Morgunblaðið - 14.02.2014, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014
Hydrovane loftpressur eru lágværar,
fyrirferðarlitlar, öflugar og henta alls
staðar þar sem þörf er á þrýstilofti.
Mikið úrval af hágæðaloftpressum,
lögnum og síum. Bjóðum lausnir
í þrýstilofti fyrir allar aðstæður.
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
Allt annað líf
- með hljóðlátri loftpressu
Kynntu
þér úrvalið
á idnvelar.is
Mikið er rætt og rit-
að um aukningu ferða-
manna á Íslandi. Þeir,
sem hafa vonir um fjár-
hagslegan ávinning,
eru kátir og spá fjölgun
ferðamanna og vonast
eftir miklum hagnaði.
Þeir gefa lítið fyrir þau
skemmdarverk, sem
mikill fjöldi ferða-
manna vinnur á nátt-
úru landsins á fjallabílum, rútum og
hestum. Allt gefur þetta einhverja
peninga meðan fárið stendur yfir, en
að því loknu fer svo, að eftir sitja ís-
lenskir náttúruunnendur með stór-
skaðað land en þeir, sem vildu
græða, sitja við uppþornaðar pen-
ingalindir.
Færeyingar flytja útlendinga til
Seyðisfjarðar með rútur og fjalla-
trukka útbúna til að aka utan vega í
trássi við lög og reglur, hlaðnir af
fólki, með sín matvæli, áfengi, bens-
ín og olíur til þess að þurfa sem
minnstu að eyða hér. Sumir koma
jafnvel með eiturlyf. Yfirvöld loka
augum fyrir þessu og þeir sem
græða eru kátir.
Þeir, sem hafa fengið að njóta
landsins og náttúru þess til skamms
tíma, en komast nú ekki lengur að til
þess vegna hömlulauss innflutnings
á ferðamönnum, eru ekki glaðir.
Þeir þakka þó fyrir það, sem þeir
hafa fengið að njóta, en þeir vor-
kenna afkomendum sínum, Íslend-
ingum framtíðarinnar, sem fá ekki
að njóta landsins lengur. Reyndar er
nú svo komið, að yngsta kynslóð Ís-
lendinga kýs að fljúga til útlanda í
sínum fríum en hefur ekki áhuga
fyrir Íslandi, hvorki
byggðum né óbyggð-
um.
Nú eru reist hótel,
hvar sem hægt er að
troða þeim niður, til að
þjóna útlendum ferða-
mönnum og græða
peninga. Látum það
vera. Hótelrekstur fer í
flestum tilfellum að
lögum, greiðir skatta,
skilar gjaldeyri og
stundar ekki svarta at-
vinnustarfsemi. Eða hvað?
Hitt er óþolandi, að atvinnurekst-
ur til að þjóna ferðamönum í skipu-
lögðum íbúðarhverfum er orðinn að
ófreskju, sem skipulagsyfirvöld og
lögregla ráða ekki við. Leigð eru út
herbergi (jafnvel í kjöllurum), bíl-
skúrar og ris íbúðarhúsa til að
græða peninga og stela öllu undan
skatti. Mikið af þessu húsnæði er
ekki íbúðarhæft. Nú er staðan sú, að
veitt hafa verið leyfi til svona at-
vinnurekstrar í íbúðarhverfum um
alla borg í trássi við lög og siðferði.
Þá er réttur íbúa slíkra hverfa einsk-
is virtur, og engin ástæða er talin til
að bera slíkar leyfisveitingar undir
þá. Fordæmið hefur verið skapað og
nú geta yfirvöld ekki lengur hafnað
nýjum umsóknum. Ólögleg starf-
semi blómgast um allt, mergsmogin
af skattsvikum, brotum á reglum um
erlendan gjaldeyri og svartri at-
vinnustarfsemi. Ríkisskattstjóri
reynir af veikum mætti að fletta ofan
af lögbrotum þessum með ein-
hverjum árangri. Flestir sleppa,
enda þyrfti her manns til að berjast í
þessu stríði við borgara þessa lands,
sem eru búnir að missa sjónar á sið-
ferði í þessum málum.
Ferðamanna-
vandamál
Eftir Axel
Kristjánsson
» Allt gefur þetta ein-
hverja peninga með-
an fárið stendur yfir, en
að því loknu fer svo, að
eftir sitja íslenskir nátt-
úruunnendur með stór-
skaðað land.
Axel Kristjánsson
Höfundur er lögmaður.
Komin er fram á
Alþingi þingsályktun-
artillaga þess efnis að
klukkunni verði
seinkað um eina
klukkustund. Til vara
er gerð sú tillaga að
klukkunni verði að-
eins seinkað að vetri
til. Yrði klukkunni þá
breytt vor og haust
eins og gert var hér
fyrr á árum.
Stilling klukkunnar verður alltaf
málamiðlun. Þegar núgildandi lög
voru sett árið 1968 var megin-
ástæðan óánægja fólks með
klukkuhringlið. Markmiðið með
lagasetningunni var fyrst og
fremst það að koma á föstum tíma
allt árið. Skoðanakönnun sýndi að
fleiri vildu hafa flýtta klukku
(„sumartíma“) en óbreytta („vetr-
artíma“). Eftir breytinguna má
segja að friður hafi ríkt um tíma-
reikninginn í aldarfjórðung. Það er
ekki fyrr en á síðustu árum að
komið hafa fram raddir sem kalla
á breytingu. Lengi vel gengu til-
lögurnar í þá átt að flýta klukk-
unni enn frekar en nú er gert,
nánar tiltekið yfir sumarið. Nýj-
asta tillagan gengur hins vegar í
gagnstæða átt. Það að tillögurnar
skuli ganga í ólíkar áttir sýnir
glöggt að engin lagasetning getur
sætt öll sjónarmið.
Höfuðmarkmiðið með stillingu
klukkunnar hlýtur að vera það að
samræma sem best birtutíma og
vökutíma. Fullkomið samræmi
næst aldrei, allra síst í norðlægum
löndum eins og Íslandi þar sem
bjart er allan sólarhringinn um há-
sumarið en dimmt mestan hluta
sólarhrings í skammdeginu. Þegar
samþykkt var að skipta jörðinni í
tímabelti árið 1883 var við það
miðað að hádegi í hverju belti
skyldi vera sem næst klukkan 12.
Í reynd hafa mörg lönd vikið frá
þessum beltatíma, yfirleitt í þá átt
að flýta klukkunni til þess að fá
betra samræmi milli birtutímans
og þeirra vökustunda sem menn
hafa tamið sér. Að tala um rétta
eða ranga klukku er villandi; still-
ing klukkunnar verður að fara eft-
ir því hvað menn telja
hentugast á hverjum
stað og tíma.
Það fyrirkomulag
sem nú gildir á Ís-
landi er ekkert eins-
dæmi. Drjúgur hluti
heims býr við klukku
sem hefur verið flýtt
miðað við tímabeltin
frá 1883. Sum héruð í
Kanada, svo og Arg-
entína hafa lengi haft
þennan háttinn á, og
vestari hluta Kína vík-
ur allt að þremur stundum frá
beltatíma. Nýlega ákváðu yfirvöld
í Rússlandi að breyta til, og gildir
flýtt klukka nú allt árið í þessu
víðlendasta ríki jarðar sem spann-
ar átta tímabelti.
Að auki er klukkunni flýtt yfir
sumarið í mörgum löndum. Reglur
um sumartíma voru settar í Evr-
ópu í báðum heimsstyrjöldum og
innleiddar á ný í olíukreppunni á
áttunda tug síðustu aldar, fyrst og
fremst í sparnaðarskyni. Með því
að flýta klukkunni fæst betra sam-
ræmi milli birtutíma og vökutíma,
sem dregur úr þörfinni fyrir raf-
lýsingu. Sú röksemd vegur ekki
sérlega þungt í norðlægu landi
eins og Íslandi, og er það skýr-
ingin á því að lítil áhersla hefur
verið lögð á orkusparnað í umræðu
um stillingu klukkunnar hérlendis.
Sparnaðurinn er þó marktækur.
Ef klukkunni yrði seinkað myndi
fjölga talsvert þeim stundum þeg-
ar dimmt er á vökutíma. Í Reykja-
vík myndi þessum stundum fjölga
um 130-230 á ári, eftir því hvernig
myrkurtími og vökutími eru skil-
greindir.
Seinkun klukkunnar hefði þau
áhrif að bjartara yrði á morgnana
þegar börn fara í skóla og menn til
vinnu. Á hinn bóginn eru bjartari
morgnar keyptir því verði að fyrr
dimmir síðdegis þegar umferð er
meiri og börn á leið úr skóla.
Skýrslur sýna að slysahætta er
mun meiri á þessum tíma. Á sumr-
in myndi seinkun klukkunnar leiða
til þess að skemmri tími gæfist til
útivistar síðdegis. Þá myndi seink-
un klukkunnar auka tímamuninn
milli Íslands og annarra Evrópu-
landa en minnka muninn til vest-
urs. Þar sem samskipti eru meiri
við Evrópu en Ameríku hlyti þetta
að teljast til óhagræðis. Ekki er úr
vegi að geta þess að núgildandi
klukka á Íslandi samsvarar mið-
tíma Greenwich sem hafður er til
viðmiðunar í margs konar alþjóð-
legum viðskiptum og rannsóknum.
Sem dæmi má nefna flugstjórn og
veðurathuganir. Það er til mikils
hagræðis fyrir þá aðila sem þarna
eiga hlut að máli að þessi tími
skuli vera staðartími hérlendis ár-
ið um kring.
Lítum loks á þá varatillögu að
klukkunni skuli seinkað yfir vetr-
armánuðina eingöngu. Þetta myndi
leiða til verulegrar fjölgunar
dimmra stunda á vökutíma (um
110-200 í Reykjavík) og yrði því að
teljast neikvætt frá því sjónarmiði
að samræma skuli birtu og vöku.
Færsla klukkunnar tvisvar á ári
hefur aðrar neikvæðar hliðar. Í
fyrsta lagi þarf að endurstilla allar
klukkur, þar með taldar stimp-
ilklukkur, öryggiskerfi og klukkur
í tölvukerfum. Þótt nýjasta tækni
bjóði í mörgum tilvikum upp á
sjálfvirka stillingu fer því fjarri að
þetta sé auðvelt verk.
Önnur áhrif breytingarinnar
myndu snerta almenning öllu
meira. Meðan reglur giltu um sér-
stakan sumartíma hér á landi var
mikið kvartað yfir því að hringlið
með klukkuna truflaði svefnvenjur
manna og þá sérstaklega ung-
barna. Þetta var árviss uppspretta
lesendabréfa í dagblöðum. Þá voru
alltaf margir sem gleymdu að
stilla klukkur sínar og lentu í
meiri eða minni vandræðum af
þeim sökum. Í sveitum breyttist
mjaltatími, og var það til óþæg-
inda fyrir bændur. Fyrir flugrek-
endur olli þetta líka erfiðleikum
þar sem þeir voru bundnir við
fasta lendingartíma erlendis.
Seinkun klukkunnar þýddi að
brottför héðan þurfti að flýta um
klukkustund. Hið sama yrði upp á
teningnum nú. Af þessu má ráða
að sérstakur sumartími sé versti
kosturinn af þeim sem til umræðu
eru. Að seinka klukkunni allt árið
kemur fremur til álita, en ókostir
þeirrar breytingar eru þó veruleg-
ir.
Því hefur verið haldið fram, að
seinkun klukkunnar myndi hafa já-
kvæð heilsufarsleg áhrif. Líkams-
klukkan fari eftir gangi sólar og
það valdi togstreitu þegar stað-
arklukkan gangi ekki í takt við
birtutímann. Þarna gleymist að
raflýsing hefur líka áhrif á líkams-
klukkuna og raskar því hinni nátt-
úrulegu sveiflu. Í nútímaþjóðfélagi
ræður sólarljósið ekki stillingu lík-
amsklukkunnar nema að takmörk-
uðu leyti. Það er því ólíklegt að
það hefði umtalsverð áhrif á heilsu
fólks að seinka klukkunni.
Þegar á allt er litið verður að
telja skynsamlegast að halda still-
ingu klukkunnar óbreyttri.
Á að seinka klukkunni?
Eftir Þorstein
Sæmundsson » Það að tillögurnar
skuli ganga í ólíkar
áttir sýnir glöggt að
engin lagasetning getur
sætt öll sjónarmið.
Þorsteinn Sæmundsson
Höfundur er stjörnufræðingur.
- með morgunkaffinu
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar
alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við-
komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda
og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Aukablað alla
þriðjudaga