Morgunblaðið - 16.01.2014, Page 18

Morgunblaðið - 16.01.2014, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014 Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn F A S TU S _E _0 1. 01 .1 4 ÚTSALA 20-40%AFSLÁTTUR Ísland er í 13.-20. sæti matvælalista bresku hjálp- arsamtakanna Oxfam. Listinn nær yfir 125 lönd en ein- kunn landanna á honum er samsett úr nokkrum þáttum sem varða aðgengi að matvælum, þ.e. hversu viðráð- anleg matarinnkaup eru, gæði matvæla og hætta á syk- ursýki og offitu. Listinn byggist meðal annars á gögnum frá alþjóð- legum stofunum eins og Alþjóðaheilbrigðismálastofn- uninni (WHO). Evrópulönd raða sér í efstu sæti listans í öllum flokkum nema þeim síðastnefnda. Afríkulönd eru í öllum neðstu sætum listans en Tsjad er á botn- inum. Ísland kemur vel út úr könnun Oxfam, sérstaklega hvað varðar hreint vatn og fjölbreytni í matvælum, en tíðni sykursýki og offitu dregur einkunnina niður. Hvað varðar þá sjúkdóma er Ísland með 119. lélegustu ein- kunnina, rétt á undan Norður-Kóreu. Í efsta sæti heildarlistans trónir Holland en þar á eft- ir koma Frakkland og Sviss í 2.-3. sæti. Danir og Svíar eru í 4.-7. sæti en Norðmenn og Finnar deila 13.-20. sæti með Íslendingum og fjórum öðrum Evrópulöndum. Hæstu einkunn fyrir matvælagæði, sem er samsett af fjölbreytni og aðgangi að hreinu vatni, fékk Kýpur og í Eistlandi var best að kaupa matvæli, þ.e.a.s. þar var samspil verðlags og verðbreytinga hagstæðast. kjartan@mbl.is Offita dregur Ísland niður  Oxfam gefur út matvælalista fyrir 125 lönd heimsins Matvælalisti Oxfam Sæti Land Stig 1. Holland 6 2.-3. Frakkland 8 2.-3. Sviss 8 4.-7. Danmörk 10 4.-7. Svíþjóð 10 4.-7. Austurríki 10 4.-7. Belgía 10 13.-20. Ísland 12 Heimild: Oxfam Heildarniðurstöður: Ísland er jafnt í efsta sæti ásamt tugum annarra þróaðra ríkja yfir aðgang að matvælum. Ísland er í 15.-17. sæti yfir hversu viðráðanleg matarinnkaup eru. Ísland er í20.-21. sæti yfir gæði matvæla. Ísland er í sjötta neðsta sæti af 125 löndum yfir sykursýki og offitu. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Konur í forystusæti“ stendur skrif- að svörtum stöfum á appelsínugul- um grunni, en um er að ræða nýtt merki þverpólitísks samráðsvett- vangs um aukna þátttöku kvenna í pólitík. Að honum standa konur úr öllum stjórnmálaflokkum sem eiga fulltrúa á Alþingi, auk fulltrúa Fem- ínistafélags Íslands, Kvenréttinda- félagsins og Kvenfélagasambands Íslands, sem í gær komu af stað svokallaðri Facebook-bylgju, þar sem landsmenn eru hvattir til að vekja athygli á málstaðnum með því að setja merkið í stað auðkennis- myndar á Facebook-síðum sínum. Aðdragandi aðgerðanna er sá að Eygló Harðardóttir og Hanna Birna Kristjánsdóttir efndu til fundar í desember sl. með fulltrúum stjórnmálaflokkanna en í kjölfarið var boðað til annars fundar eftir áramót. „Við settumst niður og ræddum hvað væri brýnast núna og það fannst okkur vera að tryggja hlut kvenna í sveitarstjórnum í komandi kosningum,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Kvennahreyfingar Samfylkingar- innar. Hún segir að skilaboðunum um konur í forystusæti sé ekki ein- göngu beint til kvenna, heldur þeirra sem taka þátt í prófkjörum eða sitja í uppstillingarnefndum. Hún segist persónulega telja mik- ilvægt að flokkarnir grípi til að- gerða til að jafna hlut kynjanna en viðhorfsbreyting þurfi einnig að eiga sér stað. Heiða Kristín Helgadóttir, fulltrúi Bjartrar framtíðar í hópn- um, segir ríkt tilefni til að hvetja konur til dáða, nú þegar enn eigi eftir að raða á fjölda lista fyrir kom- andi kosningar. Hún segist vonast til þess að samráðsvettvangurinn haldi störfum sínum áfram. „Lykilatriðið er að þetta er þver- pólitískt verkefni og það eru allir að miða að sama marki, þó að við höf- um ólíkar leiðir að því innan okkar flokkastarfs,“ segir Heiða. Hún seg- ist taka undir með Svandísi Svav- arsdóttur, sem sagði á blaðamanna- fundi í gær að breytingar væru ekki eingöngu háðar því að konur væru duglegri við að koma sér á fram- færi, heldur þyrftu karlarnir að gefa eftir sín sæti, „og sjá hag okk- ar allra í því,“ segir Heiða. Morgunblaðið/Árni Sæberg Framvarðarsveit Konurnar héldu nýja lógóinu á lofti á blaðamannafundi í gær en Heiða Björg segir frekari aðgerðir verða kynntar í febrúar. Vilja auka hlut kvenna í sveitar- stjórnum í vor  Þverpólitísk sátt um konur í forystu Konur í sókn » Á fundi kvennanna í desem- ber var einnig rætt um hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja og að þær væru of sjaldan við- mælendur fjölmiðla. » Að fundinum í gær stóðu: Birgitta Jónsdóttir, Heiða Björg Hilmisdóttir, Heiða Krist- ín Helgadóttir, Steinunn Rögn- valdsdóttir, Steinunn Stef- ánsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, Una María Óskarsdóttir og Þórey Vil- hjálmsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.