Morgunblaðið - 14.02.2014, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 14.02.2014, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík Sími 567 4840 www.bilo.is | bilo@bilo.is Funahöfði 1 | 110 Reykjavík Sími 580 8900 | bilalind.is Vantar alltaf fleiri bíla á skrá! Fylgstu með okkur á facebook Fylgstu með okkur á facebook TOYOTA Land Cruiser 200VX disel. Árgerð 2008, ekinn 74 Þ.KM, sjálfskiptur, sumar og vetrardekk. Verð 9.800.000. Ath skipti ódýrari. JEPPI Á AÐEINS 390.000 kr. HYUNDAI SANTA FE 4X4 07/2001, ekinn 227 Þ.km, bensín, 5 gíra. Verð 650.000 kr. TILBOÐ 390.000 100%kortalán. Raðnr.251530 áwww.BILO.is TOYOTA LAND CRUISER 120 LX 35 10/2008, ekinn 103 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verð 5.950.000. TILBOÐ 5.200.000. Raðnr.311027 á www.BILO.is Valdir bílar á 100% láni Tapashúsið | Ægisgarður 2, 101 Reykjavík | info@tapashusið.is TAPASHÚSID BORDPANTANIR Í SÍMA 512-8181 2 FYRIR 1 Á MÁNUDÖGUM OG RIÐJUDÖGUM AF TÍVOLÍ MATSEÐLI GLÆSILEGUR NÝR MATSEÐILL LIFANDI TÓNLIST UM H ELGAR Þjóðernissinnaðir hindúar komu saman í indverskum borgum í gær til að mótmæla Valentínusardeginum sem er helgaður elskendum. Þeir kveiktu í Valentínusarkortum og öðrum varningi, sem tengist deginum, og kröfðust þess að Valentínusardagurinn yrði bannaður á Indlandi þar sem hann spillti hefðbundnum gildum hindúa. Valentínusardagurinn er í dag, 14. febrúar, á messudegi heilags Valent- ínusar. Hann á uppruna sinn í Evrópu á fjórtándu öld. AFP Degi elskenda mótmælt Fréttamenn án landamæra gagnrýna stjórn Baracks Obama Bandaríkjaforseta í nýrri skýrslu þar sem lönd- um heims er raðað eftir því hvar frelsi fjölmiðla telst mest. Bandaríkin eru nú í 46. sæti á listanum, þrettán sætum neðar en á liðnu ári og er það einkum rakið til njósnastarfsemi Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna (NSA) og aðgerða bandarískra yfirvalda gegn Edward Snowden og Bradley Manning vegna uppljóstrana þeirra. Fjölmiðlafrelsið er nú minna í Bandaríkjunum en í löndum á borð við Papúa Nýju-Gíneu og Rúmeníu. Bandaríkin hafa þó áður verið neðar á listanum því þau voru í 47. sæti árið 2011 og 53. sæti 2006. Bandaríkin komust hæst á listanum árið 2002 þegar þau voru í 17. sæti. Ísland er nú í áttunda sæti á listanum. bogi@mbl.is Ísland er í 8. sæti á nýjum lista Fréttamanna án landamæra yfir lönd þar sem frelsi fjölmiðla er mest. Heimild: Fréttamenn án landamæra (RSF) Frelsi fjölmiðla í heiminum Mjög alvarlegt Erfitt Vandamál Viðunandi Gott Ástandið Finnland Noregur 2 1 3 Holland Frakkland 39 Kína 175 Rússland 148 Bandaríkin 46 Erítrea 180 Norður- Kórea 179 Túrkmenistan 178 Pakistan 158 Bandaríkin gagnrýnd í skýrslu um frelsi Dönsku verkalýðssamtökin 3F hafa gagnrýnt styrki Evrópusam- bandsins til fyrirtækja sem hafa notað féð til að hefja starfsemi í Póllandi, en sagt upp starfsfólki í Danmörku. Fram kemur á fréttavef danska ríkisútvarpsins að fyrirtækin LM Wind Power, Royal Greenland og Flügger hafi fengið háa styrki frá Evrópusambandinu til að hefja eða auka framleiðslu í Póllandi. Verka- lýðssamtökin gagnrýna styrkina og segja að þeir hafi orðið til þess að fyrirtækin hafi sagt upp starfs- fólki í Dan- mörku. Sam- tökin telja að styrkirnir séu notaðir til að flytja dönsk störf til Póllands og þeir sam- ræmist ekki reglum Evrópusam- bandsins. Að sögn fréttavefjar danska ríkisútvarpsins fékk Royal Green- land 53 milljónir danskra króna, jafnvirði 1,1 milljarðs króna, í styrk frá Evrópusambandinu til að kaupa og endurnýja fiskvinnslu- stöð í Póllandi. Styrkurinn hafi orðið til þess að fyrirtækið hafi lagt niður fiskvinnslustöð í Glyng- øre í Danmörku. Að sögn fréttavefjarins var markmiðið með styrkjunum að skapa ný störf á fátækum svæðum í ESB-löndum án þess að fækka um leið störfum sem fyrir eru á öðrum svæðum. Talsmenn fyrirtækjanna þriggja neita því að þau hafi brotið reglur Evrópusambandsins um styrkina. Styrkir til að flytja út störf?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.