhugamanna um sígilda tónlist og
tónlistarmenningu kost á að gerast
félagar í Tónlistarfélaginu í Reykja-
vík og verða þannig þátttakendur í
verkefnum félagsins og stuðnings-
aðilar Tónlistarskólans í Reykjavík.
Er nú verið að skrá áhugasama að-
ila á félagaskrá og eru allir sem hug
hafa á og láta sig málefnið varða
boðnir velkomnir. Á móti er ráðgert
að Tónlistarskólinn í Reykjavík
muni bjóða reglulega til styrktar-
tónleika þar sem þeir félagsmenn
sem það vilja geta fengið að njóta
þess mikla árangurs sem skólinn og
nemendur hans hafa náð á tónlistar-
sviðinu. Við hvetjum alla til að taka
höndum saman, ganga til liðs við
Tónlistarfélagið í Reykjavík og
standa vörð um góða og metnaðar-
fulla tónlistarmenntun.
Þá er þess að geta að sérstakir
tónleikar verða haldnir í Hörpu í
byrjun mars nk., í tilefni þess að 110
ár eru í febrúar liðin frá fæðingu
Ragnars Jónssonar í Smára, sem lét
sig öðrum fremur málefni félagsins
og skólans varða. Þó það göfuga
markmið Tónlistarfélagsins í
Reykjavík að koma að byggingu
tónlistarhúss hafi ekki náð fram að
ganga á félagið án efa óbeinan hlut í
þeirri sögu sem síðan endaði í glæsi-
legri Hörpu. Vegna þessara tengsla
hefur Harpa sjálf óskað eftir að
vera með í undirbúningi tónleikanna
á næsta ári.
Eftir Guðrúnu
Nordal og Andra
Árnason
» Við hvetjum alla til
að taka höndum sam-
an, ganga til liðs við
Tónlistarfélagið í
Reykjavík og standa
vörð um góða og metn-
aðarfulla tónlistar-
menntun.
Andri Árnason
Guðrún er formaður Tónlistar-
félagsins í Reykjavík, Andri
er formaður skólanefndar
Tónlistarskólans í Reykjavík.
Guðrún Nordal
Tónlistarstofnanir á tímamótum