Morgunblaðið - 14.02.2014, Síða 47

Morgunblaðið - 14.02.2014, Síða 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2014 Þegar ég var barn spurði égföður minn í undrunhvernig stæði á því að Kín-verjar væru svo miklir pyntingameistarar, nýbúinn að lesa Eineygða óvættinn og fleiri sögur þar sem grimmlyndur Kínverji með örmjótt yfirskegg og stóran sting úr stáli vann sín illvirki, pyntaði með vatnsdropum eða rakhnífum á milli þess sem hann svældi í sig ópíumi. Faðir minn skýrði það fyrir mér að auðvelt væri að ljúga upp á fólk sem væri langt í burtu og því fjær sem það væri mætti ljúga meiru. Þegar maður fylgist með þjóð úr fjarska verður maður nefnilega að treysta á þá sem bera fregnir þaðan, ekki síst þegar málum er svo háttað að menningin er ekki bara framandleg, heldur er tungumálið líka óskiljanlegt og að því er virðist ólæranlegt; hver getur lært að lesa tungumál sem á sér tugi þúsunda bókstafa? Ég viðurkenni það því fús- lega að kínverskar bókmenntir þekki ég ekki nema miðlungi vel og varla það, og fagnaði því er kverið Umskipti eftir Mo Yan kom út sl. haust í þýðingu Böðvars Guðmunds- sonar. Guan Moye, sem tók sér höfund- arnafnið Mo Yan, fékk Nóbels- verðlaunin í bókmenntum fyrir tveimur árum og varð, og er, mjög umdeilt. Deilurnar um Yan og verð- launin snúast ekki síst um það að mönnum þykir hann skauta framhjá sögulegum staðreyndum í bókum sínum og þá til að halda hlífiskildi yf- ir kínverska kommúnistaflokknum, sem ber ábyrgð á mörgum mestu ill- virkjum mannkynssögunnar, þótt hann hafi vissulega tekið stakka- skiptum á þeim áratugum frá því verstu verkin voru unnin. Í stað þess að fjalla opinskátt um hrylling hung- ursneyðar og segja sögu allsleys- ingja sem verða fyrir barðinu á hyski kommúnistaflokksins grínist hann með hana, segi afkáralegar sögur og velti sér upp úr erótík og ofbeldi. (Groddaskapur Mo Yan er reyndar engin undantekning í kín- verskum bókmenntum, við höfum bara ekki fengið safaríkustu bitana – sjá til að mynda þá mögnuðu met- sölubók (í Kína) Bræður eftir Yu Hua, sem kom út á ensku fyrir fjór- um árum.) Reyndar er það óttalega sér- kennileg tilætlunarsemi þegar þess er krafist af rithöfundum að þeir skrifi um annað en þá langar til að skrifa, að þeir láti innblástur ann- arra ráða ferðinni, en sú gagnrýni virðist þó eiga rétt á sér að Mo Yan telst handgenginn valdhöfum í Kína, enda fögnuðu stjórnvöld mjög er hann fékk verðlaunin. (Minnumst þess að þegar Gao Xingjian fékk verðlaunin fyrir fjórtán árum sögðu frammámenn í kínverskri menningu að ekkert væri að marka nóbels- nefndina, hina örsmáu klíku svo- nefndra bókmenntasérfræðinga sem hefðu óbeit á Kínverjum – en Gao Xingjian hefur verið mjög gagnrýn- inn á alræði kommúnistaflokksins.) Sú bók sem hér er til umræðu er ekki skáldskapur, eða í það minnsta ekki skáldskapur að öllu leyti, eða eins og segir snemma í bókinni: „[…] en það sem ég segi hér er fyrst og fremst minningar, og ef ekki allt sem ég skrifa er sögulega rétt þá er það vegna þess að minni mitt er göt- ótt.“ Bókin rekur þroskasögu Mo Yans frá því hann er rekinn úr skóla 1969, þá fjórtán ára, og til ársins 2009 er hann er orðinn landsþekktur rithöf- undur. Yan hefst af litlu, sonur bláfá- tækra foreldra og eftir að hann er rekinn úr skóla er eina vonin til þess að öðlast einhvern frama að ganga í herinn sem hann og gerir um leið og hann hefur aldur til. Rauður þráður í gegnum bókina er örlög skóla- félaga hans, He Zhiwu, sem var einnig rekinn úr skóla, en fyrir að gera uppsteyt sem Yan dáir hann fyrir, og stúlkunnar Lu Wenli, sem er ein af fallegustu stúlkunum í skól- anum: „Og það sem gerði hana enn meira aðlaðandi var að pabbi hennar ók Gaz 51-vörubíl ríkissamyrkjubús- ins og okkur fannst hann aka á því- líkum hraða að augun í okkur stóðu á stilkum af aðdáun. Í þá daga kom- ust vörubílstjórar næst keisaratign.“ He Zhiwu er einskonar táknmynd hins nýja Kína, fær að láni nokkur hundruð króna og endar sem marg- milljóneri, en Lu Wenli þá gamla tímans giftist frekar syni héraðs- höfðingjans, kommissar komm- únistaflokksins, sem lemur hana og heldur framhjá henni, og síðan gamla kennaranum sínum þegar fyrri eiginmaðurinn fer sér að voða fullur á mótorhjóli. Þessi bók, eða ritlingur, var hluti ritraðar sem Tariq Ali ritstýrði og hét Hvað var kommúnismi? Þeirri spurningu er ekki svarað í bók- inni … og þó. Má ekki segja að í frá- sögninni af He Zhiwu og Lu Wenli, sem getur reyndar vel verið sönn, birtist broddur af ádeilu, pakkað inn í afkáralega og groddalega frásögn? Að því sögðu þá er það aðal Mo Yans að gefa frekar í skyn en að segja hlutina beint út; til að mynda er hann í Beijing-háskóla 1988 sem voru miklir umbrotatímar og náðu hámarki í stúdentauppreisninni og blóðbaðinu á Torgi hins himneska friðar sumarið 1989. Þeim mann- skæðu umbrotum lýsir hann aðeins svo: „En þá hófust stúdentaóeirð- irnar þar sem spennan jókst dag frá degi og fæstir fóru til kennslu. Þar sem mig hefur alltaf skort viljastyrk notaði ég þetta sem afsökun til að gera hlé á enskunáminu.“ Eins og fram kemur hér að fram- an þýddi Böðvar Guðmundsson bók- ina úr ensku. Þýðingin er prýðileg þótt málfar sé stundum stirt og setningaskipan knúsuð, en hún er það líka í enska textanum og þá lík- lega líka í þeim kínverska. Líkingar eru líka venju fremur furðulegar, „þú ert eins og baunaspíra á úti- kamri“, en þær eru það líka í öðrum bókum Mo Yans sem ég hef lesið (á ensku). Wikimedia/Bengt Nyman Umdeildur Kínverski nóbelsverðlaunahafinn Mo Yan rekur æskusögu sína eftir götóttu minni í Umskiptum sem Uppheimar gáfu út í fyrra. Sögur eftir götóttu minni Skáldævisaga Umskipti bbbmn Eftir Mo Yan. Böðvar Guðmundsson þýddi úr ensku. Uppheimar gáfu út 2013. 104 bls. kilja. ÁRNI MATTHÍASSON BÆKUR Þórunn Elín Pétursdóttir sópran og Anna Rún Atladóttir píanóleikari flytja nokkur sönglög Gustavs Mahlers úr Des Knaben Wunder- horn á hádegistónleikum í Háteigs- kirkju í dag kl. 12.00-12.30. „Ljóðasafnið kom út í upphafi nítjándu aldar og hafði mikil áhrif á tónskáldið Gustav Mahler, sem samdi tónlist við yfir tuttugu ljóð úr safninu og nýtti sér þau einnig í þrjár af tíu sinfóníum sínum,“ segir m.a. í tilkynningu. Sönglög Mahlers í Háteigskirkju Ljóðatónleikar Anna Rún Atladóttir og Þórunn Elín Pétursdóttir koma fram. Aukablað alla þriðjudaga Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Óskasteinar –★★★★- EGG, Fbl Hamlet (Stóra sviðið) Fös 14/2 kl. 20:00 Fös 21/2 kl. 20:00 Fös 28/2 kl. 20:00 Lau 15/2 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00 Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet. Óskasteinar (Nýja sviðið) Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Mið 26/2 kl. 20:00 aukas Sun 9/3 kl. 20:00 21.k Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Fim 27/2 kl. 20:00 aukas Fim 13/3 kl. 20:00 Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Fös 28/2 kl. 20:00 16.k Fös 14/3 kl. 20:00 Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Lau 1/3 kl. 20:00 aukas Lau 15/3 kl. 20:00 Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k Sun 16/3 kl. 20:00 Fim 20/2 kl. 20:00 aukas Þri 4/3 kl. 20:00 18.k Mið 19/3 kl. 20:00 Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Mið 5/3 kl. 20:00 19.k Fim 20/3 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00 13.k Fim 6/3 kl. 20:00 aukas Fös 21/3 kl. 20:00 Sun 23/2 kl. 20:00 14.k Fös 7/3 kl. 20:00 aukas Lau 22/3 kl. 20:00 Þri 25/2 kl. 20:00 15.k Lau 8/3 kl. 20:00 20.k Sun 23/3 kl. 20:00 Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla Bláskjár (Litla sviðið) Sun 16/2 kl. 20:00 3.k Lau 1/3 kl. 20:00 Sun 9/3 kl. 20:00 Fim 20/2 kl. 20:00 4.k Sun 2/3 kl. 20:00 Fös 14/3 kl. 20:00 Sun 23/2 kl. 20:00 5.k Lau 8/3 kl. 20:00 Lau 15/3 kl. 20:00 Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið) Mán 17/2 kl. 10:00 Þri 18/2 kl. 10:00 Sun 23/2 kl. 20:00 Mán 17/2 kl. 11:30 Mið 19/2 kl. 10:00 Sun 30/3 kl. 20:00 Mán 17/2 kl. 13:00 Mið 19/2 kl. 13:00 Fræðandi uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í ÍD: Þríleikur (Stóra sviðið) Sun 23/2 kl. 20:00 4.k Sun 2/3 kl. 20:00 5.k Sun 9/3 kl. 20:00 Íslenski dansflokkurinn sýnir þrjú ný verk á kvöldinu Þríleikur HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS leikhusid.is ENGLAR ALHEIMSINS – ★★★★★ „Leikhús á öðru plani...fullkomin útfærsla á skáldsögunni.“ Fbl SÁS Englar alheimsins (Stóra sviðið) Fös 14/2 kl. 19:30 73.sýn Sun 2/3 kl. 19:30 76.sýn Mið 26/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 15/2 kl. 19:30 Aukas. Sun 9/3 kl. 19:30 78.sýn Fim 27/3 kl. 19:30 Aukas. Sun 23/2 kl. 19:30 74.sýn Mið 19/3 kl. 19:30 77.sýn Sun 30/3 kl. 19:30 lokas Lau 1/3 kl. 19:30 75.sýn Sun 23/3 kl. 19:30 81.sýn Veilsa aldarinnar - leikrit ársins 2013. Síðustu sýningar! SPAMALOT (Stóra sviðið) Fim 20/2 kl. 19:30 Fors. Fim 6/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 15/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 21/2 kl. 19:30 Frums. Fös 7/3 kl. 19:30 6.sýn Sun 16/3 kl. 16:00 Aukas. Lau 22/2 kl. 19:30 2.sýn Lau 8/3 kl. 19:30 Aukas. Fim 20/3 kl. 19:30 11.sýn Mið 26/2 kl. 19:30 Aukas. Mið 12/3 kl. 19:30 7.sýn Fös 21/3 kl. 19:30 12.sýn Fim 27/2 kl. 19:30 3.sýn Fim 13/3 kl. 19:30 8.sýn Lau 22/3 kl. 19:30 13.sýn Fös 28/2 kl. 19:30 4.sýn Fös 14/3 kl. 19:30 9.sýn Dásamleg, fáránleg della - óbærilega fyndinn nýr söngleikur! Svanir skilja ekki (Kassinn) Fös 28/2 kl. 19:30 Frums. Fös 14/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 27/3 kl. 19:30 12.sýn Mið 5/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 15/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 28/3 kl. 19:30 13.sýn Fim 6/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 16/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 29/3 kl. 19:30 14.sýn Fös 7/3 kl. 19:30 4.sýn Mið 19/3 kl. 19:30 Aukas. Fös 4/4 kl. 19:30 15.sýn Lau 8/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 20/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 5/4 kl. 19:30 16.sýn Mið 12/3 kl. 19:30 Aukas. Fös 21/3 kl. 19:30 10.sýn Sun 13/4 kl. 19:30 17.sýn Fim 13/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 22/3 kl. 19:30 11.sýn Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur um undarlegt eðli hjónabandsins. Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 14/2 kl. 20:00 18.sýn Fim 27/2 kl. 20:00 26.sýn Fös 14/3 kl. 20:00 34.sýn Fös 14/2 kl. 22:30 19.sýn Fös 28/2 kl. 20:00 27.sýn Fös 14/3 kl. 22:30 35.sýn Lau 15/2 kl. 20:00 20.sýn Fös 28/2 kl. 22:30 28.sýn Mið 19/3 kl. 20:00 36.sýn Lau 15/2 kl. 22:30 21.sýn Mið 5/3 kl. 20:00 29.sýn Fim 20/3 kl. 19:30 37.sýn Fim 20/2 kl. 20:00 22.sýn Fim 6/3 kl. 20:00 30.sýn Fös 21/3 kl. 19:30 38.sýn Lau 22/2 kl. 20:00 23.sýn Fös 7/3 kl. 20:00 31.sýn Fös 21/3 kl. 22:30 39.sýn Lau 22/2 kl. 22:30 24.sýn Fös 7/3 kl. 22:30 32.sýn Lau 22/3 kl. 19:30 Aukas. Mið 26/2 kl. 20:00 25.sýn Fim 13/3 kl. 20:00 33.sýn Lau 22/3 kl. 22:30 Aukas. Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Pollock? (Kassinn) Lau 15/2 kl. 19:30 lokas. Allra síðasta sýning! ÓVITAR (Stóra sviðið) Sun 16/2 kl. 13:00 30.sýn Sun 2/3 kl. 13:00 Sun 23/2 kl. 13:00 Sun 9/3 kl. 13:00 Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum! Karíus og Baktus (Kúlan) Sun 16/2 kl. 16:00 Lau 8/3 kl. 13:30 Lau 15/3 kl. 15:00 Lau 1/3 kl. 13:30 Lau 8/3 kl. 15:00 Lau 1/3 kl. 15:00 Lau 15/3 kl. 13:30 Það miklu betra að hitta Karíus og Baktus í leikhúsinu en að hafa þá í munninum. Aladdín (Brúðuloftið) Lau 22/3 kl. 13:00 16.sýn Lau 29/3 kl. 13:00 18.sýn Lau 5/4 kl. 13:00 20.sýn Lau 22/3 kl. 16:00 17.sýn Lau 29/3 kl. 16:00 19.sýn Lau 5/4 kl. 16:00 21.sýn 1001 galdur - brúðuleiksýning fyrir 4ra til 94 ára. Allra síðustu sýningar. ★★★★ – SGV, Mblamlet Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Horn á höfði (Aðalsalur) Sun 16/2 kl. 14:00 Sun 23/2 kl. 13:00 Sun 23/2 kl. 15:00 Eldklerkurinn (Aðalsalur) Lau 15/2 kl. 20:00 Ástarsaga úr fjöllunum (Aðalsalur) Lau 22/2 kl. 14:00 Lau 1/3 kl. 14:00 Fyrirgefðu ehf. (Aðalsalur) Fös 14/2 kl. 20:00 Frumsýning Fös 21/2 kl. 20:00 Fös 28/2 kl. 20:00 Sun 16/2 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00 Dansaðu fyrir mig (Aðalsalur) Fim 20/2 kl. 20:00 Lau 1/3 kl. 20:00 Sun 23/2 kl. 20:00 Sun 2/3 kl. 20:00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.