Morgunblaðið - 06.03.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Össur Skarphéð-insson fer mik-
inn þessa dagana í
gagnrýni sinni á þá
sem benda á þá aug-
ljósu staðreynd að
Íslandi byðist engin
undankomuleið frá
reglum Evrópusam-
bandsins ákvæði það að halda áfram
aðlögun og gerast aðili að samband-
inu.
Hann tekur ekki mark á skrif-uðum opinberum gögnum frá
Evrópusambandinu sjálfu, ekki
frekar en munnlegum leiðréttingum
stækkunarstjórans á draumórum
Össurar á blaðamannafundi fyrir
nokkrum árum um að hægt væri að
búa til sérreglur fyrir Ísland.
Þessa dagana segir hann að nú sé„öllum efasemdum eytt hvað
varðar það að sérlausn er fær“. Sú
leið sé fullkomlega fær hvað varði ís-
lenskan sjávarútveg.
En fyrst Össurtrúir ekki ESB
sjálfu skyldi hann þá
trúa þessum orðum:
„Varðandi þá um-
ræðu sem farið hef-
ur fram um sjávar-
útveg vil ég segja að
ég er sammála for-
manni Sjálfstæðisflokksins, for-
manni Framsóknarflokksins og
hæstvirtum fjármálaráðherra um að
við munum ekki fá neinar var-
anlegar undanþágur frá sameig-
inlegu sjávarútvegsstefnunni.“
Þetta eru orð hans sjálfs úr þing-ræðu en þau féllu áður en hann
óttaðist að málið eina yrði tekið af
Samfylkingunni.
Nú er aðlöguninni og þar með til-vist Samfylkingarinnar ógnað
og þá telur Össur öll meðul leyfileg.
Össur
Skarphéðinsson
Össur talar
tungum tveim
STAKSTEINAR
Össur
Skarphéðinsson
Veður víða um heim 5.3., kl. 18.00
Reykjavík -2 snjókoma
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri 0 skýjað
Nuuk -6 skýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 1 þoka
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Helsinki 1 léttskýjað
Lúxemborg 8 heiðskírt
Brussel 11 léttskýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 7 skúrir
London 12 heiðskírt
París 12 léttskýjað
Amsterdam 10 léttskýjað
Hamborg 10 heiðskírt
Berlín 10 skýjað
Vín 12 skýjað
Moskva 2 alskýjað
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 13 skýjað
Winnipeg -12 alskýjað
Montreal -13 snjókoma
New York 1 alskýjað
Chicago -6 snjókoma
Orlando 17 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:18 19:01
ÍSAFJÖRÐUR 8:27 19:02
SIGLUFJÖRÐUR 8:10 18:45
DJÚPIVOGUR 7:48 18:30
Á Búnaðarþingi í vikunni samþykkti
allsherjarnefnd þess tilmæli til
stjórnar Bændasamtaka Íslands um
að gerð verði könnun á réttarstöðu
þeirra sem ekki njóta útsendinga út-
varps og sjónvarps RÚV en greiða
samt útvarpsgjald.
Mál þetta var tekið fyrir í umfjöll-
un um fjarskiptamál, en áherslumál
bænda er að dreifbýlið sé jafnsett
öðrum byggðum með tilliti til fjar-
skipta. Í ályktun segir að málarekst-
ur vegna þessa megi hugsanlega
hefja með kvörtun til umboðsmanns
Alþingis.
„Það er óréttlátt að fólk þurfi að
greiða útvarpsgjald ef það nær ekki
útsendingum. Raunar skiptir öllu,
hvar sem fólk er, að fjarskipti séu í
lagi. Útvarp, sjónvarp, netið og sím-
inn eru sömu hlutir í raun. Því miður
er nokkuð líka um það úti á landi að í
gsm-kerfinu séu dauðir punktar og
það er bagalegt,“ segir Smári Borg-
arsson, bóndi í Goðdölum í Skaga-
firði og fulltrúi á Búnaðarþingi.
Ekki liggur fyrir að sögn Smára
hve margir bæir á landinu eru án út-
sendinga útvarps – en einkum þó
sjónvarps. Í því sambandi eru þó
nefndir framdalir á Norðurlandi,
sunnanvert Snæfellsnes og útnes á
Vestfjörðum. Sumstaðar eru bundn-
ar vonir við að úr rætist með öflugri
nettengingum og stafrænni tækni.
sbs@mbl.is
Réttur sjón-
varpslausra
kannaður
RÚV næst ekki
víða í sveitunum
Morgunblaðið/Ómar
RÚV Sambandið er gisið á Snæfells-
nesi og í innsveitum nyrðra.
aðalfundur
eimskipafélags íslands hf.
Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 27. mars
2014 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, 104 Reykjavík.
reglur um þátttöku og
atkvæðagreiðslu á fundinum
Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá, leggja
fram ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum
eða rafrænum hætti, þar til endanleg dagskrá og tillögur
birtast tveimur vikum fyrir fundinn. Nánari upplýsingar
um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins,
www.eimskip.is/investors/agm
Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu að frádregnum
eigin hlutum sem eru án atkvæðisréttar. Aðgöngumiðar,
atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á
fundarstað. Hluthöfum sem ekki sækja aðalfund stendur
til boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti
eða veita umboð.
Eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund þarf beiðni hlut-
hafa um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu.
Hluthafar geta fengið atkvæðaseðla senda til sín, en einnig
má nálgast þá í höfuðstöðvum félagsins þar sem greiða má
atkvæði alla virka daga milli kl. 9:00 og 16:30. Atkvæðin
skulu berast félaginu fyrir aðalfundinn. Hluthafar geta veitt
skrifleg umboð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Slík
umboð skulu berast félaginu áður en aðalfundur hefst
eða við skráningu á fundarstað. Nánari upplýsingar um
atkvæðareglur og notkun umboða er að finna á vefsíðu
félagsins, www.eimskip.is/investors/agm
aðrar upplýsingar
Skjöl sem lögð verða fyrir aðalfund er að finna á vefsíðu
félagsins, www.eimskip.is/investors/agm
Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í
höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, 104 Reykjavík,
virka daga milli kl. 9:00 og 16:30.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar tveimur vikum
fyrir fundinn. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995
má tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst fimm
dögum fyrir aðalfund. Upplýsingar um frambjóðendur til
stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir
aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða
afhent frá kl. 15:30 á aðalfundardegi.
Reykjavík, 6. mars 2014
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf.
drög að dagskrá
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess
á liðnu starfsári
2. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins
á reikningsárinu 2013
4. Tillaga um breytingu á samþykktum er veiti stjórn
heimild til hækkunar hlutafjár félagsins
5. Tillaga um breytingu á 11. gr. samþykkta félagsins
6. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu
7. Kosning stjórnar félagsins
8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varamanna
og undirnefnda stjórnar
9. Kosning endurskoðenda
10. Önnur mál, löglega upp borin
Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is