Morgunblaðið - 16.01.2014, Side 48
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 16. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Danskri konu nauðgað af hópi
2. Stofnaði lífi sínu í hættu
3. Leitaði að syni sínum í 17 ár
4. Gráti nær yfir ástandinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Um sömu helgi og Sónar hátíðin fer
fram í annað sinn á Íslandi, um miðj-
an febrúar, verður samskonar hátíð
haldin í Stokkhólmi. Meðal þeirra
sem koma þar fram er hljómsveitin
Sísí Ey, sem sló í gegn á Sónar í fyrra.
Sísí Ey kemur fram
á Sónar í Stokkhólmi
Við Óðinsgötu
hefur verið opnað
menningarhúsið
Mengi og eiga alls
kyns uppákomur
sér þar stað. Í
kvöld kemur tón-
listarmaðurinn
Snorri Helgason
þar fram, vopn-
aður alls kyns gíturum og banjó og
hyggst leika þjóðlaga- og sálartónlist
eftir aðra ásamt sinni eigin frum-
sömdu tónlist.
Snorri syngur í menn-
ingarhúsinu Mengi
Óhætt er að segja að fræðandi og
skemmtilegir sjónvarpsþættir Víkings
Heiðars Ólafssonar píanóleikara og
Höllu Oddnýjar Magn-
úsdóttur mannfræð-
ings, Út úr dúr, hafi
slegið í gegn í Ríkissjón-
varpinu í vetur. Að sögn
Víkings stendur nú yfir
vinna við fimm nýja
þætti sem verða
væntanlega
sýndir síð-
ar á árinu.
Von á nýjum þáttum
Út úr dúr á árinu
Á föstudag og laugardag Austlæg eða breytileg átt, víða 5-10
m/s og skúrir eða él en rigning suðaustantil. Hiti víða 0 til 5 stig.
Á sunnudag Fremur hæg norðanátt og stöku él.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG 5-13 m/s slydda eða rigning austanlands
og snjókoma inn til landsins, dálítil él norðvestantil annars úr-
komulítið. Hiti 0-7 stig en vægt frost í innsveitum fyrir norðan.
VEÐUR
„Ég hef alls ekkert afskrifað
þann möguleika að leika
áfram úti eftir að leiðir mín-
ar og Grosswallstadt skilur í
vor,“ segir Sverre Andreas
Jakobsson, landsliðsmaður
í handknattleik. „Eins og
staðan er í dag er óljóst
hvað ég geri en ég hef full-
an hug á að leika hand-
knattleik áfram, að minnsta
kosti eitt ár í viðbót,“ segir
Sverre í viðtali við Morgun-
blaðið í dag. »4
Sverre vill spila
áfram erlendis
Spænsku
heimsmeist-
ararnir eru
andstæð-
ingar Ís-
lendinga á
Evrópu-
móti karla í
handknattleik í
Álaborg í dag. Aron
Kristjánsson lands-
liðsþjálfari segir að
Spánverjar séu ekki
ósigrandi en íslenska
liðið þurfi fyrst og
fremst að spila mjög
agaðan og góðan
sóknarleik til að eiga
einhverja möguleika
gegn þeim. »1
Þarf góðan sóknarleik
gegn Spánverjum
Toppliðin í Dominos-deild kvenna í
körfuknattleik unnu öll sína leiki þeg-
ar heil umferð fór fram í gærkvöldi og
hefur Snæfell komið sér þægilega
fyrir í toppsætinu. Liðið vann auð-
veldan útisigur á Njarðvík. Keflavík
vann nauman sigur á Hamri í Hvera-
gerði en Haukar fóru létt með KR í
Vesturbænum. Loks vann Valur stór-
sigur á Grindvíkingum. »3
Efstu liðin voru öll
áfram á sigurbraut
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Fjórar stelpur af leikskólanum
Heiðarborg í Árbæ komu færandi
hendi á skrifstofur UNICEF á Ís-
landi í vikunni en þá afhentu þær
250.000 krónur sem söfnuðust með
sölu á jólakortum sem börnin þar
teiknuðu til styrktar hjálparstarfi á
Filippseyjum eftir fellibylinn Ha-
iyan.
Að sögn Geoffrey Pettypiece, eins
þeirra sem stóðu að söfnuninni,
voru það nokkrir Filippseyingar hér
á landi og fólk sem þekkir til lands-
ins sem áttu hugmyndina að söfn-
uninni.
„Fólk var snortið af fréttum sem
komu eftir fellibylinn. Það voru alls
konar hugmyndir um hvernig við
gætum hjálpað,“ segir Geoffrey um
tilurð söfnunarinnar. Ákveðið var að
leita samstarfs við leikskólann Heið-
arborg, þar sem einn úr hópnum
þekkti til, um að gera mynd fyrir
jólakort.
„Hugmyndin var líka að tengja
börnin á Íslandi við börnin á Fil-
ippseyjum sem þurfa að lifa í gegn-
um hörmungarnar þar,“ segir hann.
Klipptu saman fimm myndir
Upphaflega var hugmyndin að
velja eina mynd á kortið en Geoff-
rey segir að börnin á leikskólanum
hafi verið svo dugleg að teikna
fimm.
„Okkur fannst leiðinlegt að velja
bara eina af fimm þannig að við
bjuggum til klippimynd svo að allar
myndirnar koma fram á kortinu.“
Á kortunum var svo áletrun á ís-
lensku, tagalog og ensku en alls
voru þúsund jólakort prentuð. Þau
voru aðallega seld innan samfélags
Filippseyinga hér á landi en auk
þess voru þau seld á borði merktu
UNICEF í Smáralind fyrir jólin og
nokkrir úr hópnum voru duglegir að
selja þau í kringum sig.
Að sögn Sigríðar Víðis Jóns-
dóttur, upplýsingafulltrúa UNICEF
á Íslandi, hefur hjálparstarfið á Fil-
ippseyjum gengið vel og daglega
sjáist árangur af því. Engu að síður
sé ástandið ennþá slæmt enda að-
eins rétt rúmir tveir mánuðir liðnir
frá því að stærsti fellibylur sem
gengið hefur á land í heiminum reið
yfir landið.
Alls hafa um tíu þúsund Íslend-
ingar gefið 25 milljónir króna til
hjálparstarfsins á Filippseyjum en
við það bætist gjafafé heimsforeldra
UNICEF hérlendis. Féð rennur
meðal annars til þess að tryggja
hreint vatn og hreinlætisaðstöðu,
veita lyf og heilsugæslu, bólusetja
börn og fleira. „Nú í janúar er átak í
samstarfi við stjórnvöld um að koma
hálfri milljón barna aftur í skóla eft-
ir hamfarirnar,“ segir Sigríður.
Teiknuðu fyrir Filippseyjar
250 þúsund
krónur söfnuðust
með sölu jólakorta
Framlag Þær Jórunn Hekla, Katrín Ása, Sæunn Árný og Vigdís Sól afhentu Stefáni Inga, framkvæmdastjóra UNI-
CEF (t.v.), söfnunarféð. Með þeim eru Chris Mercado (t.v.) og Geoffrey (t.h.) úr hópnum sem skipulagði söfnunina.
List Jólakortið var samsett af fimm myndum frá krökkunum á Heiðarborg.