Morgunblaðið - 06.03.2014, Side 22
» Svo ótrúlegt
sem það annars
er þá vilja aðildarsinnar
setja fjör okkar og
framtíð í annarra
manna hendur.
Ég afsaka ekki að
ég hef gjarnan valið
það að vera gagn-
orður og ætla að
reyna að halda því
áfram hér. Ég verð
þannig að játa það, að
ég hafði góðar vonir,
en er búinn að fá
verulega upp í kok
undanfarið, eina ferð-
ina enn, af íslenskum
stjórnmálum svo ég
hef varla haft þrek til þess að tjá
skoðanir mínar eða að hlusta á
þröngsýna úrtölumenn og þá, sem
hafa ekki neitt fram að færa annað
en yfirdrepið. Mér finnst einnig að
stjórnmálamenn hafi hingað til að
mestu aðeins verið með bræðing og
verið eitthvað þjakaðir af áræð-
isskorti og eru flestar aðgerðir eða
tilvonandi aðgerðir þannig hálf-
velgjan ein, skot sem ekki hæfa í
mark.
Of lítið of seint
Að mínu viti er ekki verið að
nota skynsamlegustu velvirkandi
lausnirnar á vandamálum landsins,
heldur er sýknt og heilagt verið að
lepja upp eftir ýmsum nefndaráð-
gjöfum sem upp til hópa virðast
vera hugmyndasnauðir fílabeinst-
urnbúar, fastir í rétttrúnaði ein-
hverrar þrönghugmyndafræði og
sýna sig vita lítið um líf almennings
niðri á jörðinni og hvað gagnast
honum best. Gildir þá einu hvort
um er að ræða ráðstafanir til
bjargar heimilunum, afnám verð-
tryggingarinnar, stórsparnað og
snarminnkun ríkisrekstrar, alvöru
hækkun bóta og lækk-
un skatta eða þá
hvernig á að taka á
snjóhengjunni og vog-
unarsjóðunum og ná
milljörðunum til okkar
til að borga skuldir
með. Þannig má því
miður mjög lengi
telja. Það gerist of lít-
ið og of seint og yf-
irlýstar leiðir og
markmiðin eru yf-
irleitt eitthvað stutt-
tíma annað en það
sem raunverulega
skiptir máli, þ.e. fólkið og vellíðan
þess bæði í bráð og lengd.
Ljós í myrkri -
þó fyrr hefði verið
Eitt gott mál er á ferðinni, en
nú er sem betur fer og loksins bú-
ið að leggja fram þingsályktun-
artillögu að umsóknarslitum um
innlimun í ESB. Það er eðlilegt að
menn séu ekki alltaf sammála um
hlutina, en mér hefur fundist sem
talsmenn innlimunar séu frekar á
trúarlegum nótum en í skynsem-
isleit. Þeir ímyndi sér hitt og þetta
og hafa ýtt fyrirliggjandi upplýs-
ingum til hliðar, blásið á stað-
reyndir og röksemdafærslur og
svo ótrúlegt sem það annars er
vilja setja fjör okkar og framtíð í
annarra manna hendur. Það hefur
því ekki verið gamanmál að hlusta
á málflutning aðildarsinna og hefur
þurft talsverða karlmennsku til.
En með afturköllun umsóknar
ættu loks pakkakíkjur og slíkar
rökdellur ekki mikið lengur að
kvelja mann, þótt þröngsýnin verði
væntanlega víðfeðm áfram og
hverfi ekki úr öllum bæjum. Öf-
gapína sú sem maður hefur t.d.
heyrt frá formanni Samfylking-
arinnar og hans líkum verður þó
vonandi til þess að fólk sjái hvaða
raunsæi og heilindum viðkomandi
búa yfir og geti þannig forðast þá í
framtíðinni.
Einurð
Allt tal um að það verði að fara í
þjóðaratkvæðagreiðslu um aft-
urköllun einhliða umsóknar vinstri
flokkanna er auðvitað út í hött.
Það var engin þjóðaratkvæða-
greiðsla til þess að byrja með svo
slík krafa núna er bara enn ein
sönnun þess að tilgangurinn helgar
meðalið hjá hinum sósíalísku
demókrötum. Það passar þeim
ekki núna að muna að það var Al-
þingi sem gaf og að Alþingi getur
tekið til baka og á að gera það,
enda málið allt byggt á svo vitlaus-
um og veikum grunni að það hálfa
væri nóg. Þetta er ekki flóknara
en það að þessu sinni.
Það þarf að stokka upp
utanríkisstefnuna
En það þarf meira til í þessum
efnum. Undirstaða hvers lands er
öryggi þess og þar með frjálsræði
þess. Aðild landsins að fríversl-
unarsamningnum EFTA vegna
viðskipta okkar við Evrópu, veran
í Atlantshafsbandalaginu NATO og
varnarsamningurinn við Bandarík-
in eru hornsteinar sem hlúa ber að
og styrkja á allan hátt, enda eru
alþjóðleg viðskipti ómissandi fyrir
Ísland og vegna skorts á eigin
varnarliði og búnaði er okkur enn
ómögulegt að verja eigin hendur
gegn utanaðkomandi vá. Því þurf-
um við smáþjóðin að hugsa breitt.
Gagnger endurskoðun á EES-
samstarfinu er fyrsta skrefið og
gerð tvíhliða viðskiptasamninga við
viðskiptalönd okkar, þ.m.t.
NAFTA-ríkin, það næsta. Íslandi
er það hollast að eiga sem allra
best samband við sem allra flest
ríki, enda er víðar England en í
Kaupmannahöfn eins og karlinn
sagði. Það er mjög varasamt að
hengja sig einungis við toll-
haftabandalag þótt mikilvægt sé,
samband sem vill einnig ráða öllu
okkar á pólitíska og löggjafarsvið-
unum svo maður tali nú ekki um
bjargálnir eins og fiskveiðar í eigin
lögsögu. Ég vona að varlega verði
farið í þessum efnum, en að föst og
ákveðin langtímastefna verði tekin.
Enginn ratar ef hann veit ekki
hvert hann vill fara.
Ekkert hálfkák
Það þarf forystu, hugsjónir og
ákveðni. Leiðtogar, sem vita hvað
þeir vilja og stefna að ættu ekki að
þurfa að leita skjóls í málamiðl-
unarnefndum eða hjá stimp-
ilvörðum og kontóristum. Best er
að ganga hreint til verks og gera
frekar það sem þeir sjálfir telja
heiðarlegast, réttast og farsælast
fyrir fólkið af góðri hugumstærð
og áræði. Þau eru mörg mikilvægu
verkefnin sem eru framundan.
Er loksins eitthvað bitastætt að gerast?
Eftir Kjartan Örn
Kjartansson
Kjartan Örn
Kjartansson
Höfundur er fyrrverandi forstjóri.
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
CLIO DÍSIL
3,4 L/100 KM*
ÞÚ TANKAR SJALDNAR Á RENAULT
P
FRÍTT Í
STÆÐI!
FRÍTT Í STÆÐI Á
MIÐBORGARSVÆÐINU
RENAULT CLIO – VERÐ FRÁ 2.390.000 KR.
Renault Clio er einn vinsælasti bílIinn á Íslandi. Þegar fallegt útlit, ríkulegur staðalbúnaður, úrval
sparneytinna bensín- og dísilvéla, hagstætt verð og einstök ný „Dual Clutch“ sjálfskipting smellur
saman er ástæðan augljós. Komdu og reynsluaktu nýjum Renault Clio.
www.renault.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
13
10
*Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Meistaramót Suðurnesja
í tvímenningi hafið
Heldur er þátttakan dræm í
meistaramótinu í tvímenningi sem
hófst sl. fimmtudag.
Hæstu skor fengu annars vegar
Svala K. Pálsdóttir og Karl G. Karls-
son og hins vegar Oddur Hannesson
og Sigurjón Ingibjörnsson en bæði
pör skoruðu 61,1%.
Garðar Garðarsson og Svavar
Jensen voru með 56% og Garðar Þór
Garðarsson og Gunnar Guðbjörns-
son fjórðu með 52,8%.
Mótið á að standa í fjögur kvöld og
er ákveðið að hafa opið fyrir pör inn í
mótið nk. fimmtudag.
Spilað er í félagsheimilinu á Mána-
grund kl. 19.
Bridsfélag eldri borgara
í Hafnarfirði
Föstudaginn 28. febrúar var spil-
aður tvímenningur með þátttöku 27
para.
Efstu pör í N/S
Örn Ingólfsson - Örn Isebarn 59,0
Örn Einarsson - Guðlaugur Ellertss. 55,6
Oliver Kristóferss. -
Ásgr. Aðalsteinss. 54,2
Bjarni Þórarinss. - Ragnar Björnsson 53,2
Guðm. Sigursteinss. -
Auðunn Guðmss. 51,1
A/V
Birgir Sigurðss. - Jón Svan Sigurðss. 59,6
Kristrún Stefánsd. -
Sverrir Gunnarss. 58,4
Sigr. Benediktsd. -
Sigurður Þórhallss. 58,0
Ágúst Vilhelmss. - Kári Jónsson 57,1
Tómas Sigurjónss. - Björn Svavarss. 56,2
Bridsfélag eldri borgara spilar á
þriðjudögum og föstudögum í félags-
heimili eldri borgara, Flatahrauni 3 í
Hafnarfirði.