Morgunblaðið - 11.01.2014, Síða 11

Morgunblaðið - 11.01.2014, Síða 11
verkið verður sýnt. „Þá er betra að hafa fleiri foreldra á vaktinni,“ segir Sigríður sem kvíðir þó engu heldur hlakkar til að taka á móti um áttatíu eða níutíu unglingum með leiklist- arbakteríu á háu stigi. „Við þurfum annaðhvort að taka þau inn á heimilin okkar eða leigja skóla. Ég hef lagt drög að því að fá Glerárskóla leigðan en það er okkar hlutverk að sjá um þetta,“ segir Sigríður. „Um páskana verður lagður meiri grunnur að sumrinu og þá hitt- ist hópurinn í Danmörku. Svo í sum- ar, fjórða júlí til fjórða ágúst, verða þau saman og sýna frumsamið verk og það skemmtilegasta við þetta er að það verður frumsýnt á Íslandi og það á Akureyri,“ segir hún. Leiksýningar á ýmsum stöðum Verkið verður sem fyrr seg- ir frumsýnt á Akureyri, nánar tiltekið í menningarhúsinu Hofi. Hópurinn tekur sér viku í æfingar og frum- sýnir svo verkið 11. júlí. Því næst heldur allur hópurinn til Reykjavíkur og sýnir þar og að lokum verður farið austur fyrir á Lunga, listahátíð ungs fólks sem haldin er á Seyðisfirði. Æv- intýrinu lýkur þó ekki þar held- ur fara þau þaðan með Norrænu og halda sýningum áfram í Færeyjum, Danmörku, Noregi og Finnlandi. Það er því ljóst að unglingarnir verða reynslunni ríkari að sumri loknu. Hver með sínu nefi Fram til þessa hefur stjórnandi Fenris lagt nokkuð upp úr að leik- ritin séu á dönsku en í ár er útlit fyr- ir að hver fái að tala sitt tungumál. Sigríður segir að Jóakim, heilinn á bakvið Fenris, sé einstakur maður. „Hann kom hingað síðasta sum- ar með leikhópinn sinn Ragnarock. Þau ferðuðust um landið í þrjár til fjórar vikur og þau gistu til dæmis hjá okkur. Við vorum með fjóra krakka hjá okkur í viku. Þau sýndu hér á 100 ára afmæli lystigarðsins, því næst sýndu þau í Reykjavík, á Vestfjörðum og um allt. Þau enduðu á Lunga-hátíðinni,“ segir Sigríður. Unglingurinn Þema leiksýningar þessa árs er einfaldlega unglingurinn. Krakk- arnir eru nú í óðaönn að æfa sig í leiklistinni. Í verkinu fá þau tæki- færi til að tjá hvernig þau sjá sjálf sig og hvernig þau vilja sjá sig. „Þau lögðu grunninn að verkinu í Finnlandi þar sem þau stilltu sam- an strengi sína og þegar þau hittast næst í Danmörku byrja þau fyrir al- vöru að semja verkið,“ segir Sigríð- ur. Hægt er að sjá meira um verk- efnið á netinu. Hópurinn í Finnlandi er til dæmis með Facebook-síðu sem finna má með því að slá inn Fenris i Finland. Síðan verður gaman að sjá hvernig til tekst þegar verkið verður sett upp, á einhverjum af þeim stöð- um sem nefndir voru. Það er ekki svo galið fyrir Reykvíkinga að bregða sér norður á Akureyri eða til Seyðisfjarðar í sumarblíðunni 2014 til að sjá unglingaleikhúsið að störf- um. Hópurinn Hér er íslenski hópurinn: Sveinn Andri Lund Valdimarsson, Máney Dís Davíðsdóttir, Svanur Berg Jó- hannsson, Embla Eir Halldórsdóttir, Kristín Tómasdóttir, Kristrún Jóhannesdóttir og Freysteinn Sverrisson. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 Einna skemmtilegast er þegar spil hafa bæði fræðslu- og skemmt- anagildi og þeim fer fjölgandi spil- unum í þeim flokki sem koma út á íslensku. Eitt spil sem komið hefur á óvart er spilið Tímalína sem er einfalt í raun og veru en að sama skapi gott fyrir heilabúið. Spilið byggist, eins og nafnið gef- ur til kynna, á því hvort leikmenn viti hvernig raða á atburðum á tímalínuna. Alls eru 220 spil í Tímalínu og á hverju og einu er heiti spils- ins og myndefni á framhliðinni og sömu upplýsingar að viðbættri dag- setningu á bakhliðinni. Hver leikmaður fær fimm spil út- hlutuð og liggja þau á borðinu með upplýsingahliðina niður og einu spili snúið upp á milli leikmanna og við það miðast tímalínan. Segjum að þar komi upp ártalið 1700 og þá er spilum með atburðum yngri en það stillt upp hægra megin við það spil og eldri vinstra megin. Leikmenn geta, svo dæmi sé tek- ið, fengið spil með mynd af dósa- upptakara annars vegar og ljósa- peru hins vegar. Þá spyr maður sig hvort hafi verið fundið upp fyrr og leggur spilin á réttan stað í tímalín- una, þó aðeins eitt í einu. Svo er spilinu snúið við og þá kemur í ljós hvort leikmaður hafði rétt fyrir sér eður ei. Ef ekki þarf hann að draga nýtt spil. Kjarni spilsins er að vera fyrstur til að spila öllum spilum sínum rétt út. Aldur: 8+ Verð: Frá 2990 kr. Kostir: Upplýsandi og spennandi spil sem fær mann til að skynja tím- ann á nýjan línulaga hátt. Ókostir: Það var býsna margt sem gerðist árið 1492, árið sem Kólumb- us „fann“ Ameríku en deila má um hvort rétt sé að miða við það ár þegar spurt er hvenær Evrópubúar uppgötvuðu eitt og annað (kakó og annað sem hann komst í tæri við). Sölustaðir:Eymundsson, Elko, Hagkaup, Spilavinir og fleiri staðir. Spil vikunnar Tímalína Sagan sett í samhengi Sigríður Valdís Bergvinsdóttir tilheyrir þeim góða hópi foreldra sem styðja við bakið á ungling- unum. Hún segir að það hafi ver- ið dálítið sérstakt að kveðja son- inn í lok desember þegar hópurinn fór í tíu daga ferð til Finnlands. „Mömmuhjartað var frekar lít- ið þegar drengurinn var farinn út,“ viðurkennir Sigríður en foreldrarnir munu sjá um stóra hópinn þegar hann kemur til Íslands í sumar. „Við þurfum að hafa fyrir þau mat í allar mál- tíðir og fleira. Svo er það bara eins þegar þau koma til hinna þjóðanna. Finnar sáu um allt hjá þeim þegar hópurinn fór út,“ segir Sigríður sem hefur í nógu að snúast því verkefnið byggist á mennta- og menning- arstyrkjum auk þess sem biðlað er til fyrirtækja um styrki. Stórt hlut- verk foreldra FÓLKIÐ Á BAK VIÐ TJÖLDIN Sigríður Valdís Bergvinsdóttir Gerðu enn betri kaup á þvottavélum og þurrkurum frá Bosch Bosch er rótgróið þýskt vörumerki og eru Bosch heimilistækin þau mest seldu í Evrópu. Opið virka daga frá kl. 11 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 16. Tilboð gilda til 18. janúar 2014 eða á meðan birgðir endast. WAS 28465SN Tekur mest 8 kg. Orkuflokkur A+++. Hámarksvinduhraði: 1400 sn./mín. Kolalaus mótor með 10 ára ábyrgð. Mjög hljóðlát. 15 mín. hraðkerfi. Tilboð: 139.900 kr. Fullt verð: 179.900 kr. Þurrkari WTE 84103SN Tekur mest 7 kg. Orkuflokkur C. 40 mín. hraðkerfi. Krumpuvörn. Tilboð: 99.900 kr. Fullt verð: 129.900 kr. WAE 28271SN Tekur mest 7 kg. Orkuflokkur A+++. Hámarksvinduhraði: 1400 sn./mín. Tilboð: 119.900 kr. Fullt verð: 149.900 kr. Peysur á útsölu Áður kr. 9.900,- Nú kr. 4.950,- Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Opið kl. 10-16 í dag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.