Morgunblaðið - 11.01.2014, Síða 44

Morgunblaðið - 11.01.2014, Síða 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 Elsku fallega Dagný. Ég skil ekki ennþá að þú sért ekki hjá okkur, að þú munir aldr- ei knúsa okkur aftur, hlæja með okkur, tala við okkur, liggja með okkur yfir sjónvarpinu, borða hjá okkur, eða bara horfa á okkur. Litla fjölskyldan mín er svo brot- in án þín. Þú kenndir mér svo ótrúlega margt á þinni stuttu ævi og ég ætla alla daga að reyna mitt besta til að verða aðeins meira eins og þú. Þú varst góðhjartaðasta, hjálpsamasta og glaðasta per- sóna sem ég veit um, gerðir allt fyrir alla í kringum þig og gerðir það brosandi. Dætur mínar voru eins og þínar dætur og það er svo erfitt að hugsa til þess að þær fái ekki að hafa þig hjá sér í framtíð- inni. Ég mun halda minningu þinni á lífi með því að segja þeim fallegar sögur af fallegasta engl- inum á hverju kvöldi. Elsku besta vinkona mín, takk fyrir allt. Þín Thelma Rún. Dagný Ösp Runólfsdóttir ✝ Dagný ÖspRunólfsdóttir fæddist á Selfossi 20. janúar 1992. Hún lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans í Fossvogi 30. desember 2013. Útför Dagnýjar Aspar fór fram frá Hveragerðiskirkju 10. janúar 2014. Elsku Dagný okkar er horfin á braut allt of fljótt. Þrátt fyrir mjög stuttan tíma sem við áttum saman þá tókst henni að snerta okkur öll með geislandi gleði og jákvæðni. Smit- andi hlátur var helsta einkenni Dagnýjar og verður hans sárt saknað. Við huggum okkur við það að sá tími sem við áttum saman skildi eftir sig margar góðar minningar sem verma hjörtu okkar um ókomna tíð. Fjölskyldu og vinum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Megi Guðs englar vaka yfir ykkur á þessum erfiðu tímum. Hvíldu í friði, elsku Dagný okkar. Fyrir hönd 1. árs nema lyfja- fræðideildar við Háskóla Íslands, Ásrún, Jóhanna, Karen og Magdalena. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Nú stöndum við bekkj- arsystkinin harmi slegin frammi fyrir þeirri staðreynd að hún Dagný Ösp er farin frá okkur. Það var haustið 2008 sem leið- ir okkar lágu saman í Mennta- skólanum að Laugarvatni. Sum okkar þekktust, önnur ekki en skömmu eftir busun og skírn urðum við samheldinn hópur. Full tilhlökkunar og með að minnsta kosti tvö fiðrildi í mag- anum höfðum við ekki hugmynd um þau atvik og augnablik sem biðu okkar. Það eru minningar um ótakmarkaða gleði og ýmsar uppákomur sem á þessari stundu eru okkur öllum svo ótrúlega dýrmætar. Minningarnar hrannast upp og efst í huga okkar eru fyrsti skóladagurinn, útskriftin og ógleymanlega ferðalagið til Mexíkó. Það var einmitt í Mexíkó sem það sást svo vel hvað Dagný Ösp átti gott með að njóta lífsins. Hún naut stundarinnar og alls þess sem þetta sólríka land hafði upp á að bjóða og lagði metnað sinn í að verða brúnust af okkur öllum. Já, hún Dagný Ösp var mikil keppnismanneskja og þeg- ar kom að orrustum Kamel og Kvemel lét hún sitt ekki eftir liggja. Þegar fimmtudagarnir gengu í garð og leið okkar lá út á lífið þá var oft mikið um að vera á stelpu- ganginum. Það var stundum eins og stelpurnar væru þeirrar skoð- unar að þær ættu engin föt. Dagný var þar engin undan- tekning og við minnumst þess að hún hafi gengið herbergja á milli til að fá álit á hinum og þessum klæðnaði. En lokaákvörðunin var samt alltaf á hennar eigin for- sendum og oftar en ekki á allra síðustu stundu, rétt áður en lagt var af stað. Dagný Ösp var einlæg í öllum sínum samskiptum. Hún var hjartahrein og hafði ríka réttlæt- iskennd. Hún mátti ekkert aumt sjá og var alltaf boðin og búin að hjálpa öðrum. Hún hafði svo ótrúlega mikið að gefa og það gerði hún líka. Hvort sem sú gjöf fólst ein- faldlega í þægilegri nærveru hennar eða í verkum sem hún vann alltaf af heilum hug. Fyrir henni voru allir jafnir. Hún var fordómalaus og tók öll- um opnum örmum. Hún var bara svo góð. Í hjörtum okkar allra lifir minning um bæði fallega og góða stúlku með bjarta brosið og smit- andi hláturinn. Hún hefur kennt okkur sem eftir lifum svo margt. Þann lærdóm geymum við og munum hafa að leiðarljósi um ókomin ár. Hugur okkar er hjá fjölskyldu Dagnýjar Aspar sem hún var svo stolt af að vera hluti af. Guð gefi ykkur styrk til þess að takast á við sorgina. Af eilífðar ljósi bjarma ber sem brautina þungu greiðir, vort líf sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir.‘ (E.B.) Fyrir hönd bekkjarsystkina úr Menntaskólanum að Laugar- vatni, Guðbjörg Guðjónsdóttir. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endur- gjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Við erum þakklát fyrir stund- irnar sem við áttum saman og kveðjum þig með miklum sökn- uði. Við sendum fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Minn- ing um yndislega stúlku lifir. Andrea Ösp, Björgvin Karl, Egill Þór, Einar Alexander, Fríða, Harpa, Jan Hinrik, Magnús Grétar, Sædís Lind, Þórir Geir og Walter. Mig langar með nokkrum orð- um að minnast stúlkunnar sem lést mánudaginn 30. desember síðastliðinn. Ég þekkti Dagnýju ekki mjög vel og mun minna en ég hefði viljað en fékk þau for- réttindi að þjálfa hana í körfu- bolta þegar hún æfði og spilaði með kvennaliði Laugdæla tíma- bilið 2011-2012. Spila- og æfinga- tími hennar var ekki mikill sök- um meiðsla en metnaður hennar í að halda áfram, þó það væri ekki nema bara fyrir félagsskap- inn, þótti mér eftirtektarverður. Hún var mikill liðsmaður og fé- lagsvera sem var þægilegt og skemmtilegt að vinna með og ég heyrði aldrei neitt annað en gott um hana frá öðrum liðsmönnum. Jafnvel þótt meiðslin hafi gert það að verkum að hún þurfti að leggja körfuboltaiðkun sína til hliðar þegar nokkuð var liðið á tímabilið var hún enn hluti af hópnum út alla leiktíðina. Henni var mikið í mun að liðið myndi njóta tímabilsins og fá eins mikið úr því og hægt var, slík var lífs- gleðin. Það þarf því varla að taka fram að hún var ein af þeim sem skipulögðu lokahófið að loknu tímabili. Kynni mín af Dagnýju voru ekki mikil utan körfuboltans. Hún var mjög góð vinkona Þór- dísar, sem ég hafði þekkt í nokk- ur ár og spilaði einnig með Laug- dælum, og saman mynduðu þær ótrúlega glaðvært og orkumikið tvíeyki sem átti áreiðanlega ekki í neinum erfiðleikum með að gleðja alla þá sem á vegi þeirra urðu. Ég minnist þeirra skipta sem ég fékk myndsímtal frá þeim á skype, oftast á fimmtudegi, þar sem þær voru að gera sig tilbún- ar fyrir gleðskap. Þau voru kannski ekki ýkja mörg skiptin en höfðu öll sín góðu áhrif. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast þessari stelpu þótt það hafi ekki verið meira en raun ber vitni og sam- gleðst öllum þeim sem nutu góðs af því að hafa hana í sínu lífi um leið og ég sendi mínar innileg- ustu samúðarkveðjur til fjöl- skyldu hennar og vina, þá sér- staklega til Þórdísar. Auk þess langar mig að þakka Dagnýju ævilangt fyrir smitandi brosið hennar. Það var hlýtt, fallegt og raunverulegt. Hún setti það upp vegna þess að hún meinti það, eða þannig var mín tilfinning og ég efast ekki um að það sé rétt hjá mér. Kærar þakkir fyrir samveruna innan sem utan vallar og vertu dugleg að gleðja fólkið á þeim stað sem þú ert nú. Þinn fyrrverandi þjálfari, Benjamín Freyr Oddsson. ✝ MálfríðurHrólfsdóttir fæddist á Hall- bjarnarstöðum í Skriðdal á Fljóts- dalshéraði 24. júní 1925, hún lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands í Nes- kaupstað 3. janúar 2014. Foreldrar henn- ar voru Sveinbjörn Hrólfur Kristbjörnsson, fæddur 8. mars 1884 að Haugi í Gaul- verjabæjarhreppi, Árn., d. 20. nóvember 1972 og Guðríður Þorgerður Sigríður Árnadóttir, fædd 22. mars 1894 að Orm- arsstöðum í Fellum á Fljótsdals- héraði, d. 3. apríl 1963. Þau bjuggu fyrst í Hátúnum í Skrið- dal, síðan skamman tíma í Vallanesi á Völlum, en fluttu þaðan í Hallbjarnarstaði í Skrið- dal, þar bjuggu þau þar til þau hættu búskap. Systkini Mál- fríðar eru: Sveinbjörg, f. 11.6. 1913, d. 26.10. 1980, Magnús, f. 23.8. 1914, d. 9.4. 2010, Karl Ei- ríkur, f. 19.7. 1914, d. 25.9. 12.4. 1948, gift Unnari Magn- ússyni, f. 3.8. 1943, börn þeirra eru Guðmundur, Margrét Fríða, Guðlaugur Már og Hólmar Þór. 4) Svavar Magnús, f. 16.8. 1949, kvæntur Steinvöru Ein- arsdóttur, f. 21.9. 1952, börn þeirra eru Kristján Már og Einrún Ósk. 5) Jón Steinar, f. 22.11. 1951, maki Erla Sigurð- ardóttir, f. 15.9. 1956, börn þeirra eru Sigrún Jóna, Marí- anna og Andri Steinar. 6) Ari Bergsveinn, f. 24.6. 1953, kvæntur Jónu Björgu Margeirs- dóttur, f. 26.10. 1957, börn þeirra eru Þóra Margrét, Örvar og Íris Dögg. 7) Jóhanna Björk, f. 12.2. 1956, gift Hirti Ágústs- syni, f. 13.11. 1952, synir þeirra eru Atli Vilhelm og Kjartan Ottó. 8) Ásta Sólrún, f. 24.4. 1958, gift Gísla Baldurssyni, f. 9.1. 1955, börn þeirra eru Júlía Dröfn, Andri Snær, Þórir Rún- ar, Sveinn Áki og Ólafur Freyr. 9) Guðný Helga, f. 18.3. 1961, gift Guðmundi Elíssyni, f. 22.10. 1944. Börn þeirra eru: Að- alsteinn Pétur, Svanbjört Brynja, Hjalti Bergsteinn og Guðný Valborg. Beinir afkom- endur Málfríðar og Guðmundar eru nú 90 talsins. Útför Málfríðar verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag, 11. janúar 2014, og hefst athöfnin kl. 14. 1994, Jón Einar, f. 14.2. 1918, d. 5.11. 1990, Björgvin, f. 14.10. 1919, d. 25.10. 1984, María, f. 8.7. 1923, d. 8.9. 1971 og Sigríður, f. 15.2. 1927 en hún er sú eina sem er á lífi af þeim syst- kinum. Málfríður giftist 8.9. 1946 Guðmundi Jónssyni frá Höskuldsstöðum í Breiðdal, f. 11.12. 1917, d 1.4. 2001. Þau bjuggu á Höskulds- stöðum í Breiðdal frá 1945-1984 en fluttu þá á Egilsstaði. Börn Guðmundar og Málfríðar eru: 1) Jóhann Hrólfur, f. 17.10. 1945, kvæntur Sveinbjörgu Svein- björnsdóttur, f. 28.11. 1951, börn þeirra eru Þórunn Björg, Sveinbjörn Valur, Guðmundur Ástþór og Heiða Málfríður. 2) Sigríður Guðbjörg, f. 15.1. 1947, gift Ægi Kristinssyni, f. 8.2. 1943, börn þeirra eru Ásta Auð- björg, Hafþór, Eygló Hrönn, Málfríður Hafdís og Sigurður Ægir. 3) Katrín Þorgerður, f. Elsku amma, það er erfitt að átta sig á því að þú ert farin frá okkur. Þú sem hefur alltaf verið svo sterk þegar eitthvað hefur bjátað á, hvort sem það voru veik- indi eða óhöpp sem þú lentir í. Einhvern veginn gerði ég ráð fyr- ir að þú yrðir a.m.k. 100 ára og værir alltaf til staðar til að heim- sækja. Núna er samviskubitið mikið yfir því að hafa alltaf verið svo upptekinn í amstri dagsins og ekki gefið sér tíma til að heim- sækja þig meira og þó hugurinn væri oft hjá þér þá er það ekki nóg. En minningarnar lifa og það yljar manni um hjartarætur þeg- ar hugsað er til baka og rifjuð upp fyrri tíð. Ein fyrsta minningin er þegar þú færðir mér nærföt þeg- ar þú komst frá Noregi að mig minnir. Þau voru marglit og það tók smá tíma að sætta sig við svona sérstök föt en þau voru frá útlöndum og það var spennandi. Tíminn á Höskuldsstöðum er það sem stendur uppúr, t.d. að baka moldarkökur uppi í gullabúi, oft- ast með Hólmari eða Þóru Mar- gréti og svo komst þú stundum að taka þetta út hjá okkur. Veiða fisk í bæjarlæknum og gefa kett- inum. Fylgjast með útungunarvélinni og sjá þegar bæði gæsar- og and- arungar komu úr eggi og fylgjast með þeim í pappakassanum á eft- ir. Ábyrgðartilfinningin sem mað- ur fékk þegar þú sendir okkur út með ruslið og eldspýtur til að kveikja upp í stáltunnunni. Þetta verk þurfti ekki að biðja um tvisv- ar og var talsverð tilraunastarf- semi til að finna út hvað væri besta aðferðin til að fá ruslið til að brenna. Það var eitthvað við það að fá að gista á Höskuldsstöðum, manni fannst maður fullorðnast aðeins. Enda voru leikföngin oft- ast tæki og tól frá ykkur afa eða bara náttúran sjálf. Minnisstætt er þó kvöldið þegar við Þóra Mar- grét vorum að prófa hárkollurnar, þá var mikið hlegið. Einnig hversu gaman hundurinn Pía hafði af því að horfa á sjónvarp. Elsku amma, ég hugsa alltaf til þín þegar ég borða „Guðjónpúka- tertu“ eða „spóa“ sem er þitt heimatilbúna heilhveitbrauð. Það er bakað af og til hjá okkur og mun verða um ókomin ár. Ég mun segja strákunum mín- um söguna á bakvið þessar hefðir og fleiri minningum sem ég geymi af langafa og langömmu þeirra. Kveðja, þinn Atli Vilhelm Hjartarson. Elsku, yndislega amma mín, það er mjög erfitt að hugsa til þess að næsta ferð til Egilsstaða verði án viðkomu hjá þér í blokk- inni ásamt kaffisopa og spjalli um heima og geima. Ég á svo margar góða minn- ingar um þig að ég er í vandræð- um hvar skal byrja, en fyrsta sem kemur upp í huga mér er gamla dúkkan þín sem öllum þótti svo gaman að leika sér með og gull- abúið sem var í gilinu fyrir ofan veginn á Höskuldsstöðum, það var aðalstaðurinn. Ég man það líka þegar ég var 7 ára og fékk lungnabólgu og þú fórst með mér á spítalann á Ak- ureyri og varst hjá mér á meðan ég var að ná heilsu. Þú gafst mér lítið gæludýr sem var handbrúða og lékst á als oddi til að stytta mér stundirnar á spítalanum. Allir sunnudagsbíltúrarnir með ykkur afa, berjamósferðir og hellingur af sögum og ekki skemmdi fyrir að fá eitthvað gott úr nestistöskunni sem var alltaf full af kræsingum auk kóngamola sem voru alltaf með í ferð. Mér fannst líka gaman að máta allskyns fatnað og skó sem leynd- ust í skápunum hjá þér eða niðri í geymslu. Ef mig vantaði eitthvað fór ég til þín og fann oftast eitt- hvað sniðugt hjá þér. Þú varst mikil hannyrðakona og hafðir allt- af eitthvað fyrir stafni og allt svo fallegt sem þú gerðir. Ég er svo þakklát fyrir kvöldið sem ég átti með þér á sjúkrahús- inu á Akureyri um daginn þar sem við hlógum saman og gerðum grín. Elsku amma, ég kveð þig nú með söknuði en veit jafnframt að nú eruð þið afi saman á ný og þið getið ferðast eins og ykkur lystir og fylgst með okkur öllum. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Þín Svanbjört Brynja. Málfríður Hrólfsdóttir ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR frá Miklaholti, Stórateig 42, Mosfellsbæ, sem lést á Landspítalanum á nýársdag verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 13. janúar kl. 15.00. Þeir sem vildu minnast hennar láti Barnauppeldissjóð Thorvaldsensfélagsins njóta þess. Kristín Magnúsdóttir, Sigurjón Bragi Sigurðsson, Jón Magnússon, Elín Helga Sigurjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLMI S. RÖGNVALDSSON rafvirkjameistari, Gullsmára 9, Kópavogi, andaðist að morgni laugardagsins 4. janúar að hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 15. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð. Innilegar þakkir sendum við starfsfólki Sunnuhlíðar fyrir góða umönnun. Sigríður Anna Jóhannsdóttir, Hrönn Pálmadóttir, Sævar Guðbjörnsson, Rögnvaldur Pálmason, Ágústa G. Sigurbjörnsdóttir, Örn Pálmason, Anna Karen Káradóttir, afa- og langafabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir og afi, JÓN DAHLMANN, Torfufelli 6, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Mörk mánudaginn 30. desember. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 14. janúar kl. 13.00. Dagný Kristjánsdóttir, Davíð Anderson, Birgir, Margrjet og Embla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.