Morgunblaðið - 11.01.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Hólmfríður Bjarnadóttir, eða
Hófý eins og við flest þekkjum
hana, fararstjóri Bændaferða,
verður á skrifstofu
Bændaferða 13. - 17. janúar
kl. 10:00 - 16:00.
Það er því alveg upplagt að kíkja
í Síðumúlann í kaffi, hitta Hófý og
fá upplýsingar um ferðirnar.
Bændaferðir · Síðumúla 2
F E R Ð I R F Y R I R A L L A
Hófý, fararstjóri Bændaferða
verður á skrifstofunni 13. - 17. janúar
Erfitt er að segja til um hvað þessir vösku menn
ræddu sín á milli þar sem þeir voru í vinnu við
Reykjavíkurhöfn í gærdag. Kannski var það
verkið sjálft sem var umræðuefnið eða hvort
komið væri að kaffipásu, þá er alltaf klassískt að
ræða sín á milli um veðrið. Þeir unnu við að
flytja vörur í skipið Kleifaberg RE-70 frá Ólafs-
firði sem lá við bryggju, nýkomið úr slipp. Það
átti að halda á haf út í gærkvöldi.
Rabbað saman í vinnu við Reykjavíkurhöfn
Morgunblaðið/Þórður
Stund milli stríða
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Gjald fyrir að sýna hross á kynbóta-
sýningum hækkar um 2.000 krónur,
ef tillögur Fagráðs í hrossarækt ná
fram að ganga. Hækkunin á að
ganga til Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins (Rml) sem annast sýn-
ingarnar. Milljónir vantaði upp á að
sýningargjöld stæðu undir kostnaði
við kynbótasýningar á síðasta ári.
Landsmót hestamanna verður í
sumar og hefur Fagráð skipulagt
kynbótasýningar í vor og sumar.
Ráðið leggur til að gjald fyrir full-
an dóm verði 20.500 krónur fyrir
hvert hross og 15.500 kr. fyrir bygg-
ingadóm eingöngu. Í báðum tilvikum
hækkar gjaldið um 2.000 kr. sem
svarar til 10-15% hækkunar frá fyrra
ári. Tillögurnar eiga eftir að fara fyr-
ir stjórn Bændasamtaka Íslands og
taka ekki gildi fyrr en atvinnuvega-
ráðuneytið hefur staðfest þær.
Meirihluti gjaldsins rennur til Rml
og öll hækkunin en hluti gjaldsins
fer til að greiða fyrir vallaraðstöðu
og Worldfengur fær einnig smáskerf
af gjaldinu.
Allur kostnaður hækkar
Sveinn Steinarsson, formaður Fé-
lags hrossabænda, segir að sannar-
lega sé þessi hækkun íþyngjandi fyr-
ir hestamenn en vekur athygli á að
allir aðrir kostnaðarliðir við hrossa-
ræktina hafi verið að hækka. Hann
bendir jafnframt á að gjaldið hafi
verið óbreytt frá 2011. „Við stöndum
frammi fyrir kostnaðarhækkunum
eins og aðrir,“ segir hann.
Horft hefur verið til þess að sýn-
ingargjaldið standi að mestu undir
kostnaði við kynbótasýningar. Tölu-
vert vantaði upp á það á síðasta ári.
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir,
fagstjóri búfjárræktarsviðs Ráðgjaf-
armiðstöðvar landbúnaðarins, segir
að Rml hafi tekið við framkvæmd
kynbótasýninganna á síðasta ári af
búnaðarsamböndunum. Það hafi
verið í fyrsta skipti sem fram-
kvæmdin var á einni hendi og sýn-
ingarnar gerðar upp sem ein heild.
Gunnfríður segir að reynt sé að
finna leiðir til að draga úr kostnaði
því Rml vilji annast þetta verk á sem
hagkvæmastan hátt fyrir bændur.
Fagráð leggur til að sýningum þar
sem færri en 30 hross eru skráð
verði aflýst. Þá er til skoðunar hjá al-
þjóðasamtökunum að fækka dómur-
um á minni sýningum.
Íþyngjandi fyrir ræktendur
Sýningargjald á kynbótasýningum hækkar um 2.000 krónur Milljónir vantar
upp á að gjaldið standi undir kostnaði við sýningarhald Reynt að minnka kostnað
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sýning Margir búa sig undir
Landsmót hestamanna í sumar.
Athuganir hefjast í sumar á vegum
Landsnets vegna hugmynda um lagn-
ingu háspennulínu frá virkjunarsvæði
Tungnaár og Þjórsár og norður í land.
Brýnt þykir að auka afhendingarör-
yggi orku nyrðra og tryggja nægt
framboð hennar með tilliti til afhend-
ingaröryggis og þarfa stærri orku-
kaupenda. Á þessari spýtu hangir að
nýtt tengivirki fyrirtækisins við
Búðarhálsvirkjun er hannað með það
fyrir augum að það megi stækka síð-
ar, til dæmis ef Sprengisandslínan
verður reist. Stendur nú til að kanna
áhrif hennar á umhverfi sem er einn
þáttanna sem þurfa að vera á hreinu
þegar ákvörðun er tekin
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðn-
aðarráðherra gangsetti tengivirkið í
gær svo og Búðarhálslínu, sem er 5,2
MW löng og 220kV og flytur rafmagn
inn á meginflutningskerfi Landsnets.
Kostnaður við þessar framkvæmdir
Landsnets er um milljarður króna.
Gert er ráð fyrir að afhending orku
úr Búðarhálsvirkjun hefjist í janúar
en áætlað afl hennar verður um 95
MW. Mikil þörf er á meira rafmagni
inn á kerfið nú, þar sem vatnsbúskap-
ur í miðlunarlónum virkjana á þessu
svæði er óhagstæður.
Iðnaðarráðherra nefndi í ávarpi
sínu við Búðaháls í gær að flutnings-
kerfi raforku á Íslandi væri í tvær
eyjar, Suðurland og Norðurland.
Samtenging þessara orkusvæða með
línu milli landshluta væri hagkvæm.
Þessa hugmynd þurfi að ræða, en al-
mennt sagt sé styrking flutningskerf-
isins eitt mikilvægasta verkið í orku-
málum landsins. sbs@mbl.is
Tengivirkið geti tengst
raflínu yfir Sprengisand
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Orka Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðarráðherra ýtti á takkann.
Búðarhálsvirkjun að komast í gagnið Virki og lína
Ríkisstjórnin hef-
ur ákveðið að að-
stoða við lausn á
fjárhagsvanda
hjúkrunarheim-
ilisins Eirar, að
sögn Jóns Sig-
urðssonar, for-
manns stjórnar.
Telur hann flest
benda til að sam-
komulag takist
um að tryggja fjárhag heimilisins til
framtíðar.
Kröfuhafar hafa samþykkt nauða-
samninga vegna Eirar. Þá hefur
stjórnin verið í viðræðum við
Reykjavíkurborg, ríkið, lífeyrissjóði
og stofnaðila um framtíð hjúkr-
unarheimilisins. Viðræðurnar við líf-
eyrissjóðina hafa snúist um skilmála
á skuldabréfum heimilisins, meðal
annars um lengingu lána og tíma-
bundna lækkun vaxta. Þá verður er-
indi lagt fyrir borgarráð Reykjavík-
ur í næstu viku. Aðkoma ríkisins er
vegna þess að Íbúðalánasjóði er ekki
heimilt að breyta skilmálum á lánum
sínum.
Mikil vinna eftir
Jón segir að þótt það takist að ná
samkomulagi við alla fyrir lok jan-
úar sé mikil vinna eftir. Meðal ann-
ars þurfi að gera skuldabréf fyrir
hverja íbúð en samkvæmt nauða-
samningnum sem lagður verður fyr-
ir héraðsdóm fá íbúðarréttarhafar
afhent skuldabréf til þrjátíu ára.
Ríkið að-
stoðar Eir
Eir Vandi heimilis-
ins að leysast.
Stjórnin vonast til
að lausn sé að finnast
„Þetta hefur farið rólega af stað,“
segir Róbert Axel Axelsson, stýri-
maður á Ingunni AK, sem var í gær-
kvöldi á leið til Vopnafjarðar með
rúmlega 600 tonn af loðnu, en loðnu-
vertíðin hófst á fimmtudagskvöldið.
Róbert segir að vonandi rætist úr
eftir því sem á líði. Enginn sé þó far-
inn að örvænta enn um dræma loðnu-
vertíð, hún sé bara rétt að byrja.
Róbert segir veðuraðstæður á
miðunum lakar. „Það er leiðinda-
veður núna. Það er bara bræla og
kaldafýla í allan dag og mætti vera
betra. Veðrið spilar inn í veiðarnar.
Menn eru bara að bíða þetta af sér og
fara aftur af stað á morgun,“ segir
Róbert.
Ellefu skip voru á miðunum í gær
þegar Ingunn AK hélt til lands.
Kaldafýla á
loðnumiðum