Morgunblaðið - 11.01.2014, Side 14

Morgunblaðið - 11.01.2014, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 HÖLDUM AFTUR AF VERÐHÆKKUNUM Nú er brýnt að íslensk fyrirtæki, sveitarfélög og ríki leggi sitt af mörkum til að skapa stöðugt verðlag. Verðhækkanir á innlendum vörum og þjónustu senda mjög neikvæð skilaboð út á vinnumarkaðinn enda er lág verðbólga ein helsta forsenda nýgerðra kjarasamninga. Horfum fram á veginn og sýnum ábyrgð! Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) styðja frumvarpsdrög um fólksflutn- inga í atvinnuskyni, eins og þau eru á vef innanríkisráðuneytisins. Gunn- ar Valur Sveinsson, verkefnastjóri hjá SAF, taldi þau alls ekki þrengja að leigubílum. „Það að vera með hópbifreiðar fyrir fjóra farþega og fleiri er til þess að auka þjónustuna og gæðin í ferðaþjónustunni,“ sagði Gunnar. Hann sagði að ákvæði í frumvarps- drögunum byndu slíka bíla ákveðnum skilyrðum. Þá ætti að nota í tengslum við ferðaþjónustu og til þess þyrfti ferðaþjónustuleyfi. Umsækjandi þyrfti annaðhvort að hafa rekstrarleyfi sem ferðaskipu- leggjandi eða ferðaskrifstofa. Veita ætti þjónustu gegn fyrirfram um- sömdu gjaldi og ferðin ætti ekki að taka skemmri tíma en hálfan dag eða vera hluti af annarri við- urkenndri ferðaþjónustu. „Þetta fer ekki inn á rekstur leigubílanna og á ekki að skarast við þá,“ sagði Gunnar. „Þetta eru ferðir sem að öðrum kosti væru farnar á stærri bílum.“ Gunnar benti á að leigubílstjórar gætu eftir sem áður sinnt starfi sínu og farið með farþega í ferðir hefðu þeir tilskilin leyfi. Hann sagði að margir leigubílstjórar hefðu ferða- skipuleggjendaleyfi og það hefði leigubílastöðin Hreyfill einnig. Fjöldi leyfa takmarkaður Gunnar benti á að fjöldi leigubíla- leyfa væri takmarkaður. Því skyti skökku við að leigubílstjórar sætu einir að flutningum fárra farþega í stuttum ferðum, meðan eftirspurn væri eftir slíkri þjónustu hjá ferða- þjónustufyrirtækjum. Auk þess væru þessar ferðir yfirleitt farnar út fyrir þau svæði sem leigubílaleyfin væru bundin við. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart Hópferðir Margir leigubílstjórar eru með ferðaskipuleggjendaleyfi. Skarast ekki við akstur leigubíla  SAF styður frumvarpsdrögin Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það vill enginn vera í þessari stöðu. Hana var ekki hægt að sjá fyrir. Við fórum í að flytja inn smjör til að bjarga málum,“ segir Egill Sigurðs- son, bóndi á Berustöðum og formaður stjórn- ar Mjólkursam- sölunnar. Komið hefur fram gagn- rýni á hvernig staðið var að birgðastýringu á mjólkurafurðum á síðasta ári og hvernig staðið var að smjörinnflutningi til að bjarga jólasölunni. Haraldur Benediktsson, alþingis- maður og bóndi, fyrrverandi for- maður Bændasamtaka Íslands, tel- ur að stjórnendur mjólkuriðnaðar- ins þurfi að útskýra fyrir bændum hvað fór úrskeiðis. Það hafi átt að vera fyrirséð að smjör vantaði á markað. Óvæntur sölukippur í haust Meðal annars hefur því verið haldið fram að ef ekki hefði verið flutt út smjör og ostar á fyrrihluta ársins hefði ekki þurft að koma til innflutnings fyrir jólin. Egill bendir á að í upphafi árs hafi verið gert ráð fyrir að framleiðsla á mjólk yrði 6-8 milljónir lítra umfram sölu á innan- landsmarkaði. Því hafi verið flutt út fita í upphafi árs, eins og venjulega. Sá útflutningur hafi verið stöðvaður í apríl, þegar staðfest var söluaukn- ing á mjólk. „Ef við hefðum vitað það í febrúar að við fengjum úr- komusamt sumar og mikla sölu- aukningu í haust hefðum við ekki flutt neitt út.“ Egill segir að vandi íslenskra kúa- bænda á síðasta ári hafi öðrum þræði stafað af mjög jákvæðri þró- un. „Það varð sprenging í eftirspurn eftir fituríkum mjólkurafurðum. Tveir þriðju hluta þessarar miklu aukningar urðu á seinni helmingi ársins, á sama tíma og tíðarfar leiddi til þess að mjólkurframleiðsla dróst hratt saman. Þetta var alls ekki hægt að sjá fyrir og leiddi til þess að mjólkuriðnaðurinn þurfi að flytja inn smjör sem var innan við 0,1% af heildarhráefnisnotkun á árinu. Það var auðvitað staða sem bændur vildu ekki lenda í en var óhjákvæmileg,“ segir Egill. Mjólkursamsalan óskaði eftir heimild til að auka kvótann um mán- aðamótin ágúst-september og síðan var því lýst yfir að öll mjólk sem bændur geta framleitt yrði keypt við fullu verði. Egill segir hugsan- legt að hægt hefði verið að grípa til ráðstafana heldur fyrr en það hefði þó ekki ráðið úrslitum. „Við von- uðumst eftir því fram í nóvember að við myndum hafa þetta af yfir ára- mótin með því að ganga á birgðir.“ Mjólkursamsalan sér öðrum mat- vælaframleiðslufyrirtækjum fyrir mjólkurvörum og Egill segir að fyr- irtækið hafi ákveðið að halda þess- um viðskiptum gangandi auk þess að tryggja framboð á eigin afurðum til neytenda með því að flytja inn 120 tonn af smjöri. Hann segir fráleitt að halda því fram að það sé tilræði við landbún- aðinn að flytja inn smjör og blanda lítillega saman við íslenskar afurðir við framleiðslu á smurostum, bræðsluostum og mozarellaostum. Egill leggur áherslu á að þetta hafi verið gert fyrir opnum tjöldum og tekið fram á hvaða tíma varan yrði á markaði. Hann tekur fram að Mjólkursamsalan hafi ekki áður ver- ið í þessari stöðu og muni vafalaust geta lært af þessu máli, ef staðan komi aftur upp. Tækifæri fyrir bændur „Þetta eru jákvæðir vaxtarverkir eftir endurskipulagningu sem mjólkuriðnaðurinn hefur gengið í gegnum,“ segir Egill og telur að tími sé kominn til að bændur setji þessi mál aftur fyrir sig og einbeiti sér að því að nýta þau tækifæri sem aukning í sölu skapi. „Ég hef stundað kúabúskap í rúm þrjátíu ár. Allan þann tíma hefur verið takmörkun á því hvað við höf- um mátt framleiða fyrir innanlands- markað. Nú er mikil eftirspurn og ánægja með okkar vörur og við hvattir til að auka framleiðsluna. Í því felast mikil tækifæri sem menn ættu að einbeita sér að,“ segir Egill. Vandi vegna jákvæðrar þróunar  Formaður MS segir að gripið hafi verið til innflutnings á smjöri til að bjarga málum vegna samdrátt- ar í framleiðslu og óvæntrar sölusprengingar á haustmánuðum  Hvetur bændur til að nýta tækifærin Morgunblaðið/Árni Sæberg Mjólkurkýr Bændur hafa brugðist vel við hvatningu mjólkuriðnaðarins um að auka mjólkurframleiðslu. Innleggið jókst í nóvember, eftir að hafa verið undir áætlunum um sumarið og fram eftir hausti, og útlitið er gott á nýju ári. Sveiflan » Vegna tíðarfarsins varð mjólkurframleiðslan frá miðju ári og fram í nóvember um 1,5 milljónum lítra minni en áætl- að hafði verið. » Sala á fitu í helstu vöru- flokkum varð 3,1 milljón lítrum meiri á þessu sama tímabili en áætlanir gerðu ráð fyrir. » Sveiflan svarar því til 4,6 milljónum lítra á nokkurra mánaða tímabili. Egill Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.