Morgunblaðið - 11.01.2014, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 11.01.2014, Qupperneq 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 ✝ Sólveig Ind-riðadóttir fæddist í Reykjavík 2. maí 1946. Hún lést á Landspít- alanum 2. janúar 2014. Foreldrar henn- ar voru hjónin Indriði Indriðason, ættfræðingur og rithöfundur, f. 17. apríl 1908 að Ytra- Fjalli í Aðaldal, d. 4. júlí 2008 og Sólveig Jónsdóttir, saumakona, f. 4 febrúar 1909 að Braut- arholti á Kjalarnesi, d. 6. febr- úar 1991. Systkini hennar eru Indriði Indriðason, skógarvörður á Tumastöðum í Fljótshlíð, f. 16. apríl 1932 á Grenjaðarstað í Að- aldal og Ljótunn Indriðadóttir, f. 20. júlí 1938 í Reykjavík. Sólveig giftist 3. febrúar 1968 Birni Sverrissyni, f. 6. október 1944 í Reykjavík, vélfræðingi og verkefnastjóra hjá Lands- virkjun. Börn þeirra eru: 1. Indriði, f. 7. nóvember 1967 í Reykjavík, 1972 í Reykjavík, rafvirkja- meistara. Börn þeirra: a. Soffía Náttsól, f. 11. mars 1996 á Sel- fossi, nemi í Fjölbrautaskóla Suðurlands, b. Guðrún Eik, f. 24. október 1998 á Selfossi, c. Björn Ívar, f. 29. júní 2006 á Selfossi, d. Hrafna Mist, f. 1. maí 2009 á Selfossi, e. Oliver Darri f. 26. apríl 2011 á Selfossi. Sólveig ólst upp í Reykjavík, lengst af í Stórholti 17. Hún gekk í Austurbæjarskóla og síð- ar í Lindargötuskóla. Hún lauk prófi úr Samvinnuskólanum ár- ið 1965. Vann síðan við skrif- stofustörf hjá Skipadeild SÍS til 1966 og á endurskoðunarskrif- stofu Björns Steffensens og Ara Thorlacius 1967-1969 og af og til 1971-1976. Árið 1977 fluttu Sólveig og Björn upp í Sigöldu og bjuggu þar við virkjunina til ársins 1980 er þau fluttu að Búr- fellsvirkjun. Á þeim tíma var Sólveig að mestu leyti heima- vinnandi. Frá árinu 1989 til árs- ins 2004 starfaði Sólveig í mötu- neyti við Búrfellsvirkjun. Árið 2004 fluttu þau svo á Selfoss og þar vann Sólveig meðal annars hjá Prentsmiðju Suðurlands, Tölvutaki og Viðlagatrygg- ingasjóði. Útför Sólveigar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 11. janúar 2014, og hefst athöfnin klukkan 13. tölvunarfræðingur, giftur Eddu Björk Sævarsdóttur, f. 30. september 1967 á Akureyri, hár- snyrti. Börn þeirra eru: a. Atli Már, f. 10. október 1993 í Reykjavík, starfs- maður í Örva, b. Ír- is Björk, f. 24. jan- úar 1996 í Reykja- vík, nemi í Menntaskólanum við Hamra- hlíð, c. Dagný Birna, f. 29. sept- ember 2001 í Reykjavík. 2. Erla Soffía, f. 29. apríl 1970 í Reykja- vík, lífeindafræðingur gift Daða Jóhannessyni, f. 22. apríl 1967 á Selfossi, vélaverkfræðingi. Börn þeirra eru: a. Sólveig, f. 31. jan- úar 1990 í Reykjavík, vélaverk- fræðinemi í Gautaborg, b. Hringur, f. 15. febrúar 1992 í Reykjavík, vélaverkfræðinemi í Háskóla Íslands, c. Sölvi, f. 18. júlí 1995 í Reykjavík, nemi í Verslunarskóla Íslands. 3. Kol- brún, f. 7. apríl 1974 í Reykja- vík, garðyrkjufræðingur, gift Sveini Elíassyni, f. 28. ágúst Elsku hjartans mamma mín. Mér finnst að ég verði að minn- ast þín í skrifum en á svona stundu eru öll orð fátækleg. Ég trúi því varla að þú sért farin og komir aldrei aftur. Aldrei aftur kemur þú til með að hringja til þess eins að spyrja mig hvernig ég hafi það og hvort allt sé í lagi hjá mér. Mér þykir það leitt hvað ég var oft stuttur í spuna þegar mér fannst ég hefði ekki tíma fyrir þig og að ég sýndi þér ekki það þakk- læti sem þú áttir skilið. Mér þykir leitt að hafa ekki gert meira í því að borga til baka alla þá óeigin- gjörnu vinnu sem þú lagðir á þig fyrir mig. Að koma mér til manns, gera mig að betri manneskju og láta mér líða vel. Oft lét ég reyna á þolinmæði þína en það var sama hvað ég gerði, alltaf sýndir þú mér sömu umhyggju og ást. Ég geri ráð fyrir að svona sé hin sanna móðurást, hún spyr ekki um tíma- kaup eða hversu erfið verkefnin eru. Undanfarin ár hafa verið erfið hjá þér. Margar brekkur, erfið ganga. Um tíma héldum við að sigur væri unninn og bjartari tímar væru framundan en því miður höfðum við ekki rétt fyrir okkur. Alltaf stóðst þú þig samt eins og hetja, sýndir ótrúlegan styrk og æðruleysi. Ég vona svo sannarlega að þjáning þín sé nú á enda og að loksins getir þú notið þín án þess að finna til verkja. Þú átt það svo sannarlega skilið. Þinn sonur, Indriði. Fyrir tæpum 3 árum greindist mamma með brjóstakrabbamein og var annað brjóst hennar fjar- lægt, síðan tók við lyfja- og geisla- meðferð sem tók allt í allt um það bil ár. Í gegnum þau veikindi var hún algjör hetja og kvartaði aldr- ei, heldur tók þessu sem verkefni sem þurfti að vinna. Síðan tók við tími þar sem hún var að jafna sig eftir þetta allt saman. Á þeim tíma átti hún nokkra mánuði þar sem hún var sæmileg. Seinni part árs 2012 byrjaði hún þó að finna fyrir verkjum sem gerðu henni erfitt fyrir og erfitt var að vita hver or- sökin var. Í júlí 2013 greindist hún með bráðahvítblæði og síðustu 5 mánuði hefur hún háð hetjulega baráttu gegn því. Framan af vor- um við öll bjartsýn um að það væri að minnsta kosti hægt að halda því í skefjum ef ekki væri hægt að lækna meinið, en svo fór að 2. jan- úar síðastliðinn tapaði mamma þessari baráttu. Alla þessa 5 mán- uði, að undanteknum nokkrum leyfum, lá mamma á sömu deild, eða 11-G á Landspítalanum og fékk þar frábæra umönnun. Þar er starfsfólk sem leggur sig fram allan sólarhringinn við að þjón- usta sjúklinga og aðstandendur þeirra af fremsta megni. Mamma var mikil fjölskyldu- manneskja og glöðust var hún þegar við komum öll heim til hennar og pabba, það er börn og barnabörn. Oft voru lætin þó ansi mikil enda erum við orðin 19 tals- ins en við létum það ekki stöðva okkur. Einnig var hún mikil jóla- manneskja og dýrmætt er fyrir okkur fjölskylduna hvernig hún ákvað að ná heilsu til að komast heim núna um jólin og að við átt- um öll saman góð jól. Hún var góð amma sem hjálpaði til ef leitað var eftir aðstoð en var ekkert að skipta sér af ef maður bað ekki um hjálp og þótti mér það mikil kost- ur þegar ég átti mitt fyrsta barn, þá 19 ára gömul. Síðastliðna 5 mánuði hef ég eytt meiri tíma með mömmu en ég hef gert síðustu 25 árin og þó svo að það hafi verið erfitt að horfa upp á hana svona veika, þá hefur það líka gefið mér mikið að fá að hjálpa henni eftir bestu getu í gegnum þetta allt. Við mamma höfum alltaf verið frekar nánar og var hún vön að hringja í mig á hverjum degi, bara til að spjalla. Stundum þótti mér nóg um en ef ég heyrði ekki í henni einhvern daginn þá endaði ég alltaf með að hringja í hana. Mamma hafði gaman af því að ferðast og þótti leitt að veikindin síðustu ár höfðu staðið í vegi fyrir því, en stefndi þó á að fara til Kan- aríeyja í vor. Sú ferð verður því miður ekki farin. Hún og pabbi sáu fram á góða tíma þar sem hann færi að hætta að vinna og þá ætluðu þau að fara að ferðast og lifa lífinu. Í dag kveðjum við mömmu en minning hennar mun lifa áfram í hjörtum okkar. Erla Soffía. Í dag kveð ég elskulega systur mína Sólveigu Indriðadóttir, eða Sollu systur eins og ég var vön að kalla hana. Það er erfitt að þurfa að horfa á eftir henni en eftir sitja margar góðar minningar. Mér er þakklæti efst í huga á þessari stundu. Þakklæti fyrir að hafa átt Sollu systur að og þakklæti fyrir allt sem við höfum átt saman. Þó svo að sorgin virðist óbærileg þá veit ég að hún mun víkja síðar fyr- ir góðum minningum. Ég bið góð- an guð að styrkja okkur öll í sorg- inni. Ég kveð þig, systir mín, með þessum orðum: Komið er að kalli þínu, komin er þín stund. Ég veit það innst í hjarta mínu, þú sefur þinn óþjáða blund. Systir mín góð, svo erfitt er, að kveðja svona fljótt. Bestu þakkir ég færi þér, og býð þér góða nótt. (KMK) Þín systir, Ljótunn. Mín yndislega tengdamóðir er nú látin eftir erfiða baráttu við bráðahvítblæði. Ég kynntist Sollu fyrir tæpum 22 árum eftir að ég fór að vera með Indriða syni hennar. Solla tók mér afskaplega vel strax frá byrjun og var hún algjör óska- tengdamamma sem mér þótti af- skaplega vænt um. Alltaf ljúf og góð og vildi allt fyrir mann gera. Það voru ófáar stundirnar sem við áttum saman fjölskyldan, fyrst í Búrfelli en síðar á Selfossi en þangað fluttu þau hjónin fyrir 10 árum. Það var oft þröng á þingi í Búrfelli þegar við vorum þar öll saman komin, börn, tengdabörn og barnabörn en þröngt mega sáttir sitja. Alltaf var nú jafn gam- an hjá okkur, mikið spilað, hlegið og borðað en Solla var dugleg að töfra fram hvern veisluréttinn á fætum öðrum. Það brást ekki að í hvert ein- asta skipti sem við hittumst öll þá voru spilin tekin fram. Allir spiluðu með og fylgdi því oftast mikill hávaði og læti og mikið var hlegið. Solla hafði gaman af að vera með fjölskyldunni og vorum við dugleg að ferðast öll saman. Í mörg ár fórum við saman í Veiði- vötn og var það frábær tími sem ég kem til með að sakna sárt. Solla sá að mestu um að útbúa matinn fyrir þessar ferðir og nesta okkur upp með dýrindis samlokum, drykkjum og öðru góðgæti. Oft vorum við varla komin upp í Veiði- vötn þegar röð myndaðist við bíl- inn þeirra hjóna því að allir biðu spenntir eftir að fá að velja sér eitthvað að borða úr öllum kræs- ingunum. Við vorum líka dugleg að fara saman í bústað á sumrin og var þá valinn stór staður svo að allir gætu komið með. Við Indriði fórum líka með Sollu og Bjössa, ásamt Kollu og Sveini og fleira góðu fólki í ferðir á vegum Lands- virkjunar til Parísar, Portúgal og Krítar og ekki má gleyma ferðinni til Kanarí en þangað fórum við stórfjölskyldan um páska þegar Solla varð sextug, það var æðisleg ferð í alla staði. Ég fékk þann heiður að sjá um hárið á Sollu í öll þessi ár. Það var gaman að klippa hana og blása því að hún var með gott hár sem þægilegt var að eiga við. Solla var mikil hannyrðakona og algjör snillingur í bútasaum og til eru ófáir púðarnir, dúkarnir, rúmteppin og veggteppin ásamt fleiru eftir hana og var hún dugleg að gefa fjölskyldunni heilu lista- verkin. Á hverju hausti fór hún ásamt Kolbrúnu dóttir sinni að Löngumýri í Skagafirði en þar kom saman hópur kvenna og saumaði bútasaum. Í haust var þar engin breyting á jafnvel þó að hún væri mikið veik. Þar lagði hún drög að jólagjöf til mín sem voru mjög fallegar diskamottur, svunta og pottaleppar. Þessa gjöf þykir mér afskaplega vænt um. Hennar Sollu verður sárt sakn- að en ég vona að núna sé hún kom- in á góðan stað og að henni líði miklu betur og að hún sé laus við allar þjáningar. Hvíldu í friði, elsku tengdamamma. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín tengdadóttir, Edda Björk. Ég vaknaði snemma einn júní- morgun fyrir rúmum 30 árum, tróð mér í stígvélin, setti á mig hjálminn og sparkaði skellinöðr- unni minni í gang. Sólin skein, eins og hún gerir svo oft í gömlum minningum, og rykið þyrlaðist upp af malarveginum þar sem ég keyrði í gegnum Flúðahverfið, framhjá Hellisholtum og fram hreppinn. Þegar ég kom yfir Stóru-Laxá yfir í eystri hreppinn beygði ég til vinstri á holtinu, ferð- inni var heitið að heimsækja vin minn Indriða upp í Búrfellsvirkj- un. Við Indriði eyddum deginum í að spóla upp vikrinum inn við Búr- fellsskóg, enda ekki búið að finna upp hugtakið utanvegaakstur á þessum árum. Þegar við höfðum fengið næga útrás á nöðrunum ók- um við sem leið lá að Sámsstöðum 10, einum af starfsmannabústöð- um Landsvirkjunar á svæðinu, en þar bjó Indriði með mömmu sinni, pabba og tveim yngri systrum. Það var eitthvað við brúnu fallegu augun á eldri systurinni sem ég áttaði mig ekki almennilega á. Ekki fyrr en mörgum árum seinna. Sólin var lágt á lofti þegar ég lagði af stað heim yfir sandana. Þegar ég keyrði framhjá Bringu, þaðan sem myndin af kindunum á gamla hundraðkallinum er, og yfir Gaukshöfðann var ég að hugsa um fjölskylduna hans Indriða. Lítið vissi ég þá um það hversu oft ég ætti eftir að keyra þessa leið eða hversu háan sess fjölskyldan sem þá bjó að Sámsstöðum 10 ætti eft- ir að hafa í lífi mínu. Ég mun alltaf minnast Sólveig- ar fyrir að hafa tekið ákaflega vel á móti mér þegar ég kom til þeirra Bjössa, hvort sem það var sem vinur Indriða, kærasti Erlu, pabbi barnabarnanna, veiðifélagi, laufa- brauðsbakari eða tengdasonur. Ég er þakklátur fyrir að fá að vera hluti af fjölskyldu Sólveigar Indr- iðadóttur og mun minnast hennar sem yndislegrar manneskju. Daði. Ég á svo erfitt með að sætta mig við að elsku amma sé farin frá okkur. Hún var ekki bara yndisleg amma fyrir mér heldur einnig ein af betri vinkonum mínum. Við töl- uðum saman oft í viku og amma vildi alltaf fá að heyra af öllu sem gekk á í lífi mínu. Það er eins og það hafi verið ákveðið frá upphafi, þegar ég var skírð í höfuðið á henni, að við myndum tengjast sérstökum böndum. Ég er svo þakklát fyrir allt sem við gerðum saman, utanlandsferð- ir, veiðiferðir, bústaðaferðir og margt fleira. Upp úr standa líka góðar minningar frá heimsóknum mínum til ömmu og afa, var mér alltaf tekið opnum örmum og það var yfirleitt ekki annað í boði en að gista hjá þeim. En það eru einmitt kvöldstundirnar okkar saman, þar sem við spjölluðum um allt mögu- legt, sem ég á eftir að sakna hvað mest. Elsku amma mín, ég kveð þig með mikilli sorg í hjarta en ég veit líka að sorgin stafar af gleðinni og góðu stundunum sem við áttum saman og þær minningar ætla ég að varðveita vel. Hvíldu í friði, amma mín. Þín vinkona og dótturdóttir, Sólveig Daðadóttir. Solla móðursystir mín eða Solla systir eins og við kölluðum hana er látin eftir erfið veikindi. Elsku frænka, ég vil þakka þér fyrir öll góðu árin og ég minnist skemmti- legra daga með hlátri, gleði og umhyggju. Þú hugsaðir alltaf vel um fólkið þitt og það ríkti alltaf mikil samstaða í hópnum ykkar. Ég kveð þig hér með ljóði, eftir Davíð Stefánsson, sem afi valdi í Indriðabók. Þó að margt hafi breyst, síðan byggð var reist geta börnin þó treyst sinni íslensku móður. Hennar fórn, hennar ást, hennar afl til að þjást skal í annálum sjást, verða kynstofnsins hróður. Oft mælir hún fátt, talar friðandi lágt. Hinn fórnandi máttur er hljóður. Ég bið góðan guð að styrkja Bjössa og fjölskylduna í sorginni. Þín Fríða. Það var á gamlársdag sem við fengum þær fregnir að Solla færi brátt að kveðja þennan heim. Mik- ið voru það erfiðar fréttir. Um miðnætti lýstu flugeldar upp him- ininn og fólk skálaði og fagnaði nýju ári. Það var erfitt að taka þátt í því, hugur okkar var hjá Sollu og hennar fjölskyldu. Solla lést svo stuttu síðar. Solla var gift Birni, bróður mömmu, og eiga þau þrjú börn sem eru á svipuðum aldri og við systkinin. Því hefur alla tíð verið mikill samgangur milli okkar, sér- staklega þegar við vorum ung. Við fórum ófáar ferðir til Sollu og Bjössa austur í Sigöldu eða Búr- fell og gistum hjá þeim um helgar eða eyddum páskunum þar. Alltaf hlökkuðum við til að koma til þeirra enda tók Solla alltaf svo vel á móti okkur. Það var líf og fjör á því heimili og aldrei hægt að láta sér leiðast. Mikið var spjallað og spilað og var Solla alltaf hrókur alls fagnaðar. Minnisstæðust eru öll ferðalög- in sem við fórum með Sollu og hennar fjölskyldu. Hvert einasta sumar þeyttumst við um landið þvert og endilangt, í tjaldi eða í sumarhúsum sem Landsvirkjun átti. Alltaf lentum við í einhverj- um ótrúlegum ævintýrum, sem reyndar Sollu og mömmu þótti ekkert sérlega skemmtileg eða fyndin þá, en þau voru alltaf rifjuð upp síðar þegar við hittumst og þá var mikið hlegið og Solla grenjaði oftar en ekki úr hlátri. Já, þannig minnumst við Sollu, alltaf jákvæð, glöð og hlæjandi. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þessari lífs- glöðu og skemmtilegu konu. Hún gaf okkur svo mikið. Hennar verð- ur sárt saknað en hlýjar og ynd- islegar minningar um hana munu lifa áfram í hjörtum okkar. Elsku Bjössi, Indriði, Erla, Kolla og fjölskyldur, megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Sverrir, Anna og Thelma. Solla vinkona okkar er farin frá okkur langt um aldur fram eftir snörp veikindi. Hún skilur eftir sig stórt skarð sem ekki verður auðveldlega fyllt. Kynni okkar hófust fyrir rúmum fjörutíu árum þegar þau Bjössi rugluðu saman reytum sínum, var það á vélskóla- árum okkar Bjössa. Allir sem kynntust Sollu fundu hve mikinn mannauð hún hafði að bera. Hún var skarpgáfuð og langminnug á alla hluti, hvort sem um var að ræða bíómyndir eða mannanöfn, svo dæmi séu tekin. Þær urðu margar samverustundirnar eftir að við fluttum öll á virkjunarsvæði Landsvirkjunar fyrir austan fjall. Solla og Bjössi bjuggu fyrst í Sig- öldu, þar sem Bjössi var stöðvar- stjóri á Tungnársvæðinu. Seinna komu þau til búsetu í Búrfelli og bjuggu þar til 2005. Það er margs að minnast frá þessum árum þeg- ar börnin voru að fæðast og kom- ast til manns. Það var mikill barnauður í kringum þau hjón. Börnin þeirra urðu þrjú og svo komu barnabörnin, heill hópur af skemmtilegum börnum sem Solla umvafði með sinni miklu hlýju. Það er sárt til þess að vita að Solla fær ekki að dvelja lengur með þeim en hún skilur svo sannarlega eftir sig góðar minningar í huga þeirra. Já, það er sárt að horfa á eftir góðri eiginkonu, móður, ömmu og vinkonu svona langt um aldur fram. Kæru vinir, við vott- um ykkur okkar dýpstu samúð og samhryggð. Sigurður og Jenný, Skarði. „Hvað boðar nýárs blessuð sól? Hún boðar náttúrunnar jól!“ Annar dagur nýs árs, sól hækk- ar á lofti, sorgarfrétt berst: Góð vinkona okkar Sólveig Indriða- dóttir, eða Solla eins hún var köll- uð, er látin. Ljóðlínur M. Joch. koma upp í hugann. Solla var veik frá því um mitt sumar og þar til hún lést. Við horfum nú á fallega mynd sem prýðir jólakveðju þeirra Bjössa um liðin jól. Tekin sl. sumar, þar sem hún er glöð og brosandi út að eyrum með Bjössa og 11 barnabörnum, aldeilis ekki lasleg að sjá! En skjótt breytist allt og hún sem var áður búin að slást við krabbann og ganga í gegnum erfiðar meðferðir og allir héldu að hún væri búin að ná fullri heilsu. Á sex árum er hún sú þriðja úr hópnum okkar góða sem fer úr þessum sjúkdómi. Solla var dökkhærð og frekar lágvaxin og grönn, sérlega greind, klár, flink og talnaglögg kona og ung lauk hún prófi frá Bifröst og vann síðan hjá endurskoðanda, þar sem hún naut sín afar vel. Hún las mikið og var fróð um flesta hluti. Þá borð- aði hún helst ekki kartöflur og vildi hafa brauðið hvítt. Solla gat farið heim á Selfoss yfir hátíðarnar og var á fótum og glöð yfir að vera í faðmi fjölskyldu sinnar. Við kynntumst Sollu um 1970, þegar við festum kaup á íbúð í sömu blokk og þau Bjössi við Leirubakka í Breiðholti. Fyrir heppni og tilviljun bauðst okkur að ganga til liðs við 4 vélstjóra sem voru þegar búnir að tryggja sér íbúð. Það var gæfuspor fyrir okkur öll, sem þá vorum að kaupa fyrstu íbúð, kjarkmikil og bjart- sýn. Solla og Bjössi áttu þá Indr- iða, á þriðja ári, sem var brún- eygður og mikill grallari. Börnin okkar voru á sama aldri og með þeim tókst góður vinskapur og margt var þá brallað. Við sáum fljótt hve hverfið var vel hannað og barnvænt og ekki þurftum við að hafa áhyggjur þegar þau voru úti að leika sér, því aðalumferðin var í kringum blokkirnar, skólann, leikskólann og búðirnar. Við þau eldri urðum líka mjög góðir vinir, náðum vel saman, ólík og sitt úr hverri áttinni. Solla var ekki allra, en við vorum svo heppin að fá að kynnast henni og Bjössa vel og þau voru vinir í raun. Það var puð- að og stóru strákarnir unnu myrkra á milli og um helgar var unnið við að koma íbúðum í betra horf. Flestir fluttu inn á lakkað steingólf og fengu svo teppi út í hvert horn þegar búið var að safna. Erfitt var um lán, engin kort, yfirdráttur eða sukk í pen- ingamálum á þeim tíma, stundum slegnir víxlar. Árin liðu, börnum fjölgaði, við ung, mjó og eldhress og héldum stundum partí. Seinna breyttust partíin hjá Leirubakka- liðinu í þorraveislur. Bjössi réð sig Sólveig Indriðadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.