Morgunblaðið - 11.01.2014, Síða 50

Morgunblaðið - 11.01.2014, Síða 50
50 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2014 Í tilefni dagsins ætla ég að fara út að borða og í spa með kær-astanum,“ segir Monika Klonowski sem er 31 árs í dag. Aukþess gefur hún sjálfri sér afmælisgjöf en hún hefur gert það nánast frá því hún man eftir sér. „Þetta er góð afsökun til að kaupa gjöf og vera góður við sjálfan sig.“ Í ár er það ferð til Sví- þjóðar á heimsmeistaramót í pole fitness, sem stundum hefur verið kallað súludans. Hún ætlar þó ekki að keppa í þetta skipti heldur horfa á meistarana og taka þátt í námskeiðum sem boðið er upp á. Monika er einn af þremur eigendunum Eríal pole, þar sem pole fitness og dans er kennt. Á daginn vinnur hún hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Iceland travel en á kvöldin kennir hún. Árið 2010 byrjaði hún í þessu sporti og hóf rekstur á eigin stöð fyrir rúmu ári. Hún segir sportið vera vinsælt og eins og stendur er meira en nóg að gera hjá þeim. Flestir eru í aldurs- hópnum 16 til 40 ára. Í febrúar verður boðið upp á námskeið í svokölluðum lofthringjum. Monika segir að sportið krefjist mik- ils styrks, það auki sjálfstraust og sé að sjálfsögðu mjög skemmtilegt. Foreldrar Moniku eru frá Póllandi en hún fæddist hér á landi eftir að þau fluttu til Íslands. Hún er í sambandi og einn sex ára gutta sem verður sjö á árinu. thorunn@mbl.is Monika Klonowski er 31 árs í dag Í New York Monika í Central Park. Hún rekur fyrirtækið Eríal pole, kennir pole fitness á kvöldin en er í ferðaþjónustunni á daginn. Gefur sjálfri sér alltaf afmælisgjöf Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Garðabær Guðfinna Kristný fæddist 11. desember kl. 15.36. Hún vó 3515 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Kristín Jóna Kristjónsdóttir og Helgi Guðnason. Nýir borgarar Reykjavík Lovísa Johannessen fædd- ist 22. október kl. 8.38. Hún vó 2.980g og var 48,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Svava Björk Hákonardóttir og Haraldur Johannessen. H aukur fæddist í Reykjavík 12.1. 1964 og ólst þar upp í Vogahverfinu sem Haukur kallar Þrótt- arbæinn: „Það er gríðarlegur „Þróttur“ í mér. Er búinn að vera nánast allt sem hægt er að vera hjá Þrótti. Æfði og keppti í knatt- spyrnu, blaki og handbolta í gegnum alla yngri flokka og í meistaraflokki í öllum þessum greinum, sat lengi í stjórn knappspyrnudeildar og var formaður hennar um skeið, er nú varaformaður handboltadeild- arinnar, stofnaði Köttarana, hina frægu stuðningsdeild Þróttar og enda líklega í fótsporum föður míns sem formaður félagsins.“ Haukur er nú samt búsettur í Garðabænum í dag og styður Stjörnuna af hæfilegum þrótti. Haukur var í Ísaksskóla og Voga- skóla, lauk stúdentsprófi frá MS 1984, stundaði síðar nám í við- skiptafræði við HÍ og lauk þaðan prófum 1991. Síðan var hann í fyrsta hópnum sem útskrifaðist með MBA- próf frá HR 2002. Haukur vann í saltfiski og skreið hjá BÚR á sumrin frá 13-15 ára ald- urs, var síðan öskukarl hjá Reykja- víkurborg næstu fimm sumur, lék knattspyrnu á Ísafirði sumrin 1985 og 1986 og starfaði jafnframt hjá Orkubúi Vestfjarða og síðan hjá Mjólkurstöð Ísafjarðar: „Ég hef alltaf haft sterkar taugar til Ísa- fjarðar síðan og fer þangað nánast á hverju sumri í seinni tíð.“ Haukur var dreifingarstjóri og sá um markaðsmál hjá Almenna bóka- félaginu og Pressunni 1991-92, var markaðsráðgjafi og hugmynda- smiður á auglýsingastofunni Örkinni (síðar keypt af Argusi og hét eftir það Argus og Örkin) 1992-97, sá um markaðssetningu á íslensku græn- meti fyrir Samtök garðyrkjubænda 1997-99 og var markaðsstjóri hjá Bræðrunum Ormsson 2000-2002. Að loknu MBA-námi hefur Hauk- ur starfað á eigin vegum. Hann hef- ur sinnt markaðaráðgjöf fyrir ýmis fyrirtæki frá 2002, stofnaði Ávaxta- bílinn sumarið 2004 og hefur starf- rækt það fyrirtæki síðan: Haukur Magnússon viðskiptafræðingur MBA – 50 ára Í sól og sumaryl Haukur á ferðalagi með börnunum, Gabríelu og Róberti. Þróttari af lífi og sál Lúpínuseyði Haukur hampar seyðinu sem Svarti Haukur framleiðir. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isSíðumúla 11, 108 Reykjavík, sími 568 6899, vfs@vfs.is www.vfs.is Band- slípivélar 3 Kw 75x2000 og 150x2000 Verð frá kr. 134.900.- Bandsög Vökvastýrð niðurfærsla og lokun á skrúfstykki Sagar rúnnstál - 230 mm 90° - 210 mm vinstri og hægri Öflug iðnaðarsög blaðstærð 2825x27x0,9 Tilboðsverð kr. 889.900.- Borvél gírdrifin Borgeta í stál 30 mm Snittun í stál 16 mm Snúningshraðasvið 105-2348 sn/mín Verð kr. 695.000.- Bandsög vökvastýrð niðurfærsla Sagar rúnnstál - 220 mm í 90° - 160 mm í 45° Blaðstærð 2450x27x0,90 Verð kr. 495.000.- Iðnaðarvélar fyrir fagmenn Sandblásturskassi Innri mál 1200x600x570mm Verð kr. 269.000.-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.