Morgunblaðið - 16.01.2014, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014
Byrjað var að sprengja klöpp á Lýsisreit í
byrjun janúar en stefnt er að því að 144 íbúð-
ir rísi á lóðinni Grandavegi 42-44 auk bíla-
kjallara. Þremur til sjö dýnamítsprengingum
á dag er ætlað að losa bergið og að sögn
Matthíasar Geirs Ásgeirssonar, verkefna-
stjóra hjá Þingvangi, sem stendur að verk-
inu, er stefnt að því að sprengingum og jarð-
vinnu ljúki eftir fjóra mánuði.
Hann segir að nokkrar kvartanir hafi bor-
ist frá íbúum sem finni fyrir óþægindum
vegna sprenginganna. Að sögn Matthíasar er
sprengt á milli kl. 9 að morgni og 18 að
kvöldi. Áætluð verklok eru árið 2016 en
kostnaðaráætlun hljóðar upp á um sjö millj-
arða króna. Þegar mest lætur munu um 150
manns vinna að verkinu en sex starfsmenn
sinna jarðvinnu nú. vidar@mbl.is
Íbúar í nálægum húsum hafa kvartað undan sprengingunum á Lýsisreit
Lýsisreitur Starfsmenn vinna að jarðvegsvinnu og sprengingum. Mest munu um 150 manns vinna
að framkvæmdum. Lóðin markast af Grandavegi, Eiðsgranda, Hringbraut og Framnesvegi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sprenging Undirverktakinn Hagtak stýrir sprengingum á Lýsisreit. Sprengdar eru þrjár til sjö sprengjur á dag og hafa íbúar í nálægum húsum kvartað undan óþægindum vegna þeirra.
Sprengingar fyrirhugaðar
á Lýsisreit næstu mánuði
ford.is
Ford Fiesta.
„Besti smábíllinn“
Beinskiptur frá 2.450.000 kr.
Sjálfskiptur frá 2.790.000 kr.
Ford Fiesta, bensín 65 hö, beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,3 l/100 km. CO2 99 g/km. Ford Fiesta, EcoBoost bensín 100 hö, sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,9 l/100 km.
CO2 114 g/km. Tökum allar tegundir bíla uppí nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
Ekki enn sannfærð/ur? Hér eru fleiri staðreyndir um Ford Fiesta:
Hiti er í framsætum og 3,5 tommu upplýsingaskjár í mælaborði. Farangursrýmið er einstaklega rúmt (290 lítra). CO2 gildin eru óvenju lág fyrir bensínvél og hann fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur.
Ford MyKey, brekkuaðstoð og EasyFuel er staðalbúnaður. Öryggispúðarnir eru óvenju margir eða 7 talsins, þar af einn fyrir hné ökumanns. Sérstakt hitaelement er í miðstöð og er hann því mjög fljótur
að hitna sem er afar hentugt á köldum vetrarmorgnum!
Ford Fiesta var valinn besti smábíllinn árið 2013 af
sérfræðingum eins vinsælasta bílablaðs heims, Auto
Express.
Brimborg fagnar 50 árum í bílgreininni og af því tilefni
fylgja ný Nokian vetrardekk að verðmæti 120.000 kr.
öllum Ford Fiesta í janúar. Nýttu tækifærið.
Komdu og prófaðu þennan snilldar bíl.