Morgunblaðið - 11.01.2014, Page 60

Morgunblaðið - 11.01.2014, Page 60
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 11. DAGUR ÁRSINS 2014 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. 12 kíló geta safnast í þörmunum 2. Vilja 200.000 kr. hækkun 3. „Vöknuðum við hróp á neðri hæð“ 4. Stálheppnar að sleppa út  Leikarinn Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk í næstu kvikmynd Balt- asars Kormáks, Everest, sem tökur hefjast á í byrjun næstu viku. Ingvar leikur þessa dagana í Jeppa á Fjalli í Gamla bíói og verður verkið einnig sýnt í Hofi á Akureyri, 1. og 2. febrúar. Ingvar þarf að fljúga til Nepals milli sýninga í Gamla bíói og Hofi til að máta búninga fyrir kvikmyndina og að loknum sýningum fyrir norðan fer hann aftur utan til að leika fyrir góð- vin sinn Baltasar. Ljósmynd/Grímur Bjarnason Ingvar skreppur til Nepals milli sýninga  Aldrei hafa fleiri kvikmynda- og sjónvarpsverk verið send til keppni um Edduna, íslensku sjónvarps- og kvikmyndaverðlaunin, en í ár, 108 talsins, og komu 288 manns að gerð þeirra. Í fyrra voru 102 verk send inn og kom að þeim 151 mað- ur. Innsend sjónvarpsverk í ár eru 76 og hafa aldrei verið fleiri, voru 64 í fyrra. Fjöldi kvikmynda er hins vegar sá sami milli ára eða sjö, heimildarmyndir tveimur færri milli ára og verkum sem flokkast sem barna- og unglingaefni fækkar einn- ig, voru átta í fyrra en fimm í ár. Fjórar forvalsnefndir munu velja þau verk sem tilnefnd eru í 23 flokkum og verða tilnefningar tilkynntar 30. janúar. Edduhátíðin verður haldin 22. febrúar í Hörpu. Kvikmyndin Djúpið hlaut flest Eddu- verðlaun í fyrra, 11 alls, og þá m.a. fyrir besta leikara í aðalhlutverki, Ólaf Darra Ólafsson. 108 verk send til keppni um Edduna FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 3-10 m/s, og dálítil él, en austan 5-10 og snjókoma eða slydda norðaustantil fram eftir degi. Hiti 0-5 stig syðra, annars kringum frostmark. Á sunnudag Gengur í austan hvassviðri eða storm með dálítilli slyddu eða rigningu sunnantil, en mun hægari og úrkomulítið nyrðra. Hiti 0-5 stig syðra, annars vægt frost. Á mánudag og þriðjudag Stíf austanátt með dálitlum éljum, en hægari og bjartviðri norðvestantil. Víða vægt frost, en frostlaust við suðurströndina. „Eins og fyrir EM í Serbíu 2012 eru ekki miklar væntingar í kringum ís- lenska landsliðið að þessu sinni. Það stendur að vissu leyti á krossgötum. Kynslóðaskipti eru að eiga sér stað og hin sigursæla kynslóð manna sem eru fæddir í kringum 1980 og hafa borið liðið uppi í nærri áratug fer að rifa seglin. Yngri leikmenn eru að stíga sín fyrstu skref,“ skrifar Ívar Benedikts- son í viðhorfsgrein frá Álaborg. »4 Íslenska liðið að vissu leyti á krossgötum „Það eru allir í formi sem eru með okkur hér í Álaborg og staðan á Guðjóni Val Sigurðs- syni er góð. Hann ætlar að reyna að vera með af fullum krafti á æfingu á morgun [í dag]. Ef hann stenst álagið verður hann með okkur gegn Noregi í fyrsta leik á sunnu- daginn,“ segir Aron Krist- jánsson, landsliðsþjálfari í handknattleik. »1 Staðan á Guðjóni Val er góð „Ég skipti bara um lið af því að að- stæðurnar voru ekki nógu góðar hjá Kolbotn, lykilleikmenn voru að fara og þetta stóð mér til boða. Ég hef komið hingað áður að skoða að- stæður og er mjög spennt fyrir þessu,“ segir knattspyrnukonan Fanndís Friðriks- dóttir sem hefur flutt sig um set í Noregi og er búin að semja við Arna- Björnar í Berg- en. »2 Fanndís mjög spennt fyrir nýja liðinu Steinþór Guðbjartsson Stefán Gunnar Sveinsson „Þetta er spennandi og skemmtilegt verkefni,“ segir Einar Sveinn Þórðarson, annar eigenda Kvikmyndafélagsins Pegasus, um tökur á bresku sjónvarpsþáttunum Fortitude, sem hefj- ast í Fjarðabyggð 27. janúar næstkomandi. Um 150 manns koma að verkefninu og slagar um- fangið upp í tökur á Game of Thrones, að sögn Einars Sveins. Í fyrstu þáttaröðinni verða 13 þættir og er gert ráð fyrir að tökum ljúki í byrj- un júní. Undirbúningur vegna verkefnisins hef- ur staðið í um ár í samvinnu við eigna-, skipu- lags- og umhverfisnefnd Fjarðabyggðar sem hefur samþykkt að gefa leyfi fyrir kvikmynda- tökunni að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Reisa þarf sérstakar viðbyggingar og sumarhús og gera ráðstafanir vegna snjóruðnings og götu- lýsingar. Fyrirkomulag og staðsetning töku og töku- dagar verða auglýstir með dreifibréfi og á heimasíðu og fésbókarsíðu Fjarðabyggðar. Ein- ar Sveinn segir að gott samstarf sé við Fjarða- byggð um verkefnið. „Snjór og frost hafa mikið að segja,“ segir hann um staðarvalið auk þess sem traustar samgöngur hafi einnig ráðið miklu. „Þetta er mjög gott verkefni,“ áréttar hann. Mikil stemning í bænum Auglýst hefur verið eftir aukaleikurum vegna þáttanna og hafa þeir sem hafa áhuga á því ver- ið boðaðir í vesturenda gamla frystihússins við Sjávargötu á Reyðarfirði á mánudag kl. 12-20 og kl. 10-20 á þriðjudag og miðvikudag. Ekki ætti að vera mikill vandi að manna auka- hlutverkin, enda hefur um nokkurt skeið verið rekið öflugt leikfélag á Reyðarfirði. Hjördís Helga Seljan, formaður Leikfélags Reyð- arfjarðar, segir að félagsmenn þess muni að sjálfsögðu gefa kost á sér til verksins, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem leikfélagið býður fram krafta sína við gerð sjónvarpsþátta. „Í fyrra voru tökur á Sönnum íslenskum sakamálum á Fáskrúðsfirði, og þá tók leikfélagið þátt,“ segir Hjördís Helga. Leikfélagið skaffaði þá aukaleik- ara fyrir þáttinn, sem léku meðlimi sérsveit- arinnar og aðra lögreglumenn. „En þetta er stærsta verkefnið sem hefur komið núna,“ segir Hjördís Helga um þættina bresku. Í helstu hlutverkum í þáttunum verða engir aukvisar, danska leikkonan Sofie Gråbøl, Mich- ael Gambon, sem þekktur er sem Dumbledore í Harry Potter-myndunum, og Stanley Tucci úr Hungurleikunum. „Það er mjög spennandi að fá svona fræga leikara til bæjarins,“ segir Hjördís Helga, sem er mikill aðdáandi Sofie Gråbøl, sem íslenskir áhorfendur þekkja best sem Söru Lund úr spennuþáttaröðinni Glæpurinn sem sýndir hafa verið á RÚV. Hjördís Helga segir að mikill spenningur sé í bæjarbúum vegna verkefnisins og hafi þurft að gera nokkrar breytingar á bænum til þess að gera hann að sögusviði þáttanna. „Vonandi verður þátturinn langlífur og vinsæll, þannig að það verði fleiri seríur teknar upp. Það væri al- gjör draumur,“ segir Hjördís Helga að lokum. „Það væri algjör draumur“ Ljósmynd/Fjarðabyggð Hernámið leikið Hjördís Helga Seljan, formaður Leikfélags Reyðarfjarðar, fjórða frá hægri, segir að félagsmenn Leikfélagsins muni gefa kost á sér í aukahlutverk í sjónvarpsþáttunum bresku.  Breskir þættir teknir upp í Fjarðabyggð Michael Gambon Stanley Tucci Sofie Gråbøl Leikfélag Reyðarfjarðar var stofnað í desem- ber 1959, og hefur staðið fyrir ýmsum leik- sýningum á þeim tíma. Félagið hefur um nokkra hríð staðið fyrir árlegri setuliðs- skemmtun í tengslum við hernámsdaga á Reyðarfirði. Hjördís Helga segir að þá sé sett upp ein stök leiksýning með söng og dansi. Hernámssýningarnar hafa mælst vel fyrir meðal bæjarbúa í Fjarðabyggð og verið vel sóttar. „Það hefur verið fullt hús síðan ég tók við,“ segir Hjördís Helga. Leikfélagið hefur jafnframt sett upp önn- ur verk á veturna, en bresku sjónvarpsþætt- irnir setja strik í reikninginn í ár. „Það verð- ur ekkert verk sett upp í vetur vegna þessa stóra verkefnis,“ segir Hjördís Helga. Setu- liðsskemmtunin verður þó áfram á sínum stað. Ekki tími til að setja upp verk í vetur LEIKFÉLAG REYÐARFJARÐAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.