Morgunblaðið - 11.01.2014, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.01.2014, Qupperneq 16
Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. Fylgstu með okkur á Facebook Útsala 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Ýmsar breytingar voru gerðar á reglum um sjúkratryggingar um áramótin og virðast margar þeirra hafa komið flatt upp á bæði fag- stéttir og hagsmunaaðila. Meðal þeirra breytinga sem um ræðir er hækkun komugjalda hjá heilsu- gæslunni um 15-20%, aukin greiðsluþátttaka sjúklinga í kostn- aði vegna sjúkraþjálfunar og breyttar reglur varðandi læknis- beiðnir fyrir sjúkraþjálfun. Þá voru einnig gerðar breytingar á reglugerð um styrki vegna hjálp- artækja og greiðsluþátttaka sjúk- linga vegna næringarefna, sem gefin eru um slöngu, aukin. Sjúkraþjálfarar hafa gagnrýnt aukna greiðsluþátttöku sjúklinga vegna sjúkraþjálfunar, sem þeir óttast að muni koma verst niður á þeim hópi sem vinnur erfiðisvinnu og þarf á sjúkraþjálfun að halda til að halda sér vinnufærum. Þeir benda m.a. á að oft sé um láglauna- störf að ræða og því komi allar hækkanir illa niður á þessum hópi. Sjúkraþjálfarar hafa einnig verið afar ósáttir með nýja reglugerð um þátttöku Sjúkratrygginga í kostn- aði vegna þjálfunar en þar hefur greiðsluþátttaka verið skilyrt beiðni frá lækni. Mikið óhagræði og aukinn kostnaður fyrir sjúklinga Fyrir breytinguna átti fólk kost á því að sækja allt að tíu tíma hjá sjúkraþjálfara án skriflegrar beiðni frá lækni og árin 2012 og 2013 nýttu 12.000 manns sér þá reglu, hvort ár. Sjúkraþjálfarar segja að breytingin muni hafa í för með sér óhagræði og aukinn kostn- að fyrir sjúklinga, í formi komu- gjalda á heilsugæsluna og gjalds fyrir beiðnina, auk þess sem álag muni aukast á heilsugæslunni og kostnaður ríkisins aukast vegna aukinnar aðsóknar. „Ef þú færð skot í bakið, eða því um líkt, geturðu skottast til þíns sjúkraþjálfara og hann leysir kannski vandamálið á örfáum tím- um. Og þú getur verið kominn aft- ur í vinnu eftir 2-3 daga, í stað þess að bíða heima í viku, tíu daga eftir því að komast til læknisins, svo þú getir komist til sjúkraþjálf- ara,“ segir Unnur Pétursdóttir, formaður Félags sjúkraþjálfara, um gamla fyrirkomulagið en félag- ið hefur skorað á stjórnvöld að draga breytinguna til baka. Mega ekki rukka fullt gjald nema fyrir framhaldsmeðferð Ákvæði um tíu beiðnalausa tíma er að finna í rammasamningi sjálf- stætt starfandi sjúkraþjálfara við Sjúkratryggingar, sem sjúkra- þjálfarar segja að hafi í raun verið rift með setningu reglugerðarinn- ar. Unnur bendir á að þær útskýr- ingar velferðarráðuneytisins, að með gildistöku nýrra laga um heil- brigðisstarfsmenn, sem tóku gildi í byrjun síðasta árs, hafi sjúklingum verið heimilað að leita beint til sjúkraþjálfara án beiðni frá lækni, standist ekki skoðun, þar sem rammasamningurinn hafi bundið hendur sjúkraþjálfara. Þar sé til- tekið að þeir megi eingöngu heimta fullt gjald af sjúklingum ef um framhaldsmeðferð er að ræða. Engar faglegar skorður hjá sérfræðilæknum Unnur ítrekar að í þeim tilfellum þegar sjúklingar leita til sjúkra- þjálfara án beiðni, greiði þeir fullt verð fyrir þjónustuna. Þeir sem hafi leitað sér aðstoðar á grund- velli tíu skipta reglunnar hafi að meðaltali sótt fjóra tíma og enginn leiki sér að því að sækja sjúkra- þjálfun. „Þó að ég hafi mikið álit á eigin starfsstétt, held ég ekki að við séum svo frábær og skemmtileg að fólk komi til okkar að óþörfu, og hafi ekkert betra við tímann og peningana að gera,“ segir Unnur. Hún gagnrýnir þau svör ráðu- neytisins að nauðsynlegt sé að reisa faglegar skorður við því hve- nær unnt sé að efna til útgjalda vegna sjúkraþjálfunar með kostn- aðarþátttöku Sjúkratrygginga, í ljósi nýs samnings við sérfræði- lækna. „Hvar eru þessar faglegu skorður varðandi þjónustu sér- fræðilækna? Það getur hver ein- asti sjúkratryggður Íslendingur pantað tíma hjá sérfræðilækni og myndað þannig greiðsluskyldu Sjúkratrygginga,“ segir hún. Margar óvæntar breytingar  Þurfa nú að greiða fyrir bleiur og hækjur  Greiðsluþátttaka sjúklinga vegna næringarefna aukin um 15%  Gátu ekki innheimt fullt gjald vegna rammasamnings  Gagnrýnir „faglegar skorður“ Morgunblaðið/Eggert Aðför? Í ályktun félagsfundar FS eru stjórnvöld hvött til þess að draga breytinguna um skriflega beiðni sem forsendu greiðsluþátttöku til baka og virða faglegt sjálfstæði sjúkraþjálfara. Sparnaður » Í fjárlagafrumvarpinu 2014 segir að ráðgert sé að lækka kostnað Sjúkratrygginga vegna læknisþjónustu um 200 milljónir króna, kostnað vegna þjálfunar um 100 milljónir króna og útgjöld vegna hjálpartækja um 150 milljónir króna, með sértækum aðgerðum. » „Stefnt er að því að markmiðinu verði náð með aukinni greiðsluþátttöku fólks eða öðr- um takmarkandi aðgerðum,“ segir í frum- varpinu. » Ef gert er ráð fyrir að 12.000 manns leiti á heilsugæsluna eftir beiðnum 2014, mun það kosta ríkið 67,2 milljónir króna, skv. útreikn- ingum Félags sjúkraþjálfara. Morgunblaðið hefur leitað eftir svörum frá velferðarráðuneytinu og Sjúkratryggingum Íslands varð- andi breytingar á reglum um sjúkratryggingar. Meðal þeirra spurninga sem beint var til ráðuneytisins var hvort ástæða væri til að halda að fólk leit- aði til sjúkraþjálfara án þess að nauðsyn bæri til og hvort það hefði verið skoðað hvort breytingin á tíu skipta reglunni myndi auka álagið á heilsugæslunni. Þá var óskað eftir upplýsingum um útreikningana á bak við áætlaðan sparnað. Þau svör fengust hjá ráðuneytinu að er- indinu yrði ekki svarað fyrr en að loknum fundi ráðherra og sjúkra- þjálfara næstkomandi miðvikudag. Í fyrirspurn til Sjúkratrygginga var m.a. óskað upplýsinga um breytingar á greiðsluþátttöku vegna hjálpartækja og spurt hversu mikinn kostnaðarauka allar breyt- ingarnar sem vörðuðu sjúkratrygg- ingar hefðu í för með sér fyrir ólíka hópa. Þeim spurningum var enn ósvarað í gærkvöldi. Svara ekki fyrirspurnum Morgunblaðið/Golli Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is Opið: mán.-fös. 8:30-18:00, lau. 11:00-16:00 Fjögurra barna kerra 129.900 kr. Auðveld og meðfærileg í notkun. Örugg og þægileg sæti með öryggisbeltum. Innbyggð bremsa í handfangi. Hlutur sjúklinga í kostnaði vegna næringar um slöngu jókst um 15% um áramót- in, eða úr 29.500 krónum fyrir mánaðar- skammtinn í 34.000 krónur, fyrir einstaklinga eldri en 18 ára. Þá lækkaði greiðslu- þátttaka Sjúkratrygginga í bleium úr 100% í 90% og breytingar urðu á reglum um hjálpartæki á borð við gervibrjóst, baðstóla og hækjur. „Ef ég á að segja alveg eins og er þá eru menn bara ennþá að átta sig á þessu, við erum eiginlega bara miður okkar,“ segir Bergur Þorri Benjamínsson, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar – landssambands fatl- aðra. „Þarna er búið að gera grund- vallarbreytingu. Eldri borgarar, fatl- aðir og fólk á sambýlum t.d. þarf núna að borga af ótrúlegustu hlut- um, s.s. bleium og hækjum. Þetta var allt frítt áður,“ segir Bergur og gagnrýnir að þessi stefnubreyting hafi átt sér stað án umræðu. Bergur segir tölurnar á bak við breytingarnar misháar, kostnaður vegna bleianna sé ekki verulegur en hlutir eins og baðstólar geti kostað á bilinu 30-50.000 krónur. „Það er búið að láta okkur hafa smáhungurlús í hægri vasann en svo er búið að stela því öllu úr vinstri vasanum. Strípaðar bætur hækkuðu um 8.000 krónur fyrir skatt, þannig að þú sérð að ef mað- ur er farinn að borga annað eins og meira fyrir hjúkrunarvörur, þá er þetta farið,“ segir Bergur. Þá segir hann aukna greiðsluþátt- töku sjúklinga í sjúkraþjálfun einnig munu koma sér illa fyrir þá sem nota þá þjónustu reglulega. Hann segir að ef sjúkraþjálfarar segi sig frá rammasamningnum við Sjúkra- tryggingar sé mjög mikilvægt að ráðuneytið bregðist fljótt og vel við. Greiða fyrir hjálpartæki FLEIRI REGLUGERÐARBREYTINGAR Bergur Þorri Benjamínsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.