Morgunblaðið - 06.03.2014, Side 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2014
Geislagötu 9, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
ClavinovaCVP605
Snertiskjár, 1327hljóð, 420 taktar,
USBhljóðupptaka ofl.
Kynnið ykkur þettamagnaða
hljóðfæri í verslun okkar í Reykjavík!
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert á milli steins og sleggju. Vertu
þolinmóð/ur því þú hefur allt með þér. Gefðu
þér tíma til að kanna málin og þá mun allt
smella saman.
20. apríl - 20. maí
Naut Það kostar sitt að halda sér í toppformi
bæði andlega og líkamlega. Láttu það alls
ekki eftir þér að einangra þig, þinna nánustu
vegna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur gleymt einhverju sem þú
munt muna rétt upp úr hádegi. Tækni og vís-
indi vekja áhuga þinn þessa dagana. Skráðu
þig á námskeið eða íhugaðu áframhaldandi
nám.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú færð oft góðar hugmyndir en týnir
þeim jafnóðum niður. Leyfðu þér að fá útrás á
hvaða hátt sem þú vilt og gakktu langt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú skaltu setjast niður og semja áætl-
anir um framkvæmd þeirra hluta, sem þú
hefur hingað til aðeins látið þig dreyma um.
Gakktu sjálf/ur úr skugga um sannleiksgildið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Yfirmenn og aðrir ráðamenn reyna oft
á sjálfsálitið og það er erfitt að láta það ekki á
sig fá. Taktu það rólega um sinn og náðu átt-
um.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það skiptir engu máli hverrar trúar þú
ert, þú trúir einhverju. Vertu óhrædd/ur við
breytingar. Notaðu tímann til að byggja þig
upp á jákvæðan hátt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú finnur að áhugi þinn á verald-
legum gæðum hefur breyst og skalt hafa það
hugfast að allt er breytingum háð. Vertu því
varkár í umgengni þinni við aðra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er allt í lagi að baða sig í vel-
gengninni, en gleymdu því ekki að þú varst
ekki ein/n að verki. Láttu undrun annarra
ekki spilla fyrir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu það vera að flýta þér um of
því það býður þeirri hættu heim að þú skilir
ekki þínu besta. Vertu ákveðin/n og sýndu að
þú getir það sem þú ætlar þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nýtt samband virðist byggt á vin-
áttu en margt bendir til að ástríðan kraumi
undir niðri. Gættu þess að skrifa ekki undir
neitt sem gæti komið í bakið á þér seinna.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert nú tilbúin/n til að ráðast í þau
verkefni sem eru þér ekki beint hugleikin en
þó nauðsynleg. Reyndu að eyðileggja ekki
góðar samræður á heimilinu.
Hallmundur Kristinsson bregð-ur á leik í limru:
Afmælisboð og mættum þar við Mundi.
Magnús kom þó ekki en bar við fundi.
Þar geggjað var grínið
og glóandi vínið.
„Listamaðurinn lengi þar við undi.“
Ármann Þorgrímsson segist
ennþá fá gluggaumslög í póstkass-
ann:
Skyldi enginn skammast sín
skuldir mínar enn í klessu
Þú verður að fara Vigdís mín
virkilega að taka á þessu.
Í gær birtust vísur Ármanns um
ættarfylgjur. Hólmfríður Bjart-
marsdóttir, Fía á Sandi, bætir við:
Átján drauga á ég hér við bæinn.
Allir liggja í einum hól
upp um nætur reka gól.
Davíð Hjálmar Haraldsson kast-
ar fram í léttum dúr: „Aðstoðar-
framkvæmdastjóri menntamála hjá
OECD heldur því fram að kennarar
hér á landi gefi nemendum of háar
einkunnir. Ekki stenst það sam-
kvæmt minni reynslu:
Í skólan gekk ég glaður sérkvern dag
- gáfaður ég tíðum fékk að heira –
Réttritunn mér þótti frábært fag,
ég fékk þar jafnan níju eða meira.“
Eysteinn Pétursson viðrar hug-
leiðingu á Boðnarmiði: „Eitt sinn
ríkti óöld í Líbanon. Þá var Geir
Hallgrímsson annaðhvort forsætis-
eða utanríkisráðherra (nema hvort-
tveggja væri). Þá heyrði ég þessa
limru:
Ennþá er barist í Beirút
og boðskapur friðarins deyr út.
Svo til þess þeir hætti
ég held að það ætti
að hóta að senda hann Geir út.
Datt þetta í hug þegar ég sá á
það minnst hér á Fasbók, hvort for-
seti vor gæti ekki farið og haldið
aftur af Pútín (vini sínum).“
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Pútín, Beirút og átján
draugum
Í klípu
„ÞETTA HLÝTUR AÐ VERA ALVARLEGT,
HANN SVARAR EKKI EINU SINNI
TÖLVUPÓSTI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VARSTU AÐ AUGLÝSA EFTIR SÖLUMANNI
MEÐ REYNSLU Í UNDIRFÖTUM?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem yfirstígur
allar hindranir.
HVAÐ VARÐ UM
BÁTINN OKKAR?
ÉG VEIT
ÞAÐ
EKKI!
ÉG VAR REYNDAR
AÐEINS EFTIRÁ MEÐ
AFBORGANIR AF
HONUM ... ÞAÐ SKYLDI
ÞÓ EKKI ...
ÞAÐ ER ROK OG RIGNING
ÚTI, OG FIMBULKULDI.
ÚTI ER
KJÁNALEGT.Víkverji hefur stundum haft á orðiað hann sakni kalda stríðsins.
Allt var svo miklu einfaldara þá,
þegar heimurinn var svart-hvítur,
eða kannski frekar rauð-blár og allt-
af var hægt að treysta því að vondu
kommúnistarnir væru á bak við flest
allt það sem út af bæri í heiminum.
Annað en í dag, þar sem allt er grátt,
þó að það sé ekki eins kalt.
x x x
En fjarlægðin gerir víst fjöllin blá,og Víkverji er ekki lengur svo
viss um að hann vilji nokkuð fá kalda
stríðið til baka. Alltént ekki ef
marka má ónotatilfinninguna sem
hann fékk um helgina, þegar Rúss-
arnir ákváðu loksins að koma, tutt-
ugu og fimm árum of seint. Víkverji
hefur nefnilega legið upp á síðkastið
yfir bókum um upphaf fyrri heims-
styrjaldar og þótti margt í aðdrag-
andanum þar óþægilega svipað að-
stæðum á Krímskaganum. Náði
Víkverji um tíma að sannfæra sjálf-
an sig um að stundin væri upprunnin
og var hann næstum því þotinn út í
búð að kaupa allt þar sem bæri
merkinguna „ORA“, áður en hann
náði áttum.
x x x
Víkverji sá fyrir sér í hillingum aft-urhvarf til þess tíma þegar vita-
gagnslausar leiðbeiningar um
hvernig ætti að lifa af stríð voru í
símaskránni og almannavarnaflaut-
ur voru þeyttar fyrsta miðvikudag
þriðja hvers mánaðar í próf-
unarskyni. Eins gott að Rússarnir
vissu ekki af því, því að hvað hefði nú
verið betra en að láta til skarar
skríða einmitt þá, þegar allir héldu
að bara væri um æfingu að ræða?
x x x
En æfingarnar voru einu skiptinsem flauturnar gullu, fyrir utan
eitt skipti í Flóabardaganum, þegar
yfirmaður almannavarna kom í sjón-
varpið og lét okkur vita að flaugar
Saddams næðu nú ekki alla leið til
Íslands, en hugsanlega gæti hann
skotið einhverju á NATO-ríkið
Tyrkland, sem gæti þá hugsanlega
gert Íslendinga að styrjaldaraðilum.
Voru eflaust margir þakklátir fyrir
að fá þá útskýringu og önduðu létt-
ar. víkverji@mbl.is
Víkverji
En hvert tré þekkist af ávexti sínum,
enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum
né vínber af þyrnirunni.
(Lúkas 6, 44.)
Færir þér
fréttirnar
mbl.is