Morgunblaðið - 16.01.2014, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014
ÞJÓÐLEG
ÞORRAHLAÐBORÐ
FRÁVEISLULIST
Súrmatur
Hrútspungar, súr sviðasulta, lun-
dabaggar, bringukollar, lifrapylsa
og blóðmör.
Þorrakonfekt
Hákarl, harðfiskur, hvalrengi, mari-
neruð síld og kryddsíld.
Kjötmeti og nýmeti
Hangikjöt, pressuð svið, lifrapylsa
og blóðmör.
Heitir réttir
Sviðakjammi, saltkjöt, rófu-
stappa, kartöflur og jafningur.
Meðlæti
Rúgbrauð, flatbrauð, smjör,
grænmetissalat, grænar baunir og
grænmeti
Fari fjöldi yfir 40 manns bjóðum
við Stroganoff pottrétt með hrís-
grjónum og steiktum kartöflum,
sé þess óskað.
Matreislumenn fylgja veislu eftir
fari fjöldi yfir 60 manns.
www.veislulist.is
3.000.-
Verð f
rá
fyrir s
tærri
hópa 3.500.-
Verð f
rá
fyrir s
tærri h
ópa í
(heim
ahús/
sali.)
Allt um þorramatinn, verð, veislur
og veislusal á heimasíðu okkarHólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
ÞORRAMATUR
Í LOKJANÚARBLÓTUMVIÐÞORRANNEINSO
GSÖNNUM
ÍSLENDINGUMSÆMIR. Súrmatinn útbúum v
ið sjálfir frá grunni
og byrjar undirbúningur þessa skemmtileg
a tíma strax að
hausti. Þorramatinn er hægt að fá senda í s
ali, heimahús og
panta í veislusal okkar.
Skútan
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að
nær helmingur íbúa Sýrlands, eða
um 9,3 milljónir manna, þyrfti á að-
stoð að halda vegna átakanna sem
hafa geisað í landinu í tæp þrjú ár.
Ban Ki-moon sagði þetta á ráð-
stefnu í Kúveitborg þar sem Samein-
uðu þjóðirnar óskuðu eftir fjárfram-
lögum að andvirði 6,5 milljarða
dollara (750 milljarða króna) í ár
vegna hjálparstarfsins í Sýrlandi.
Ríki, sem tóku þátt í ráðstefnunni,
höfðu í gær lofað að leggja til alls 2,4
milljarða dollara (280 milljarða
króna).
Valerie Amos, sem samhæfir
hjálparstarf stofnana Sameinuðu
þjóðanna, sagði að brýnast væri að
bjarga um 245.000 Sýrlendingum
sem urðu innlyksa í byggðum, sem
setið er um, og standa frammi fyrir
hungursneyð.
Hindrar matvælaflutninga
Mannréttindasamtök hafa sakað
stjórnarherinn í Sýrlandi um að hafa
hindrað flutninga á hjálpargögnum
til nokkurra af svæðunum þar sem
neyðin er mest. Mannréttindasam-
tökin Human Rights Watch segja að
sýrlensk stjórnvöld hafi t.a.m. neitað
að heimila flutninga frá Tyrklandi til
byggða í norðanverðu Sýrlandi. Pal-
estínuflóttamannahjálpin UNRWA,
ein af stofnunum Sameinuðu þjóð-
anna, sagðist hafa reynt að senda sex
flutningabíla með matvæli, bóluefni
gegn mænusótt og önnur hjálpar-
gögn til flóttamannabúða Palestínu-
manna í Yarmouk, nokkra km sunn-
an við Damaskus, en bílarnir hefðu
þurft að snúa við vegna þess að skot-
ið var á þá. bogi@mbl.is
Helmingur íbúa
Sýrlands þarf aðstoð
Milljónir flóttamanna
» Um 6,5 milljónir manna eru
á flótta í Sýrlandi og yfir 2,3
milljónir Sýrlendinga eru
skráðar í flóttamannabúðum í
grannríkjunum.
» Um 130.000 manns hafa
beðið bana í átökunum sem
hófust í Sýrlandi fyrir tæpum
þremur árum.
Götusali selur grímur með mynd af Abdel Fattah al-
Sisi, yfirmanni egypska hersins, í Kaíró í gær, á síðari
degi þjóðaratkvæðis um nýja stjórnarskrá. Talið er lík-
legt að al-Sisi bjóði sig fram í næstu forsetakosningum,
en hann hefur notið mikilla vinsælda eftir að herinn
steypti íslamistanum Mohamed Morsi af stóli forseta.
AFP
Yfirmaður hersins í forsetaframboð?
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Lögreglan í Nýju-Delhí handtók í
gær hóp heimilislausra manna sem
grunaðir eru um að hafa nauðgað 51
árs gamalli danskri konu sem villtist
í borginni og spurði þá til vegar.
Konunni var nauðgað í fyrrakvöld
eftir að hún villtist á leiðinni á hótel í
Paharganj-hverfinu í Nýju-Delhí.
Konan hafði verið ásamt félögum
sínum í skoðunarferð á safni í borg-
inni og varð viðskila við þá á leiðinni
á hótelið.
Haft var eftir lögreglumanni, sem
rannsakar málið, að einn mannanna
hefði narrað konuna á afvikinn stað,
hulinn trjám, þar sem hinir menn-
irnir biðu. Nauðgararnir hefðu hald-
ið konunni í þrjár klukkustundir,
ógnað henni með hnífi og gengið
skrokk á henni. Þeir stálu einnig far-
síma hennar og peningum.
Að sögn lögreglunnar vildi konan
ekki fara í læknisskoðun en hafði
augljóslega orðið fyrir miklu sál-
rænu áfalli. Hún veitti lögreglunni
ítarlegar upplýsingar um nauðg-
unina í viðurvist sendiherra Dan-
merkur. „Hún sagði okkur að flestir
árásarmennirnir væru unglingar,“
sagði lögreglumaðurinn og bætti við
að þeir virtust vera „flækingar“.
Gæti orðið kosningamál
Mikil umræða hefur verið um
nauðganir á konum og stúlkum í
Nýju-Delhí og fleiri indverskum
borgum vegna margra nauðgunar-
mála síðustu misseri. Viðurlög við
nauðgunum voru hert á Indlandi á
liðnu ári en Thomas Sehested,
danskur ráðgjafi og höfundur bókar
um Indland, telur að harðari refs-
ingar hafi lítil áhrif. Það taki langan
tíma að leysa vandamálið, meðal
annars með aukinni löggæslu og
fræðslu til að breyta hugarfari ind-
verskra karlmanna og viðhorfum
þeirra til kvenna.
Sehested telur þó að nauðgunar-
málin verði ofarlega á baugi í um-
ræðunni fyrir þingkosningarnar á
Indlandi í apríl og maí, meðal annars
vegna þess að nauðganirnar gætu
orðið til þess að erlendum ferða-
mönnum fækkaði á Indlandi. „Ind-
verjar skammast sín niður í tær
vegna nauðgunarmálanna og krefj-
ast þess að tekið verði á vanda-
málinu,“ hefur fréttavefur danska
blaðsins Politiken eftir Sehested.
Grunaðir um
hópnauðgun
Danskri konu nauðgað í Nýju-Delhí
Talið að harðari refsingar breyti litlu
Efnt var til mótmæla á Ind-
landi á liðnu ári vegna fjölda
hópnauðgunarmála í landinu. Á
meðal þeirra sem var nauðgað
var sextán ára stúlka sem hóp-
ur manna nauðgaði 26. októ-
ber í bænum Madyagram, um
25 km norðan við Kolkata.
Daginn eftir nauðguðu sex
menn stúlkunni fyrir utan
heimili hennar eftir að hún
hafði kært fyrri hópnauðg-
unina til lögreglu.
Stúlkan dó af brunasárum
eftir að tveir menn, sem tengj-
ast nauðgurunum, réðust inn á
heimili hennar og kveiktu í
henni þegar hún var ein heima
23. desember.
Brennd eftir
nauðganir
Sorg Beðið fyrir stúlku sem var
brennd til bana eftir hópnauðganir.
NAUÐGUNUM MÓTMÆLT
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Meint framhjáhald Francois Hol-
lande, forseta Frakklands, virðist
ekki hafa veikt stöðu hans í stjórn-
málunum. Hollande hafði ekki úr
háum söðli að detta því skoðana-
könnun, sem gerð var í nóvember,
benti til þess að aðeins 15% kjósenda
styddu hann. Samkvæmt nýjum
könnunum telja þrír af hverjum fjór-
um kjósendum í Frakklandi að ásta-
líf forsetans sé einkamál hans og
komi ekki þjóðinni eða fjölmiðlunum
við. Ein könnun bendir jafnvel til
þess að fylgi Hollande hafi aukist
lítillega.
Hneykslismálið hefur hins vegar
beint sjónum manna að óskýru hlut-
verki og stöðu frönsku forsetafrúar-
innar sem í þessu tilviki er titluð
maki forsetans því þau Hollande og
Valerie Trierweiler hafa ekki gengið
í hjónaband.
Ekki eru til nein lagaákvæði um
stöðu maka forsetans en Trierweiler
er þó með eigin skrifstofu á kostnað
skattborgaranna eins og eiginkonur
síðustu forseta Frakklands.
Trierweiler er með fimm starfs-
menn og kostnaður ríkisins af skrif-
stofu hennar nemur 19.742 evrum
(3,1 milljón króna) á mánuði, að sögn
franska vikublaðsins VSD. Hún er
þó ekki mjög fjárfrek ef miðað er við
fyrri forsetafrúr Frakklands því
Carla Bruni-Sarkozy kostaði ríkið
60.000 evrur (9,5 milljónir króna) og
Bernadette Chirac 80.000 evrur
(12,6 millj. kr.) á mánuði.
Skrifstofan verði lögð niður
Nokkrir franskir stjórnmálamenn
hafa hvatt til þess að skrifstofa maka
forsetans verði lögð niður. Francois
Rebsamen, formaður þingflokks
sósíalista í efri deild þingsins, sagði
nýlega að banna ætti skrifstofu
maka forsetans vegna þess að hún
væri „úrelt og gamaldags“ fyrir-
bæri.
Trierweiler er 48 ára og var blaða-
maður vikuritsins Paris Match áður
en Hollande varð forseti. Hún var
gift þegar ástarsamband þeirra
hófst en Hollande var þá sambýlis-
maður Segolene Royal, forsetaefnis
sósíalista í kosningunum árið 2007.
Hollande og Royal eignuðust saman
„Eru Frakkar
galnir, eða við?“
Meint framhjáhald virðist ekki
veikja stöðu franska forsetans