Morgunblaðið - 16.01.2014, Síða 35

Morgunblaðið - 16.01.2014, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014 Minning til þín, mamma. Mig langar að senda inn hluta af vísum sem ég orti og flutti í til- efni níræðisafmælis mömmu. Varð að sleppa nokkrum vísum, skýringum og innskotum vegna plássleysis. Á Mýrunum fljóðið fæddist en sjö ára fluttist burt Þá lipur í Hreppana læddist, þar langaði að ver ’ um kjurt. Hún ólst upp í stráka skara því ei voru stelpur við hún lék sér við Bjarna bara og bóndason, Sigga smið. Hún suður var send í skóla sá var Ingimar kenndur við. Leikur var henni að læra, svo leitaði á önnur mið. Svo gerðist það eitt sinn í Gúttó að gæja þar sá hún einn Hún blikkað ’ hann bara svo krúttó að bráðnaði hinn ungi sveinn. Þau giftust og byrjuðu að búa, brátt, eða fjörutíu og þrjú. Þið verðið því víst að trúa við systkinin þökkum það nú. Raggi ról fór í heiminn fyrstur, þá fljótlega Steini stuð, svo fengu þeir Helgu systur sem var svolítið meira puð. Þá komu Siggi og Krulla (Kidda), kvótinn var búinn þá. Nei, örverpið var engin ulla, ekki Lóu ég gleyma má. Skólagerðið góða sex A gott var að búa þar Við vorum þar lítt að pexa vinátta barna var. Þau voru þar mikinn tíma, árin þrjátíu og fimm ég tel Við bleiur og börn að glíma, bara leið held ég býsna vel. Pabbi á sjónum sigldi, svona um það bil hálfa öld. Þar háði hann marga hildi við hafdjúpin blá og köld. Sem dæmi um háska drafnar er duflinu lentu á. Elliði kom áhöfn til hafnar er Fylkir sökk skjótt í sjá. Hann pabbi var aldrei heima, helst jól eða áramót. Muna varð mamma og dreyma sinn mann og hans stefnumót. Ásta Sigurðardóttir ✝ Ásta Sigurð-ardóttir fædd- ist í Miklaholti á Mýrum 26.9. 1921. Hún lést að kvöldi aðfangadags, 24.12. 2013. Útför Ástu fór fram frá Kópa- vogskirkju 3. jan- úar 2014. Hún heimili þurfti að sjá um og hópnum koma til manns. Henni það hefur tekist þokka- lega þetta með elegans. Nú fæðst hafa á fimmta tuga frá konunni skyldmenni. Svo viðhengin vel þau duga að viðhalda margmenni. Þær komu heim Skari og kerlur og keðjureyktu í hóp. Þar féllu oft ýmsar perlur sem umræðan oftast skóp. Hann Siggi í gríni sagði að séð hafi ei mömmu til. Því oft reykský um eldhús lagði fyrr en tíu ára hér um bil. Hún passað ’ oft börnin barna, breiður sá hópur er. Þá var oft fjörið þarna Þetta er svaka her. Ein Ásta var hennar nafna er tók hana á orðinu. Amman hét því ekki að hafna og hoppaði af borðinu Hún fór í bílprófið rétt um fimmtug ferlega cool hún þar. Það bar ekki á neinum bilbug en bíllaus hún ennþá var. Svo keypti sér skoda kona og keyrði svo vítt um land. Henni líkaði lífið svona, ljúft og svo stress í bland. Eitt sinn vinkonan Inga sagði, þú ættir að ná þér í mann, þá fram stafinn sem skjöld hún lagði, ég styð bara mig við hann. Bridgedeildin Borgfirðinga brátt átti hennar hug. Sýndi þar takta slynga og stjórnaði þar af dug. Formaður var hún frábær og félagið sýndi þrótt, í spilunum þótti spjallfær, hún spilaði fram á nótt Nú segi við þig sómakona við systkinin leggjum til að við höfum þig helst ég vona til hundrað eða hér um bil. Það er vandi að kveða vísu svo vel skuli takast mér. Einkum um aldna skvísu eins og við sjáum hér. Hún aldurinn ber með blóma bara það allir sjá. Þessi frísklega kona fróma fallega níræð, já. Elsku mamma við þökkum fyrir öll árin og þakka þér sér- staklega fyrir alla þolinmæðina við baldinn strák í æsku. Við kveðjum þig með söknuði. Þorsteinn og Ingibjörg. Mikið rosalega er skrítið að segja það, en það er ákveðinn léttir að amma mín hafi loksins fengið að fara til afa, Stefán Páls og allra hinna sem hún hefur hlakkað svo mikið til að sjá aftur. Ég get ekki hætt að hugsa um það hvað ömmu minni þótti það ósanngjarnt að Stefán Páll skyldi fara frá okkur á undan henni. En það er ekki séns að nokkur hafi staðið sig betur í ömmuhlutverk- inu en amma mín. Allt frá því að ég var pínulítill púki og mamma vann í kaupfélaginu var alltaf hægt að treysta á ömmu í Sæv- angi. Hvort sem maður var svangur, blautur, kaldur, leidd- ist, eða bara hvað sem var tók hún alltaf á móti mér og gerði hvað sem var fyrir mig. Það sem mér er sérstaklega minnisstætt núna eru kvöldkaffitímarnir þeg- ar ég gisti hjá ömmu og afa, og það var ansi oft. Svo þegar það styttist í háttinn las amma alltaf fyrir mig bók og þegar ég vildi að hún læsi meira gerði hún það allt- af. Stundum voru það fjórar eða fimm bækur. Eins man ég svo vel þegar amma tók mig með niður í skemmu til að hjálpa sér að beita fyrir afa og pabba. Ekki leist henni mikið á vinnubrögð mín þar sem mér þótti þetta bæði illa lyktandi og leiðinlegt og hún sagði: „Ég er hrædd um að það verði ekki mikill vinnumaður úr þér, drengur minn, ef þú tekur þig ekki á.“ Svo eru það öll þessi óteljandi skipti sem amma og afi nenntu að dröslast með okkur Níels út um allt á sunnudögum. Alltaf létum við eins og hálfvitar og fengum allt sem við vildum. Það eru öll þessi óteljandi skipti Rósa Stefánsdóttir ✝ Rósa Stef-ánsdóttir fædd- ist 7. júní 1930 á Litlu-Hámundar- stöðum á Árskógs- strönd. Hún lést á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík, 3. janúar 2014. Útför Rósu fór fram frá Stærra- Árskógskirkju 10. janúar 2014. sem við lögðum Sævang í rúst og þá stundum báðar hæðirnar, en það þótti bara ekkert mál. Ég gæti fyllt allt Morgunblaðið, og næstu blöð, af öllu því sem amma gerði fyrir mig. Ég veit það að aðra eins dugnaðarkonu og hana ömmu Rósu á ég aldrei eftir að sjá aftur. En þessar góðu minningar sem amma mín hefur gefið mér eru svo fáránlega margar að ég fyllist gríðarlega miklu stolti af því að amma Rósa sé amma mín. Ef ég verð einhvern tímann afi, og ef mér mun takast að afreka helm- inginn af því sem amma gerði fyrir barnabörnin sín fyrir barnabörnin mín, þá verð ég glaðasti afi í heimi. Birkir Freyr Stefánsson. Elsku yndislega amma, ég sit hérna og rifja upp allar skemmti- legu minningarnar sem ég á um þig og þær eru ófáar. Fyrsta minningin sem kemur upp er hversu stolt ég var að segja vin- um mínum frá ömmu og afa á Hauganesi og þeim ævintýrum sem þar væru. Það var lítið um boð og bönn í Sævangi hjá ykkur. Maður fékk að taka fullan þátt í því starfi sem þar fór fram, hvort sem það var í eldhúsinu eða niðri í skemmu hjá ykkur. Ég fékk nú einu sinni að kenna á því þegar þið voruð að skera af netum og mig langaði að fá að prufa líka. Ég fékk auðvitað að prufa en ég endaði með hnífinn í andlitinu. Já það var alltaf líf og fjör á Hauganesi og við krakk- arnir fengum að búa í fjörunni með hveiti og allt það sem þurfti til að búa til kökur. Við fengum að leika okkur í fjárhúsunum og brasa með afa og svo vorum við öll saman í leikjum á kvöldin þar sem allir léku sér saman. Þetta eru yndislegar minning- ar og algjör forréttindi að hafa fengið að hafa þig í lífi okkar. Þú fylgdist alltaf með öllu sem ég tók mér fyrir hendur og varst dugleg að hrósa því sem þú varst stolt af en gerðir það þó alltaf af þinni einskæru hógværð. Þú varst svo ánægð með mig þegar ég var að mennta mig og sýndir því mikinn áhuga. Þegar ég sagði þér frá fyrirhugaðri ferð minni til Kostaríka að vinna sjálfboðastarf leist þér nú ekki vel á það og þú varst afskaplega glöð að fá mig heim aftur. Þú varst svo sannarlega hörkudugleg, elsku amma mín, og kvartaðir aldrei yfir því að hafa mikið að gera heldur gerðir þú alltaf allt með þínu jafnaðar- geði. Á hverju ári skrifaðir þú mér svo falleg afmælisbréf um það sem ég var búin að vera að fást við á árinu. Þú fylgdist svo vel með því sem ég gerði. Þegar við Einar eignuðumst Braga Snæ varst þú svo dugleg að hringja í mig og gefa mér góð ráð. Þú vildir alltaf hafa okkur hjá þér og varst svo glöð þegar við komum við hjá þér og þakkaðir okkur alltaf fyrir að gefa okkur tíma til að heimsækja þig. Þú varst aldrei lengi að græja stór- veislu fyrir okkur. Því miður var of langt á milli okkar en ég hefði viljað heimsækja þig oftar en ég fékk tækifæri til. Síðasta heim- sókn okkar til þín var núna í október en þá varstu orðin svo veik en barst þig samt svo vel og varst svo glöð að sjá okkur og spurðir frétta af okkur. Elsku amma mín, við eigum eftir að sakna þín svo mikið en við eigum svo yndislegar minn- ingar um þig og svo marga fal- lega muni sem þú varst búin að gera handa okkur. Bragi Snær og Jón Breki eiga svo margar skemmtilegar minningar um þig, elsku amma, og við verðum dug- leg að miðla þeim til Önnu Ýrar og Soffíu Rutar. Elsku amma hvíldu í friði. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Jóhannes úr Kötlum) Erna Rós. Elsku amma. Ég hefði viljað hafa þig hjá okkur lengur en ég veit að þú varst tilbúin að fara til afa Níelsar og Stefáns Páls. Þeir voru farnir að bíða enda átti að halda veislu þegar þú kæmir. Nú líður þér vel og minnist ég þín með fullt af fallegum og góðum minningum. Þú varst duglegasta og besta kona sem ég hef þekkt og það vita allir sem voru svo heppnir að fá að kynnast þér. Þegar afi var á sjónum varst þú alltaf eitthvað að brasa eins og baka eða elda matinn svo allt yrði nú tilbúið þegar báturinn kæmi í land. Ef þú varst ekki að sinna húsverkunum varstu farin út í göngutúr með vinkonum þínum eða rækta garðinn þinn. Enda orkumikil kona og gast sjaldan tekið því rólega. Börnin þín hafa greinilega ekki langt að sækja þennan dugnað. Á hverjum sunnudegi var svo- kallað sunnudagskaffi í Sævangi. Þá voru bornar fram þvílíkar kræsingar að helst minnti á fermingarveislu. Þangað komu auðvitað börnin ykkar afa, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn og áttum við þarna saman ómetanlegar stund- ir. Það kom þó varla sú helgi að ekki vantaði einhvern úr hópnum sem var þá á ferðalagi við keppni í íþróttum svo það má með sanni segja að við barnabörnin höfum líka fengið eitthvað af orkunni þinni. Þú tókst alltaf öllum opnum örmum og kipptir þér ekkert upp við það þótt við barnabörnin hefðum breytt borðstofunni í bíó- sal eða lagt hana undir spilaborg. Já eða breytt neðrihæðinni í fót- boltavöll. Það er sárt að kveðja en á sama tíma er ég þakklát fyrir all- ar stundirnar sem við áttum sam- an. Þú gafst svo mikið af þér og kenndir þeim sem umgengust þig svo margt. Það er stutt síðan stórt skarð var höggvið í Sæv- angsfjölskylduna en þá varst þú svo sterk og kenndir okkur að standa saman. Enn á ný renna tárin stjórnlaust þótt ég reyni að vera sterk eins og þú amma mín. Þú varst án efa besta amma sem hægt er að hugsa sér og mun ég sakna þess að geta ekki heimsótt þig lengur á Dalvík. Minning þín er ljós í hjarta mínu! Þín Elma Rún Grétarsdóttir. Elsku amma mín, nú ertu farin og það er svo tómlegt að vera komin aftur heim. Þú sagð- ir alltaf við mig hversu heppin þú værir að hafa loksins fengið stelpu til að vera með þér þar sem þú eignaðist einungis stráka. Veistu það, ég var sú sem var heppin að hafa þig sem ömmu mína. Þú kenndir mér svo margt um lífið og ég mun aldrei getað þakkað þér fyrir það. Elsku amma mín, hjartað þitt er gert af gulli og ég veit þú varst engill hér á jörð. Það var eitt sem var öruggt með þig, ef eitthvað var að, þá varstu til staðar. Þegar þú hafðir áhyggj- ur af einhverjum þá fórstu til viðkomandi, skilyrðislaust. Þú sagðir alltaf við mig hvað þér fannst þú geta gert lítið til þess að hjálpa öðrum en þú gerðir Sigurlaug Elísa Björgvinsdóttir ✝ Sigurlaug ElísaBjörgvins- dóttir (Lísa) var fædd á Gilsbakka í Öxarfirði 21. apríl 1934. Hún lést á Sólvangi í Hafn- arfirði 28. desem- ber 2013. Sigurlaug var jarðsungin frá Garðakirkju á Álftanesi 7. janúar 2014. nákvæmlega það besta sem hægt var að gera; vera til staðar. Þú gafst öll- um styrk með því að sitja og hlusta, halda í höndina á þeim og varst alltaf tilbúin að faðma fólk þegar það átti bágt. Þú kenndir mér hvað það er að hlusta og sýna um- hyggju án þess að dæma eða ætlast til neins af neinum. Ég sakna þess svo að hafa þig ekki hjá mér þegar ég ligg andvaka, eins og við vorum nú vanar að hittast óvart inni í eld- húsi um miðja nótt þar sem við sátum og spjölluðum þangað til við gátum farið aftur í háttinn. Þegar við skiptumst á sögum þá hlóstu alltaf svo kát og þegar umræðan var alvarleg varstu alltaf yfirveguð, róleg og tilbúin til að hlusta. Þú sagðir yfirleitt bara „Magga mín“, en svo varstu hreinskilin og einlæg við mig um hvað þér fannst um mál- efnið. Það er svo sárt að missa þig, amma mín. Ég efaðist aldr- ei um ástina sem þú barst til mín og okkar allra, það sást á þér hvað þú ljómaðir þegar þú varst í kringum okkur öll. Það eina sem gleður mig er tilhugs- unin að þú sért hjá ömmu Sellu og Björgvini afa aftur og hjá ömmu þinni sem þú talaðir allt- af svo fallega um. Mér þykir svo vænt um minningarnar sem ég á um þig og ömmu Sellu. Það var svo gaman að fara á Árbæj- arsafnið og læra um þjóðina og landið með ykkur. Það var ég sem var heppin að fá að kynnast ykkur og ykkar kynslóð. Ég er stolt af að vera afkomandi ykk- ar og ég mun aldrei gleyma gildismatinu sem þið kennduð mér. Ég mun varðveita sögurnar sem þú sagðir af ættinni og hvernig lífið var og hversu sterk fjölskyldan okkar er. Ég er mest þakklát fyrir son þinn, hann pabba minn. Þú ólst upp yndislegan mann sem þú getur svo sannarlega verið hreykin af. Þegar ég var krakki horfði ég á myndirnar sem þú lést taka af þér og afa þegar þú fórst í hjúkrunarskólann og mér fannst þið vera svo falleg að þið hljótið að hafa verið Hollywood- stjörnur í leyni. Ég var svo sannfærð um það og spurði þig út í það endalaust hvort þú vær- ir nú ekki fræg leikkona. Þú hlóst alltaf og sagðir að það væri nú engan veginn þannig en veistu, þú gerðir svo mörg góð- verk fyrir aðra að þú ert stærsta stjarnan í mínum aug- um ásamt afa. Þakka þér fyrir amma mín, þú átt það meira en skilið að láta þér núna líða vel. Ég kveð þig með orðunum sem þú sagðir við mig á hverju kvöldi og sím- tali: Guð geymi þig, elsku amma mín. Margrét Elísa Harðardóttir. Elsku Lísa mín. Mikið verða næstu dagar, vikur, mánuðir skrýtnir. Ég hef verið með þér og reynt að vera til staðar síðan þú veiktist og eftir að þú fórst inn á Sólvang, reynt að koma til þín eins mikið og ég gat og núna þegar þú kvaddir svona skyndilega er ég svo fegin að hafa gert það. Að koma til þín á Sólvang var bara ánægjulegt og allt fólkið þarna svo fallegt og gott ég á eftir að sakna þess. Ég þakka fyrir að hafa verið hjá þér kvöldið áður en þú kvaddir. Þú varst alltaf svo góð við mig þegar ég var barn og var ég oft hjá ykkur. Þú hefur líka verið stelpunum mínum góð, eða eins og þær segja sjálfar, amma Lísa. Ég veit að amma Kristín, amma Sella, afi Lárus, Grettir, Brynja, Lóló og Ármann taka öll vel á móti þér og það verða fagnaðarfundir hjá ykkur. Elsku Lísa mín, ég hugsa til þín áfram og passa upp á Heimi, ég veit þú gerir það líka. Við áttum margar góðar stundir og munu þær lifa áfram í hjarta mínu. Leyf mér að hvílast mér líður svo vel Ljósið það dofnar nú svefni ég stel. Samt er svo margt sem þarf að gera margt sem þarf að sjá. Leyf mér að leggjast og hvíldina löngu að fá (Eyjólfur Kristjánnson) Elsku Heimir minn og fjöl- skylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Sandra Lárusdóttir og fjölskylda. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.