Morgunblaðið - 13.03.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014
Forstjóri Samkeppniseftirlitsinssegir að eftirlitið eigi að vera
„fljótt, leiðbeinandi og vel tennt“.
Það eigi að „skapa varnaðaráhrif
með því að uppræta brot fyrirtækja
og hindranir op-
inberra aðila með
sektum og annarri
íhlutun“.
Séu þessi orð bor-in saman við
reynsluna af störf-
um Samkeppnis-
eftirlitsins verður tæpast sagt að
það hafi staðið í stykkinu. Mál
ganga afar hægt fyrir sig og skipta
gjarnan litlu, jafnvel þó að niður-
staða fáist að lokum um að brot hafi
átt sér stað.
Eitt dæmið um mál sem dregisthefur úr hömlu er rannsókn á
ætluðum brotum Húsasmiðjunnar
og Byko. Forstjórinn segir málið
viðamikið, en nú eru þrjú ár frá því
að ráðist var í húsleitir og tugir
manna handteknir.
Enn fást ekki svör við því hve-nær málinu muni ljúka, en
hafi samkeppnisbrot átt sér stað,
sem ekki hafa verið færðar sönnur
á, hefði verið brýnt fyrir bygginga-
vörumarkaðinn að niðurstaða væri
löngu fengin. Hið sama á við reyn-
ist rannsóknin tilefnislaus.
Aðstæður á tilteknum mörk-uðum breytast hratt og
margra ára rannsóknir geta verið
þýðingarlitlar til að bæta sam-
keppni.
Þegar við bætist að niðurstaðarannsókna gagnvart tilteknum
aðilum leiðir af einhverjum undar-
legum ástæðum ekki til neins, svo
sem nýlegt dæmi af íslenskum fjöl-
miðlamarkaði sýnir, er lítið gagn
að starfsemi Samkeppniseftirlits-
ins.
Páll Gunnar
Pálsson
Hægagangur og
undarlegheit
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 12.3., kl. 18.00
Reykjavík 3 rigning
Bolungarvík 2 alskýjað
Akureyri 3 rigning
Nuuk -12 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 10 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt
Stokkhólmur 11 heiðskírt
Helsinki 10 skýjað
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 16 heiðskírt
Dublin 8 léttskýjað
Glasgow 11 léttskýjað
London 15 heiðskírt
París 17 heiðskírt
Amsterdam 15 heiðskírt
Hamborg 13 heiðskírt
Berlín 13 heiðskírt
Vín 15 heiðskírt
Moskva 5 heiðskírt
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -15 alskýjað
Montreal -5 alskýjað
New York 12 léttskýjað
Chicago -2 alskýjað
Orlando 21 skúrir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:53 19:22
ÍSAFJÖRÐUR 7:59 19:26
SIGLUFJÖRÐUR 7:43 19:08
DJÚPIVOGUR 7:23 18:51
Ólafur Haukur Johnson, skólastjóri
Menntaskólans Hraðbrautar, er
bjartsýnn á að viðræður við mennta-
málaráðherra að undanförnu leiði til
þess að skólinn hefji starfsemi á ný í
haust.
„Ég hef unnið að því að koma skól-
anum af stað aftur og mennta-
málaráðherra hefur verið jákvæður,“
segir Ólafur. Hann bætir við að beiðni
um viðurkenningu á skólanum og nýj-
an þjónustusamning sé hjá ráðuneyt-
inu. Viðurkenningin hafi verið í
vinnslu í töluverðan tíma og þjón-
ustusamning-
urinn komi von-
andi í kjölfarið.
Tíminn líði hratt
og innritun sé
hafin í framhalds-
skólana vegna
næsta skólaárs.
Æskilegt hefði
verið að vera með
í því ferli en stað-
an komi ekki í veg fyrir að starfsemi
geti byrjað aftur í gamla húsnæði
skólans í Faxafeni í haust.
Hraðbraut starfaði á árunum 2003
til 2012 og útskrifaði um 500 stúd-
enta. Ólafur leggur áherslu á að þótt
námið sé styttra en í öðrum fram-
haldsskólum sé hvergi slegið af náms-
kröfum og brottfall hafi verið minna
en annars staðar. Hann segir að fái
skólinn grænt ljós verði unnið eftir
nýrri námskrá. „Reynslan af skóla-
starfinu var góð en þetta er auðvitað
háð því hvað ráðherra er tilbúinn að
gera.“
Ólafur segist hafa lagt til að skólinn
yrði rekinn á kostnað eigenda út árið
og færi síðan inn á fjárlög næsta ár,
en framlög séu háð ákvörðun Alþing-
is. „Hraðbraut er fyrir ríkið og þjóð-
ina langhagkvæmasti framhaldsskól-
inn, bæði vegna þess að við höfum
fengið lægri greiðslur en aðrir skólar
og þar sem um tveggja ára nám er að
ræða koma nemendur út á vinnu-
markaðinn tveimur árum fyrr en aðr-
ir og borga skatta sem nema miklu
hærri upphæð til ríkisins en það sem
ríkið greiðir með nemendum. Með því
að gera samning við Hraðbraut vaxa
því tekjur ríkisins.“ steinthor@mbl.is
Vill bjóða Hraðbraut á ný í haust
Ólafur H. Johnson
,,Framtalsskilin fara mjög vel af stað.
Það hafa ekki komið upp nein teljandi
vandamál við framtalsgerðina,“ segir
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt-
stjóri. ,,Menn virðast vera heldur fyrr
á ferðinni,“ bætir hann við. Opnað var
fyrir skil skattframtala síðastliðinn
föstudag, 7. mars, og eru þau mun
betri en á sama tíma í fyrra. Að sögn
Skúla Eggerts voru skilin í gær orðin
20 til 25% meiri en á sama tíma fyrir
ári. Þegar rætt var við hann síðdegis í
gær var búið að skila rúmlega 24 þús-
und skattframtölum.
Þó að langflestir framteljendur
skili rafrænt á netinu koma margir á
starfsstöðvar skattsins vegna fram-
talsskilanna. Í gærdag komu t.a.m.
588 manns í húsnæði Ríkisskattstjóra
á Laugaveginum.
Framtalsfrestur einstaklinga er til
21. mars en hægt er að sækja um við-
bótarfrest og er hann lengstur veittur
til 1. apríl. Alls eru 266.260 framtelj-
endur á skrá að þessu sinni og hefur
þeim fjölgað um tæplega 4.000 frá í
fyrra. Margir skila svo svokölluðum
einföldum framtölum og eru skil
þeirra um 50% núna að sögn Skúla
Eggerts. omfr@mbl.is
Skil 20-
25% betri
en í fyrra
Framtalsskilin fara
mjög vel af stað
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Síðustu
forvöð
að kjósa!
Kosningu til stjórnar VR kjörtímabilið 2014 – 2016
lýkur kl. 12:00 á hádegi á morgun 14. mars.
Kosning er á Mínum síðum á www.vr.is
Láttu þig málið varða og hafðu áhrif með því að kjósa!