Morgunblaðið - 16.01.2014, Side 31

Morgunblaðið - 16.01.2014, Side 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014 ✝ Sigrún Arnórs-dóttir fæddist í Hafnarfirði hinn 24. mars 1934 og andaðist á Land- spítalanum í Foss- vogi hinn 9. janúar 2014. Hún var dóttir hjónanna Arnórs Þorvarð- arsonar (1897- 1976) og Sólveigar Sigurðardóttur (1905-1988). Systkini Sigrúnar eru Sigurlaug (1923-2005), Sig- urður Kristinn (1924-2013), Guðrún (1925-1929), Elín (1926- 1973), Ásta (f. 1928), Guðrún (1931-1947) og Sólveig Arn- þrúður (f. 1947). Sigrún ólst upp á Jófríðarstaðavegi 5 í f. 1993, Jón Rúnar, f. 1995, og Ásbjörn, f. 1998. 4) Þórdís Ragnhildur, f. 1972, búsett í Augsburg í Þýskalandi, maki Michael Teichmann, f. 1967. Sigrún og Björn bjuggu lengst af á Álfaskeiði 73 en þegar Björn lést árið 2011 voru þau nýflutt á Sólvangsveg 1 þar sem Sigrún bjó síðan. Sigrún lauk stúdentsprófi frá MR 1955 og prófi frá Kennaraskólanum árið 1957. Hún kenndi í Lækj- arskóla 1957-1965 og í Víði- staðaskóla frá stofnun hans ár- ið 1970 þar til hún fór á eftirlaun árið 2002. Til 1982 stundaði hún almenna bekkjar- kennslu en eftir námsleyfi 1982-1983 var hún mest í stuðn- ingskennslu. Á árunum 1965- 1969, þegar hún ætlaði að vera heimavinnandi, var hún mjög oft fengin í forfallakennslu. Útför Sigrúnar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, fimmtudaginn 16. janúar, kl. 15. Hafnarfirði. Sigrún giftist eiginmanni sínum, Birni Bald- vini Höskuldssyni byggingarverk- fræðingi (1933- 2011), hinn 15. júlí 1961. Börn þeirra eru: 1) Höskuldur, f. 1961, maki Auð- ur Þóra Árnadótt- ir, f. 1962, börn: Árni Björn, f. 1992, Birgir Örn, f. 1994, og Guðrún, f. 1996. 2) Arnór, f. 1963, maki Bára Jóhannsdóttir, f. 1965, börn: Atli Már, f. 1991, Katla Rún, f. 1996, og Kolbeinn Ari, f. 1996. 3) Baldvin, f. 1965, maki Helga Rúna Þorleifs- dóttir, f. 1961, börn: Þorleifur, Elsku mamma mín. Nú þegar komið er að kveðjustund á ég erfitt um orð. Þú varst mér ekki aðeins móðir heldur gátum við talað endalaust saman um allt og ekkert. Þú lást ekkert á skoðunum þínum en ég er mun hlédrægari. Ég dáðist oft að þessum eiginleika þínum sem nýttist þér auðvitað í starfi sem grunnskólakennari. Þú varst mikil prjónakona og það hefur oft verið dáðst að peysum og kjólum sem ég hef verið í frá þér. Skírnarkjóllinn sem mörg af barnabörnum þín- um hafa verið skírð í er ein af gersemunum í eigu fjölskyld- unnar og verður vonandi varð- veittur um langa tíð. Þú rækt- aðir einnig garðinn ykkar pabba á Álfaskeiðinu og ég skildi aldrei sem barn að þessi garður væri aldrei valinn fallegasti garður Hafnarfjarðar. Þessi garður var alltaf sá allra fallegasti í mínum augum, mitt í hrauni Hafnar- fjarðar. Á seinni hluta ævi þinn- ar spilaðirðu oft brids við sam- kennara þína og pabba og hafðir gaman af. Eftir að ég flutti út hittumst við sjaldnar en töluðum reglu- lega saman í síma. Þegar ég kom til landsins urðu alltaf fagn- aðarfundir og þið pabbi tókuð mér alltaf opnum örmum. Eftir að pabbi dó dró heldur af þér og þú saknaðir hans mikið. Minn söknuður er sár en ég hugga mig við það að þú ert nú komin til pabba. Þín dóttir, Þórdís (Dísa). Það eru tæplega 30 ár síðan ég kom fyrst á heimili Sigrúnar og Björns á Álfaskeiðinu. Ég fann til hlýju í minn garð frá fyrstu stundu. Á þessum tíma bjuggu öll börnin heima og var því oft mikið umleikis á heim- ilinu. Aðeins rúmu ári síðar fluttu synirnir þrír allir að heim- an, en yngsta barnið, einkadótt- irin Dísa, augasteinn foreldra sinna, var áfram heima enn um sinn. Sameiginlegt áhugamál þeirra hjóna var að spila brids og einn- ig horfðu þau mjög gjarnan á ýmsa íþróttaviðburði í sjónvarp- inu og má þá sérstaklega nefna tennis. Þau höfðu einnig gaman af að ferðast til útlanda og eru marg- ar góðar minningar tengdar heimsókn þeirra og Dísu til okk- ar Höskuldar í Seattle árið 1987. Þá ferðuðumst við með þeim um Washington-ríki og Kanada. Við hlógum oft að undrunarsvipnum sem kom á landamæravörðinn sem skoðaði vegabréf þessara fimm aðila sem virtust tilheyra sömu fjölskyldu en þó bar eng- inn sama eftirnafn. Björn og Sigrún voru bæði útivinnandi og á heimilinu var verkaskipting nokkuð skýr. Björn sá oftast um hefðbundna matseld en Sigrún um allan bakstur. Hnallþórurnar hennar voru engu líkar. Árum saman var það fastur punktur í tilver- unni að fara í bolludagskaffi á Álfaskeiðið. Barnabörnin kunnu líka vel að meta skinkuhornin og vanilluhringina hennar ömmu. Hún var snillingur í höndunum og prjónaði fallegar peysur á barnabörnin og einnig kjóla á sonardæturnar tvær. Sigrún var kennari og því í fríi á sumrin. Löngum stundum varði hún í fallega garðinum sín- um á Álfaskeiðinu. Síðsumars tíndi hún rifsber og bjó til sæl- kerasultu úr þeim. Sigrún hafði ekki alist upp við allsnægtir en var einstaklega ör- lát. Hún var mjög ákveðin kona með sterkar skoðanir á ýmsum málefnum. Sigrún var tilgerð- arlaus með öllu og hógvær hvað hana sjálfa varðaði. Hún hafði mikinn metnað fyrir hönd fjöl- skyldunnar og fylgdist alltaf vel með gengi barnabarnanna í námi. Henni var mikið í mun að konur og karlar hefðu sömu möguleika. Það var ómetanlegt að eiga hana að þegar börnin voru lítil. Hún hafði mjög mik- inn áhuga á fólki og vildi vita öll deili á þeim sem um var rætt hverju sinni. Oftar en ekki mátti heyra úr sófanum: Björn, gæt- irðu teygt þig í Kennaratalið (já eða Læknatalið, Lögfræðinga- talið eða Samtíðarmenn). Aldrei bar skugga á okkar vináttu. Fyrir nokkrum árum kom hún þó í heimsókn og var mikið niðri fyrir. Hún sagðist ekki eiga til eitt aukatekið orð yfir því að við skyldum hafa tek- ið þá ákvörðun að segja upp Morgunblaðinu. Það væri nú lágmark að leyfa börnunum að lesa íþróttablaðið. Mér varð svo mikið um að ég hringdi, nánast samstundis, og endurnýjaði áskriftina og hef æ síðan verið hamingjusamur Mogga- áskrifandi. Þegar Björn veiktist árið 2009 var Sigrúnu að vonum mjög brugðið og eftir andlát hans síðsumars 2011 má segja að hún hafi ekki borið sitt barr. Hún hefur nú eins og Björn haldið á vit hins eilífa vors og ég sé þau alveg fyrir mér sitja sam- an og horfa á góðan tennisleik. Ég kveð Sigrúnu tengdamóður mína með söknuði. Hennar er gott að minnast. Auður Þóra Árnadóttir. Máría, ljáðu mér möttul þinn, mæðir hretið skýja; tekur mig að kala á kinn, kuldi smýgur í hjartað inn; mér væri skjól að möttlinum þínum hlýja. Máría, ljáðu mér möttul þinn, mærin heiðis sala; að mér sækir eldurinn, yfir mig steypist reykurinn; mér væri þörf á möttlinum þínum svala. Þegar mér sígur svefn á brá síðastur alls í heimi, möttulinn þinn mjúka þá, Móðir, breiddu mig ofan á, svo sofi ég vært og ekkert illt mig dreymi. (Einar Ól. Sveinsson) Elsku Dísa, Balli, Addi, Hösk- uldur og fjölskyldur, hugheilar samúðarkveðjur til ykkar allra. Blessuð sé minning Sigrúnar Arnórsdóttur. Guðrún. Kær vinkona, samkennari og spilafélagi til margra ára, Sig- rún Arnórsdóttir, er látin. Með henni áttum við margar góðar stundir í starfi í Víðistaðaskóla þar sem hún kenndi til fjölda ára, fyrst sem almennur kennari og síðar við sérkennslu. Hún var afbragðskennari, vel að sér og lagin við að koma námsefninu til skila. Sérstaklega átti íslensku- og stærðfræðikennsla vel við hana. Hún fylgdi nemendum sínum vel eftir og tók málstað þeirra sem minna máttu sín. Sigrún var einstaklega eftir- minnileg manneskja, fróð og skemmtileg, orðheppin, hnyttin í tilsvörum, kom vel orðum að því sem aðrir kannski bara hugsuðu og oft. Á kennarastofunni fóru fram líflegar umræður um stjórnmál og menningarmál og þar hafði Sigrún oft ýmislegt til málanna að leggja og lá þá ekki á skoðunum sínum. Við minnumst margra ánægjustunda sem við áttum á heimili hennar. Þangað vorum við velkomnar á hvaða tíma sem var. Oft fékk hún ýmislegt að heyra sem okkur lá á hjarta og hún sýndi okkur og fjölskyldum okkar sannan áhuga. Margar flíkurnar runnu af prjónunum hjá henni og oft liðsinnti hún okkur með ýmislegt sem laut að prjónaskap. Við vinkonurnar höfum, okk- ur til ánægju og skemmtunar, spilað brids vikulega svo árum skiptir. Nokkrum sinnum á ári fengu makar okkar að vera með og kölluðum við okkur þá „Tíg- ultíuna“. Um jól og í sumarbú- staðaferðum var slegið saman í veisluhlaðborð og slegið á létta strengi. Sigrún og maður hennar Björn Höskuldsson voru sannir höfðingjar heim að sækja og þar var alltaf veitt af rausn. Fyrir rúmum tveimur árum lést Björn eftir löng veikindi. Þau áttu notalegt hús við Álfaskeið í Hafnarfirði. Þau höfðu komið sér upp unaðsreit á lóðinni kringum húsið. En þegar Björn sá að komið var að leiðarlokum hjá honum vildi hann búa vel að Sigrúnu. Hann sá til þess að hún þyrfti ekki að vera ein í stóru einbýlishúsi og annast við- hald þess. Þess vegna réðst hann í að kaupa íbúð í Höfn, sem er fjöl- býli fyrir eldri borgara og við sömu götu og rétt hjá gamla heimilinu þeirra. En þangað náði Björn aðeins að flytja nokkrum dögum áður en hann dó. Sigrún átti erfitt með að sætta sig við missinn og þær breytingar sem óhjákvæmilega fylgdu. Heilsu hennar tók að hraka og lífsgleðin dvínaði. Nú eru þau heiðurshjón bæði horfin á braut og við kveðjum þau með söknuði. Börnum og fjölskyldu sendum við samúðarkveðjur. Dröfn, Edda, Margrét og Véný. Á Jófríðarstaðaveginum í Hafnarfirði var mikill barna- skari og auðvelt að finna sér leikfélaga. Þó urðu sumir nánari vinir en aðrir, svo að sjálfstæðar einingar mynduðust í krakka- gerinu. Sigrún og Rúna var ein þeirra og gjarnan talað um báð- ar þó að einungis þyrfti að hafa tal af annarri. Hvað er orðið af Sigrúnu og Rúnu, varð ömmu að orði þegar kalla átti á mig í mat. Milli húsanna okkar voru varla meira en fimmtíu metrar, svo að við gátum talað saman með varalestri úr glugganum í risinu hjá Sigrúnu og glugganum í afa og ömmu herbergi heima hjá mér á kvöldin eftir annasaman dag. Þetta voru hávaðalaus sam- skipti sem enginn gat amast við. Það var alltaf sólskin þessa upphafsdaga tilverunnar, eða að minnsta kosti oft. Alltaf þegar við töltum endilanga Suðurgöt- una á eftir beljunum hans Arn- órs, á leið í góðgresið í mýrinni fyrir neðan Brandsbæ. Flákar af hófsóleyjum skörtuðu sínu feg- ursta í sterku sólskininu og hrafnaklukkurnar prýddu þetta málverk skaparans enn frekar. Á veturna var brunað niður götuna á skíðasleðum og skauta- listin prófuð á sauðarleggjum eða tréflísum, en hvorug okkar sýndi umtalsverða hæfileika í þeim listum. Enn síður í sundí- þróttinni, helbláar af kulda í fjörunni vestan við Helliershús- in. Þar skein aldrei sól. Eftir þau ósköp var gott að vera uppi á lofti hjá Sigrúnu að lita eða klippa út dúkkulísur. Þar var alltaf hlýtt og brauð með kæfu hjá Sollu mömmu hennar ótrú- lega gott. Svo kom að því að Sigrún gerðist skólaskyld en ég ekki. Einingin var brostin og ekkert framundan nema svartnætti leiðans ævina á enda. En pabbi fann lausn á vandamálinu, sem var frekar sjaldgæft þar sem hann var ekki oft í landi. Hann fékk leyfi hjá skólastjóranum til að ég mætti bara vera með Sig- rúnu í menntastofnuninni og þannig var mitt fyrsta skólaár. Við vorum svo sín í hvorum grunnskólanum, en eftir það fylgdumst við að í Flensborg og Menntaskólanum í Reykjavík. Og eftir það í lífinu öllu. Og það var gott að fylgjast með því hvað allt gekk henni í haginn. Hún var þeirrar gerðar að hafa fasta jörð undir fótum. Hún lauk kennaraprófi og starf- aði alla sína starfsævi sem virt- ur og vinsæll grunnskólakennari í heimabæ sínum. Hún giftist ljúfum og vönduðum manni, Birni Höskuldssyni verkfræð- ingi, og saman eignuðust þau og ólu upp fjögur myndarleg og vel gefin börn á fallegu heimili í fal- legum garði. Saman ræktuðu þau garðinn sinn í eiginlegum og óeiginlegum skilningi. Ekk- ert rugl á þeim bæ í vingulslegri veröld. Við þessi vegamót mætti skrifa langa sögu um tryggð og vináttu gegnum þykkt og þunnt. Ég væri ekki heiðarleg ef ég segði að ég vildi líka fara með þér núna, elsku vinkona. En eitt er víst: að meðan ég anda dreg ertu með mér og reynir áreið- anlega að koma fyrir mig vitinu ef þér sýnist þess þurfa. Guðrún Helgadóttir (Rúna á Blómsturvöllum). Sigrún Arnórsdóttir ✝ Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, INGRID SIGFÚSSON, lést á Droplaugarstöðum að morgni miðvikudagsins 8. desember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Aðalsteinn Brynjúlfsson, Bryndís Brynjúlfsdóttir, Hersteinn Brynjúlfsson, Sigríður Ingibjörg Magnúsdóttir. Faðir minn, bróðir, afi og langafi, ARTHUR NÍELS SUMARLIÐASON, lést laugardaginn 5. janúar. Útförin hefur farið fram. Sigurrós Ósk Arthursdóttir, Hreinn Sumarliðason og fjölskylda, Arthur Ragnarsson og fjölskylda, Víðir Ragnarsson og fjölskylda. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LYDÍA ÞORKELSSON, Hamrahlíð 29, Reykjavík, lést sunnudaginn 12. janúar á hjúkrunar- heimilinu Eir. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 24. janúar kl. 13.00. Oddur Carl Einarsson, Sigríður Elín Sigfúsdóttir, Rannveig Alma Einarsdóttir, Ellert Kristján Steindórsson, Gunnlaug Helga Einarsdóttir, Helgi Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, LÝÐUR INGIMAR MAGNÚSSON, Vitabraut 9, Hólmavík, fyrrverandi bóndi í Húsavík, lést mánudaginn 13. janúar á Sjúkrahúsinu á Hólmavík. Hann verður jarðsunginn frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn 18. janúar klukkan 13.30. Ragnheiður Runólfsdóttir. ✝ Yndisleg móðir okkar, amma og langamma, KRISTRÚN SOFFÍA JÓNSDÓTTIR, Dúna, Ásenda 12, andaðist aðfaranótt miðvikudagsins 15. janúar að dvalarheimilinu Grund. Útförin verður auglýst síðar. Guðni Ólafur Brynjólfsson, Elín Anna Brynjólfsdóttir, Ari Guðmundsson, Margrét Brynjólfsdóttir, Þorsteinn Óskarsson, Jóhannes Brynjólfsson, Guðrún K. Eiríksdóttir, Bryndís Brynjólfsdóttir, Matthías Þorsteinsson, Gunnar Brynjólfsson, Guðrún Richardsdóttir, Jón Brynjólfsson, Þórdís Anna Skúladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, INGIBJÖRG V. GUÐMUNDSDÓTTIR, fyrrum húsfreyja á Spóastöðum, lést mánudaginn 13. janúar á Hjúkrunarheimilinu Ási. Jarðarförin fer fram frá Skálholtskirkju laugardaginn 18. janúar kl. 13.30. Steinunn Þórarinsdóttir, Garðar Hannesson, Sigríður Þórarinsdóttir, Gísli Hjálmar Ólafsson, Þorfinnur Þórarinsson, Áslaug Jóhannesdóttir, Guðríður Sólveig Þórarinsdóttir, Úlfar Harðarson, Bjarney Guðrún Þórarinsdóttir, Helgi Sæmundsson, Ragnhildur Þórarinsdóttir, Pálmar Þorgeirsson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.