Morgunblaðið - 11.01.2014, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014
Kristín Thorodd-
sen gefur kost á
sér í 2.-3. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Hafnarfirði sem
fer fram 1. febrúar
næstkomandi.
Kristín er með BS próf í ferða-
málafræði frá Háskóla Íslands. Hún
hefur látið til sín taka í leik- og
grunnskólum Hafnarfjarðar og er
formaður foreldrafélags Setbergs-
skóla. Helstu baráttumál Kristínar
eru fjölskyldu- og atvinnumál
ásamt mennta- og ferðamálum.
„Trú mín er sú að Hafnarfjörður
þurfi nýja og kraftmikla ein-
staklinga ásamt þeim sem reynsl-
una hafa til að hreyfa við málum
hér í bænum,“ segir í tilkynningu.
Framboð í 2.-3. sæti
Skúli Helgason
gefur kost á sér á
lista Samfylking-
arinnar til borg-
arstjórnarkosn-
inga í vor. Skúli
leggur sérstaka
áherslu á skólamál
og græna hagkerfið og stefnir á 3.
sæti listans í flokksvali sem fram
fer 7.-8. febrúar nk.
„Ég hef ákveðið að taka áskorun
félaga minna í Samfylkingunni um
að bjóða mig fram til að leiða þenn-
an mikilvægasta málaflokk borg-
arinnar á næstu árum,“ segir í til-
kynningu. Skúli er 48 ára, fjögurra
barna faðir, kvæntur Önnu-Lind
Pétursdóttur, dósent á mennta-
vísindasviði HÍ. Hann sat á Alþingi
fyrir Samfylkinguna 2009 til 2013.
Sækist eftir 3. sæti
Kristín Soffía
Jónsdóttir um-
hverfisverkfræð-
ingur gefur kost á
sér í 3. sæti í
flokksvali Sam-
fylkingarinnar
fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar í Reykja-
vík sem fram fara í vor.
„Síðastliðin fjögur ár hef ég
sem formaður og nefndarmaður í
lykilnefndum unnið af fullum
krafti að því að gera góða borg
betri. Ég átti frumkvæði að því að
gera Laugaveginn að göngugötu,
leiddi gerð umhverfis- og auð-
lindastefnu fyrir borgina, og tók
virkan þátt í gerð nýs að-
alskipulags Reykjavíkur 2010-
2030,“ segir m.a. í tilkynningu frá
Kristínu.
Framboð í 3. sæti
Sævar Már Gúst-
avsson gefur kost
á sér í 4. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins
fyrir bæjarstjórn-
arkosningar í
Hafnarfirði 1.
febrúar nk.
Hann hefur lokið BA-gráðu í sál-
fræði við Háskólann í Reykjavík en
hann hefur einnig kennt tölfræði í
viðskiptadeild skólans. Sævar hefur
meðal annars starfað við blaða-
mennsku, rannsóknarstörf og skóg-
rækt. „Ég býð fram krafta mína til
að vera málsvari hægrimanna í
Hafnarfirði og ábyrgrar fjár-
málastefnu. Skuldastaða Hafn-
arfjarðar er þannig að framtíð-
arbúsetu ungs fólks í Hafnarfirði er
ógnað,“ segir m.a. í tilkynningu..
Framboð í 4. sæti
Lárus Axel Sig-
urjónsson eftirlits-
fulltrúi þjónustu-
og gæðamála hjá
Strætó bs. gefur
kost á sér í 4. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisfélagsins í
Kópavogi vegna bæjarstjórn-
arkosninganna í vor.
„Ég er uppalinn í Kópavogi og er
fæddur 17. nóvember 1976. Kópa-
vogsbúi er ég í húð og hár. Miklar
breytingar og hraður uppvöxtur
hefur verið í bænum undanfarin ár
og finnst mér skylda mín sem
heimamaður að taka þàtt í að gera
góðan bæ betri,“ segir m.a. í til-
kynningu frá Lárusi.
Hann sótti fjarnám við Háskól-
ann á Bifröst og lauk diplómanámi í
verslunarstjórnun.
Sækist eftir 4. sæti
Unnur Lára Bryde
gefur kost á sér í
2. sæti á framboðs-
lista Sjálfstæðis-
flokksins í Hafn-
arfirði í prófkjöri
flokksins.
Unnur Lára er
varaþingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðvesturkjördæmi. Hún er
viðskiptafræðingur að mennt, hef-
ur unnið við markaðsstörf, rekið
eigin verslanir um árabil og starfar
nú hjá Icelandair sem flugfreyja og
við öryggisþjálfun áhafna. Unnur
er 42 ára, gift Stefáni Hjaltested
rafverktaka og eiga þau tvö börn.
,,Ég hef mikinn metnað fyrir hönd
Hafnarfjarðarbæjar og býð fram
krafta mína til að gera góðan bæ
öflugri og betri,“ segir m.a. í til-
kynningu frá Unni Láru.
Sækist eftir 2. sæti
Stjórnmálaflokkarnir velja á næstunni frambjóðendur á lista fyrir komandi
kosningar. Morgunblaðið birtir fréttir af þeim sem gefa kost á sér.
Prófkjör flokkanna árið 2014
Nú í 1/2 lítra umbúðum
E
N
N
E
M
M
/S
IA
•
N
M
59
75
5
EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR
KEMUR HEILSUNNI Í LAG
VÍTAMÍNDAGAR
20% AFSLÁTTUR TIL 31. JANÚAR
Fyrsta bílasýning Toyota á nýju ári verð-
ur haldin í dag, laugardaginn 11. janúar,
frá kl. 12 til 16. Frumsýndur verður nýr
jeppi, Land Cruiser 150. Nokkrar útlits-
breytingar eru á bílnum frá fyrri út-
gáfum.
Avensis Terra verður einnig kynntur á
sérstöku tilboðsverði á sýningunni og í
takmarkaðan tíma að sýningu lokinni.
Þá mun Toyota kynna á sýningunni ný
gæðalán Toyota í samstarfi við Ergo. Þar
verða boðin vaxtalaus lán fyrir 40% af
verði bílsins til allt að þriggja ára, segir í
tilkynningu frá fyrirtækinu.
Bílasýning Toyota verður á laugardag
hjá öllum viðurkenndum söluaðilum
Toyota sem eru í Reykjanesbæ, Kauptúni
í Garðabæ, á Selfossi og á Akureyri.
Frumsýna nýjan Toyota Land Cruiser
Bílasýning Starfsmenn Toyota gera nýja jeppann kláran fyrir sýninguna.