Morgunblaðið - 06.03.2014, Qupperneq 21
Síðustu daga hafa
háværir menn farið
mikinn og ásakað
Sjálfstæðisflokkinn um
að framfylgja ekki eig-
in kosningastefnu.
Fjölmiðlamenn hafa
tekið virkan þátt í
þessu sjálfir og auk
þess bergmálað ásak-
anir annarra sam-
viskusamlega. Og
vissulega er gott að vakin sé athygli
á því, ef kosningaloforð eru ekki
uppfyllt, af einhverjum ástæðum.
Sjálfur legg ég einmitt mikla
áherslu á að mikilvægasta kosninga-
loforð Sjálfstæðisflokksins verði
efnt og ég treysti því að þingmenn
flokksins láti ekki hræða sig frá því
að efna það.
Furðuleg áhrif
fámenns hóps
Sjálfur var ég að
mestu leyti horfinn frá
því að kjósa Sjálfstæð-
isflokkinn síðastliðið
vor. Sama heyrði ég á
mörgum sem ég
þekkti. Fámennur, en
einstaklega hávær
hópur Evrópusam-
bandssinna, þar sem
ósvífnin í kröfum og
málflutningi virtist
jafn takmarkalítil og fjömiðlaað-
gangurinn, hafði of oft náð að teyma
forystu flokksins afvega. Langverst
varð það þegar forystan og meiri-
hluti þingflokks samþykkti skyndi-
lega þriðja Icesave-samning þeirra
Jóhönnu og Steingríms. Ekki fór á
milli mála hverjir höfðu ráðlagt það
og hverjir fögnuðu þessu mest inn-
an Sjálfstæðisflokksins. Margir
höfðu því fengið sig fullsadda á
furðulegum áhrifum þessa fámenna
hóps á ákvarðanir þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins.
Landsfundur tók í taumana
Þá gerðist það í aðdraganda síð-
ustu kosninga að landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins tók í taumana.
Hann hafnaði þeirri tillögu að gert
skyldi hlé á aðlögunarviðræðunum
við Evrópusambandið. Hann sló því
þvert á móti föstu að Sjálfstæð-
isflokkurinn vildi að þeim viðræðum
yrði slitið. Ekkert hlé, enginn vand-
ræðagangur, heldur einfaldlega aft-
urköllun aðildarumsóknarinnar.
Þarna markaði landsfundur skýra
stefnu sem ekki er á valdi annarra
að breyta. Þegar þetta lá fyrir, þessi
eindregna yfirlýsing æðsta valds
Sjálfstæðisflokksins um að ekki yrði
gert neitt „hlé“ á viðræðunum held-
ur yrði þeim slitið, ákvað ég að
greiða flokknum atkvæði mitt í
þingkosningunum. Hvatti ég marga
til að gera hið sama og hefur mér
verið sagt að ýmsir þeirra hafi kom-
ist að sömu niðurstöðu.
Handvalin „loforð“
Það er athyglisvert að fjölmiðla-
menn, stjórnmálamenn og kjaftask-
ar nefna þetta nær aldrei, í sam-
felldum svikabrigslum sínum. Þeir
telja að ummæli einstakra fram-
bjóðenda í sjónvarpskappræðum
séu helgir dómar, en skýrar lands-
fundarsamþykktir, birtar op-
inberlega og víða ræddar, séu bara
eitthvert píp. En þannig er það
ekki. Með skýrum samþykktum
æðsta valds Sjálfstæðisflokksins,
sem birtar voru opinberlega, var
kjósendum gefið skýrt fyrirheit um
hver stefna flokksins væri, og hver
hún væri alls ekki. Ég fer fram á
það að þingmenn flokksins fram-
fylgi þessari skýru stefnu, sem mér
og öllum öðrum kjósendum var boð-
uð fyrir kosningar. Ég fer einnig
fram á það að fréttamenn fjalli um
þetta loforð landsfundar af sömu
elju og þrautseigju og þeir fjalla nú
dag eftir dag um þau ummæli sem
þeir sjálfir virðast svo eindregið
vilja að hefði verið stefna Sjálfstæð-
isflokksins.
Eftir Jóhann
Gunnar Ólason » Landsfundur sagðikjósendum skýrt að
Sjálfstæðisflokkurinn
myndi slíta aðlög-
unarviðræðunum að
ESB. Það loforð á ekki
að svíkja.
Jóhann Gunnar Ólason
Höfundur er flugmaður.
Landsfundarsamþykkt er líka kosningaloforð
21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Grannar gladdir Í Kórahverfinu er sú hefð að skapast að börnin gangi á milli húsa til að gleðja íbúana með söng og þiggja nammi í stað þess að fara í verslunarmiðstöðvar eða fyrirtæki.
Árni Sæberg
Isavia sem rekur
m.a. Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar hefur boðað
að efnt verði til forvals
á næstunni vegna að-
stöðu til verslunar- og
veitingareksturs í flug-
stöðinni.
Fyrir um tíum árum
var efnt til forvals um
ofangreindan rekstur í
Leifsstöð. Í því forvali
var boðað að ákveðnir vöruflokkar
sem höfðu verið seldir í gegnum Frí-
höfnina s.s. raftæki, margmiðl-
unarvörur, fatnaður og fleiri vörur
yrðu færðar undir forvalið. Með
þessu var einkaaðilum á sviði versl-
unarreksturs gert betur kleift en
ella að stunda viðskipti í flugstöð-
inni. Einnig var ákveðið eftir ábend-
ingu Samkeppnisstofnunar að að-
skilja rekstur og stjórn
Fríhafnarinnar frá
Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar hf. (FLE) með
stofnun á sérstöku
dótturfélagi. Þannig
var betur tryggt að að-
stöðuveitandi (FLE)
væri ekki í beinni sam-
keppni við versl-
unarrekendur í flug-
stöðinni. Þessu
samhliða var ákveðið
að ráða sérstakan
framkvæmdastjóra
fyrir Fríhöfnina ásamt
því að ekki yrði sami aðili stjórn-
arformaður fyrir móðurfélagið
(FLE) og dótturfélagið (Fríhöfnina).
Markmiðið með þessum breyt-
ingum var að efla þjónustu við flug-
farþega og auka samkeppni. Í kjöl-
far þessara breytinga fjölgaði
einkaaðilum á sviði verslunar- og
veitingareksturs verulega. Stærsti
hluti verslunarrekstursins hafði í
gegnum árin verið á hendi ríkisins
eða hlutafélaga þar sem ríkið var
hluthafi eða með ráðandi hlut. Það
var stefna stjórnar FLE að færa
mest af þessum viðskiptum fyrir ut-
an hefðbundna fríhafnarverslun yfir
á einkaaðila á þessu sviði sem höfðu
þekkingu, getu og reynslu af slíkum
viðskiptum. Það var jafnframt mat
stjórnar að hlutafélag í eigu ríkisins
eða dótturfélags á þess vegum ætti
ekki að vera í almennri verslunar-
starfsemi fyrir utan fjóra vöru-
flokka, þ.e. áfengi, tóbak, snyrtivör-
ur og sælgæti. Einnig var það mat
FLE að ef gera ætti breytingar á
hefðbundinni fríhafnarverslun væri
langeðlilegast að bjóða slíkan rekst-
ur út fyrir ofangreinda fjóra vöru-
flokka. Það skref var að vísu ekki
tekið á þeim tíma.
Einkarekstur og viðskipti eða
opinber stjórnsýsla
Isavia var stofnað árið 2010, tók
m.a. við rekstri FLE og Keflavík-
urflugvallar árið 2010. Á síðustu ár-
um hefur umfang verslunarstarf-
semi Fríhafnarinnar, dótturfélags
ríkishlutafélagsins Isavia, aukist og
vöruflokkar verið færðir yfir til Frí-
hafnarinnar frá einkaaðilum án und-
angengins útboðs eða forvals svo
best sé vitað eða nýir vöruflokkar
teknir inn. Fríhöfnin hefur því und-
anfarin ár byrjað að selja tískufatn-
að og lífstykkjavörur. Þetta er aft-
urhvarf frá því sem boðað var í
forvalinu á sínum tíma og núverandi
rekstrarleyfissamningar um versl-
unarrekstur byggjast á. Það getur
ekki verið hlutverk ríkisins í gegn-
um sitt dótturfélag að reka líf-
stykkjabúð og tískufataverslun í
flugstöðinni. Það hlutverk er betur
komið í höndum einkaaðila með slíka
verslunarstarfsemi. Þessi hluti
rekstrar samstæðu Isavia er í eðli
sínu á sviði einkarekstrar og við-
skipta fremur en opinberrar stjórn-
sýslu.
Til að tryggja trúverðugleika,
samkeppni og jafnræði á milli versl-
unaraðila í flugstöðinni er mikilvægt
að ríkishlutafélagið skilgreini betur
hlutverk sitt í verslunarstarfsemi í
gegnum sitt dótturfélag áður en boð-
uðu forvali um verslunarrekstur í
flugstöðinni er ýtt úr vör. Einnig er
nauðsynlegt í þessu samhengi að
fullur stjórnunarlegur aðskilnaður
sé á milli móðurfélagsins Isavia og
dótturfélagsins Fríhafnarinnar eins
og boðað var. Í dag gegnir sami aðili
stjórnarformennsku í þessum tveim-
ur félögum.
Eftir Höskuld
Ásgeirsson » Þannig var betur
tryggt að aðstöðu-
veitandi (FLE) væri
ekki í beinni samkeppni
við verslunarrekendur í
flugstöðinni.
Höskuldur Ásgeirsson
Höfundur er rekstrarhagfræðingur
og fyrrverandi forstjóri FLE hf.
Isavia og lífstykkjabúðin