Morgunblaðið - 11.01.2014, Page 37

Morgunblaðið - 11.01.2014, Page 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 ✝ Guðný HelgaBaldursdóttir fæddist í Neskaup- stað 28. mars 1974. Hún lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans í Fossvogi 1. janúar 2014. Foreldrar Guð- nýjar Helgu eru Baldur Gunn- laugsson frá Beru- firði, f. 3. febrúar 1947, og Svandís Kristinsdóttir frá Merki, f. 23. september 1948. Systkini Guðnýjar Helgu eru Anna Heiður, f. 11. apríl 1978, og Gísli Hjörvar, f. 18. apríl 1984. Dætur Önnu Heiðar og Finns Sigurðssonar, f. 21. nóvember 1972, eru Dýrleif Finnsdóttir, f. 7. júní 2006, og Hildur Finns- dóttir, f. 4. september 2013. Guðný Helga giftist Björgvini Ragnari Einarssyni, f. 8. desem- ber 1971, þann 27. desember 2009. Börn þeirra eru Gabríel Örn Björgvinsson, f. 14. október 1995, Ka- milla Marín Björg- vinsdóttir, f. 25. febrúar 2000, og Ís- old Gígja Björgvins- dóttir, f. 20. maí 2005. Guðný Helga starfaði um tíma sem versl- unarmaður og heimilishjálp í Reykjavík og Hafnarfirði en síð- astliðin fimmtán ár starfaði hún hjá Landsbanka Íslands og síðar Sparisjóði Hornafjarðar, Íslands- pósti og VÍS á Djúpavogi. Hún sinnti einnig félagsstörfum hjá Ungmennafélaginu Neista um árabil. Útför Guðnýjar Helgu fer fram frá Djúpavogskirkju í dag, 11. janúar 2014, og hefst athöfn- in kl. 14. Elsku Guðný Helga okkar. Nú þegar þú ert farin frá okkur til annarra heima stönd- um við eftir harmi slegin. Þú sem alltaf varst nærri, boðin og búin til hjálpar og leystir úr flestum vanda. Söknuður okkar er meiri en nokkur orð fá lýst. Við kveðjum þig með sára sorg í hjarta söknuðurinn laugar tári kinn. Dregur ský á dagsins ásýnd bjarta dökkur skuggi fyllir huga minn. Í miðjum leik var komið til þín kallið klippt á strenginn þinn. Eitt af vorsins fögrum blómum fallið. (Hákon Aðalsteinsson) Kærar þakkir fyrir allt. Guð geymi þig. Mamma og pabbi. Elsku Guðný. Ég ætla að reyna að hafa þetta ekki langt, ég veit að þú varst aldrei fyrir mikið orða- gjálfur. Mig langar bara að telja upp hluti sem hafa runnið í gegnum hugann á síðustu dög- um. Þú að laumast að heiman til vinkvenna þinna meðan mamma reyndi að halda mér upptekinni svo þú gætir einstaka sinnum leikið við þær ótrufluð. Við syst- ur að skauta, annaðhvort hérna á balanum eða fyrir neðan tún. Eða búa til snjóhús á hlaðinu og fá okkur heitt kakó og osta- brauð á eftir. Saman að renna okkur í brekkunni inni á túni. Með pabba á olíubílnum að fara með olíu inn í sveit. Og með mömmu og pabba og öllum hin- um í heyskap. Þegar þú ákvaðst að kenna mér að lesa af mikilli röggsemi með góðri aðstoð Stebba og Gísla. Og auðvitað þegar þú ákvaðst að fara með til Reykjavíkur þegar Gísli Hjörvar fæddist (það reyndi enginn að stöðva þig þegar þú beist eitt- hvað svona í þig). Við rifumst stundum en út á við varðir þú mig alltaf með kjafti og klóm eins og stórar systur einar gera. Seinna meir snúast minning- arnar um þig með börnin þín. Þó þú værir aldrei mikið fyrir að hæla sjálfri þér eða þínum flaut stoltið stundum yfir þegar þú varst að tala um þau. Enda eru þau ótrúlega vel gerðir krakkar og þú hafðir margar sögur að segja af afrekum og skemmti- legum uppátækjum. Þau, eins og við öll, eiga eftir að sakna þín óbærilega mikið. Við reynum eins og við getum að styðja við bakið á þeim en það kemur aldr- ei neinn í staðinn fyrir mömmu. Ég elska þig. Þín systir, Anna Heiður. Okkur systkinin langar að minnast frænku okkar, Guðnýj- ar Helgu, í örfáum orðum. Við erum eldri en hún og höfðum af henni að segja á misjöfnum tím- um æviskeiðsins. Við tvö elstu minnumst hennar frá því hún var lítil og hlutverk eldri frænd- systkina fólst í að passa og fylgjast með. Minningin er sterk um litla frænku sem var kraft- mikil og afar ákveðin en þó hlé- dræg, skörp og fljót að ná tök- um á hlutum eins og lestri og öðru námstengdu. Hún var svo lánsöm í æsku að í Borgargarði bjuggu ömmubræður okkar sem voru iðnir við að hafa ofan af fyrir henni og gæta. Þegar kom svo að því að hún valdi sér menntaskóla þá kom ekkert annað til greina en að fara í Verslunarskólann og svo varð úr. Þá kom hún og bjó hjá mömmu, mér og Guðbjörgu í Háahvamminum tvo fyrstu vet- urna af skólagöngunni. Þá skynjuðum við hversu strekt og einstakt samband var á milli hennar og pabba hennar en oft á tíðum leiðbeindi hann henni með námið í gegnum síma þar sem netið var þá ekki búið að ryðja sér til rúms. Hún var mjög stundvís og ég man að henni var mikið kappsmál að mæta alltaf í skólann hvort sem hún væri veik eða ekki. Og það voru stoltir foreldrar sem stóðu henni við hlið eftir fjögurra ára skóla- göngu með stúdentspróf í höfn. Leiðir okkar lágu svo aftur sam- an þegar hún kom til sumar- starfa hjá Landsbankanum á Djúpavogi og síðar í fullt starf og það þurfti ekki að segja henni frænku minni sama hlut- inn tvisvar. Leiðir okkar, minnar ástkæru frænku og vinkonu, liggja sam- an þegar hún byrjar að búa á Djúpavogi með litlu fjölskylduna sína sem stækkaði á fimm ára fresti. Við vorum svo lánsamar að eiga stúlkur á svipuðum aldri sem tengjast mikið og höfðum við sömu gildi og sýn á líf þeirra. Guðný Helga leiddi börn sín vel inn í lífið og var það hennar forgangur að þau fengju að njóta sín á því sviði sem þau kusu. Mér eru nú efst í huga elsku börnin þín þrjú, Björgvin, foreldrar þínir og systkini sem eiga við þennan mikla missi. Elsku frænka, það er stórt skarð sem þú skilur eftir þig í þessu litla samfélagi. Störfin þín voru mörg, hvort sem var í vinnunni þinni eða þau sem fylgdu börnunum þínum. Það verður erfitt að fylla þá gjá sem myndast hefur og munum við finna vel til þess þegar á líður. Þín er sárt saknað og hugur okkar er hjá börnum þínum og fjölskyldunni allri. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Halldóra, Arnar, Regína og Elísabet. Elsku systurdóttir mín, hún Guðný Helga Baldursdóttir, er látin, kvaddi þetta líf á fyrsta degi þessa árs. Döpur í hjarta hugsa ég og spyr, hví er hún í blóma lífsins tekin burt frá þremur börnum og öðrum ást- vinum? Ég hef þekkt Guðnýju Helgu frá því hún kom í þennan heim og var mikill samgangur á milli heimila og barna hjá okkur systrum á Djúpavogi. Eftir að ég flutti í Hafnarfjörð hóf Guðný Helga sína menntaskóla- göngu í Verslunarskólanum og bjó hún þá hjá okkur í Háa- hvammi tvo fyrstu veturna. Það var blessun að fá að hafa hana og áttum við góðar stundir sam- an. Stundaði hún námið af mik- illi samvisku og dugnaði og á það sama við í öllu sem hún hef- ur starfað og tekið sér fyrir hendur síðan. Var hún sérstak- lega umhyggjusöm og góð móðir og dáist ég að því hvað hún var dugleg að keyra langar vega- lendir með börnin sín á íþrótta- mót og aðra viðburði. Hennar er sárt saknað af okkur öllum og megi sá máttur er öllu ræður vernda börnin og aðra ástvini í framtíðinni og sendi ég mínar dýpstu samúðar- kveðjur til ykkar allra. Dýpsta sæla og sorgin þunga svífa hljóðlaust yfir storð, þeirra mál ei talar tunga tárin eru beggja orð. (Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum) Sigurbjörg frænka. Elsku Guðný. Furðu lostin, reið, full vantrú- ar en fyrst og fremst óskaplega döpur. Þessar tilfinningar flugu í gegnum huga minn þegar ég frétti hvað kom fyrir. Allt of snemma þarftu að kveðja þetta líf og það er erfitt að vera ekki reið og bitur yfir þeirri staðreynd en reyna frekar að þakka fyrir að hafa kynnst þér og átt þig sem frænku. Við hittumst nú ekki oft í seinni tíð en ég er óendanlega þakklát fyrir frænkuhittinginn í vor þegar við fórum fjórar frænkurnar út að borða. Það átti aldeilis að verða reglulegur við- burður enda skemmtum við okk- ur allar vel. Ég man líka vel eftir góða tímanum sem við áttum saman þegar við vorum krakkar þegar við fórum í reiðskólann í Geld- ingaholti en ansi fáir aðrir ætt- ingjar deildu hestaáhuganum með mér. Hugur minn er hjá börnunum þínum og fjölskyldunni allri. Hvíldu í friði, kæra frænka. Júlía. Elsku Guðný Helga. Enn erum við illilega minnt á hversu lífið er brothætt og línan fín. Mig setur einfaldlega hljóða að hugsa til þess að þú sért rifin í burtu á þessum tíma og hugsa með sorg í hjarta til þess missis sem við öll og þá sérstaklega fjölskylda þín höfum orðið fyrir. Þú varst kletturinn þeirra allra og það skarð sem þú skilur eftir verður erfitt að fylla. Við frænkurnar hófum lífið á svipuðum tíma, þú árinu á und- an mér á Djúpavogi og urðum við fljótt vinkonur og lékum okkur saman og brölluðum ým- islegt, sérstaklega í kjallaranum hjá Stebba og Gísla en þar var alltaf gott að vera. Þegar ég svo flutti burt um átta ára aldurinn héldum við vinskap okkar við þegar ég kom í heimsókn til ykkar systra á sumrin þar sem ég dvaldi yfirleitt í nokkrar vik- ur í Borgargarði. Þar var alltaf tekið vel á móti mér og gaman að vera. Þegar við svo eltumst og urðum unglingar byrjaði fjör- ið fyrir alvöru þegar ég fór að dvelja heilu sumrin hjá ykkur þegar við unnum saman í Esso- sjoppunni. Ég á góðar minning- ar frá þeim tíma, við báðar að stíga fyrstu unglingsskrefin og allt svo spennandi, upplifðum svo margt skemmtilegt saman, fyrstu böllin, fyrstu útihátíðina og svo margt fleira enda nóg um að vera á þeim tíma á Djúpa- vogi. Þú fórst svo í Verzló ári á undan mér og bjóst hjá okkur í Háahvamminum. Þar var margt um manninn og dast þú fljótt inn í fjölskyldumynstrið fyrir ut- an kannski að vakna alltaf miklu fyrr en allir hinir. Þér gekk vel í skólanum, ekki síst fyrir hjálp frá pabba þínum en þar fundum við vel hversu mikinn stuðning þú hafðir frá foreldrum þínum og hversu gott samband ykkar var. Leiðir okkar skildi svo um tíma, þú fluttir aftur á æskuslóð- ir með Björgvini og ólst upp þrjú yndisleg börn og tíminn leið án mikilla samskipta. Því er það mér svo dýrmætt að hafa náð að eiga með þér nokkrar góðar stundir á nýjan leik, fyrst á Hammondhátíðinni í vor þar sem við skemmtum okkur frá- bærlega, eins og við hefðum ver- ið að hittast í gær og eins í frænkuhittingi okkar í sumar sem átti svo sannarlega að verða að tíðum viðburði í framtíðinni, en þannig ætluðum við að hitt- ast næst. En elsku Guðný, nú er víst kominn tími til að kveðja en á sama tíma minnast góðra stunda og ég á margar góðar sögur í handraðanum sem ég varðveiti til að segja börnum þínum við gott tækifæri. Þú hefur búið þeim gott veganesti og bera þau þér gott vitni. Kæra fjölskylda, ég votta ykkur mína innilegustu samúð og megi guð varðveita ykkur. Kveðja, þín frænka og vinkona, Guðbjörg Erna (Bubba). Hjörtu okkar eru kramin. Í dag kveðjum við þig, elsku vin- kona, sem kvaddir þennan heim alltof snemma. Við eigum margar góðar minningar úr barnæsku okkar á Djúpavogi. Við vorum ekki gamlar þegar við vorum allar farnar að leika okkur saman. Ósjálfrátt leitar hugurinn inn í Borgargarð þar sem við áttum ófáar stundir með þér. Það voru alltaf allir velkomnir þangað og oftar en ekki var stofan und- irlögð af okkur stelpunum. Að heimsókn lokinni kviðum við oft fyrir að labba heim eftir að rökkva tók. En það stóð aldrei á þér að sækja vasaljósið og fylgja okkur út að Klifi. Æskuheimili þitt hafði upp á margt að bjóða, þar voru dýr, frábært leiksvæði og foreldrar sem treystu okkur fyrir ótrúlegustu hlutum. Sann- kallaður ævintýraheimur. Þú varst hlédræg en í góðra vina hópi lékst þú á als oddi. Það voru farnar ófáar ballferðir um Austurlandið af okkur vin- konunum. Og alltaf varst þú bíl- stjórinn á Hondu Civic. Það var mikið stuð í bílnum, tónlist, hlát- ur og talað út í eitt. Við eyddum miklum tíma í sjoppunni hjá þér, sátum bakvið að spjalla. Þú varst mikill og metnaðar- fullur námsmaður. Þú hafðir mikla þolinmæði og varst mjög klár. Það sást í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Eftir að þú og Björgvin eignuðust börnin og heimilið áttu þau hug þinn allan. Eins og gengur og gerist fór- um við hver í sína áttina, þú og Klara á Djúpavogi, Magga í Danmörku og Bogga í Reykja- vík. En síðustu ár var hópurinn okkar farinn að þéttast aftur og við farnar að hittast allar heima á Djúpavogi yfir sumartímann. Við fórum á hótelið að borða eða í Löngubúðina og áttum frábær- ar stundir saman. Af gömlum vana biðum við eftir þér í dá- góða stund, pöntuðum matinn fyrir þig, áður en þú birtist sallaróleg. Þar var mikið hlegið og spjallað um gamla tíma. Svo var árið 2014 framundan, stórt ár. Tvöfalt fertugsafmæli á árinu og í tilefni af því vorum við búnar að ákveða ferðalag í haust. Tilhlökkunin var mikil að láta gamlan draum rætast og sletta ærlega úr klaufunum. Það er svo dýrmætt að eiga vinkonur sem hægt er að hitta eftir lang- an tíma og finnast eins og að við höfum hist í gær. Megi Guð og englar vernda þig og vaka yfir fjölskyldu þinni um ókomna tíð. Þú munt alltaf eiga stað í okkar hjörtum. Klara, Margrét og Sigurborg Ósk. Það var síðsumars árið 2006 sem kynni okkar Guðnýjar Helgu hófust. Tildrögin voru þau að Landsbankinn lokaði útibúi sínu á Djúpavogi og starf- semin flutti í Sparisjóðinn. Það er örugglega ekki auðvelt fyrir starfsmann sem þjónað hefur sínum vinnustað lengi og af alúð að þurfa að setja í annan gír með nýjum húsbændum og hjú- um. Guðný Helga var afgreiðslu- stjóri á Djúpavogi allan starfs- tímann, eða frá 1. september 2006. Okkur Guðnýju Helgu veittist auðvelt að starfa saman og við áttum mörg og náin samskipti, þó helst hvað vinnuna varðaði. Guðný Helga flíkaði ekki tilfinn- ingum sínum en var ákveðin í allri framgöngu. Hún var hæg- lát, ljúf og traust kona. Við vinnufélagarnir í Spari- sjóðnum á Djúpavogi, Breiðdals- vík og á Höfn, höfum átt margar góðar stundir og einu sinni til tvisvar á ári eigum við dag sam- an. Í vor tóku þær frænkur, Guðný Helga og Svandís á Breiðdalsvík, á móti okkur í Berufirðinum og verður sá dag- ur vel geymdur í minningunni. Ég bað vinnufélagana að skrifa á blað eitt orð eða setn- ingu sem þeim fyndist lýsa Guð- nýju Helgu og minningu hennar. Orðin sem komu voru meðal annarra, glettin, eldklár, hóg- vær, þolinmóð og sterk. Guðný Helga stóð sem klettur við hlið fjölskyldu sinnar. Stórt skarð er höggvið við fráfall eig- inkonu, móður, dóttur, systur og vinkonu. Það eru svo margir sem eiga um sárt að binda þeg- ar kona í blóma lífsins, fellur frá og það svona skyndilega. Ég hef skynjað sorg og einnig samhug síðustu daga austur á Djúpavogi. Ég var viðstödd bænastund í Djúpavogskirkju þann þriðja janúar, þar sem fjöldi íbúa og nærsveitunga kom saman og hlýddi á bænarorð séra Sjafnar. Þar voru meðal annarra börn og ungt fólk, frændfólk og vinir barna Guð- nýjar Helgu. Það þarf að hlúa að svo mörgum við svona ótíma- bært andlát. Við vinnufélagar Guðnýjar Helgu, á Djúpavogi, Höfn, Breiðdalsvík, Selfossi og í Vest- mannaeyjum, vottum eigin- manni, börnum og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð. Minn- ingin lifir. Anna Halldórsdóttir. Guðný Helga Baldursdóttir Til móður okkar: Móðir mín kæra er farin á braut, til mætari ljósheima kynna. Hún þurfti að losna við sjúkdóm og þraut, og föður minn þekka að finna. Vönduð er sálin, velvildin mest, Ósk Laufey Jónsdóttir ✝ Ósk LaufeyJónsdóttir fæddist í Reykjavík 9. janúar 1924. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir, 23. nóvember 2013. Útför Óskar Laufeyjar fór fram í kyrrþey frá Foss- vogskapellu 2. des- ember 2013. vinkona, móðir og amma. Minningin mæta í hjartanu fest, ég elska þig, ástkæra mamma. Þakka þér kærleik- ann, hjartalag hlýtt, af gæsku þú gafst yl og hlýju. í heimi guðsenglanna hafðu það blítt, uns hittumst við aftur að nýju. (Höf. ók.) Hinn 9. janúar sl. hefði móðir okkar orðið 90 ára, hefði hún lifað, en hún lést 23. nóvember 2013. Okkur langar að minnast þessarar yndislegu móður með þakklæti og hlýhug og upphafs- ljóðið hér að ofan lýsir huga okkar svo vel. Hún hafði um langt skeið glímt við sjúkdóm þann, sem tók hana frá okkur og hvarf hún inní hans heim, án þess að fá að kveðja sína nánustu. Móðir okkar var dugnaðar- forkur og myndarkona, hún stjórnaði heimilinu með festu en jafnframt hlýju og umburð- arlyndi, enda var hin létta lund aðalsmerki hennar. Hún var lífsglöð og ævinlega tilbúin að vera með þar sem fjörið var. Hún elskaði að dansa og ferðast og nýtti hvern þann tíma sem hún gat til að sinna þessum áhugamálum sínum. Hún var ráðagóð og vildi öll- um vel og við tvær erum svo þakklátar fyrir allt það sem hún miðlaði til okkar í gegnum tíðina – dásamleg nærvera hennar er það sem við söknum sárast. Barnabörnin áttu dyggan stuðning hennar ef á þurfti að halda og spilastundir og spjall við eldhúsborðið er meðal þess sem þau sakna hvað mest. Við erum að læra að sætta okkur við að hún sé farin frá okkur, en við vitum að hún hvíl- ir nú á nýjum stað, umvafin ást- vinum sínum í Guðs ríki, sem höfðu beðið þess að fá að taka á móti henni opnum örmum. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakk- lát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. óþekktur) Elsku mamma, minning þín lifir að eilífu og erum við ákaf- lega þakklátar fyrir að vera svo lánsamar að hafa átt svo dásamlega mömmu. Laufey og Ágústa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.