Morgunblaðið - 16.01.2014, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2014
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 4.590 m2
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt
2-lock
endalæsing
Undanfarin ár
hafa margar
bandarískar sin-
fóníuhljómsveitir
barist fyrir lífi
sínu og sumar
lagt upp laupana.
Víða hafa laun
hljóðfæraleikara
verið skert og
ein hatrammasta
launadeilan hef-
ur verið í Minneapolis, þar sem
hljómsveit borgarinnar hefur verið
í verkbanni í rúmt ár. Deilan hefur
nú verið leyst, þar sem hljóðfæra-
leikararnir sættust á launalækkun
en minni en upphaflega var áætluð.
Fyrirhugað er að tónleikaröð
sveitarinnar í Orchestra Hall hefj-
ist að nýju í febrúar.
Fyrrverandi stjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands, Osmo Vänskä,
stjórnaði sveitinni í Minneapolis
þegar deilurnar hófust og sagði
hann upp vegna þeirra.
Eins árs verkbanni
sinfóníuhljóm-
sveitar lokið
Osmo
Vänskä
Í kvöld stíga fjórir ungir einleik-
arar á svið í Eldborgarsal Hörpu
með Sinfóníuhljómsveit Íslands en
þeir sigruðu í einleikarakeppni
hljómsveitarinnar og Listaháskóla
Íslands. Keppnin fer fram árlega
og er opin tónlistarnemendum á há-
skólastigi, óháð því hvaða tónlistar-
skóla þeir sækja, og dómnefnd
keppninnar skipar tónlistarfólk í
fremstu röð. Að þessu sinni tóku
fjórtán nemendur þátt og voru
þessi fjögur valin til að koma fram
með hljómsveitinni. Það eru þau
Baldvin Ingvar Tryggvason klarin-
ettuleikari, Björg Brjánsdóttir
flautuleikari, Rannveig Marta Sarc
fiðluleikari og Sölvi Kolbeinsson
saxófónleikari.
Baldvin leikur klarínettukonsert
eftir Aaron Copland, Björg konsert
fyrir flautu og hljómsveit eftir Carl
Nielsen, Rannveig Marta fiðlukon-
sert eftir Sibelius og Sölvi konsert
fyrir altsaxófón og strengja-
hljómsveit eftir Alexander Glaz-
unov. Stjórnandi á tónleikunum er
Bernharður Wilkinson.
Frekar súrrealískt
„Það var frekar súrrealískt að
stíga á svið með Sinfóníuhljóm-
sveitinni á fyrstu æfingunni. Það
var sérstök tilfinning en núna er
þetta bara gaman,“ segir Baldvin
og bætir hlæjandi við að nú verði
erfitt að hverfa aftur til þess að
leika „bara“ með píanóleikara.
„Það er ansi magnað og gaman
að standa á sviði með þessari
hljómsveit,“ segir hann svo. Kons-
ertinn sem hann flytur er fyrir
klarinett og strengi en Baldvin,
sem útskrifast í vor, nemur undir
handleiðslu Einars Jóhannesssonar
sem einnig leikur með hljómsveit-
inni og tók þátt í að velja verkið
með honum. „Hann stakk upp á
nokkrum verkum að æfa og þá vor-
um við ekkert að hugsa um þessa
keppni. Mig langaði að leika þetta
verk og hálfu ári síðar ákváðum við
að ég myndi taka þátt og ég vildi
leika konsertinn. Hann var eig-
inlega tilbúinn hjá mér.“
– Er hann erfiður í flutningi?
„Já, en hann hljómar samt ekki
alveg jafn flókinn og hann í raun-
inni er. Þetta er mjög erfitt, mikið
á háum nótum. Það er nóg að
blása.“
Baldvin er 22 ára Álftnesingur og
kemur úr tónlistarfjölskyldu, sonur
Tryggva M. Baldvinssonar tón-
skálds, og hann stefnir nú á fram-
haldsnám erlendis. Hann segist
hafa komist inn í skóla í London
sem líklegt sé að hann muni sækja.
Fjölbreytt menntun
Þverflautuleikarinn Björg
Brjánsdóttir stundaði nám við Tón-
menntaskóla Reykjavíkur og Tón-
listarskólann í Reykjavík og lauk
framhaldsprófi vorið 2012. Frá
haustinu 2012 hefur hún lært við
Tónlistarháskólann í Ósló og lært
hjá ýmsum flautuleikurum.
Fiðluleikarinn Rannveig Marta
Zarc fæddist í Slóveníu. Fjögurra
ára gömul hóf hún fiðlunám hjá
Lilju Hjaltadóttur en var næstu ár-
in við Tartini-tónlistarskólann í
Slóveníu. Þar tók hún þátt í ýmsum
keppnum og deildi m.a. 1. verðlaun-
um í Alþjóðlegri fiðlukeppni ung-
menna. Rannveig Marta flutti til
Íslands árið 2006 og gerðist nem-
andi við Allegro Suzuki-tónlistar-
skólann og síðar hjá Guðnýju Guð-
mundsdóttur, núverandi kennara
sínum, og fylgdi henni í Tónlistar-
skólann í Reykjavík árið 2009.
Saxófónleikarinn Sölvi Kolbeins-
son hóf nám í Tónmenntaskóla
Reykjavíkur sex ára gamall og
byrjaði átta ára að læra hjá Haf-
steini Guðmundssyni sem var kenn-
ari hans í átta ár. Sölvi útskrifaðist
frá Tónmenntaskólanum vorið
2010. Hann stundar nú nám bæði í
klassískum og djass-saxófónleik hjá
Sigurði Flosasyni í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík og Tónlistarskóla
FÍH. efi@mbl.is
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Efnisfólk Sölvi Kolbeinsson, Baldvin Ingvar Tryggvason, Björg Brjáns-
dóttir og Rannveig Marta Zarc koma fram með hljómsveitinni í Eldborg.
Gaman að standa á sviði
með hljómsveitinni
Ungir einleikarar koma fram með Sinfóníuhljómsveitinni
Ákveðið hefur verið að sameina söfn
og ýmsa menningarstaði í Reykjavík
undir eina yfirstjórn og hefur staða
forstöðumanns hins nýja safns verið
auglýst. Undir einum hatti stendur
til að sameina og samþætta starf-
semi Minjasafns Reykjavíkur, Vík-
urinnar – Sjóminjasafnsins í Reykja-
vík, Ljósmyndasafns Reykjavíkur
og Viðeyjar.
Safnið verður eitt hið stærsta hér
á landi. Þar verður höfð umsjón með
menningarminjum í Reykjavík og
ber það ábyrgð á söfnun, skráningu,
rannsóknum og miðlun á fjöl-
breyttum safnkosti: munum, húsum,
ljósmyndum og minjum tengdum
sjómennsku, siglingum, útgerð o.fl.
sem eru einkennandi fyrir menning-
ararf borgarinnar og varpar ljósi á
sögu hennar og menningu. Hið nýja
safn ber jafnframt ábyrgð á skrán-
ingu fornleifa, húsa og mannvirkja,
rannsóknum og eftirliti þeirra og er
ráðgjafi borgaryfirvalda um vernd-
un menningarminja í Reykjavík og
um önnur menningarsöguleg verk-
efni.
Undir safnið munu heyra söfnin
og sýningarstaðirnir Árbæjarsafn
og Landnámssýningin Reykjavík
871+/-2, ásamt sérsöfnum og safn-
heildum, Ljósmyndasafn Reykjavík-
ur í Grófarhúsi, Sjóminjasafnið á
Grandagarði 8 og Viðey.
Nýr safnstjóri hefur störf í mars.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ljósmyndasafn Leikarinn Viggo Mortensen undirbýr að hengja upp sýn-
ingu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Það verður hluti hins nýja safns.
Borgin leitar að for-
stöðumanni nýs safns
Efnt er til málþings um tónlistar-
húsið Hörpu í dag. Tilefni málþings-
ins er Mies van der Rohe-hönnunar-
verðlaunin sem Harpa hreppti á
síðasta ári en nú stendur yfir afmæl-
issýning verðlaunanna í Hörpu.
Leitast verður við að varpa ljósi á
það hvernig byggingin hefur nýst
ólíkum notendum, ímynd hennar,
hlutverk og það hvaða þýðingu verð-
launin geta haft fyrir Hörpu,
Reykjavík og arkitektúr á Íslandi.
Dagskráin hefst með framsögu og í
kjölfarið verður efnt til hringborðs-
umræðna undir stjórn Hjálmars
Sveinssonar borgarfulltrúa. Fram-
sögumenn verða Sigurður Ein-
arsson arkitekt, Hilmar Þór Björns-
son, arkitekt og bloggari, og Ólöf
Örvarsdóttir, arkitekt og sviðsstjóri
umhverfis- og skipulagssviðs
Reykjavíkurborgar. Þátttakendur í
hringborðsumræðunum verða Anna
Kristín Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, Eyjólfur Pálsson, eigandi
Epal, og Egill Helgason þáttastjórn-
andi. Málþingið hefst klukkan 15 í
Norðurljósum.
Sjónum beint að Hörpu
á opnu málþingi í dag
Morgunblaðið/Kristinn
Málþing Fjallað verður um Hörpu
í Norðurljósasal Hörpu í dag.