Morgunblaðið - 16.01.2014, Síða 21

Morgunblaðið - 16.01.2014, Síða 21
Gott skipulag, virðing fyrir nem- endum, að vera opinn fyrir nýjum hugmyndum í kennslufræði, húmor og gott sjálfstraust eru nokkur af þeim atriðum sem einkenna þá grunnskólakennara sem ná miklum árangri í starfi. Þetta er meðal þess sem rannsókn Guðlaugar Björgvins- dóttur, kennara í Norðlingaskóla í Reykjavík, leiddi í ljós, en rannsókn- ina gerði hún síðastliðið vor í meist- aranámi sínu í náms- og kennslu- fræði við Menntavísindasvið HÍ. Guðlaug heimsótti skóla sem hafa náð einna bestum árangri í sam- ræmdu prófunum í 4., 7. og 10. bekk og fékk ábendingar frá viðkomandi skólastjórum um þá kennara sem þeir töldu eiga sérstaklega mikinn þátt í þessum góða árangri. Í fram- haldinu fylgdi hún níu kennurum eft- ir í nokkra daga, sat í kennslu- stundum og tók viðtöl við þá, nemendur og skólastjórnendur. Hvað einkennir vinnubrögð þess- ara kennara? „Í stuttu máli er gríð- arlega mikið skipulag það helsta. Þeir ganga aldrei inn í kennslustund án þess að vita nákvæmlega hvað þeir eru að fara að gera. Kennslu- stofan er mjög vel skipulögð og þrátt fyrir alls konar áreiti úr ýmsum átt- um fóru þessir kennarar aldrei úr takti, heldur héldu sínu striki,“ segir Guðlaug. Sumt bannað, annað leyft „Þetta góða skipulag smitast yfir til nemendanna sem voru mjög með- vitaðir um þær reglur sem giltu, reyndar sá ég aldrei neinar reglur hanga uppi á vegg hjá neinum af þessum kennurum. Þeir voru allir framsæknir og faglega sterkir, með gott og heilbrigt sjálfstraust. Hug- myndafræði hvers og eins var líka fastmótuð en þeir voru samt mjög opnir fyrir nýjum hugmyndum. Ann- að sem ég tók eftir var að það var gjarnan skemmtilegur húmor í gangi á milli kennara og nemenda. Þegar agavandamál komu upp var tekið jákvætt og uppbyggilega á þeim með virðingu fyrir nemendum en ekki með tuði.“ Eru þessir kennarar einsleitur hópur? „Nei, langt frá því. Til dæmis banna sumir þeirra tyggjó og GSM- síma inni í kennslustundum, aðrir leyfa slíkt og nota jafnvel símana sem kennslutæki. Hjá sumum kenn- urunum sátu nemendur stakir, ann- ars staðar átta saman. Sumir hafa kennt í 30 ár, aðrir í örfá ár. Aldur virðist heldur engu máli skipta í þessu sambandi.“ Guðlaug tók viðtöl við fjölda nem- enda þessara kennara. „Eitt af því sem þar kom fram er þessi mikla virðing fyrir kennurum og skólanum sínum í heild. Umræðan er oft á þann veg að börn beri ekki virðingu fyrir skólanum og námi, en í öllum þeim skólum sem ég kom í skein í gegn að krökkunum þótti vænt um skólann sinn og kennarana sína.“ Eru ekki að þessu fyrir launin „Þessum kennurum hafði vissu- lega mistekist í sínu starfi, en þeir voru tilbúnir að læra af mistökum sínum.“ Var einhvern tímann um það að ræða að þessir kennarar fengju ein- hverja umbun fyrir vel unnin störf? „Nei, ekki í formi launa, enda er ekk- ert svigrúm til þess. Þeir eru ekki að þessu fyrir launin, heldur vegna þess að þeir elska hreinlega starfið sitt og þykir vænt um nemendur sína. Þeir gera sér grein fyrir því að kennarar skipta miklu máli í lífi barna.“ Væri t.d. hægt að nota þessar nið- urstöður til hliðsjónar í kenn- aranámi? „Hugsanlega. En kenn- aranámið verður aldrei þannig að það verði hægt að búa til einhverja súperkennara, ekki frekar en í nokk- urri annarri stétt,“ segir Guðlaug. Morgunblaðið/Kristinn Hvernig ná kennarar árangri? Guðlaug rannsakaði vinnubrögð grunn- skólakennara. Hún komst m.a. að því að þeir eru alls ekki einsleitur hópur. Virðing, húmor og skipu- lag er leiðin að árangri  Hvaða þættir skýra velgengni sumra kennara?  Starfsmenn ís- lenskra grunnskóla voru 7.279 talsins árið 2012, 5.916 konur og 1.363 karlar. Í skól- unum störfuðu 4.784 kennarar og 2.495 við annað en kennslu.  Á Íslandi voru tæp- lega tíu nemendur á hvern kennara 2012 og er þetta hlutfall nemenda á kennara óvíða lægra en hér á landi.  Starfsfólki, bæði kennurum og öðrum, hefur fjölgað mjög á undanförnum ár- um. Á árabilinu 1998-2008 fjölgaði stöðugildum kennara um 43% en annarra starfsmanna grunnskóla um 63% og má rekja hluta þessarar fjölgunar til ein- setningar grunnskólanna. Á sama tíma hefur nemendum í grunnskólum aðeins fjölgað um 2,6%.  Árin 1998-2012 fjölgaði þeim sem starfa við annað en kennslu í grunn- skólum landsins um 42%. Í þeim hópi eru meðal annars stuðnings- og uppeld- isfulltrúar, sérfræðingar eins og t.d. þroskaþjálfar, námsráðgjafar og sálfræð- ingar og skólaritarar.  Hlutfall þeirra sem starfa við kennslu í grunnskólum og eru með kennslu- réttindi hefur hækkað mikið á undanförnum árum. Árið 1998 voru 82,5% með slík réttindi, en árið 2012 voru þeir 95,9% allra sem starfa við kennslu í grunn- skólum.  Hæsta hlutfall réttindalausra kennara árið 2012 var að finna á Vestfjörðum, 13% þeirra sem störfuðu við kennslu, og næsthæst var það á Austurlandi, þar sem 11% voru án kennsluréttinda. Fæstir eru án kennsluréttinda á höfuðborg- arsvæðinu, eða 1,4% þeirra sem starfa við kennslu. Árið 1998 voru 51,4% þeirra sem kenndu í grunnskólum á Vestfjörðum án kennsluréttinda. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Allt starfsfólk í grunnskóla 2012 (Skipt niður í kennara og annað starfsfólk) Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga Hö fuð bo rga rsv æð ið ut an Re yk jav íku r Re yk jav íku rb or g Ve stu rla nd Su ðu rn es No rð ur lan d v es tra Ve stfi rð ir Au stu rla nd No rð ur lan d e ys tra Su ðu rla nd 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 Kennarar Annað starfsfólk 2.081 1.668 453 408 155 196 679 277 6331.426 1.178 326 259 119 138 463 194 431 655 490 127 149 36 58 216 83 202 Margir vinna í grunnskólum landsins í ýmsum störfum Á Íslandi voru 9,6 nemendur á hvert stöðugildi grunnskólakennara árið 2012 og er þetta hlut- fall nemenda á hvern kennara óvíða lægra en hér á landi. Öðru starfsfólki skólanna hefur fjölgað mjög á undanförnum árum. Aðsókn í kennaranám hefur minnkað, einkum eftir að námið var lengt. Kennarastarfið er líklega það starf sem einna flestir hafa skoðanir á og oft einkennist umræðan um það af fullyrðingum um lítið vinnuframlag kennara og að „þeir séu alltaf í fríi“. En hver eru dagleg störf grunnskólakennara, hvernig er fyrirkomulag vinnu þeirra og gæti það verið á annan hátt? SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Vinnuskylda grunnskólakennara í fullu starfi er 1.800 klukkustundir á ári, líkt og annarra opinberra starfs- manna. Samkvæmt kjarasamningi er vinnutímanum skipt niður til tiltek- inna verkefna, eins og sést á með- fylgjandi töflu. Þann hluta, sem þar kallast verkstjórnarþáttur, skipu- leggur kennari í samráði við skóla- stjóra og getur í því m.a. falist aukið foreldrasamstarf eða samstarf við fagfólk. Skólastjórum er skylt að fylgjast með því yfir skólaárið hvern- ig kennarar sinna þeim verkefnum sem þeim hafa verið falin. Á töflunni má líka sjá að þegar grunnskólakennari hefur náð til- teknum aldri og hefur a.m.k. tíu ára kennsluferil, þá minnkar hlutfall kennslunnar í starfi hans á kostnað annarra verkefna. Streituvaldandi skilgreining Að mati Svandísar Ingimund- ardóttur, skólamálafulltrúa Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, hefur þetta fyrirkomulag og þessi skil- greining á vinnutímanum marga ókosti, t.d. að þekking þeirra kennara sem reyndari eru nýtist ekki sem skyldi. „Hér á landi eru kennarar með aldursafslátt, sem þýðir að reynsluboltarnir kenna minnst. T.d. kennir sextugur kennari einungis um 12 klukkustundir á viku hverri. Eftir sem áður stendur vinnuskylda þeirra til jafns við aðra og það er verkefni skólastjórans að finna einhver verk- efni til uppfyllingar fyrir þessa kenn- ara, en þau mega ekki snúast um samskipti við nemendur.“ Svandís segir það vera mat Sam- bands íslenskra sveitarfélaga að skólastjóri þurfi að geta haft meira um vinnufyrirkomulag kennara að segja en nú er. „Eins og þetta er núna, veldur þessi ítarlega og nið- urnjörvaða vinnutímaskilgreining streitu í kennarahópnum, það er mjög takmarkaður sveigjanleiki inn- an þessa ramma,“ segir Svandís. „Það er engin spurning að vinnu- tímaskilgreining kennara styður ekki við framkvæmd skólastefnunnar Skóli án aðgreiningar, sem kallar m.a. á gríðarlega teymisvinnu. Það verður að koma þessari aldagömlu skilgreiningu út og koma fyrir- komulagi starfsins í það horf sem nú- tímaskólastarf kallar á. Vonandi náum við samningum um það.“ Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, fellst ekki á að vinnutímaskilgreiningin hamli skóla- starfi. „Fyrir það fyrsta er heimilt samkvæmt kjarasamingum að auka yfirráð skólastjórnenda yfir vinnu- tíma og binda hann meira á staðn- um.“ Hvers vegna geta grunnskóla- kennarar ekki verið á vinnustað í átta tíma á dag eins og flestar aðrar starfsstéttir? „Auðvitað geta þeir það og langflestir eru það, þrátt fyrir sögusagnir um annað. Í mörgum starfsgreinum er verið að leitast við að auka sveigjanleika og gera störf fjölskylduvænni. En því er öfugt farið hjá kennurum þar sem slíkur sveigj- anleiki hefur verið til staðar, en vinnuveitandinn virðist ekki treysta þeim til að skila vinnuframlaginu þrátt fyrir að vinnutímamælingar sýni allt annað. En það má annars velta því fyrir sér hvað menn telja sig fá fram með því að binda vinnutíma kennara meira í skólunum. Engin fagleg rök hafa heyrst í því sambandi og það hefur ekki verið rökstutt að skólastarfið verði betra ef kennarar vinna tíu tímum meira á viku í skól- anum. Sveitarfélögin hafa sagt að þau séu tilbúin til að hækka launin til jafns við aðra háskólamenntaða starfsmenn ef vinnutíminn verði bundinn enn frekar. Ég hef ekki séð útfærslur á því hvernig þau hyggjast koma því í framkvæmd.“ Segir fyrirkomulag Finna gott Ólafur vísar til niðurstaðna nýjustu Pisa-rannsóknarinnar. „Sú Norð- urlandaþjóð sem heldur helst sjó í þeirri rannsókn er Finnar, sú þjóð sem við höfum viljað horfa mest til sem fyrirmyndar í skólamálum. Þar hafa kennarar mikið sjálfstæði í vinnubrögðum. Þeir sem kenna móð- urmálið, finnsku, eru með minnstu kennsluskylduna. Það er vegna þess að það er viðurkennt að það þurfi mikinn undirbúning fyrir slíka kennslu. Finnar koma vel út úr læsi og þetta ættum við að taka til fyrir- myndar.“ Skilgreining á vinnutíma grunnskólakennara í fullu starfi 55 ára 60 ára 37 vikur 26 kest 24 kest 19 kest Klst Klst Klst Kennsla 17,33 16 12,67 Frímínútur 2,8 2,8 2,8 Kaffitímar 2,92 2,92 2,92 Verkstjórnarþáttur 9,14 11,14 14,14 Leiðsögn 0 0 2 Undirbúningur og úrvinnsla kennslu 10,67 10 8,33 Vikuleg vinnuskylda x 37 vikur 42,86 42,86 42,86 Undirbúningsdagar utan skólatíma 64 64 64 Endurmenntun o.fl. 150 150 150 Árleg vinnuskylda 1.800 1.800 1.800 Reynsluboltarnir fá aldursafslátt  Skiptar skoðanir um vinnufyrirkomulag  Vinnutíma grunnskólakennara er skipt niður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.