Morgunblaðið - 14.02.2014, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.02.2014, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Einn ís-lenskustjórn- málaflokkanna, Samfylkingin, hef- ur ætíð haft horn í síðu íslensks landbúnaðar. Kannski er það erfðagóss frá gamla góða Alþýðuflokknum, sem reyndi, sem fremur smár flokkur, að skapa sér stöðu með þess háttar afstöðu. Alþýðubandalagið, sem lagði sitt inn í Samfylkinguna á stofnári og misserin þar á undan, að frátöldum þeim sem fóru með Steingrími Sigfús- syni, var ekki á sinni tíð ginn- keypt fyrir andstöðuróli krata við íslenskan landbúnað. Stór- veldi samsteypunnar sem gjarnan er kennd við Baug og síðar varð stærsti skuldari og vanskilafyrirbæri íslenskrar sögu gerði reglubundnar árás- ir á landbúnaðarstarfsemina. Það var vísast gert til að und- irstrika að auðhringurinn væri hinn sanni vinur neyt- andans sem hann nærðist á. Það er auðvitað sjálfsagt að landbúnaðarstarfseminni sé sýnt aðhald og til hennar séu gerðar miklar og ríkar kröfur. Vöruúrval greinarinnar eykst sífellt og um gæðin verður ekki deilt. Þeir sem áhugasamastir eru um að koma Íslandi í Evrópu- sambandið hafa í málefna- legum skorti sínum stundum látið í veðri vaka að sú aðild væri forsenda þess að íslensk- ur landbúnaður yrði fram- vegis berskjaldaður fyrir er- lendri samkeppni. Þessir sömu virðast ekki sjá neina annmarka á því að slíka staða kæmi upp. En auðvitað gætu Íslendingar sjálfir ákveðið, ef þeir kysu, að þannig skyldi þetta verða, algjörlega óháð öllu tali um Evrópusambands- aðild. Þeir hafa enn lagasetn- ingarvaldið í eigin landi, sem yrði raunar orðið mjög tak- markað ef það væri gengið í greipar miðstjórn- arvaldsins í Bruss- el. En það hefur aldrei staðið meirihlutavilji til þess að íslenskum landbúnaði væri gert að búa við skilyrði sem ógnuðu tilveru hans og öryggi. Á hinn bóginn er sjálf- sagt að einstök atriði sem upp koma á hverjum tíma séu skoðuð á málefnalegan hátt og horft í senn til hagsmuna neytenda og framleiðenda. Sérstaða íslensks landbún- aðar er mikil og viðurkennd af öllum sem sæmilega þekkja til. Það gera auðvitað ekki all- ir. Þannig birti íslenska Ríkis- útvarpið, sem býr við sitt verndaða umhverfi í íslensk- um fjölmiðlaheimi og síst lak- ara en landbúnaður í sínum, furðulega frétt undir heitinu: „Íslenskt kjöt gæti sýkt Evr- ópubúa“. Enginn fyrirvari var gerður við þessa yfirskrift. En henni fylgdi undurfurðulegt viðtal við „þýskan sérfræðing í matvælaöryggi“. Sérfræð- ingurinn, doktor Hensel, blés á umhyggju Íslendinga fyrir sinni matvælaframleiðslu og bætti því við að sérstaða henn- ar væri engin: „Þessi rök koma alltaf upp hjá nýjum að- ildarþjóðum (!) sem segja að þeirra kjöt sé öruggt, að engir sjúkdómar séu í þeirra kjöti, en að þeir muni berast frá öðr- um til landsins.“ Engin dæmi voru nefnd til stuðnings þess- um skrítnu alhæfingum dokt- orsins. Enginn var til and- svara af hálfu íslenskra hagsmuna og fréttamaðurinn spurði ekki einnar einustu gagnrýninnar spurningar. Ekki er líklegt að umgengni þessa „sérfræðings í matvæla- öryggi“ um staðreyndir hafi gert það líklegra að Íslend- ingar vilji farga einu af fjör- eggjum sínum í hendur slíkra. Dr. Hensel: Íslenskt kjöt gæti sýkt Evrópubúa} Enn er reynt Félag sjúkra-þjálfara og heilbrigðis- ráðherra náðu síðdegis í gær samningi í deilu sem staðið hefur um hríð og valdið sjúkraþjálfurum og þeim tugþúsundum sem njóta þjónustu þeirra óþægindum og óvissu. Lausn deilunnar var þess vegna mikilvæg og jákvætt innlegg í þær kjara- deilur sem enn standa yfir. Heilbrigðisráðherra lýsir ánægju með samningana í samtali við Morgunblaðið og hið sama gerir formaður Félags sjúkraþjálfara, enda er í samn- ingunum að finna skynsamleg ákvæði og þeir eru hóflegir og í þeim anda sem brýnt er að sátt náist um víðar. Eðlilegt er að tekist sé á um kaup og kjör og verð á ýmiskonar þjónustu, en nauðsynlegt er að þau átök fari ekki úr böndum heldur leysist áður en í óefni er komið, líkt og tókst í þessu tilviki. Sjúkraþjálfarar og heilbrigðisráðherra fundu farsæla lausn} Deilan leyst Þ egar þú vaknar að morgni nýs dags eru þriðjungslíkur á að viðkomandi dagur sé alþjóðlegur dagur ein- hvers. Samkvæmt dagatali Sam- einuðu þjóðanna eru alþjóðlegir viðhafnardagar 122 talsins, þeirra á meðal dag- ur útvarpsins (13. febrúar), dagur móður jarðar (22. apríl), dagur salernisins (19. nóvember) og dagur gegn spillingu (9. desember). Þá eru átta vikur tileinkaðar hinum ýmsu málefnum, s.s. alþjóðlega brjóstagjafavikan (1.-7. ágúst), árin sömuleiðis (2014 er m.a. ár samstöðu með pal- estínsku þjóðinni og ár kristallafræðinnar) og jafnvel heilu áratugirnir (2015-2024 er áratug- ur fólks af afrískum uppruna). Við þessa „daga“ bætast þeir dagar sem hafa verið ákvarðaðir af hverju þjóðríki fyrir sig, t.d. sprengidagurinn íslenski og þakkargjörð- ardagurinn bandaríski, hátíðisdagar á borð við jóladag og páskadag og aðrir dagar og/eða tímabil sem hin ýmsu samtök standa fyrir, s.s. bleiki dagurinn og mottumars. Flestir fara þessir dagar framhjá okkur; við höldum jól og fögnum afmælum en fæstir gera eitthvað sérstakt á al- þjóðlegum degi ferðamála (27. september). Það er ágæt- ishugmynd að tileinka ákveðnu málefni tiltekinn dag, til að vekja athygli og umtal, en það er spurning hvort aðrir dagar mega ekki missa sín. Þurfum við t.d. mæðradag og feðradag til að minna okkur á að vera þakklát fyrir þá sem gáfu okkur líf? Nei, sumir dagar virðast ganga út á að læða inn sam- viskubiti hjá fólki ef það hleypur ekki út í blómabúð eða skilur við sig fjármuni með öðr- um hætti til að heiðra foreldri/konu/bónda á viðkomandi degi. Verstur af þessum dögum er dagurinn í dag; Valentínusardagur. Tilgerð- arleg uppfinning markaðsmanna, a.m.k. í þeirri mynd sem við þekkjum hann. Hvað er rómantískt við fyrirskipaða rómantík? Það færi betur á því að sýna ást í verki á hverjum degi, hvers konar ást, og geyma rómantíkina fyrir þá stund þegar hennar er síst von; þá er hún áhrifaríkust. Ef við hins vegar tökum þann pól í hæðina að ástin sé eins og hvert annað málefni sem vert er að minna á og leggja rækt við, má færa rök fyrir því að tileinka aðra daga öðrum til- finningum. Við gætum t.d. úthlutað gremjunni einhvern myrkan vetrardag og tamið okkur að fá heilbrigða útrás fyrir uppsafnaðan pirring á þeim degi. Það væri alvöru gagn að því; að létta á hjarta sínu á upp- byggilegan hátt. 23. nóvember: dagur gremju og sátta. Þá væri ekki vitlaust að fá önnur ríki til að vera með og sann- færa Sameinuðu þjóðirnar um að útnefna sama dag al- þjóðlegan dag geðheilbrigðisstarfsfólks. Eitursnjöll aug- lýsingagúrú munu vafalaust finna leiðir til að græða á illindum alveg eins og ástinni. „Ég er ógeðslega pirruð á því að þú hlustar aldrei á mig. Við vinnum saman á hverj- um degi; drullastu til að bæta þig,“ krotað í kort með mynd af fýldum kettlingi. Sérðu það ekki fyrir þér? holmfridur@mbl.is Hólmfríður Gísladóttir Pistill Dagur gremju og sátta STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mér finnst það einna at-hyglisverðast við upp-boðið að það sýnir hvaðmarkaðurinn er sterk- ur. Þegar leiðrétta þarf verðið vegna mikillar umframframleiðslu lendir það samt fyrir ofan framleiðslukostn- að,“ segir Björn Halldórsson, for- maður Sambands íslenskra loðdýra- bænda. Spennuþrungið skinna- uppboð er í danska uppboðshúsinu þessa vikuna og þótt gífurleg verð- lækkun hafi orðið frá síðasta sölu- tímabili virðist hún minni en bændur óttuðust. Eftir ævintýralega hækkun á minkaskinnum á heimsmarkaði á síð- ustu árum, þar sem metverð hefur orðið niðurstaðan á hverju ári, var komið að skuldadögunum við uppboð þessa sölutímabils. Í góðærinu jókst framleiðslan stórlega og langt um- fram eftirspurn. Verðleiðrétting var óumflýjanleg en hún kom raunar vonum seinna. Íslenskir minkabændur senda skinn sín til sölumeðferðar hjá Ko- penhagen Fur í Glostrup í Dan- mörku, mikilvægasta uppboðshúsi heims. Sölutímabilið hefst á uppboði í desember og síðan eru nokkur upp- boð fram á haust. Spennuþrungið andrúmsloft Mikil spenna var á milli kaup- enda og seljenda fyrir desember- uppboðið. Seljendur vita um of- framboðið og veðurfar í helstu markaðslöndum hefur heldur ekki orðið til að auka eftirspurn eftir skinnavöru. Því buðu þeir lágt. Selj- endur voru ekki tilbúnir í óvissuferð og drógu skinnin til baka þegar verð- lækkunin var orðin meira en 25%, vildu frekar bíða. Niðurstaða upp- boðsins varð því sú að verðinu var stýrt í 26% lækkun að meðaltali og aðeins 20% framboðinna skinna seld- ust. Mikil tortryggni var í loftinu fyr- ir upphaf annars uppboðsins, sem hófst á sunnudag, en það er með þeim stærstu og mikið af góðum skinnum til sölu. Fulltrúar framleið- enda og uppboðshússins sáu að ekki gengi að hafa gerviverð á skinnunum og ákváðu að láta markaðinn ráða. Reyndu þeir að koma þeim skila- boðum til helstu kaupenda fyrir upp- boðið en þeir trúðu ekki. „Mér skilst að þetta hafi verið eins og í jarðarför einhvers sem dó ótímabærum dauða,“ segir Björn um stemninguna. Verðið féll harkalega í upphafi en fljótlega fannst nýtt jafnvægi og samkeppni var um bestu skinnin, eins og venjulega. Á miðvikudag höfðu öll skinn selst og verðið al- mennt 25% lægra en fékkst á desem- beruppboði. Menn báru samt kvíð- boga fyrir stærstu skinnaflokkunum, brúnu skinnunum, sem voru á dag- skrá í gær og í dag. Brúnu högna- skinnin seldust vel í gær og fóru á að meðaltali 33% lægra verði en á des- emberuppboði. Brúnu læðurnar verða seldar í dag. Hefði þurft að lækka meira Verðbilið á milli gæðaskinnanna, þeirra dönsku, og skinna frá lakari framleiðendum virðist vera að lengj- ast. Íslendingar koma rétt á eftir Dönum þannig að þeir mega vel við una. Björn reiknar með að lakari framleiðendur minnki talsvert við sig, þeir geti varla framleitt á þessu verði. Nefnir hann sér- staklega Kína í því sambandi. Segir hann þó að verðið fyrir lakari skinnin hefði þurft að lækka heldur meira til að framleið- endur í lélegri framleiðslulöndum Evrópu færu að lóga dýrum og hætta starfsemi. Minkabændur létu slag standa á uppboði Ljósmynd/Kopenhagen Fur Uppboð Fulltrúar eru í stöðugu sambandi við endanlega kaupendur í Kína eða öðrum markaðslöndum, ekki síst þegar óvissa er um verðþróun. Stjórn Sambands íslenskra loð- dýrabænda, framkvæmdastjóri og gestir voru á uppboðinu í gær og fyrradag. Ef verðþróunin á tveimur uppboðum þessa tímabils er borin saman við síðasta ár sést að helmings verðlækkun hefur orðið. Björn Halldórsson vekur athygli á því að enn eigi eftir að selja töluvert af skinnum fram á laugardag, meðal annars lakari verðflokka, en telur að búast megi við að íslensku skinnin fari að meðaltali á um 350 kr. danskar eða sem svarar 7.000- 7.500 kr. íslenskar. „Ef það gengur eftir erum við í ágætisrekstri því áætlað er að 6.500 krónur kosti að framleiða skinnið. Við erum vel yfir því,“ segir Björn. Enn vel yfir kostnaði HELMINGS VERÐLÆKKUN Björn Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.