Morgunblaðið - 14.02.2014, Síða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Nýtt leikrit eftir Þórdísi Elvu Þor-
valdsdóttur, Fyrirgefðu ehf., verður
frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20
og eins og titillinn
gefur til kynna
fjallar það um
fyrirgefningu.
Leikhópurinn
Málamyndahóp-
urinn stendur að
sýningunni og er
verkið byggt á yf-
ir 70 viðtölum
sem hópurinn tók
við Íslendinga á
aldrinum 5-85 ára
og voru þeir spurðir ýmissa spurn-
inga sem tengjast fyrirgefningunni.
Þórdís Elva er bæði höfundur og
leikstjóri verksins en leikarar eru
Árni Pétur Guðjónsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Víðir Guðmundsson
og Þóra Karítas Árnadóttir.
Í verkinu segir af ungri konu,
Evu, sem hefur störf hjá fyrirtækinu
Fyrirgefðu ehf. sem býður fólki
hreina samvisku og fyrirgefningu í
ýmsum deilumálum gegn gjaldi. Eva
lærir allt sem læra þarf um „Lög-
málið að fyrirgefningunni“ sem nýst
hefur tugþúsundum viðskiptavina
fyrirtækisins víða um heim og fær
hún það verkefni að velja úr um-
sóknum fólks í leit að fyrirgefningu.
Aflátsbréf enn til sölu
„Þegar upp er staðið kemst eng-
inn í gegnum lífið án þess að fyr-
irgefa og vera fyrirgefið. Öll klúðr-
um við einhverju og verður á í
messunni. Þetta er eins mannlegt og
það verður,“ segir Þórdís Elva um
verkið. Það velti upp áleitnum
spurningum um fyrirgefninguna í
markaðsvæddum heimi. „Í heim-
inum sem verkið gerist í er fyr-
irgefningin orðin söluvara sem fyr-
irtækið gerir út á með tilheyrandi
lögfræðiráðgjöf, ímyndarsköpun og
sálfræðivinnu eftir þörfum við-
skiptavinarins. Við erum með þessu
að vekja athygli fólks – með ádeilu-
hætti sem leikhúsið gerir hvað best
– á því að við erum kannski ekki eins
fjarri þessum veruleika og við höld-
um í nútímanum,“ segir hún. „Og
með þessari djörfu staðhæfingu get
ég látið fylgja sem dæmi að þegar
áhrifamenn hafa hin síðustu ár gert
mistök eða valdið hneykslan, upp
komist um kynlífsskandal eða ann-
að, þá hefur oftar en ekki verið svið-
sett einhvers konar fyrirgefning-
arathöfn þar sem viðkomandi les
yfirlýsingu sem er skrifuð af ein-
hverjum almannatengli, í sjónvarps-
sal fullum af ókunnugu fólki með
penna og upptökutæki á lofti. Stund-
um er þetta algjörlega súrrealískt
þegar málið snýst um eitthvað per-
Dramatískt og vandmeðfarið efni
Leikritið Fyrirgefðu ehf. verður frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld Fyrirgefningin orðin að söluvöru
Frásagnir af fyrirgefningu úr viðtölum við yfir 70 Íslendinga koma við sögu í formi umsókna
Ljósmynd/Birta Rán
Fyrirgefning Ragnheiður Steindórsdóttir tuktar til Árna Pétur Guðjónsson og Víði Guðmundsson á æfingu á leikritinu Fyrirgefðu ehf.
sónulegt eins og að hafa haldið
framhjá konunni sinni,“ segir Þórdís
og nefnir sem dæmi kylfinginn Tiger
Woods sem baðst á blaðamanna-
fundi fyrirgefningar á því að hafa
haldið ítrekað framhjá eiginkonu
sinni.
„Þetta er atvinnuskapandi fyrir
her fjölmiðlafólks og ímyndarfræð-
inga sem gera út á markaðs-
setningu. Þetta er m.a. það sem við
viljum fá fólk til að hugsa um. Þótt
það sé auðvelt að sitja úti í sal og
hneykslast á þessari gróðavon, að
hægt sé að selja iðrun eða fyrirgefn-
ingu, má færa rök fyrir því að afláts-
bréfasalan lifi góðu lífi og hafi ekki
lokið á miðöldum.“ Þórdís segir að í
verkinu hafi 95% Íslendinga farið í
fyrirgefningarferli hjá Fyrirgefðu
ehf. og fyrirtækið því orðið hluti af
þjóðarsálinni.
Mjög dramatískt efni
Hvers vegna valdir þú fyrirgefn-
inguna sem umfjöllunarefni?
„Leikhús gengur út á átök, það er
drama í öllum góðum leikritum.
Dramað liggur í átökunum, hvort
sem þau eiga sér stað innra með að-
alpersónunni eða milli persóna og
fyrirgefning á sér aldrei stað nema
að undangengnum átökum. Þar af
leiðandi er þetta mjög dramatískt
efni en hins vegar er það mjög
vandmeðfarið því fyrirgefning ein
og sér gæti orðið ofsalega væmið
viðfangsefni, tilfinningavella, og
það skemmtir engum. Við vildum
setja á svið mjög einlægar, fallegar
og sláandi frásagnir sem vissulega
er að finna í verkinu en kontrasta
það með þessum klíníska bakgrunni
sem fyrirtækið veitir.“
Myndir þú þá segja að þetta væri
gamanleikrit með dramatísku ívafi
og ádeilubroddi?
„Já, það er bara vel að orði komist
því grín er mikið notað í verkinu,
háð til að undirstrika það þegar
fyrirgefning snýst upp í andhverfu
sína og verður að hræsni,“ segir
Þórdís Elva og nefnir sem dæmi að í
verkinu komi við sögu stjórn-
málamaður sem eigi svo erfitt með
að biðjast fyrirgefningar að það
valdi honum ógleði og því þurfi hann
að hafa skúringafötu við höndina.
„Fólk getur átt svo erfitt með að
segja þetta einfalda orð, eins og El-
ton John söng svo vel um: „Sorry
seems to be the hardest word“,“
segir Þórdís Elva og bætir því við að
lagið verði hluti af hljóðmynd sýn-
ingarinnar sem tónlistarkonan Jar-
þrúður Karlsdóttir, Jara, hannar.
Sannar sögur
Sem fyrr segir tók Málamynda-
hópurinn yfir 70 viðtöl við Íslend-
inga og spurði þá ýmissa spurninga
sem tengjast fyrirgefningunni. Þór-
dís Elva segir svörin hafa verið afar
fjölbreytt og borið vitni um ólíka sýn
og viðhorf þátttakenda til viðfangs-
efnisins. Margar góðar sögur tengd-
ar fyrirgefningu hafi komið út úr
viðtölunum og þær birtist í formi
umsókna í verkinu sem aðalpersóna
þess, Eva, þurfi að fara yfir og
flokka.
Þórdís Elva þreytir frumraun sína
sem leikstjóri í Fyrirgefðu ehf. en
hún hefur áður gegnt starfi aðstoð-
arleikstjóra í fjölda verka. Spurð að
því hvernig henni hafi gengið að
leikstýra Fyrirgefðu ehf. segir Þór-
dís Elva að hún sé „algjört forrétt-
indadýr“. „Ég er að vinna með frá-
bærum listamönnum. Ég valdi fólk
sem ég ber mikla virðingu fyrir og
þekki af góðum verkum. Það er búið
að ganga vel en auðvitað er þetta
svakalegt lærdómsferli og maður
vex um þrjú númer við að leikstýra,“
segir Þórdís Elva og hlær.
Þú ert m.a. að leikstýra sambýlis-
manni þínum og barnsföður, Víði.
Hefur hann látið vel að stjórn?
„Hann hefur verið mjög leiðitam-
ur. Ekki nóg með að hann standi á
sviðinu og túlki af hjartans lyst held-
ur hefur hann líka smíðað sviðs-
mynd verksins. Ég er svo heppin að
eiga svona þúsundþjalasmið fyrir
mann sem getur gengið í öll verk
sjálfstæðs leikhóps,“ segir Þórdís
Elva um hinn fjölhæfa unnusta sem
hún hyggst ganga að eiga á árinu.
Hópurinn sem stendur að sýning-
unni hefur m.a. auglýst hana með
myndböndum þar sem þekktir ein-
staklingar fyrirgefa hinum og þess-
um ýmis brot gegn sér og með vef-
síðunni fyrirgefduehf.is sem við
fyrstu sýn virðist ósköp venjuleg
fyrirtækisvefsíða en þó í skrautlegri
kantinum. Þá hefur einnig birst
sjónvarpsauglýsing þar sem fyr-
irtækið auglýsir starfsemi sína.
Þórdís Elva segir hugmyndina
hafa verið að láta líta út fyrir að fyr-
irtækið væri til í raunveruleikanum,
sjá hvernig fólk myndi bregðast við
og fá það til að spyrja sig þeirrar
áleitnu spurningar sem verkið gangi
út á í grunninn. „Sem er hvar stönd-
um við siðferðislega gagnvart fyr-
irgefningu, annars vegar, og hins
vegar því að einhver maki krókinn á
henni,“ segir hún. Það hafi ruglað
einhverja í ríminu að maðurinn sem
leikur í auglýsingunni, Hafsteinn
Hafsteinsson, hafi starfað sem sátta-
miðlari en hann hefur einnig numið
leiklist. „Okkur fannst athyglisvert
hver viðbrögðin voru við auglýsing-
unni og þá sérstaklega við honum,“
segir Þórdís Elva. Dæmi hafi verið
um að fólk ýmist fordæmdi fyrir-
tækið eða tæki því fagnandi. „Sem
undirstrikar það hversu miklar
skoðanir fólk hefur á fyrirgefningu,“
segir Þórdís Elva að lokum.
Þórdís Elva
Þorvaldsdóttir