Morgunblaðið - 14.02.2014, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014
Reykjavíkurborg vinnur nú að því að
stilla upp grunnhugmyndum að gagn-
gerum endurbótum sem á að ráðast í á
Hofsvallagötu með það fyrir augum að
samráð við íbúa geti hafist strax í mars.
Frá Ægisíðu að Hringbraut
Samkvæmt upplýsingum frá borg-
inni munu endurbæturnar ná allt frá
Ægisíðu að Hringbraut. Hugmyndir
geri á þessu stigi ráð fyrir að gatan
verði glæsileg borgargata með einni
akrein í hvora átt. Einnig verði hjól-
areinar á götunni.
Alls hafa 150 milljónir króna verið
eyrnamerktar til framkvæmda við
götuna á þessu ári. Samkvæmt upp-
lýsingum borgarinnar er frumkostn-
aðaráætlun lausleg og verður hún
endurskoðuð þegar ákvarðanir liggja
fyrir eftir samráð við íbúa. Þegar
heildarmyndin skýrist verði einnig
hægt að segjar nánar til um fram-
kvæmdatímann.
Tímabundnar breytingar voru
gerðar á Hofsvallagötu á síðasta ári
en þær voru afturkallaðar í desem-
ber.
Morgunblaðið/Golli
Breytingar Hjólareinar eru nú afmarkaðar á Hofsvallagötu með tíma-
bundnum hindrunum. Gert er ráð fyrir hjólareinum í endurbótunum.
Móta hugmyndir
Framkvæmdir við Hofsvallagötu
jafnvel bornar undir íbúa strax í mars
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Greiðslubyrði óverðtryggðra íbúða-
lána er tugum þúsunda hærri á mán-
uði en af verðtryggðum lánum. Getur
sá munur numið samtals um hálfri
milljón fyrsta árið eftir lántöku.
Þetta leiðir lauslegur samanburður
Morgunblaðsins á lánakjörum stóru
viðskiptabankanna í ljós, en Íbúða-
lánasjóður er hér undanskilinn þar
sem hann býður ekki upp á óverð-
tryggð íbúðalán.
Tilefnið er nýjar upplýsingar frá
Seðlabankanum um að verðtryggð
íbúðalán hafi verið vinsælli en óverð-
tryggð íbúðalán í fyrra.
Við samanburðinn hér til hliðar var
stuðst við reiknivélar á vefjum bank-
anna. Annars vegar er miðað við 3%
12 mánaða verðbólgu, eða eins og hún
er hér um bil núna, og hins vegar 5%
verðbólgu. Fulltrúum bankanna var
boðið að gera athugasemdir við fram-
setninguna og benti Kristján Krist-
jánsson, upplýsingafulltrúi Lands-
bankans, af því tilefni á að lánstími
lánanna væri misjafn, þ.e. af lægra
láninu í hverju tilviki, og eignamynd-
unin því mishröð. En hvert lán er í
raun tvískipt.
Bjóða ekki breytilega vexti
Dögg Hjaltalín, starfandi upplýs-
ingafulltrúi Íslandsbanka, varð til
svara fyrir bankann. Benti hún á að
Íslandsbanki bjóði ekki breytilega
vexti af verðtryggðum lánum, heldur
séu vextir fastir til 5 ára í senn. Því sé
ekki hægt að bera saman vaxtakjör á
verðtryggðum lánum hjá Íslands-
banka annars vegar við breytilega
verðtryggða vexti hjá Arion banka og
Landsbankanum hins vegar. Afborg-
anir geti enda breyst mjög hratt á
breytilegum verðtryggðum vöxtum
hjá Arion banka og Landsbankanum, í
takt við breytingar á vaxtastiginu
hverju sinni.
Haraldur Guðni Eiðsson, upplýs-
ingafulltrúi Arion banka, staðfesti út-
reikningana. „Það er þó rétt að benda
á að lánstími lánanna sem þarna eru
borin saman er ekki alltaf sá sami
sem, eins og gefur að skilja, skekkir
verulega samanburð á heildar-
endurgreiðslu,“ sagði hann.
Tekið skal fram að við þennan sam-
anburð er ekki tekið tillit til þess
hversu hratt lántakar byggja upp eig-
ið fé í fasteign, eftir lánagerðum.
Þá er hér ekki tekin afstaða til þess
hvor lánagerðin er hagstæðari.
Ari Skúlason, hagfræðingur hjá
Landsbankanum,
segir aðspurður að
minni greiðslu-
byrði skýri vin-
sældir verð-
tryggðra lána
umfram óverð-
tryggð. „Í fyrsta
lagi liggur það í
vöxtunum og
greiðslubyrðinni.
Það kemur fram í
gögnum frá Seðlabankanum sem
fylgja tillögum hóps um afnám verð-
tryggingar að raunvextir af verð-
tryggðum lánum hafa að jafnaði verið
1,5% lægri á síðustu árum en af óverð-
tryggðum lánum.
Það gefur augaleið að sú vara sem á
að fara að banna, jafngreiðslulánin,
hefur þann kost að þau eru með til-
tölulega lága greiðslubyrði í upphafi,“
segir Ari og vísar til hugmynda innan
áðurnefnds hóps um að banna þessa
gerð lána sem eru lengri en 25 ár.
„Jafngreiðslulán eru með sömu raun-
greiðslubyrðina allan tímann og eru
þá að nafnvirði með lægri greiðslu-
byrði í upphafi heldur en önnur lán.“
Bann takmarkar möguleika
Oddgeir Á. Ottesen, aðalhagfræð-
ingur hjá greiningarfyrirtækinu IFS,
telur einnig að lægri greiðslubyrði
verðtryggðra lán hafi áhrif.
„Aðalatriðið held ég er að greiðslu-
byrði verðtryggðra lána er minni.
Fólk ræður við að greiða af hærri lán-
um með því að taka verðtryggð lán.
Bann við 40 ára verðtryggðum jafn-
greiðslulánum myndi takmarka val-
möguleika fólks. Fólk þarf það þá að
kaupa minna húsnæði, eða að leigja
áfram. Auðvitað getur vel verið að fólk
kjósi hreinlega að taka verðtryggð lán
til þess að hafa þá meira af fjármunum
til ráðstöfunar í aðra hluti, fólk sem
myndi ráða við óverðtryggð lán.“
Spurður um vinsældir verð-
tryggðra íbúðalána í fyrra leiðir Yngvi
Örn Kristinsson, hagfræðingur hjá
Samtökum fjármálafyrirtækja, líkur
að því að breytt samsetning íbúða-
kaupenda geti verið orsakavaldur.
Þannig kunni fleira ungt fólk, sem
keypti sína fyrstu eign í fyrra, að hafa
metið verðtryggðu lánin hagstæðari
kost, í ljósi þess að greiðslubyrðin er
lægri en af óverðtryggðum íbúða-
lánum. „Leigumarkaðurinn hefur líka
orðið dýrari sem ýtir þá undir að fólk
telji að úr því að það sé að borga mikið
í leigu sé þá vænlegra að kaupa. Ég
tek fram að þetta eru aðeins tilgátur,“
segir Yngvi Örn.
Spurður hvort það stefni í að vaxta-
kjör óverðtryggðra íbúðalána verði
mörgum ofviða við fyrstu kaup, gangi
spár um vaxtahækkanir eftir, segir
Yngvi Örn það hugsanlegt. „Með
hærri óverðtryggðum vöxtum er ýtt
undir þessa þróun,“ segir hann.
Verðtryggðu lánin mun ódýrari
Tugum þúsunda munar á mánaðarlegri greiðslubyrði verðtryggðra og óverðtryggðra íbúðalána
Eignamyndunin er þó mishröð Sérfræðingar telja óhyggilegt að banna verðtryggð íbúðalán
Verðtryggð og óverðtryggð íbúðalán - samanburður á mánaðarlegum afborgunum
*Samkvæmt reiknivélum á heimasíðum bankanna 13.2.14. Samantektin er lausleg, til dæmis getur lánstími verið misjafn. Fasteignamat er áætlað 24 milljónir hjá Arion banka og Íslandsbanka en það er ekki í boði hjá Landsbankanum að
áætla það. **Hér er miðað við afborgun númer 2 af 480. Ástæðan er sú að reiknivélin á vef Íslandsbanka reiknar vexti frá þeim degi sem lánið er reiknað og yrði 1. afborgun því ekki full mánaðarafborgun. Á vefjum Landsbankans og Arion
banka reikna reiknivélarnar með fullri mánaðarafborgun. Er þessi framsetning viðhöfð í samráði við Íslandsbanka. ***Reiknivélin á vef Landsbankans gerir sjálfkrafa ráð fyrir að lægra lánið sé með jöfnum afborgunum. Hærra lánið er hins
vegar með jöfnum greiðslum. Heimildir: Landsbankinn.is, Íslandsbanki.is, Arionbanki.is.
Dæmin miðast við 20 milljóna lán vegna kaupa á 25 milljóna króna fasteign*
Verðtryggt - miðað við 3% verðbólgu á
lánstímanum og breytilega vexti af láninu**
Vextir eru 3,5% af láni 1, 16,8 milljónum sem er
til 40 ára, og 4,6% af láni 2, 3,2 milljónum sem
er til 25 ára - jafnar greiðslur.
Fyrsta afborgun: 83.540 kr.
Samtals greitt: 67.921.786 kr.
Verðtryggt - miðað við 5% verðbólgu á
lánstímanum og breytilega vexti af láninu
Vextir eru 3,5% af láni 1, 16,8 milljónum sem er
til 40 ára, og 4,6% af láni 2, 3,2 milljónum sem
er til 25 ára - jafnar greiðslur
Fyrsta afborgun: 83.702 kr.
Samtals greitt: 107.539.688 kr.
Verðtryggt - miðað við 3% verðbólgu á
lánstímanum og fasta vexti af láninu til 5 ára
- jafngreiðslulán
Vextir eru 3,85% af láni 1, 16,8 m. sem er til 40
ára, og 4,75% af láni 2, 3,2 m., sem er til 25 ára
Fyrsta afborgun: 87.787 kr.**
Samtals greitt: 71.388.253 kr.
Verðtryggt - miðað við 5% verðbólgu á
lánstímanum og fasta vexti af láninu til 5 ára
- jafngreiðslulán
Vextir eru 3,85% af láni 1, 16,8 m. sem er til 40
ára, og 4,75% af láni 2, 3,2 m., sem er til 25 ára
Fyrsta afborgun: 88.068 kr.**
Samtals greitt: 113.078.959 kr.
Óverðtryggt - miðað við breytilega vexti
Vextir eru 6,75% af láni 1, 16,8 milljónum sem er
til 40 ára, og 7,25% af láni 2, 3,2 milljónum, sem
er til 25 ára - jafngreiðslulán
Fyrsta afborgun: 124.954 kr.
Samtals greitt: 55.727.508 kr.
Óverðtryggt - miðað við breytilega vexti
Vextir eru 7,05% af láni 1, 16,8 milljónum, og
8,15% af láni 2, 3,2 milljónum. Bæði lánin eru til
40 ára - jafnar greiðslur
Fyrsta afborgun:127.862 kr.
Samtals greitt: 61.373.808 kr.
Verðtryggt - miðað við 3% verðbólgu á
lánstímanum og breytilega vexti af láninu
Vextir eru 3,5% af láni 1, 17,5 milljónum sem er
til 40 ára, jafnar greiðslur og 4,5% af láni 2, 2,5
milljónum, sem er til 15 ára - jafnar afborganir
Fyrsta afborgun: 91.522 kr.
Samtals greitt: 66.552.649 kr.
Verðtryggt - miðað við 5% verðbólgu á
lánstímanum og breytilega vexti af láninu
Vextir eru 3,5% af láni 1, 17,5 milljónum sem er
til 40 ára, jafnar greiðslur og 4,5% af láni 2, 2,5
milljónum, sem er til 15 ára - jafnar afborganir
Fyrsta afborgun: 91.668 kr.
Samtals greitt: 105.789.859 kr.
Óverðtryggt - miðað við breytilega vexti
Vextir eru 6,75% af láni 1, 17,5 milljónum sem er
til 40 ára, jafnar greiðslur og 7,75% af láni 2, 2,5
milljónum, sem er til 15 ára - jafnar afborganir
Fyrsta afborgun: 135.862 kr.
Samtals greitt: 54.722.382 kr.
***
Ari
Skúlason
Oddgeir
Á. Ottesen
Yngvi Örn
Kristinsson