Morgunblaðið - 16.01.2014, Síða 4

Morgunblaðið - 16.01.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Staðan í viðræðum framhaldsskóla- kennara við ríkið er þung, segir Að- alheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara. Síð- asti samningafundur var í byrjun vikunnar og sá næsti hefur verið boðaður í næstu viku. Að sögn Aðalheiðar verða kenn- arar upplýstir nánar um stöðu mála í sérstöku fréttabréfi sem fer út í dag. Einnig stendur til að boða fund með trúnaðarmönnum kennara og ein- stökum kennarafélögum þar sem farið verður yfir stöðu samninga- viðræðna. Viðræðuáætlun er í gangi en kjarasamningar framhaldsskóla- kennara renna út um næstu mán- aðamót. Samkvæmt þessari áætlun á að vera búið að ganga frá nýjum kjarasamningi fyrir þann tíma. „Nú eru 15 dagar eftir af samn- ingstímanum og það verður að segj- ast eins og er að engin umræða hef- ur komist á laggirnar milli samningsaðila um leiðréttingarþörf framhaldsskólakennara, sem er mjög miður,“ segir Aðalheiður. Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, segir framhaldsskólakennara hafa fengið sömu tillögu og aðrir hópar rík- isstarfsmanna um sambærilega út- færslu launaleiðréttinga og fram kom í nýgerðum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Samn- inganefnd ríkisins sé með sama boð á alla; eða fyrir um 140 félög rík- isstarfsmanna í ríflega 70 kjara- samningum. „Við lokum ekki á það ef menn eru tilbúnir í kerfisbreyt- ingar sem skilar ávinningi til fram- búðar. Við munum skoða það sér- staklega en vinnum að öðru leyti eftir þeirri stefnu sem stjórnvöld hafa sett, til samræmis við almennan vinnumarkað, til að ná niður verð- bólgu og tryggja aukinn kaupmátt,“ segir Gunnar. Þung staða í kjaraviðræð- um ríkisins og kennara Morgunblaðið/G. Rúnar Framhaldsskólar Kennarar eru með lausan samning 1. febrúar nk.  Fundað með trúnaðarmönnum SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Átak ASÍ og Samtaka atvinnulífsins gegn verðhækkunum fyrirtækja og stofnana er stöðugt að skila fleiri til- kynningum frá fyrirtækjum sem heita því að hækka ekki verð, draga áður boðaðar hækkanir til baka eða lækka hjá sér verð á vöru og þjón- ustu. Þá lækkuðu olíufélögin hjá sér verð á eldsneyti í gær, í kjölfar þess að N1 lækkaði lítraverð á bensíni og dísilolíu um tvær krónur. Var ástæða lækkunar sögð styrking krónunnar og verðlækkun á heimsmarkaði. Bætist við svarta listann Á vefsíðunni vertuaverdi.is voru sí- degis í gær komin á lista um 80 nöfn fyrirtækja sem heita því að hækka ekki hjá sér verðið. Eru það allt frá smáfyrirtækjum upp í stór og þekkt fyrirtæki eins og IKEA, Hreyfil, Strætó, Kost, Spöl, Pfaff, Iðnmark, Bílabúð Benna og Nings. Á „svarta listann“ svonefnda bættust við tvö fyrirtæki í gær; Frumherji og Lands- virkjun, sem ekki höfðu lækkað eða ekki hætt alfarið við hækkun. Síðan datt eitt af þeim lista, eða Eimskip, sem dró til baka hækkun á fargjaldi með Herjólfi. Í tilkynningu frá Eimskip kemur fram að í samningi um rekstur Herj- ólfs við Vegagerðina sé kveðið á um breytingar á gjaldskrá einu sinni á ári sem taki mið af verðlagsþróun ýmissa kostnaðarliða. Samkvæmt þessu ákvæði var gjaldskrá Herjólfs hækkuð um 3% um síðustu áramót. Nú hefur sú hækkun verið dregin til baka og segja Eimskipsmenn afar mikilvægt að á sama tíma verði ekki kostnaðarhækkanir á rekstrarliðum Herjólfs. Krónan skorar á sína birgja Kaupás, sem rekur matvörukeðj- urnar Krónuna, Nóatún og Kjarval, hefur ákveðið að lækka verð á þeim vörum sem félagið annast alfarið sjálft innflutning á. Fylgir Kaupás þar í kjölfar Bónuss og Hagkaupa. Verðlækkunin er á bilinu 3 til 5% og kemur til framkvæmda á næstu dög- um. Nær lækkunin til nærri 800 vara. Í tilkynningu Kaupáss segir m.a. að ákvörðunin sé tekin í trausti þess að gengi íslensku krónunnar haldist óbreytt. Með henni leggi Kaupás sitt af mörkum til þeirra aðgerða sem að- ilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld hafa tekið höndum saman um, til að efla efnahagslegan stöðugleika, bæta kaupmátt og halda verðbólgu í skefj- um. „Kaupás hefur jafnframt sent birgjum sínum, innflytjendum og innlendum framleiðendum áskorun um að taka þátt í þessari vegferð og tilkynnt þeim að verðhækkanir frá þeim verði ekki samþykktar nema brýn og vel rökstudd þörf býr að baki,“ segir í tilkynningu Kaupáss. Henný Hinz á hagdeild ASÍ segir tilkynningar berast þeim í stríðum straumum og átakið hafi greinilega hrist upp í umræðunni. Sveitarfélög séu strax farin að svara áskorun og hætt við boðaðar hækkanir, eins og Sandgerðisbær og Vesturbyggð. En Henný saknar þess að sjá nöfn stórra heildsala á lista þeirra fyrirtækja sem ætla ekki að hækka verð. Einnig mættu stórar matvöruverslanir bæt- ast á listann, með loforði um að allar vörur verði ekki hækkaðar í verði. Morgunblaðið/Ómar Viðskipti Biðröð fyrir utan Bæjarins beztu við Tryggvagötu. Ein með öllu hefur ekki hækkað og mun ekki hækka að óbreyttu, segir eigandinn. Sífellt fleiri fyrirtæki lofa að verð muni ekki hækka  Herjólfur hættir við hækkun og Krónan lækkar  ASÍ saknar stórra heildsala Efnahags- og viðskiptanefnd Al- þingis fundaði í gær þar sem með- al gesta voru fulltrúar Samtaka at- vinnulífsins, SA. Hafði nærveru þeirra verið óskað til að fá upplýs- ingar um átakið gegn verðhækk- unum. Frosti Sigurjónsson, for- maður nefndarinnar, segir greinargott yfirlit hafa fengist um stöðu málsins. „Eftir fundinn er maður bjart- sýnn á að það muni takast að halda verðbólgu í skefjum. Nefnd- armenn voru ánægðir með góð og skýr svör þar sem kom meðal ann- ars fram að átakið er ekki hugsað til skamms tíma heldur á það að vera viðvarandi,“ segir Frosti. Einnig var rætt um aðkomu rík- isins og loforð stjórnvalda til SA og ASÍ um ráð- stafanir til að draga úr gjald- töku ríkisins. „Við teljum mik- ilvægt að allir leggi sitt af mörkum til að halda niðri verðlagi. Það hafa allir hag af því, bæði launþegar og vinnuveitendur. Von- ir standa til þess að umsamdar launahækkanir muni skila sér í auknum kaupmætti,“ segir Frosti ennfremur. Átakið verður viðvarandi FUNDUR MEÐ EFNAHAGS- OG VIÐSKIPTANEFND ALÞINGIS Frosti Sigurjónsson Lögreglustjórinn á höfuðborgar- svæðinu telur ekki tilefni til ákæru vegna stórfellds skógarhöggs íbúa í Breiðholti í trjálundi borgarinnar fyrir neðan Rituhóla. Páll Hjaltason, formaður um- hverfis- og skipulagsráðs Reykja- víkur, staðfesti í samtali við Morg- unblaðið að bréf þessa efnis sem barst í desember hefði verið kynnt á fundi ráðsins í gær. Ráðið kærði skógarhöggið til lögreglu síðast- liðið vor. Páll sagði að samþykkt hefði ver- ið tillaga Arnar Sigurðssonar, skrifstofustjóra á umhverfis- og skipulagssviði, um að kæra þessa niðurstöðu til ríkissaksóknara. Páll kvað áhuga þó jafnframt vera á því að ná sáttum í málinu við íbúana sem stóðu að skógarhögginu. Þeir hafa borið fyrir sig að þeir hafi haft munnlegt leyfi garðyrkjustjóra borgarinnar til að grisja skóginn sem byrgði útsýni þeirra. Morgunblaðið/Ómar Umhverfi Trjágróðurinn í lundinum í Breiðholti var illa leikinn. Ekki ákært vegna skóg- arhöggs Fundur um mak- ríldeiluna í Lond- on í gær leiddi ekki til niður- stöðu. Verður honum fram- haldið í dag að sögn Sigurgeirs Þorgeirssonar, formanns ís- lensku sendi- nefndarinnar. Auk Íslendinga sitja fundinn fulltrúar ESB, Norðmanna og Fær- eyinga. Litið er á viðræðurnar sem úrslitatilraun til þess að ná sam- komulagi áður en ríkin fara að gefa út kvóta vegna veiða á þessu ári. Makrílfundi haldið áfram Makríll Deilan um hann er óútkljáð. Bæjarlind 4, Kópavogur S: 554 6800 Njarðarnesi 9, Akureyri S: 466 3600 www.vidd.is Öðruvísi flísar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.