Morgunblaðið - 27.12.2013, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2013
Stundum virðist mér semannar hver Íslendingur séSiglfirðingur. Sé alinn þarupp, eigi þar ættboga, hafi
dvalist þar um lengri eða skemmri
tíma í bænum, eigi þaðan vini og svo
framvegis. Oft er líka sagt að þar
sem sé fólk séu alltaf fréttir í ein-
hverri mynd og
víst er að Örlyg-
ur Kristfinnsson
er fundvís á gott
frásagnarefni frá
Siglufirði. Hann
sendir nú frá sér
2. bindi af Svip-
myndum úr síld-
arbæ, en hin
fyrri með þessum
titli kom út fyrir nokkrum árum. Sú
var ljómandi góð og þeim þræði
heldur Örlygur í nýrri bók.
Segja má sögur einstakra byggða
og bæja með ýmsu móti. Stundum
er skrifuð hin opinbera saga, þar
sem framkvæmda og forystumanna
er sérstaklega getið. Slík rit verða
lesendum líklega sjaldan minnis-
stæð, því sögu alþýðufólksins er að
takmörkuðu leyti getið. Fólksins
sem stendur í hinu venjulega basli,
á sína sigra og sorgir, rækir skyld-
ur og er þannig, hvað með sínu
móti, þátttakandi í því spilverki
þjóðfélagsins.
Í Svipmyndum úr síldarbæ 2 eru
margir á sveimi. Upphafskaflinn
fjallar um Ástu Júl og fjölskyldu
hennar og þræði sem liggja út og
suður. Í pokahorni þess kafla er
meðal annars áhugaverð frásögn
um son Ástu, Valbjörn Þorláksson
sem á sinni tíð var kunnur frjáls-
íþróttamaður. Alli King Kong er
heldur enginn venjulegur maður.
Alfreð Jónsson hét hann annars,
var lengi forystumaður Gríms-
eyinga en var Siglfirðingur og mað-
ur sem munaði um. Lýsing á þátt-
töku Alfreðs í
björgunarleiðöngrunum í Héðins-
fjörð vorið 1947 þar sem vél Flug-
félags Íslands fórst er áhrifarík.
„Innan um sundraðan flugvélar-
skrokkinn sat fólkið bundið í sætum
sínum. Allir dánir – tuttugu og
fimm að tölu. Lík flestra voru heil-
leg að sjá … Allt var þögult og kyrr
eftir hinn ægilega árekstur. Dauða-
djúp kyrrðin við þungan undirleik
brimrótsins við klettana,“ segir í
bókinni.
Samandregið má segja að Svip-
myndir úr síldarbæ sé góður vefn-
aður. Margir þræðir eru ofnir sam-
an svo úr verða áhugaverðar
frásagnir. Karlinn í frystihúsinu,
sjómannskonan, lögregluþjóninn og
fleiri spretta ljóslifandi fram. Er þá
ónefndur kaflinn um Kristfinn
myndasmið þar sem Örlygur skrif-
ar um föður sinn af smekkvísi, sem
– ásamt virðingu fyrir söguefnunum
– er einkennandi fyrir bókina alla.
Morgunblaðið/Golli
Sögumaðurinn „Samandregið má segja að Svipmyndir úr síldarbæ séu góð-
ur vefnaður. Margir þræðir eru ofnir saman svo úr verða áhugaverðar frá-
sagnir,“ segir um bók Örlygs Kristfinnssonar.
Góður vefnaður og
virðing fyrir fólki
Sagnaþættir
Svipmyndir úr síldarbæ 2 bbbbn
Eftir Örlyg Kristfinnsson.
Uppheimar, 2013. 268 bls.
SIGURÐUR BOGI
SÆVARSSON
BÆKUR
Í nýju tölublaði Tímarits Máls og menningar, því fjórða í
ár, segir Einar Kárason rithöfundur í ádrepu sögu af því
þegar hann var ráðinn til þess af auglýsingastofu á veg-
um voldugra kostunaraðila að velta vöngum yfir því hve-
nig persónur úr Íslendingasögum myndu birtast okkur í
dag. Þá er birtur fyrirlestur sem Arnaldur Indriðason
flutti á ráðstefnunni Heimur handritanna og einnig er-
indið „Dvergar og stríð“ sem Auður Ava Ólafsdóttir flutti
í september sl.á fæðingardegi Sigurðar Nordals.
Meðal annars efnis má nefna smásögu eftir Nóbelsverðlaunahafann Alice
Munro, grein Hjalta Hugasonar um hrunið frá sjónarhóli guðfræðinnar og
grein Ómars Valdimarssonar um ástandið í Norður-Kóreu. Þá er skrifað um
merkar bækur sem komu út á liðnu ári.
Ritstjóri er Guðmundur Andri Thorsson og kápumynd er eftir Jóhann Pál
Valdimarsson hirðljósmyndara Forlagsins.
Athyglisverð erindi
Einar Kárason
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUMHÖNDUM
Snjallt að
kíkja á okkur
á adal.is
Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í
Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á
þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
4
6
7
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is og www.adal.is
Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn
á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með
bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt.
Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Fös 27/12 kl. 19:30 2.sýn Mið 8/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 16/1 kl. 19:30
Fös 3/1 kl. 19:30 3.sýn Fim 9/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 17/1 kl. 19:30
Lau 4/1 kl. 19:30 4.sýn Mið 15/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 24/1 kl. 19:30
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Lau 28/12 kl. 19:30 58.sýn Lau 18/1 kl. 19:30 61.sýn Mið 29/1 kl. 19:30
Sun 29/12 kl. 19:30 59.sýn Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn Fim 30/1 kl. 19:30
Fim 2/1 kl. 19:30 60.sýn Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Lau 28/12 kl. 13:00 21. sýn Sun 5/1 kl. 13:00 24.sýn Sun 26/1 kl. 13:00 27.sýn
Sun 29/12 kl. 13:00 22. sýn Sun 12/1 kl. 13:00 25.sýn
Mán 30/12 kl. 13:00 23.
sýn
Sun 19/1 kl. 13:00 26.sýn
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Pollock? (Kassinn)
Fös 10/1 kl. 19:30 Lau 11/1 kl. 19:30 Sun 12/1 kl. 19:30
Vel skrifað verk og frábærir karakterar. Aukasýningar komnar í sölu!
Englar alheimsins (Menningarhúsinu Hofi)
Fös 10/1 kl. 20:00 Lau 11/1 kl. 15:00
Englar alheimsins í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í janúar!
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 4/1 kl. 13:30 Lau 18/1 kl. 13:30
Lau 4/1 kl. 15:00 Lau 18/1 kl. 15:00
Síðustu sýningar fyrir jól - sýningar hefjast aftur í janúar.
Sveinsstykki (Stóra sviðið)
Fös 10/1 kl. 19:30 Aukas.
Aukasýning í janúar. Ekki missa af Arnari Jónssyni í þessum einstaka einleik.
Lúkas (Kassinn)
Lau 28/12 kl. 19:30 Lau 4/1 kl. 19:30
Sun 29/12 kl. 19:30 Sun 5/1 kl. 19:30
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Mary Poppins „Stórfengleg upplifun“ – EB, Fbl
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 27/12 kl. 19:00 Fös 3/1 kl. 19:00 Sun 12/1 kl. 13:00
Lau 28/12 kl. 13:00 Lau 4/1 kl. 13:00 Fös 17/1 kl. 19:00
Sun 29/12 kl. 13:00 Sun 5/1 kl. 13:00
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Lau 28/12 kl. 20:00 Sun 12/1 kl. 20:00 Gamla
bíó
Lau 18/1 kl. 20:00 Gamla
bíó
Sun 29/12 kl. 20:00 Mið 15/1 kl. 20:00 Gamla bíó Sun 19/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Fös 10/1 kl. 20:00 Gamla
bíói
Fim 16/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Lau 11/1 kl. 20:00 Gamla
bíó
Fös 17/1 kl. 20:00 Gamla bíó
Flytur í Gamla bíó í janúar vegna mikilla vinsælda
Hamlet (Stóra sviðið)
Fös 10/1 kl. 20:00 fors Fim 16/1 kl. 20:00 3.k. Sun 26/1 kl. 20:00 7.k.
Lau 11/1 kl. 20:00 frums Lau 18/1 kl. 20:00 4.k. Fös 31/1 kl. 20:00 8.k.
Sun 12/1 kl. 20:00 2.k Sun 19/1 kl. 20:00 5.k.
Mið 15/1 kl. 20:00 aukas Fim 23/1 kl. 20:00 6.k.
Þekktasta leikrit heims
Refurinn (Litla sviðið)
Lau 4/1 kl. 20:00 Mið 8/1 kl. 20:00
Sun 5/1 kl. 20:00 Fim 9/1 kl. 20:00
Glænýtt verðlaunaverk. Spennuþrungið, reifarakennt og margrætt
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Fös 27/12 kl. 13:00 Lau 28/12 kl. 13:00 Sun 29/12 kl. 13:00
Fös 27/12 kl. 14:30 Lau 28/12 kl. 14:30 Sun 29/12 kl. 14:30 lokas
Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap