Morgunblaðið - 13.03.2014, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 13.03.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2014 Kvalir Slæmir tíðarverkir geta stafað af endómetríósu, sjúkdómi sem hef- ur oft í för með sér vítiskvalir. Greiningartíminn er á bilinu 6-10 ár. Malín Brand malin@mbl.is Tæplega 2.000 konur hafaverið greindar með endó-metríósu. Á heimsvísu eralgengast að miðað sé við að 5-10% kvenna séu með sjúkdóm- inn eða allt að 176.000.000 kvenna. Árið 2006 voru samtök um endómet- ríósu stofnuð hér á landi. „Það voru þau Ása María Björnsdóttir sem sjálf er með endó- metríósu, og Reynir Tómas Geirsson, okkar helsti stuðningsaðili, sem stóðu að stofnun samtakanna,“ segir Silja Ástþórsdóttir, formaður sam- takanna. Ýmsar kenningar eru um ástæð- ur endómetríósu að sögn Silju en grunnurinn er sá að frumur sem eru mjög svipaðar legslímufrumum sem finnast í innra lagi legsins finnast annars staðar í líkamanum en í leg- inu. „Yfirleitt í kviðarholinu en þó eru dæmi um að þær hafi fundist í nefi, heila, lungum og víðar í líkamanum þó að það sé sjaldgæft. Þessar legs- límufrumur, hvar sem þær eru í lík- amanum, bregðast við hormóna- breytingum eins og frumurnar í leginu gera þannig að þegar konan fer á blæðingar þá blæðir úr þessum frumum inni í líkamanum, sama hvar þær eru. Það má því nánast segja að þegar kona sem er með endómet- ríósu fer á blæðingar þá sé hún með vott af innvortist blæðingum í hverj- um mánuði,“ útskýrir Silja. Langur greiningartími Sjálf er Silja með endómetríósu og segir brýnt að fræða fólk um sjúk- dóminn. Enn megi greina ótta fólks við að ræða opinskátt um sjúkdóm- inn og því þurfi að breyta. Alvarlegur þáttur sem vert er að nefna í þessu samhengi er hversu langan tíma tek- ur að greina sjúkdóminn. „Samtök um endómetríósu um allan heim leggja mikla áherslu á aukna almenningsvitund og aukna fræðslu, líka fyrir heilbrigðisstarfs- fólk, og brýna fyrir fólki að stytta þurfi greiningartímann. Það er al- gengt að hann sé um sjö ár og hér á landi er hann að meðaltali sex til tíu ár frá því að kona fer að finna fyrstu einkenni þar til hún fær sjúkdóms- greiningu,“ segir Silja. Á þeim tíma getur sjúkdóm- urinn ágerst að sögn Silju og getur það haft í för með sér frekari skemmdir á líffærum og aukið lík- urnar á ófrjósemi. „Það gæti aukið líkurnar á sam- gróningum þannig að þau vandamál sem fylgja sjúkdómnum verða erf- iðari viðureignar. Þess vegna er mik- ilvægt fyrir þær sem slæmar eru að gripið sé fyrr inn í,“ segir hún. Þjáningin talin eðlileg Þegar Silja er spurð út í mögu- legar ástæður þess að endómetríósa sé ekki meðhöndluð strax segir hún að nokkrar ástæður geti verið fyrir því. „Ein ástæðan er hreinlega sú að það er eitthvað við viðhorf til blæð- inga sem virðist vera gegnumgang- andi, að það sé eðlilegt að konur séu með slæma tíðaverki. Þannig að kon- ur draga það jafnvel lengur heldur en fólk með aðra sjúkdóma að leita sér Nauðsynlegt að ræða hið forboðna Yfir sumu hvílir bannhelgi og í samfélaginu ríkir þegjandi samkomulag um að virða þá bannhelgi. Stundum hefur þetta þveröfug áhrif, eins og í tilvikum þeirra sem greinast með endómetríósu, eða legslímuflakk eins og það nefnist á íslensku, því margar konur halda að verkirnir í kringum blæðingar séu eðlilegir og leita sér seint hjálpar. Samtök um endómetríósu standa fyrir ýmsum viðburðum þessa vikuna til að rjúfa þagnarmúrinn sem ríkt hefur um sjúkdóminn. Morgunblaðið/RAX Göngudeild Það er ósk samtaka um endómetríósu að opnuð verði göngu- deild fyrir konur með endómetríósu og króníska kviðarverki. Í dag kl. 14 býðst foreldrum í fæð- ingarorlofi ókeypis leiðsögn um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til – Menning og sam- félag í 1200 ár. Í dag kl. 15.30 verður einnig opnuð á Þjóðminja- safninu sýning á kjólum eftir Að- albjörgu Jónsdóttur sem hefur í áratugi prjónað kjóla úr íslenskri ull. Kjólarnir eru hannaðir af miklu listfengi og telja yfir eitt hundrað. Sýningin er hluti af Hönnunarmars og stendur til enda mars. Vefsíðan www.thjodminjasafn.is Fegurð Einn af kjólum Aðalbjargar. Hundrað kjólar úr íslenskri ull Café Lingua verður á Háskólatorgi Háskóla Íslands í dag kl. 14 og þar gefst tækifæri til að kynnast hluta af þeim heimsmálum sem ratað hafa til Íslands. Nemendur, sem eru að læra íslensku sem annað mál, og aðrir áhugasamir, munu kynna tungumál sín á lifandi hátt. Kynningin fer fram á íslensku og gefst gestum svo kost- ur á að spreyta sig á tungumálum eins og rússnesku, kínversku, frönsku, ítölsku, norsku, sænsku, dönsku, úkraínsku, þýsku og georgísku og kynnast um leið fjöl- breyttri menningu. Café Lingua verður einnig í aðal- safni Borgarbókasafns í Tryggvagötu í dag kl 17, en þar ætlar sögumaður- inn Jose Antonio Nuñez Ukumari frá Perú, að vera með sögustund fyrir fullorðna. Hann vinnur sem sögu- maður í Lima, svo þetta er mikill hvalreki. Sögustundin er á spænsku. Heitt á könnunni og allir velkomnir. Endilega … … spreytið ykkur á rússnesku Café Lingua Til að vekja forvitni og auðga mannlíf og menningu á Íslandi. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Nú er lag að skella sér í tíma í heilsu- qigong í íþróttahúsi Háskóla Íslands í dag kl. 11.15, en það inniheldur róleg- ar hreyfingar sem slaka á spennu í vöðvum og liðum. Alla þriðjudaga og fimmtudaga bjóða Konfúsíusar- stofnun og Heilsudrekinn upp á ókeypis tíma í heilsu-qigong. Kennari er Guan Dongqing. Allir velkomnir. Slakar á spennu í vöðvum og liðum Farið frítt í heilsu-qigong Teygt Gott að gera rólegar æfingar. Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ Fæst án lyfseðils Veldur síður lyfjaáhrifum um allan líkamann eins og þegar töflur eru teknar inn Verkjastillandi bólgueyðandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.