Morgunblaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.02.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014 FLUGKORTIÐ HAGKVÆMT GREIÐSLU- OG VIÐSKIPTAKORT • Afsláttur af flugi innanlands • Sérþjónusta og fríðindi • Viðskiptayfirlit FYRIR FYRIRTÆKI OG ATHAFNAFÓLK. Sæktu um á flugfelag.is eða sendu póst á flugkort@flugfelag.is Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra veitti í gær forráðamönnum þriggja fyrirtækja sérstakar viður- kenningar fyrir framúrskarandi ár- angur á liðnu ári. Verðlaun þessi eru veitt í þremur flokkum og hlaut Fasteignasalan Eignamiðlun, sem er elsta starfandi fasteignasala lands- ins, viðurkenningu fyrir að vera efst á lista lítilla fyrirtækja. Efst í hópi millistórra fyrirtækja var fyrirtækið Já og var Samherji efstur í hópi stórra fyrirtækja og listans í heild. Með valinu er verið að veita viður- kenningu fyrir stöðugleika og ráð- deild í rekstri þar sem fyrirtækin þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði matsins þrjú ár í röð. Alls eru 462 fyrirtæki á lista fram- úrskarandi fyrirtækja í ár, en það eru um 1,4 prósent af þeim 33.000 fyrirtækjum sem skráð eru hér á landi. Frá því að listinn birtist fyrst hefur fjöldi framúrskarandi fyrir- tækja meira en tvöfaldast en þá voru fyrirtækin 178 talsins. Framúrskarandi fyrirtæki Ljósmynd/Eva Björk Ægisdóttir Viðurkenning Fjármálaráðherra veitti í gær fulltrúum þriggja fyrirtækja viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á liðnu ári.  Samherji, Já og Eignamiðlun tróna á toppnum Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Sá fjöldi sem sótti um stöður deild- arlækna á lyflækningasviði Land- spítalans sem voru auglýstar í lok janúar er vonandi til merkis um betri tíð framundan á spítalanum. Þetta segir Ómar Sigurvin Gunnarsson, formaður Félags almennra lækna. Alls sóttu 25 manns um tólf stöður á lyflækningasviðinu en mannekla hefur plagað sviðið síðustu misseri. „Áður var þetta fjölsótt svið og talið áhugavert og gott að vera þar. Síðustu ár hafa ekki verið mjög gleðileg. Það var skorið alltof mikið niður þarna og það kom niður á framhaldsnáminu. Þá sækir fólk náttúrlega ekki í það. Vonandi horfir þetta til betri vegar,“ segir Ómar Sigurvin. Skipulaginu breytt Davíð O. Arnar, framkvæmda- stjóri lyflækningasviðs, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að ýmsar skipulagsbreytingar hefðu verið gerðar á sviðinu sem hefðu hugnast unglæknum og umskipti hefðu orðið á afstöðu þeirra til að vinna á spít- alanum. Ómar Sigurvin nefnir að skipt hafi verið um töluvert af fólki í stjórn- unarstöðum, deildarlæknapró- grammi hafi verið breytt og kennslu hafi verið breytt. Unglæknar, sem fari nú fyrr en áður utan í framhalds- nám, horfi helst til gæða námsins sem sé í boði. „Vonandi með góðum möguleikum á framhaldsnámi verður fólk lengur hérna og jafnvel er hægt að bæta í framhaldsnám á fleiri sviðum,“ segir hann. Námið sé samkeppnishæft Lyflækningasviðið er stærsta sviðið á Landspít- alanum og þar er fjöl- mennasti hópur unglækna að sögn Ómars Sigurvins. Önnur svið séu fámennari og voru þau betur mönnuð. „En það er mjög gleðilegt að það séu komnar fleiri umsóknir en stöðufjöldi og við höfum reynt að gera okkar besta til að hjálpa til við það, meðal annars höfum við verið dugleg að aug- lýsa þessar stöður til að trekkja að enda er þetta sameiginlegt áhugamál okkar að stöðurnar séu vel mannaðar og framhalds- námið sem boðið er upp á hér heima sé samkeppn- ishæft,“ segir hann. Gæði fram- haldsnámsins haldi í læknana  Skipulagsbreytingar á lyflækninga- sviði eru sagðar hugnast unglæknum Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Það er ekki á dagskránni að byggja á lóðinni að Geirsgötu 11. Það hefur verið skoðun okkar bæði borgar- megin og í stjórn Faxaflóahafna að hafa þarna öflugt sjávarútvegsfyrir- tæki og helst fiskvinnslu. Við höfum alltaf gengið út frá því og okkur hef- ur skilist á Guðmundi Kristjánssyni að það væri nákvæmlega það sem hann stefndi að,“ segir Hjálmar Sveinsson, formaður stjórnar Faxa- flóahafna og varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá hugmynd um að gera húsið að Geirsgötu 11 upp og opna þar fisk- vinnslu, sýningarsal, fiskmarkað og veitingahús. Brim hf. á húsið og sagði Guðmundur Kristjánsson, for- stjóri fyrirtækisins, að búið væri að slá þær hugmyndir út af borðinu vegna fyrirhugaðrar íbúðabyggðar á lóðinni við Miðbakkann. Guðmundur sagði að húsið yrði örugglega rifið og byggð íbúðablokk eða hótel í staðinn, hann gæti ekki verið með fiskvinnslu og íbúðablokkir allt í kring, það tvennt færi ekki saman. Rammaskipulag ekki bindandi Ekki stendur til að byggja íbúða- blokkir á lóðinni við Miðbakkann en hugmyndir um slíkt hafa þó verið settar fram, t.d í rammaskipulagi fyrir Gömlu höfnina í Reykjavík sem var kynnt síðasta haust. „Það er bara einhverskonar rammi og er ekki bindandi. Þegar það verður búið að byggja í Vest- urbugt eins og til stendur og við Austurhöfnina held ég að þetta svæði fari að verða fullbyggt,“ segir Hjálmar og bætir við að sú fyrirhug- aða íbúðabyggð og fiskvinnsla á Miðbakkanum eigi að geta farið vel saman. „Þess vegna eru sérstök ákvæði fyrir skipulagið við Vestur- bugt um að þeir sem þar búa gangi að því sem vísu að þeir búi í næsta nágrenni við atvinnustarfsemi. Lyk- illinn að því að gamla Reykjavík- urhöfn sé eins æðisleg og hún er er að hún verði alvöru sjávarútvegs- höfn eins og hún hefur verið en ekki bara ferðamannahöfn.“ Áhugi á sjávarútvegsstarfsemi Hjálmar segir að mikill áhugi sé á því að sjá starfsemi tengda sjávar- útvegi í húsinu að Geirsgötu 11 og vilji sé til að koma til móts við hug- myndir Guðmundar um að koma þar upp fiskvinnslu og veitingastað. „Við samþykktum teikningarnar frá Brimi í þeirri trú að það væri full meining á bak við þær. Við vonumst til að það fari að gerast eitthvað sem allra fyrst en uppbyggingarplön fyr- ir Geirsgötu 11 hafa verið á borðinu í nokkur ár,“ segir Hjálmar. Morgunblaðið/Eggert Miðbakkinn Húsið við Geirsgötu 11 er nú notað sem geymsla en vonast er til að í því verði fiskvinnsla, veitingastaður o.fl. Stendur ekki til að byggja á lóðinni  Vilja sjá starfsemi tengda sjávarútvegi að Geirsgötu 11 Hugmynd í rammaskipulagi að uppbyggingu á lóðinni að Geirsgötu 11 Loftmyndir ehf. Landfylling Geirsgata Nýjar byggingar „Það er mjög mikilvægt að hvað sem kemur á Miðbakkann geti lifað við starfsemi hafnarinnar. Íbúðabyggð út á hafnarbakka er ekki að mínu viti ákjósanleg staða,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, og tekur fram að ekki sé gert ráð fyrir íbúðabyggð á Miðbakkanum í aðal- skipulagi borgarinnar. „Við viljum sjá þarna áfram tengsl við sjávarútveginn og að starfsemin á Miðbakkanum og þar í kring taki mið af hafnarstarfseminni. Þannig að ef Guðmundur hefði áhuga á að framkvæma þær tillögur sem hann er með þá eru menn tilbúnir til að taka upp viðræður við hann um hvernig því yrði fyrirkomið. Fiskvinnsla og útgerð við Miðbakkann og í húsinu er ákjósanlegt og hljómar sem söngur í okkar eyrum,“ segir Gísli. Fiskvinnsla og útgerð HAFNARSTJÓRINN Stjórnendur heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu funduðu með læknum í sérnámi í heim- ilislækningum í gær til að ræða tillögu til úrbóta á kjörum og starfsaðstæðum þeirra. Könnun sem hagsmunaráð læknanna gerði í haust leiddi í ljós óánægju þeirra með kjör sín og aðstæður. Að sögn Sigurveigar Stefáns- dóttur, sem stóð meðal annarra að könnuninni, kröfðust lækn- arnir viðbragða við óskum læknanna innan mánaðar. Hún segir læknana í sérnáminu nú manna stöður sérfræðinga í manneklu sem hefur verið innan heilsugæslunnar, m.a. vegna landflótta úr stéttinni og vegna þess að heimilislæknar séu að eldast. Hún bendir á að 40% heimilislækna komist á aldur á næstu tíu árum og að gífur- legan fjölda þurfi til að fylla í skarð þeirra. „Það er neyðarástand og verður það enn frekar ef fólk í sérnámi hefur ekki hugsað sér að skila sér í stöður í framtíð- inni. Það á að vera forgangsmál að halda fólki í þessum stöðum og laða fólk að,“ segir Sigur- veig. 40% heim- ilislækna á ald- ur á tíu árum RÆDDU ÚRBÆTUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.