Morgunblaðið - 11.01.2014, Page 34

Morgunblaðið - 11.01.2014, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 20 ár eru nú liðin frá frækilegu björgunarafreki þyrlubjörgunar- sveitar varnaliðsins á Keflavíkur- flugvelli þegar sex skipverjum af björgunarskipinu Goðanum var bjargað í Vöðlavík sem liggur norður af Reyðarfirði. Einn skipverjanna tók fyrir borð og fórst nokkru áður en til björgunaraðgerða kom. Aðfaranótt 10. janúar 1994 strandaði björgunarskipið Goðinn í Vöðlavík í miklu óveðri og for- áttubrimi eftir að hafa gert tilraunir til að draga togbátinn Bergvík á flot með aðstoð björgunarsveitarmanna í landi. Bergvíkin strandaði í Vöðlavík nokkru áður eða 18. desember 1993. Þyrla eini möguleikinn Björgunarsveitarmennirnir sem voru búnir tækjum og tólum til björgunar í sjávarháska gátu ekki athafnað sig við þær veðuraðstæður og brimskafla sem gengu yfir Goð- ann. Ekki bætti úr skák hversu Goð- inn lá strandaður langt frá landi. Fljótlega varð ljóst að eini möguleik- inn til björgunar var með þyrlu. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF- SIF hélt af stað frá Reykjavík en varð frá að hverfa vegna óveðurs og ísingar. Leitað var aðstoðar björg- unarsveitar varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli og héldu tvær Sikorsky HH60 Pave Hawk þyrlur björg- unarsveitar varnarliðsins af stað austur. Þyrlurnar voru búnar afísing- arbúnaði. Einnig fylgdi Herkules eldsneytisflutningavél sem veitt gat þyrlunum eldsneyti á flugi. Gríð- arlegur mótvindur og ókyrrð var á leiðinni. Hraðamælar þyrlanna sýndu að þær væru á 260 kílómetra hraða en mótvindurinn gerði hins vegar að verkum að raunverulegur hraði þeirra miðað við jörð var helm- ingi minni eða einungis 130 kíló- metrar á klst. Bilun varð í Herkules vélinni og varð hún að snúa aftur til Keflavíkur. Ljóst var að þyrlurnar höfðu ekki nægt eldsneyti austur til Vöðlavíkur en ákvörðun var tekin um að halda björgunarleiðangrinum áfram og afráðið að taka eldsneyti á Höfn. Eftir eldsneytistöku á Höfn lentu þyrlurnar í fárviðri með til- heyrandi ókyrrð og niðurstreymi og áttu flugmenn þeirra í miklum erfiðleikum með að halda stjórn á þeim og minnstu munaði að illa færi. Á bólakaf í hafrótið Ekkert fjarskipta- samband var milli skipverja Goðans og björgunarsveita- manna en þegar björgunarsveitirnar höfðu fengið það staðfest að þyrlur væru væntanlegar þá líktu björgunarsveitarmennirnir eftir þyrluspöðum með því að rétta út hendurnar og snúa sér í hringi í fjörunni. Skipverjarnir, sem stóðu uppi á brúarþaki Goðans og en þeir héldu sér í handrið og ýmsan annan fastan búnað skipsins meðan brim- skaflarnir riðu yfir, skildu boðin og fylltust eldmóði og trú á björgun. Þegar þyrlurnar voru að athafna sig yfir Goð- anum voru þær látnar „hanga“ upp í storminn sem stóð af hafi og erfitt að fá viðmið yfir flakinu. Vindhviðurnar voru öfl- ugar og hraðamælar gáfu til kynna að vindstyrk- urinn hefði verið um 100 – 120 kílómetrar á klst.. Mörg loftnet stóðu upp af brú Goðans sem gerði sig- mönnum erfitt að athafna sig og einnig þurftu flug- mennirnir að gæta sín vel á þeim. Á ýmsu gekk við björgunina af brúar- þaki Goðans en í einni „hífingunni“ með tvo skipverja í björgunarstól missti þyrlan hæð svo að þeir fóru á bólakaf í hafrótið en til allrar ham- ingju náðu flugmennirnir aftur stjórn á þyrlunni sem kippti þeim upp úr sjónum heilum á húfi. Að loknum björgunaraðgerðunum lentu þyrlurnar í Vöðlavík og björg- unarsveitin tók við fjórum skipverj- um en samkvæmt mati læknis þyrlu- björgunarsveitarinnar þurftu tveir að komast undir læknishendur. Var því afráðið að halda til Egilsstaða. Þegar hér var komið var farið að skyggja og veðrið engu skárra, hríð- arkóf og skyggnið því afleitt. Stefnan var tekin yfir Norð- fjarðarflóann og afráðið að fljúga inn Mjóafjörð í áttina að Egilsstöðum. Strax eftir flugtak í Vöðlavíkinni misstu flugmennirnir sjónar nánast á öllum staðháttum. Flugmennirnir settu þá upp nætursjónauka en snjó- koman kom í veg fyrir að þeir kæmu að fullum notum og flogið var í um 30 m. hæð. Það reyndist flugmönnunum afar erfitt og þreytandi að fljúga með nætursjónaukana í hríðarkófinu. Þegar kom að Mjóafjarðarheiðinni var þar snjóbylur, ekkert skyggni og mikil ókyrrð. Var því ákveðið að snúa við og halda til Hafnar í Horna- firði. En þegar þyrlurnar voru staddar út af Norðfjarðarnípunni sem liggur milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar sýndist áhöfn síðari þyrlunnar þeirri fyrri hvolfa fyrir framan sig en hún hafði þá fengið á sig mikinn sviptivind. Þetta atvik fyllti mælinn. Áhafnir þyrlnanna voru þá orðnar langþreyttar en björgunarleiðangur þessi hafði þá staðið í um átta klukkustundir og tekið mjög á mannskapinn bæði andlega og lík- amlega og því var afráðið að lenda þyrlunum við fyrsta tækifæri. Vissu ekki af flugvellinum og lentu á bílastæði Tekin var stefna á bæinn sem þeir höfðu séð ljósin frá nokkru áður og reyndist vera Neskaupstaður en áhöfnin hafði ekki frekari upplýs- ingar um bæinn. Þegar þyrlurnar voru komnar yfir Neskaupstað þá var kveikt á kösturum þeirra í leit að lendingarstað í bænum en áhöfnin hafði ekki hugmynd um flugvöllinn sem liggur litlu innan við bæinn. Eftir að þyrlurnar höfðu sveimað um stund yfir bænum var afráðið að lenda þeim á bílastæði fyrir framan Kaupfélagið Fram í Neskaupstað en svo heppilega vildi til að bílastæðið var autt en þakið snjókrapi en það hafði ekki verið rutt þennan dag. Fyrri þyrlan sem lenti fékk aðstoð frá áhöfninni á þeirri seinni við að lenda á þröngu bílastæðinu sem um- lukið var húsum og ljósastaurum og svo öfugt þegar þeirri seinni var lent. Lending þyrlnanna var mikið nákvæmnisverk þar sem engu mátti skeika og sýndu flugmenn þeirra mikla yfirvegun og fagmennsku við þessar erfiðu aðstæður. Fyrir íbúa Neskaupstaðar var þessi aðkoma og lending þyrlnanna óvænt og ógleymanleg. Fyrst heyrð- ist í mótorum þeirra í myrkrinu og éljunum úti á firðinum og svo voru leitarljósin, „ískastararnir“, tendruð og þyrlurnar sveimuðu í nokkurn tíma yfir bænum í leit að lendingar- stað. Þegar þyrlurnar komu inn til lendingar á kaupfélagsplaninu var afgreiðslufólki Kaupfélagsins og við- skiptavinum mjög brugðið en stórir gluggar voru á kaupfélaginu sem sneru að bílaplaninu. Miklar loft- þrýstings- og hljóðbylgjur frá þyrlu- spöðunum dundu á gluggunum og óttaðist fólkið að rúðurnar myndu springa inná við en allt fór vel. Árangursríkasta flugferðin 1994 Íbúar Neskaupstaðar tóku afar vel á móti þyrlubjörgunarsveitinni og bauð bæjarstjórnin þeim í mat og gistingu og loks voru þeir drifnir í gufubað og var stutt í brosið hjá áhöfninni þegar þeir höfðu fast land undir fótum. Fyrir þetta frækilega björgunar- Björgun áhafnarinnar á Goðanum Eftir Bjarna Stefánsson » Þegar þessi einstaki björgunarleiðangur er skoðaður verður ekki hjá því komist að taka eftir þeim einhug og ein- beitni sem ríkti til að bjarga skipverjunum á Goðanum sem áttu líf sitt undir að fá utan- aðkomandi hjálp. Bjarni Stefánsson Morgunblaðið/Þorkell Viðurkenning Áhafnir björgunarþyrlna varnarliðsins voru heiðraðar fyrir afrekið í Vöðlavík við athöfn 11. janúar, strax daginn eftir að þeir björguðu áhöfninni á Goðanum í fárviðri og stjórsjó um hávetur. Viðstaddir voru (f.v.) Michael D. Haskins flotaforingi, Robert J. Gmyrek, ofursti áhafnarinnar, áhafnirnar, Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, Gunnar Felixson, fulltrúi Björgunarfélagsins, og Helgi Hallvarðsson skipherra. Erfiðar aðstæður Tveimur dögum eftir björgunina birtust myndir frá slysstað í Morgunblaðinu. 30 stk pakki á aðeins 2500.- FRÍ SJÓNMÆLING Klippið út auglýsinguna Verið velkomin HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9:30-18, LAUGARDAGA: 11-14 Frábærar daglinsur sem hafa heldur betur sannað sig TRAUS T OG GÓ Ð ÞJÓNU STA Í 17 ÁR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.