Morgunblaðið - 16.01.2014, Side 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014
Mikil umræða er nú um Land-
búnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) og
hugsanlega sameiningu við Há-
skóla Íslands (HÍ). Undirrituð,
sem öll eru starfsmenn LbhÍ vilja
í þessu sambandi taka eftirfar-
andi fram:
LbhÍ er gæðaháskóli
Skólinn hefur hlotið alþjóðlega
viðurkenningu á fagsviðum sínum.
Síðastliðið haust var birt gæða-
úttekt á starfi skólans, unnin á
vegum gæðaráðs íslenskra há-
skóla af erlendum sérfræðingum
og getum við verið stolt af ár-
angrinum. Skólinn hefur staðið
sig vel í íslensku og alþjóðlegu
starfi í rannsóknum og þróun-
arverkefnum. Einnig er boðið upp
á öflugt nám á starfsmenntastigi
og endurmenntunarnámskeið um
land allt. Samlegðaráhrif fylgja
því að hafa starfsnám, há-
skólanám, rannsóknir og stoð-
þjónustu í einni stofnun.
Sérstaðan er skýr
Landbúnaðarháskóli Íslands
hefur mikla sérstöðu meðal há-
skóla hérlendis á sviði nátt-
úrunýtingar, landbúnaðar, um-
hverfishönnunar, skipulags, skóg-
og landgræðslufræða eins og lesa
má um á heimasíðu skólans
(lbhi.is). Enginn annar sinnir
kennslu og rannsóknum á þessum
fræðasviðum með sambærilegum
hætti hérlendis.
Sameining HÍ og LbhÍ
mun kosta fjármuni
Samanburður á kostnaði við há-
skóla á Íslandi við nágrannalönd-
in sýnir að háskólar á Íslandi eru
ódýrir (um helmingur af því sem
slík kennsla kostar á hinum
Norðurlöndunum og lægra en
meðaltal OECD ríkjanna skv.
skýrslu stofnunarinnar). Samt
þurfa háskólarnir að glíma við
minnkandi fjárveitingar. Land-
búnaðarháskóla Íslands er gert
að sækja um helming rekstrarfjár
í formi sértekna árlega. Samein-
ing LbhÍ og HÍ mun krefjast
aukins fjármagns úr ríkissjóði og
er því engin sparnaðaraðgerð.
Faglegur ávinningur við
sameiningu skólanna?
Þeir kostir sem helst hafa verið
nefndir eru að aukin fræðileg
breidd geti skapast á sviði nátt-
úruvísinda og að það gefi færi á
fjölbreyttari, jafnvel þver-
fræðilegum viðfangsefnum í
kennslu og rannsóknum. Mikil
óvissa er um hvaða vægi fræða-
svið LbhÍ munu fá í sameiningu
við HÍ. Ekki liggur fyrir vinna
við úttekt á kostum og göllum
sameiningar annað en fýsi-
leikakönnun frá 2009 sem fékk
takmarkaða umfjöllun. Faglegum
kostum sameiningar má að miklu
leyti ná með aukinni samvinnu
háskóla. Sameining mun breyta
starfsemi LbhÍ. Styrkur sem felst
í stuttum boðleiðum í litlum ein-
ingum veikist og mikilvæg tengsl
LbhÍ við atvinnulífið gætu rofnað.
Stuðningur við rannsóknastarf á
sviði landbúnaðar gæti verið í
hættu.
Háskóli á landsbyggðinni
Háskólar á landsbyggðinni eru
ein besta byggðaaðgerð sem farið
hefur verið í og þær þjóðir sem
við gjarnan berum okkur saman
við hafa líka farið þá leið að
stofna háskóla á landsbyggðinni.
Þeir skapa dýrmæt störf, bæði
beint og óbeint og hækka mennt-
unarstig í nærsamfélaginu. Hátt
hlutfall brautskráðra nemenda
frá LbhÍ starfar á landsbyggð-
inni og þar á Landbúnaðarhá-
skólinn djúpar rætur. Góð að-
staða til kennslu og rannsókna er
fyrir hendi á Hvanneyri. Þar er
háskólaþorp með nemendagörð-
um auk leikskóla og grunnskóla
sem sveitarfélagið Borgarbyggð
rekur. Legðist starfsemin á
Hvanneyri af eða drægist saman
gæti það haft ófyrirséðar afleið-
ingar fyrir samfélagið í Borg-
arbyggð og valkostum til náms í
dreifbýli myndi almennt fækka.
Starfsstöð garðyrkjunámsins að
Reykjum í Ölfusi á einnig sterk-
ar rætur og þar eru ótal sókn-
arfæri.
Sjálfstæður
Landbúnaðarháskóli
Nú er brýnt að eyða óvissu og
horfa til framtíðar, með því að
standa vörð um starfsemi LbhÍ –
sérstöðu , styrk og frumkvæði.
Frá árinu 2005 hefur verið
byggður upp nýr háskóli á göml-
um merg en fjármunir til rekst-
urs hans hafa rýrnað um 30% á
síðustu fimm árum. Niðurskurði
og undirfjármögnun hefur verið
mætt með hagræðingaraðgerð-
um. Miðað við rekstrarforsendur
skólans er ekki hægt að draga
meira saman í rekstri nema til
komi uppstokkun á starfseminni.
Skapa þarf LbhÍ rekstr-
argrundvöll til framtíðar. Sam-
vinna og samstarf er mikilvægt
milli háskóla innanlands og utan
sem eiga líka í eðlilegri sam-
keppni um nemendur.
Á fræðasviðum LbhÍ liggja
mörg fjöregg íslensku þjóð-
arinnar og mikilvægt að nýta þau
tækifæri sem þar felast í
framþróun og nýsköpun. Sækja
þarf fram og sýna kjark í að tak-
ast á við verkefnin, á sviðum eins
og matvælaframleiðslu, landnýt-
ingu, skipulagi og hönnun um-
hverfis. Sóknarfærin eru mörg
og fjölbreytt.
Við teljum verkefnum Land-
búnaðarháskóla Íslands betur
borgið hjá sjálfstæðum háskóla
en sem deild innan HÍ.
Sjálfstæður Land-
búnaðarháskóli
eða deild við
Háskóla Íslands?
Frá starfsmönnum LbhÍ » Samanburður á
kostnaði við háskóla
á Íslandi við nágranna-
löndin sýnir að háskólar
á Íslandi eru ódýrir
Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt
og dósent við LbhÍ,
Álfheiður Marínósdóttir, kennslu-
stjóri við LbhÍ,
Eyjólfur Kristinn Örnólfsson, sér-
fræðingur við LbhÍ,
Gunnar Reynisson, verkefnisstjóri
hjá Endurmenntun LbhÍ,
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, náms-
og starfsráðgjafi við LbhÍ,
Haukur Þórðarson, kennari við
starfsmenntabrautir LbhÍ,
Helena Guttormsdóttir, brautarstjóri
umhverfisskipulagsbrautar og lektor
við LbhÍ,
Ragnar Frank Kristjánsson, lands-
lagsarkitekt og lektor við LbhÍ,
Ragnhildur Jónsdóttir, umhverf-
isfræðingur og aðjúnkt við LbhÍ,
Ragnhildur Sigurðardóttir, umhverf-
isfræðingur og lektor við LbhÍ,
Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir, al-
þjóðafulltrúi LbhÍ,
Þorsteinn Guðmundsson, jarðvegs-
fræðingur og prófessor við LbhÍ,
Þorvaldur Kristjánsson, kennari og
doktorsnemi við LbhÍ,
Þórunn Edda Bjarnadóttir, deild-
arfulltrúi á kennslusviði LbhÍ.
Út er komin skýrsla
frá North Atlantic Sal-
mon Fund (NASF)
„Tækifæri í ferðaþjón-
ustu á Vestfjörðum“. Í
skýrslunni sem og í
umfjöllun höfundar
hennar í fjölmiðlum
kemur fram gagnrýni
á eldisuppbyggingu á
Vestfjörðum sem þarf
að íhuga vandlega.
Fyrir það fyrsta er
skýrslan unnin að beiðni hags-
munahóps um verndun villtra laxa-
stofna og verður því að taka henni
sem slíkri. Vegið er að og gert að
umtalsefni uppbygging á sjóakvía-
eldi og stefnu stjórnvalda og sveitar-
félaga í þeim efnum samhliða því að
fjalla um þau tækifæri sem eru í
ferðaþjónustu.
Í skýrslunni er fjallað um vanda
Vestfjarða; fólksfækkunina, einhæft
atvinnulíf og erfiðar samgöngur,
staðreyndir sem flestir Vestfirð-
ingar þekkja. Einnig er talað um þá
hættu að byggð leggist af. Þetta er
veruleiki sem blasir við Vestfirð-
ingum að mati skýrsluhöfundar,
nema til komi nýjar atvinnugreinar
og ný störf ásamt nauðsynlegum úr-
bótum á grunngerð sem eflt geti
byggð. Þetta hefur einmitt verið
hlutverk fiskeldisfyrirtækjanna á
Vestfjörðum undanfarin ár. Mikil
fjárfesting hefur átt sér stað í grein-
inni og á örfáum árum hefur störfum
fjölgað úr nokkrum störfum í liðlega
90 störf. Á sama tíma er ferðaþjón-
ustan einnig að vaxa og dafna m.a.s.
á svæði þar sem mikill vöxtur er í
fiskeldi og má þar nefna ný fyrirtæki
eins og Fosshótel á Patreksfirði og
Westfjords Adventures. Ferðaþjón-
ustan er nú þegar mik-
ilvægur þáttur í at-
vinnulífinu og
nauðsynlegt að hún
vaxi og dafni á komandi
árum. Fiskeldi og
ferðaþjónusta útiloka
ekki hvað annað, við-
fangsefnið er fremur að
finna jafnvægi á milli
þessara tveggja at-
vinnugreina. Slíkt verð-
ur ekki gert nema með
faglegri rýni og viðeig-
andi fræðilegum rann-
sóknum á því hvað
raunverulega geti skaðað uppbygg-
ingu ferðaþjónustu. Ef niðurstaðan
er sú að hætta sé fyrir hendi að eld-
isuppbygging geti skaðað vöxt á
ferðaþjónustu þá verður einnig að
meta og mæla hvaða þýðingu það
hafi fyrir byggð og atvinnulíf á Vest-
fjörðum. Einnig verður með mark-
vissum hætti að rannsaka þau áhrif
sem aukin ferðaþjónusta hefur á
umhverfi Vestfjarða þar sem land-
svæði fjórðungsins hefur sín þol-
mörk jafnt og önnur svæði þessa
lands.
Mjög mikilvægt er að hafa í huga
að eldisuppbygging getur skipt
sköpum fyrir atvinnulíf og byggð
Vestfjarða til skemmri og lengri
tíma. Uppbyggingin er nú þegar
hafin og má merkja umskipti í
byggðaþróun (miðað við mannfjölda-
þróun síðustu tveggja ára) á sunn-
anverðum Vestfjörðum vegna þessa.
Jafnframt má benda á byggð eins og
Flateyri, þar sem stærsti vinnustað-
urinn er tilkominn vegna eldisupp-
byggingar og ef hann væri ekki til
staðar þá væri byggð á Flateyri án
efa talsvert öðruvísi en hún er í dag.
Á nýlegum fundi sem Atvest tók
þátt í með íbúum Flateyrar ríkti
mikil bjartsýni meðal þeirra og já-
kvæðni vegna þeirra áforma sem
uppi voru varðandi eldisuppbygg-
ingu.
Nú þegar er búið að fjárfesta fyrir
á fimmta milljarð á Vestfjörðum í
eldisuppbyggingu og útlit fyrir tölu-
verðar viðbótarfjárfestingar. Það
starfa hátt í 90 manns hjá eldisfyr-
irtækjum, störf sem skapa nú þegar
tekjur fyrir sveitarfélög, ríkið og
vestfirska hagkerfið, mikilvæg störf
sem hafa skapast og haft áhrif á um-
skipti í sveitarfélögum eins og Vest-
urbyggð og Tálknafjarðarhreppi.
Fyrirtækin sem vinna að upp-
byggingunni hafa sjálfbærni að leið-
arljósi og hafa fyrirtækin ákveðið
haft frumkvæði að þeirri stefnu í
sinni uppbyggingu eins og sjá má
t.d. á heimasíðunni www.arcticsal-
mon.is. Fyrirtækið sem þar á í hlut
hefur fjárfest í eldi sem miðar að
sjálfbærni og virðingu fyrir um-
hverfi, eldis- og verkferlum er þann-
ig hagað að hvergi er sparað svo
markmiðum sjálfbærrar þróunar sé
gætt. Fyrirtækið er að vinna að
kröfum markaðarins, markaðar sem
lætur sér annt um sjálfbærni og það
umhverfi sem varan kemur úr. Það
er ekki úr vegi að taka fram að sjálf-
bærni snýst bara ekki um umhverf-
isverndun heldur einnig um sam-
félagslega og hagræna þætti.
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
hefur nú um nokkurt skeið unnið að
framþróun eldis á Vestfjörðum sam-
hliða öðrum áhugaverðum og vel
heppnuðum verkefnum í ferðaþjón-
ustu og í öðrum greinum atvinnulífs-
ins. Það mun áfram vinna að upp-
byggingu á sjálfbæru fiskeldi á
Vestfjörðum ásamt uppbyggingu á
ferðaþjónustu og er ekki vafi á að
báðar þessar atvinnugreinar munu
geta dafnað og vaxið á Vestfjörðum
á komandi árum.
Ferðaþjónusta og eldi
Eftir Shiran
Þórisson
Shiran
Þórisson
» Ferðaþjónustan er
nú þegar mik-
ilvægur þáttur í at-
vinnulífinu og nauðsyn-
legt að hún vaxi og dafni
á komandi árum
Höfundur er framkvæmdastjóri At-
vinnuþróunarfélags Vestfjarða.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
30 stk pakki á aðeins 2500.-
FRÍ SJÓNMÆLING
Klippið út auglýsinguna
Verið velkomin
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9:30-18, LAUGARDAGA: 11-14
Frábærar daglinsur
sem hafa heldur
betur sannað sig
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í 17 ÁR