Morgunblaðið - 16.01.2014, Side 38

Morgunblaðið - 16.01.2014, Side 38
38 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014 Mér finnst égallur veraað yngjast upp. Sit þessa stund- ina og skoða myndir héðan af svæðinu á vef sem Héraðs- skjalasafn Árnes- inga heldur úti. Rakst nú í morgun á mynd af mér nítján ára gömlum á ferða- lagi vestur í Bjarka- lundi, þar sem ég var litlum bíl sem ég átti og bar númerið X-728. Margt fleira héðan úr bæ hef ég fundið og margt er kunnuglegt,“ segir Ingvar Jónsson á sem er 69 ára í dag. Ingvar rekur ættir sínar til Stokkseyrar hefur búið á Selfossi alla sína tíð. Tæpra átján ára hóf hann nám í húsasmíði hjá Kaupfélagi Árnes- inga og starfaði lengi við þá iðn. „Að vísu tók ég pásu í tuttugu ár, var kaupmaður og seldi skó og íþróttavörur. Það var skemmtilegt starf: þar var maður í samskiptum við fjölda fólks sem gaman var að spjalla við og veita þjónustu,“ segir Ingvar sem nú er að mestu hættur störfum. Grípur þó stundum í að keyra rútu fyrir bróður sinn, Þóri, sem við annan mann rekur fyrirtækið ÞÁ bíla. „Annars hafa Kanaríeyjar verið mitt hálfa líf, núna rétt fyrir jól kom ég úr mínum tuttugasta leiðangri þaðan. Var einn að þessu sinni og langar aftur með vorinu og það væri ekki verra ef vinir mínir tveir, sem ég hef þekkt í áratugi og eru góðir ferðafélagar, slást í hópinn,“ segir Ingvar sem er kvæntur Þór- dísi Kristjánsdóttur sérkennara. Þau eiga þrjár dætur en fyrir átti Ingvar eina dóttur. Barnabörnin eru átta. sbs@mbl.is Ingvar Jónsson er 69 ára í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Selfossbúi Ingvar Jónsson hefur langt gjörva hönd og verið smiður og kaupmaður. Kanaríeyjafarinn sem keyrir rútu Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Mosfellsbær Ármann Þór fæddist 16. janúar kl. 0.06. Hann vó 3242 g og var 48 cm langur. Foreldrar hans eru Dagný Tómasdóttir og Þórður Ár- mannsson. Nýir borgarar Blönduós Gústav Freyr fæddist 11. febrúar kl. 2.40. Hann vó 3.780 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Frida Lenander og Brynjar Guð- mundsson. M argrét fæddist í Reykjavík 16.1. 1954 og ólst þar upp á Fjölnisvegi 11 fyrstu sjö árin: „Þetta var dæmigert stórfjöl- skylduhús. Afi og amma byggðu það á sínum tíma, mamma var alin þar upp og síðan bjuggum við í húsinu ásamt ömmu og móðursystur minni og hennar fjölskyldu. Þetta er ynd- islegt hús við fallega götu. Þarna var mikið fjör, nóg af krökkum og strákarnir í hverfinu börðust hetju- lega í götubardögum við strákana fyrir vestan Njarðargötuna. Síðan fluttum við í Brekkugerðið. Það var auðvitað allt annar heimur.“ Margrét var í Ísaksskóla og Æf- ingadeild Kennaraskólans, var í Kvennaskólanum, lauk stúdents- prófi frá Verslunarskóla Íslands, lauk cand.oecon.-prófi frá HÍ 1978, cand.merc.-prófi frá Copenhagen Business Schoool 1981 og lauk stjórnendamenntun frá CEDEP/ Insead í Frakklandi 1990. Margrét vann tvö sumur í verslun SS í Austurveri frá 13 ára aldri og starfaði síðan sex sumur hjá Máln- ingu við Kársnesbraut: „Þetta var hvort tveggja mikill skóli í verkleg- um verslunarfræðum. Guðjón Guð- jónsson, verslunarstjóri hjá SS, kenndi okkur að koma fram við við- skiptavinina af lipurð og virðingu. En hjá Málningu sinnti ég fyrst al- mennum verksmiðjustörfum, m.a. að tappa málningu á dósir, en vann síðan skrifstofustörf af ýmsum toga.“ Margrét kenndi við VÍ í þrjú ár á Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma – 60 ára Í Stykkishólmi Margrét og fleira starfsfólk hjá Icepharma hitar upp fyrir ratleik á árshátíðardaginn í fyrra. Skógrækt og býflugur Ömmustrákur Afmælisbarnið og Ármann sem er fyrsta barnabarnið. • Góðir tekjumöguleikar • Þekkt vörumerki Allar nánari upplýsingar á www.avon.is og í síma 577 2150 Við leitum að sölufulltrúum um land allt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.