Morgunblaðið - 11.01.2014, Side 29
FRÉTTIR 29Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014
BAKSVIÐ
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Bandaríski loftslagsvísindamaður-
inn Michael Mann hefur þurft að
verja umtalsverðum tíma á undan-
förnum árum í
dómsal vegna
fræðistarfa sinna.
Auk þess að hafa
fengið morðhót-
anir og verið líkt
við barnaníðing
vegna þeirra hef-
ur honum verið
stefnt til að af-
henda alla tölvu-
pósta sína til sam-
taka sem hafna því að menn beri
ábyrgð á loftslagsbreytingum.
Mann hefur kallað yfir sig reiði
hópa sem neita því að loftslagsbreyt-
ingar séu af mannavöldum en hann
er meðal annars einn höfunda hins
svonefnda íshokkígrafs sem sýnir
hvernig hitastig í heiminum jókst við
upphaf iðnvæðingarinnar.
Styrkt af orkufyrirtækjum
Það eru samtökin American
Traditions Institute (ATI) sem
stefndu Mann á grundvelli upplýs-
ingalaga í Virginíuríki sem kveða á
um að fjölmiðlar og félagasamtök
eigi rétt á aðgangi að gögnum op-
inberra starfsmanna. Mann starfaði
hjá Virginíuháskóla til ársins 2005 en
stjórnar nú rannsóknarmiðstöð
Penn State-háskólans í Pennsilvan-
íu.
Samtökin hafa í gegnum tíðina
verið styrkt af félögum tengdum
Koch-bræðrum og stórum orkufyr-
irtækjum á borð við Exxon Mobil.
Þau áttu meðal annars þátt í því að
lög voru samþykkt í Norður-Karól-
ínu sem banna yfirvöldum þar að
taka tillit til rannsókna á hækkun
yfirborðs sjávar við skipulagsvinnu
sína.
„Þessi tölvupóstsamskipti eru frá
tíma þegar víðtæk stefna bæði inn-
anlands og á heimsvísu var mörkuð.
Í ljósi gríðarlegs mikilvægis þeirrar
stefnumörkunar sem þessir póstar
áttu þátt í þá á almenningur rétt á að
vita hvað þessir ríkisstarfsmenn
voru að gera og hvernig,“ segir í
svari lögmanns ATI við fyrirspurn
bandarísku útgáfu The Guardian um
hvers vegna þau sækist eftir gögn-
unum.
Stórir fjölmiðlar eins og Wash-
ington Post, bandaríska ríkisútvarp-
ið NPR og AP-fréttastofan hafa
stutt stefnu ATI og vísa til upplýs-
ingafrelsis.
Hamli framgangi vísinda
Virt samtök fræðimanna hafa á
móti stutt Mann, þar á meðal Vís-
indaakademía Bandaríkjanna
(NAS), Samtök bandarískra há-
skólaprófessora og Háskólinn í Virg-
iníu. Telja þau að með kröfunni um
tölvupóstana sé vegið að akademísku
frelsi fræðimanna.
„Víðtækar beiðnir um gríðarlegt
magn gagna og skráa eru harkalegar
og dýrar. Þær leggja auknar byrðar,
sérstaklega á bandaríska opinbera
háskóla. Til lengri tíma litið myndu
þær hægja á rannsóknum og kæfa
framgang vísindanna,“ segir Ralph
Cicerone, forseti NAS.
Ógn gegn vísindamönnum
Tölvupóstar Manns voru á meðal
fjölda tölvusamskipta loftslagsvís-
indamanna í fremstu röð sem var
lekið í fjölmiðla eftir að brotist var
inn í netþjón Háskólans í Austur-
Anglíu á Bretlandi árið 2009. Afneit-
unarsinnar notuðu valda kafla úr
þeim til að grafa undan trausti al-
mennings á loftslagsvísindum.
Peter Fontaine, lögmaður Manns,
segir að ATI sé að fiska eftir hverju
sem er til að skaða trúverðugleika
skjólstæðings síns með því að kom-
ast í gögn hans. Tilgangurinn sé
einnig að ógna öðrum vísindamönn-
um sem leggi stund á loftslagsvís-
indi.
Stefna um gögn fræðimanns sögð
munu hefta framgang vísinda
Afneitunarsinnar krefjast tölvupósta eins fremsta loftslagsvísindamanns heims
AFP
Loftslagsmál Aðgerðasinnar krefjast aukinna aðgerða vegna hlýnunar
jarðar við fund Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í nóvember.
Michael Mann
Jemena sem hefur
verið í haldi
bandaríska hers-
ins í Guantánamo-
fangabúðum á
Kúbu í yfir áratug
verður sleppt
samkvæmt
ákvörðun nefndar
sem farið hefur yf-
ir mál hans.
Hinn 33 ára
gamli Mahmud Mujahid hefur verið
í haldi frá árinu 2002 en hefur aldrei
verið formlega ákærður. Hann var
sakaður um að hafa verið stríðs-
maður al-Qaeda og lífvörður Osama
Bin Laden.
Mujahid var fyrsti Guantánamo-
fanginn sem kom fyrir sérstaka end-
urskoðunarnefnd sem Barack
Obama Bandaríkjaforseti skipaði í
viðleitni sinni til að loka fangelsinu.
Sex fulltrúar nefndarinnar hafa
nú ákveðið að Bandaríkjunum stafi
ekki lengur bráð ógn af Mujahid.
Heimildir herma að hann hafi áður
verið talinn of hættulegur til að
sleppa en að ekki hafi verið hægt að
ákæra hann vegna skorts á sönn-
unargögnum og viðeigandi lögsögu
að því er kemur fram í frétt breska
ríkisútvarpsins BBC. Engu að síður
hefur honum verið haldið föngnum
hingað til.
Talsmaður bandaríska varnar-
málaráðuneytisins sagði þarlendum
fjölmiðlum á fimmtudag að ekki lægi
enn fyrir hvenær Mujahid yrði
sleppt. Lögmaður hans segir að
aldrei hefði átt að halda honum en
hann geti nú sameinast fjölskyldu
sinni.
Sleppt eftir
tólf ára vist í
Guantánamo
Hlið Guantánamo-
búðanna.